Morgunblaðið - 25.09.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 21
I
I
I
í dag og næstu daga. Takmarkað magn.
íslenskir blómadagar
í blómaverslunum
/ íslenskar rósir
Rósasýning í
Ráðhúsi Reykjavíkur
laugardag 27. sept. og :
sunnudag 28. sept. kl. 12.-18. I
Skreytingarfólk sýnir vinnu sína.
Blómaverslanir og blómaframleiðendur
á íslandi efna til uppskeru-
hátíðar þessa viku.
Risavöndur
990 kr.
í öllum blómaverslunum
Margskonartilboð
og uppákomur
í blómaverslunum
alla daga vikunnar.
Félag blómaverslana
Blómaframleiðendur
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900
MAÐUR gengur um skógar-
leifar á Borneo eyju í Indónes-
íu. Eldana má m.a. rekja til
E1 Nino hafstraumsins og þess
hve seinar monsoon rigningar
eru í ár. Eldarinir hafa orsak-
að gífurlega mengun í Suð-
austur-Asíu og gær voru tvö
dauðsföll rakin til hennar.
Mengun eykst
í Suðaustur-Asíu
1000 manna
lið berst
við eldana
Singapore. Reuter.
EITT þúsund slökkviliðsmenn voru
í gær sendir frá Malasíu til Indó-
nesíu til þess að beijast við skógar-
elda er hafa valdið einhverri verstu
loftmengun sem orðið hefur í Suð-
austur-Asíu. Eldar á Súmötru og
Indónesíuhluta Borneo eru helsta
orsök mengunarinnar, sem nær til
nokkurra landa og skapað hættu-
ástand. í gær tilkynntu Indónesar
að tveir menn hefðu látist af völdum
mengunarinnar.
Tvö malasísk herskip fluttu
slökkviliðsmennina til Súmötru þar
sem þeir hófu erfiða baráttu við
eldana. Mengunin hefur valdið
mönnum áhyggjum í Malasíu,
Singapore, Brúnei og á Filippseyj-
um, en verst er ástandið í Sharaw-
ak, á Borneó norðanverðri. í gær
ríkti þar neyðarástand, sjötta dag-
inn í röð, börn mættu ekki í skóla
og opinberar skrifstofur voru svo
að segja mannlausar. Á þriðjudag
greindu heilbrigðisyfirvöld í
Sharawak frá 2800 veikindatilvik-
um, sem rekja mætti til mengunar-
innar.
Kveiktir til ad ryðja land
Eldarnir voru margir í fyrstu
kveiktir af jarðeigendum til þess
að ryðja land, en vegna mikilla
þurrka, sem raktir eru til veðurfars-
áhrifa heita hafstraumsins E1 Nino
í Kyrrahafi hafa eldarnir geysað
og breiðst út í margar vikur.
Um tvær milljónir manna búa í
Sharawak og hafa embættismenn
reynt að sannfæra íbúana um að
ekkert sé hæft í orðrómi um að
matarbirgðir séu á þrotum, höfnin
í höfuðborginni, Kuching, sé opin,
þótt flug til Sharawak liggi niðri.
Sá kvittur komst á kreik að vatns-
ból hefðu tæmst og íbúar keyptu
upp allt flöskuvatn í verslunum.
Klukkan fímm síðdegis í gær að
staðartíma (kl níu árdegis að ís-
lenskum tíma) mældist mengunin í
Kuching 638 á mengunarmæli-
kvarðann sem notaður er í Malasíu,
en samkvæmt honum er mengun á
bilinu 300-500 hættuleg fólki.
Mest fór mengunin í 850 á þriðju-
dag.
I Kúala Lúmpúr, höfuðborg Mal-
asíu, var fjölskyldum starfsfólks
bandaríska sendiráðsins gefinn
kostur á að yfirgefa landið ef það
óskaði eftir því. I kanadíska sendi-
ráðinu var starfsfólk til skiptis flutt
til Ástralíu í viku til þess að komast
í hreint loft.
Lftið útlitsgölluð heimilistæki með verulegum afslætti
Örbylgjuofnar, þvottavélar, þurrkarar,
kæliskápar og uppþvottavélar.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
///'