Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 12

Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stórum hluta öldrunarþjónustu sjúkrahúsanna í Reykjavík komið fyrir á Landakoti í > Á undanfömu ári hefur stærstum hluta öldrunarþj ónustu sjúkrahúsanna í Reykjavík verið komið fyrir á Landakoti. Þar eru nú átta deildir sem veita sérhæfða þjónustu fyrir aldraða, með 141 rúmi og30 dagrýmum sem nýtast 64 sjúklingum og móttökudeild. Arna Schram kynnti sér breytingarnar sem hafa kostað um 140 milljónir á þessu ári. INNLENDUM VETTVANGI s TARFSEMI Landakots- spítala hefur verið að breytast umtalsvert á sl. tveimur árum. Annars vegar vegna sameiningar við Borg- arspítalann með tilfærslu á bráða- þjónustu og skurðaðgerðum frá Landakoti yfir á spítalann í Foss- voginum og hins vegar með til- komu öldranarþjónustu sjúkrahús- anna beggja á Landakot, en henni hefur verið komið þar fyrir á und- anförnu ári samkvæmt sérstöku stefnumótandi áliti heilbrigðisráð- herra, ijármálaráðherra og borgar- stjóra frá því í ágúst 1996. Að sögn Pálma V. Jónssonar forstöðu- læknis öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur er búist við því að öllum tilfærslum verði lokið í næsta mánuði og að starfið fari að bera fullan ávöxt á næsta ári. í dag eru því átta deildir á Landakoti sem veita sérhæfða þjónustu fyrir aldraða. Þar af eru tvær deildir sem veita þjónustu fyrir heilabilaða, þtjár öldrunar- lækningadeildir, ein hjúkrunar- deild, ein dagdeild og ein móttöku- og endurkomudeild. Auk þess er á Landakoti nýuppgerð aðstaða til Á LANDAKOTI hefur verið komið upp nýrri aðstöðu fyrir iðju- og sjúkraþjálfun. „Gefur tækifæri til ákveðinnar sérhæfingar“ sjúkra- og iðjuþjálfun- ar fyrir aldraða, þar sem áður var barna- deild og kapella og þá er þar aðstaða til fé- lagsráðgjafar. Einnig er áfram á Landakoti röntgen- og blóðrann- sóknadeild. Að sögn Pálma hef- ur þróun öldrunar- þjónustu sjúkrahús- anna á Landakoti orð- ið í þremur áföngum. „í byrjun áratugarins var stofnuð hjúkrun- ardeild fyrir aidraða á Landakotsspítala en þá var Landakot sjálfstæð stofnun. Þessi deild er enn starfandi og er eina hjúkrunardeild Landakots," segir Pálmi. Pálmi V. Jónsson „Næsta skrefið varð í október 1995 þegar öldrunarhjúkrunar- deild Hafnarbúða var flutt inn á Landakot, en í sama mánuði var einnig ein af öldrunar- lækningadeildunum í Fossvogi flutt yfir á Landakot. Síðasti og stærsti áfanginn í til- færslu öldrunarþjón- ustu sjúkrahúsanna hefur átt sér stað und- anfarið ár, en í þeim áfanga hafa ailar öldr- unarlækningadeildir Landspítalans í Hátúni verið fluttar inn á Landakot, að einni undanskilinni, öldrunarmats- deild, sem fluttist inn í aðalbygg- ingu Landspítala á Landspítalalóð. Nýtt húsnæði frá grunni hefði kostað 600 milljónir Morgunblaðið/Sverrir STÓRUM hluta öldrunarþjónustu sjúkrahúsanna í Reykjavík hefur verið komið fyrir á Landakoti. Jafnframt flutti starfsemi Hvíta- bands, sem einkum sneri að heila- bilun, inn á Landakot en sú deild hafði þjónað öldruðum sl. 12 ár, sem hluti af Borgarspítala," segir Pálmi. Þannig er öldrunarþjónusta sjúkrahúsanna á Landakoti sam- sett úr starfsemi nokkurra stofn- ana, þ.e. frá Hátúni, Hafnarbúð- um, Hvítabandi og hluta af B-álmu Borgarspítalans í Fossvogi. Pálmi, Anna Birna Jensdóttir, ---------- hjúkranarfram- kvæmdastjóri öldrun- arsviðs SHR, Bjarney Tryggvadóttir hjúkr- unarframkvæmda- stjóri öldrunarlækn- ingadeildar Landspítalans og Þór Halldórsson, forstöðulæknir öldr- unarlækningadeildar Landspítal- ans hafa unnið náið saman að skipulagi og útfærslu þessara breytinga í samvinnu við tækni- deild SHR og þrjá fulltrúa hins opinbera. Teymisvinna á öldrunarlækningadeild Að sögn Pálma gefur þessi sam- eining öldrunardeilda úr ýmsum áttum tækifæri til ______________ ákveðinnar sérhæfing- ar á Landakoti. „Þann- ig verður til dæmis þjónusta við heilabil- aða öflugri og mark- vissari en áður og enn- fremur verður hægt að koma upp sérhæfðu öldrunarfræðabókasafni svo annað dæmi sé tekið,“ segir hann. Eins og fyrr sejgir eru átta deild- ir á Landakoti. A deildunum fyrir heilabilaða, sem eru í B-álmu Landakots, fer fram sérhæfð greining, meðferð og endurhæfing fyrir einstaklinga með sjúkdóma sem valda skerðingu á heilastarf- semi. Á dagdeild, sem er ájarðhæð í B-álmu, fer fram meðferð og endurhæfing fyrir þá einstaklinga sem geta nýtt sér meðferð á dag- inn en dvalið heima á kvöldin og um helgar. Á móttöku- og endur- komudeild, sem einnig er á jarð- hæð í B-álmu, starfar hópur fag- fólks sem í sameiningu vinnur að því að veita öldruðum einstakling- um og aðstandendum þeirra stuðn- ing ásamt því að sinna greiningar- vinnu. Meginviðfangsefni hjúkrunar- deildar, sem er á 1. hæði í A-álmu Landakots, er langtímahjúkrun aldraðra sem dveljast þurfa á sjúkrahúsi, en einnig fer þar fram hjúkran sjúklinga sem bíða eftir langtímavistun á hjúkrunarheimili og hjúkrun sjúklinga er koma í skammtímainnlögn til þjálfunar eða hvíldar. Óldrunarlækninga- deildirnar þijár sem eru bæði í A- og B-álmu Landakots sinna tíma- bundnum verkefnum, en þangað koma sjúklingar sem eiga við bráð veikindi og fjölþættan heilsufars- vanda að stríða. „Á öldrunarlækningadeildum fer fram teymisvinna lækna, hjúkr- unarfræðinga, sjúkraþjálfara, iðju- þjálfa og félagsráðgjafa, auk fleiri aðila ef við á,“ segir Pálmi. „Mark- miðið er greining á fjölþættum vandamálum; líkamlegum, andleg- um og félagslegum og að hver og einn aldraður nái sinni bestu hugs- anlegu færni, bæði andlega og lík- amlega. Aldraðir hafa oftar en ekki marga sjúkdóma, mörg lyf auk aldurstengdra breytinga sem allt spilar saman og gerir greiningu og meðferð flókna og vandasama. Því kemur til teymisvinna margra fagaðila til að greiða úr málum,“ segir hann. Pálmi segir að aldraðir þurfi oft lengri tíma en þeir sem yngri eru til að ná sér eftir alvarleg veikindi og að Landakot sinni því hlutverki að taka á móti öldruðum sjúkling- um sem þannig er ástatt um til jafns frá Landspítalanum og frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi. En jafnframt hafa öldrunarlækn- ingadeildirnar það hlutverk að taka við fólki úr heimahúsum til með- ferðar og endurhæfingar í sam- vinnu við heilsugæsluna og félags- þjónustuna. Kostnaður um 140 milljónir Pálmi segir að þær breytingar sem hafi verið gerðar á húsnæði Landakots til að þar mætti koma --------- fyrir nýrri starfsemi hafi kostað liðlega 140 milljónir króna á þessu ári. „Á móti leggst nið- ur óhentugt og úr sér gengið húsnæði í Há- ■”"“.. túni, Hvítabandi og Hafnarbúðum,“ segir Pálmi. „Ef byggja hefði átt yfir þá starfsemi frá granni hefði það kostað a.m.k. 600 milljónir og era þessar breyt- ingar því afar hagkvæmar. Einnig sparast ýmis rekstrarkostnaður og umsýsla, þar sem nú sameinast margir smáir þættir undir einu þaki. Hin öfluga starfsemi á Landakoti mun skapa nýjar og gjörbættar aðstæður til samskipta við heilsugæslu- og félagsþjónustu, en síðast en ekki síst verður þar _________ miðstöð kennslu og rannsókna," segir hann. Starfsemi öldrunar- þjónustunnar á Landa- koti verður nánar kynnt þann 16. október næstkomandi en þá eru liðin 95 ár frá stofnun Landakots. „Við nutum þeirrar ánægju að bjóða St. Jóseps systrum í heimsókn nýlega til að sýna þeim þær umbætur sem gerðar hafa verið á Landakoti und- anfarið ár og þótti okkur vænt um þá gleði og hlýju sem þær sýndu okkur þá,“ segir Pálmi. „Og ljóst er af kveðjum þeirra að blessun þeirra fylgir starfseminni á þeim miklu tímamótum sem nú eru að verða á starfsemi Landakots,“ seg- ir hann að síðustu. Átta deildir fyrir aidraða sjúklinga eru í Landakoti \ \ I ! . ; i i i f í i i i i >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.