Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 25
LISTIR
Ævintýralegt brúðkaup
KVIKMYNPIR
Stjörnubíð/
■ Kringlubíó
BRÚÐKAUP BESTA VIN-
AR MÍNS „My Best Friend’s
Wedding" ★★★
Leikstjóri: P J. Hogan. Handrit: Ron-
ald Bass. Kvikmyndataka: Laszlo
Kovacs. Aðalhlutverk: Julia Roberts,
Dermot Mulroney, Cameron Diaz,
og Rupert Everett. 105 mín. Banda-
rísk. Zucker Brothers Production/
Predawn Productions/ TriStar Pict-
ures. 1997.
í Brúðkaupi eru hefðbundnum
hlutverkum ævintýrisins snúið á
haus. Aðalkvenhetjan, Jules (Julia
Roberts), er gleðispiliir og iilvirki á
meðan keppinauturinn um hylli
prinsins, Kimmy (Cameron Diaz),
er gullna, góða stúlkan. Áhorfendur
em aldrei látnir vera í vafa um að
persóna Jules er frekar illa innrætt,
hún er eina persónan í ástarþn'hyrn-
ingum sem reykir, ömggt merki í
Hollywood nútímans um ljótar hugs-
anir og gerðir. Til þess að vega upp
á móti slæmum persónueinkennum
er Roberts aftur komin með „Pretty
Woman“-krullumar og flennistóra
brosið notað ótt og títt.
Brúðkaup fjallar um matargagn-
rýnandann Julianne, eða Jules eins
og vinir hennar kalla hana. Hún er
sjálfstæður stórborgarbúi sem á erf-
itt með tilfinningalegu hliðina á sam-
böndum sínum við hitt kynið. Þegar
besti vinur hennar og fyrrverandi
elskhugi, íþróttafréttaritarinn Mic-
hael (Dermot Mulroney), skilur eftir
skilaboð á símsvara hennar, og er
greinilega mikið niðri fyrir, heldur
Jules að hann ætli að efna gamalt
loforð um að biðja hennar ef hvor-
ugt er gift á 28 ára afmælisdaginn.
Þegar í ljós kemur að Michael er
ekki að hringja til að biðja hennar
heldur til þess að bjóða henni í brúð-
kaup sitt og kærustunar Kimmy
bregður Jules í brún.
Hálfgert stundarbijálæði grípur
hana og hún ákveður að leggja allt
í sölurnar til þess að koma í veg
fyrir giftinguna og ná Michael fyrir
sig. Eins og Mulroney túlkar Mich-
ael þá er greinilegt að hann er fínn
náungi en enginn stórsjarmur til
þess að flippa út yfir. Jules veit líka
innst inni að hann er ekki rétti
maðurinn fyrir hana, en óttinn við
að brúðkaupið svipti hana mannin-
um sem hefur verið hennar tilfinn-
ingaakkeri í mörg ár ruglar hana
í ríminu.
Myndin vill að áhorfendur haldi
með norninni úr sögunni um Mjall-
hvíti, og kraftur stjörnuútgeislunar-
innar sá til þess að ég, að minnsta
kosti, hélt með Jules þó ég styddi
ekki málstaðinn sem hún berðist
fyrir (hennar kvenlega „Mission
Impossible“: að giftast).
Roberts stendur sig með prýði í
aðalhlutverkinu og það sama má
segja um Mulroney og Diaz. Þau
skila sínu vel en maðurinn sem stel-
ur senunni er Rupert Everett í hlut-
verki trúnaðarvinar og ritstjóra
Jules, George. Hann reynist vinur
í raun, og reynir að hjálpa Jules
eftir því sem hann getur. Everett á
eitt besta söngatriði myndarinnar
þó að helíum-þrísöngur Cristopher
Masterson og félaga standi því ekki
langt að baki.
Heildarsvipur myndarinnar er
svolítið ójafn en skemmtileg söng-
atriði, stjömuleikur, og taugaveikl-
uð rómantík tryggja að þegar upp
er staðið er Brúðkaup besta vinar
míns laglegasta skemmtun.
Anna Sveinbjarnardóttir
TVÆR síðustu myndir ástralska
leikstjórans P.J. Hogan hafa verið
seldar sem rómantískar gaman-
myndir. Jú, þeir eru gamansamar
og rómantík í einhverri mynd skipt-
ir aðalpersónurnar máli en „Muri-
el’s Weddding" átti virkilega
dramatísk og sorgleg andartök, og
þó Brúðkaup besta vinar míns
standi nær hefðum Hollywood-geir-
ans, enda með Hollywood stjörnu í
aðalhlutverkinu, þá brýtur hún
ýmsar reglur rómantískra gaman-
mynda.
20% afsláttur
eða spennandi
kaupauki við kaup
á þremur hlutum.
Kynning á
GiVENCHY
haust- og vetrarlínunni
1997-1998
Bára Björnsdóttir,
snyrtifræðingur,
kynnir og
leiðbeinir
í dag kl. 14-18
VESTURBÆJAR APÓTEK
Föstudag 26/9
kl. 14-18
H Y G E A
jnyrtifiruverjlun
Kringlunni
man
rma