Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________________FRÉTTIR_____________
Hjálmurinn bjargaði lffí Aðalheiðar Erlu Davíðsdóttur
„Meira töff að nota
hjálm en hjólastól“
un: ‘ofl leiöft rclð-
.. Stúlkaö ^ím vftrð
t6í«^í(
SS^ttUSSSjt
MÆÐGURNAR Stella Leifsdóttir
og dóttirin Aðalheiður Erla Da-
víðsdóttir eru
sannfærðar um að
reiðhjólahjálmur
hafi bjargað lífi
stúlkunnar þegar
hún varð fyrir bíl
28. mars í fyrra á
Kringlumýrar-
braut í Reykjavík.
„Henni finnst meira
töff að nota hjálm en hjólastól,"
sagði móðirin þegar rætt var við
mæðgurnar á heimili þeirra í
Kópavogi í gær.
Aðalheiður Erla var að leiða
reiðhjól sitt yfir Kringlumýrar-
braut á móts við Bústaðaveg þeg-
ar hún varð fyrir bflnum, stórum
jeppa með kerru. Hún hlaut alvar-
lega höfuðáverka en einnig slæmt
lærbrot. „Hún var í lífshættu í
þrjá til Qóra daga. Henni var
haldið sofandi í viku og var hún
13 daga á gjörgæslu," sagði Stella
um fyrstu dagana. Aðalheiður
Erla var síðan á barnadeild f sex
vikur og í kjölfarið tók við endur-
hæfing á Grensásdeild sem stóð
yfír í allt fyrrasumar. Aðalheiður
er enn í sjúkraþjálfun og iðju-
þjálfun og sækir einnig tíma í tal-
þjálfún.
„Æfingarnar eru kannski ekki
erfiðar lengur en það er ekki
alltaf gaman að þurfa að fara í
þjálfun þegar hinir krakkarnir
geta verið að gera eitthvað
skemmtilegra," segir Aðalheiður
Erla. Hún varð að læra að ganga,
borða og tala á ný - í raun læra
Stúlka slasast alvariega
varieðakerru. ,iy«aden<i
A« lœ£fkUvlkur er
Sjökrahús* bötuö-
stCilkan me» húo er
úvertah v„ á bennl
.. upf:
um núnan
aw-*****'**'
aögerö
allar daglegar athafnir og hún er
ekki ennþá farin að hjóla aftur að
neinu marki. „Jafnvægisskynið er
ekki nógu gott ennþá þannig að
ég hef lítið hjólað."
Fengu hjálm um
ieið og hjól
Stella Leifsdóttir segir að hún
hafi alltaf brýnt fyrir börnunum
að nota hjálm en Aðalheiður á tvö
yngri systkin. „Hér fer enginn út
nema með lijálm og það hefur Að-
alheiður gert frá því hún fór að
hjóla þegar hún var fjögurra ára,“
segir Stella og hvetur foreldra til
að sjá um að börn sín noti reið-
þjólahjáhna. „Þetta hefur ekki ver-
ið vandi því börnin fá hjálm um
leið og hjólið og því verður þetta
eðlilegur hlutur. Það er engin
spurning að í tilviki Aðalheiðar
bjargaði hann lífi hennar."
Aðalheiður er að verða fjórtán
ára og er í Hjallaskóla. Hún missti
tvo mánuði úr skóla á síðasta ári
en hefur síðan fylgst með jafnöldr-
um sfnum þrátt fyrir að þurfa að
veija verulegum tíma í æfingar og
það er margt sem hún á erfiðara
HJÁLMUR bjargaði lífi Aðalheiðar Erlu Davíðsdóttur þegar hún
varð fyrir bfl í mars í fyrra. Hún þarf enn að stunda ýmsa þjálfun og
endurhæfingu. Við hlið myndarinnar er hluti fréttar
Morgunblaðsins 29. mars 1996.
með en þeir enda hefur hún ekki stundum erfitt að stunda æfing-
sömu hreyfigetuna enn. „Það er arnar þegar vinirnir geta leikið
mikil vinna hjá henni aukalega og sér,“ segir móðirin.
Dagbjört og Rúna báru vitni í undirrétti í Istanbul f gærmorgun
Leitin að
Frakkanum
árangurslaus
LEITIN að Michael Leduc, 19 ára
gömlum frönskum ferðamanni, hefur
enn ekki borið árangur. Síðast er vit-
að um ferðir hans með áætlunarbíl
frá Reykjavík til Hvolsvallar 6. sept-
ember sl. Þar fór hann úr bflnum og
er ekkert vitað um ferðir hans eftir
það. Michael er með dökkt stutt hár,
grannvaxinn og 182 cm á hæð. Hann
gæti verið klæddur í rauða úlpu og í
brúna gönguskó. Hann er með grá-
grænan bakpoka og dökkgrænt
tjald. Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um ferðir Michaels eftir 6. sept-
ember sl. vinsamlegast hafi samband
við lögregluna.
Guðjón Jóhannsson skipstjóri á Hákoni ÞH
Þorskurinn étur alla rækju
FISKISKIPIÐ Hákon ÞH frá
Grenivík, kom til Akureyrar í gær-
dag með rúm 170 tonn af rækju
eftir þriggja vikna veiðiferð. Af því
eru um 120 tonn iðnaðarrækja sem
fara á til vinnslu hjá landvinnslu
Samherja hf.
Hákon var við veiðar fyrir norð-
an land og segir Guðjón Jóhanns-
son skipstjóri að ástandið á miðun-
um sé býsna einkennilegt. Þar sé
yfirfullt af þorski og hann sé að
verða búinn að éta alla rækjuna á
miðunum. „Það er ansi dýrt eldi á
þorskinum að láta hann éta helm-
ingi verðmeiri afurð en hann gefur
af sér sjálfur. Þarna voru sporða-
köst um allan sjó og því er alveg
ljóst að það þarf að veiða meira af
þorski.“
Guðjón segir mikið af smárækju
fyrir austan og hafi verið óhemju
mikil veiði í Langaneskantinum
undanfama daga. Fyrir vestan-
verðu Norðurlandi sé þorskurinn
hins vegar kominn í rækjuna og
þar sjáist ekkert af henni. En þar
hafi stærsta og besta rækjan hald-
ið sig. „Á þessum árstíma eigum
Morgunblaðið/Knstján
HÁKON ÞH kom til Akureyrar í gær með rúm 170 tonn af rækju.
Löndun hófst um leið og skipið lagðist að bryggju.
við því að venjast að vera í
mokveiði á rækju úti fyrir Mið-
Norðurlandi."
Þetta var fyrsti rækjutúr
Hákons eftir loðnuvertíð og segir
Guðjón að skipið verði á rækju
fram febrúarbyrjun að loðnuveiðar
hefjist á ný. „Við erum búnir með
okkar loðnukvóta en eigum nógan
rækjukvóta og megum veiða hátt í
2.000 tonn á þessu fiskveiðiári,"
segir Guðjón.
Halim A1 sýkn-
aður af ákæru
ÍSAK Halim A1 var sýknaður af
ákæru um brot á umgengnisrétti
Sophiu Hansen við dætur þeirra í
undirrétti í Istanbul í gærmorgun.
Þetta er þriðja ákæran af sex sem
höfðuð hefur verið gegn Halim Ai
fyrir brot hans á umgengnisréttin-
um.
Ekki náðist í Sophiu Hansen en í
fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi
sagðist hún undrandi og reið yfir
þessari niðurstöðu dómsins þar
sem Halim Ai hefði verið dæmdur í
tæplega fjögurra mánaða fangelsi
fyrir sams konar brot fyrir hálfu
ári í undirrétti í Istanbul.
í samtali við Sjónvarpið sagði
Sophia að niðurstaða dómarans
hefði annars vegar byggst á eið-
svörnum vitnisburði dætranna,
Dagbjartar og Rúnu, í gærmorgun
um að þær vildu ekki fara til móður
sinnar og hins vegar á málsgögn-
um, sem, að mati dómarans, sýndu
ekki fram á sekt Halims Al.
Sophia, sem sá dætur sínar í gær-
morgun í fyrsta sinn í tíu mánuði,
sagði hins vegar greinilegt að þær
hefðu ekki talað frá eigin brjósti.
Hún sagði ennfremur aðmálinu
yrði áfrýjað til Hæstaréttar í
Ankara.
Helgar-
pósturinn
seldur
STJÓRN Lesmáls ehf. útgáfufyrir-
tækis Helgarpóstsins samþykkti í
gær að að selja Perluútgáfunni ehf
rekstur og eignir félagsins.
Lesmál hefur gefið út Helgar-
póstinn síðan í október í fyrra og
Dar til blaðið hætti að koma út fyrir
um það bil einum mánuði.
I sameiginlegri fréttatilkynningu
frá Lesmáli og Perluútgáfunni
kemur fram að Perluútgáfan stefni
að útgáfu á nýju og breyttu frétta-
blaði á næstu vikum og kaupin á
rekstri Lesmáls séu liður í þeim
undirbúningi.
Útgáfa fréttablaðs
til skoðunar
Jón Axel Ólafsson, forsvarsmað-
ur Perluútgáfunnar, er í félagi við
fleiri aðila að undirbúa rekstur út-
varpsstöðvar. Hann segir að með
kaupunum hafi hann ekki verið að
sækjast eftir útgáfu Helgarpósts-
ins heldur fyrst og fremst að kaupa
eignir útgáfunnai'. „Þær henta mér
mjög vel til reksturs útvarps, sjón-
varps og hugsanlegrar blaðaút-
gáfu,“ segir Jón Axel.
Hann segist hafa til skoðunar út-
gáfu dagblaðs eða vikublaðs en
hann hafi hins vegar ekki í hyggju
að gefa út þá tegund blaðs sem
Helgarpósturinn var. „Ef ég fer út
í útgáfu, væntanlega ásamt fleir-
um, sem er nú til skoðunar, verður
það alvöru fréttablað," segir Jón
Axel.
Árni Björn Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Lesmáls, vildi ekki
gefa upp söluverð eigna fyrirtækis-
ins í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann segir að stjórnendur
Lesmáls muni nú snúa sér að gera
félagið upp og greiða skuldir þess
en óráðið sé hvað taki svo við.
----------------
Rafmagnslaust á
Egilsstöðum í iangan
tíma í fyrrinótt
Orsakir bil-
unar enn
ekki kunnar
RAFMAGNSLAUST varð hjá um
3.000 íbúum Egilsstaðabæjar og
nágrennis rétt eftir miðnætti að-
faranótt miðvikudagsins vegna bil-
unar í aðalspenni fyrir svæðið.
Að sögn Sigurðar Eymundsson-
ar, umdæmisstjóra Austurlands,
tókst að tengja varaspenni í
skyndi, eftir að bilunarinnar varð
vart í aðalspenninum, og koma
þannig rafmagni á hluta svæðisins
eftir tæpa tvo tíma. Þeir síðustu
fengu hins vegar ekki rafmagn fyrr
en um áttaleytið um morguninn.
Sigurði er ekki kunnugt um beint
tjón af völdum rafmagnsleysisins.
Sigurður segir ennfremur að
ekki sé vitað hvað kunni að hafa or-
sakað bilunina í aðalspenninum, en
vitað sé að postulínseinangrari í
spenninum hafi sprungið og smá-
vegis olía lekið út úr honum. Við
það sló vamarbúnaður spenninn
út.
Að sögn Sigurðar er verið að rífa
aðalspenninn í sundur til að leita að
ástæðu þess að einangrarinn
sprakk, en á meðan verður notast
við varaspenninn. Sigurður kveður
erfitt að segja til um hvenær búið
verði að gera við aðalspenninn, en
það fari eftir því hvað hafi valdið
biluninni. Hann vonast þó til að
hægt verði að gera við í dag eða á
morgun.