Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 31
30 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÆVILIKUR ALDRAÐRA ÆVILÍKUR yngra og miðaldra fólks hafa aukizt álíka mikið hér á landi og í nágrannalöndum síðustu áratugi. Jón Snædal, yfirlæknir og formaður Öldrunar- ráðs Islands, segir í grein hér í blaðinu í fyrradag, að öðru máli gegni um ævilíkur aldraðra. Þær hafi aukizt verulega minna hér á landi á síðustu 15 árum en í Finn- landi, Noregi og Svíþjóð. Ævilíkur áttræðs fólks og eldra hafi þannig aukizt um rúmt ár á þessu tímabili í viðmiðun- arlöndunum en aðeins um einn mánuð hér á landi. For- maður Öldrunarráðs varpar fram þeirri spurningu í til- vitnaðri grein, hvort lakari kjör aldraðra hér en þar valdi þessum mun, þar eð mikilvægt sé að fullorðið fólk geti búið við fjárhagslegt öryggi. Spurningin er ekki út í hött. Ástæður þess að meðal- ævi íslendinga jókst mjög, einkum á síðara helmingi líð- andi aldar, eru fyrst og fremst raktar til bætts efna- hags, betri aðbúðar [húsnæðis, fæðis og vinnuaðstöðu] og bættrar heilbrigðisþjónustu. í ljósi þessa er spurning yfirlæknisins meir en íhugunarverð, þegar ævilíkur aldr- aðra hér á landi vaxa aðeins um tólfta hluta þess sem gerizt í nefndum grannríkjum okkar. Landssamband eldri borgara og Öldrunarráð íslands standa að ráðstefnu hér á landi í dag, þar sem erlendir og innlendir hagfræðingar og sérfræðingar um öldrunar- mál fjalla um uppbyggingu íslenzka lífeyriskerfisins og með hvaða hætti eldri borgurum verði tryggð sem bezt afkoma. Eðlilegt verður að telja að í framhaldi af ráð- stefnunni og í ljósi upplýsinga, sem fram koma í grein formanns Oldrunarráðs hér í blaðinu, verði efnt til ábyrgrar rannsóknar á því, hvers vegna ævilíkur aldr- aðra íslendinga hafi aukizt umtalsvert minna en aldr- aðra Finna, Norðmanna og Svía. Það hefur verið efnt til rannsókna af minna tilefni. SKYLDA AÐ NOTA REIÐHJÓLAHJÁLM UM NÆSTU mánaðamót, 1. október, tekur gildi reglu- gerð um skyldu barna og unglinga undir fimmtán ára aldri að nota reiðhjólahjálm. Þetta er fagnaðarefni, því löngu var orðið tímabært að gera notkun hlífðar- hjálma að skyldu. Um það vitna tíð slys og meiðsl barna og ungmenna og reyndar fullorðinna reiðhjólamanna einnig. En það er ekki nægjanlegt, að settar séu reglu- gerðir verði framkvæmd þeirra ekki fylgt eftir og ástæð- unum fyrir setningu þeirra ekki komið til skila. Þess vegna er það hlutverk foreldra að sjá til þess, að börn þeirra noti öryggishjálm. Einnig er nauðsynlegt, að þeir aðilar, sem fjalla um umferðaröryggi og slysavarnir, láti til sín taka og fylgi reglugerðinni eftir með fræðslu og leiðbeiningum. Samkvæmt könnun, sem Kristinn R. Guðmundsson, heilaskurðlæknir á Borgarspítala, gerði fyrir fáum árum á höfuðáverkum barna, sem þangað komu, höfðu ríflega 50% þeirra slasast á reiðhjólum. Afleiðingar höfuðáverka geta verið mjög alvarlegar og augljóst er, að notkun hlífðarhjálma getur komið í veg fyrir þá eða minnkað verulega. Þess vegna er það ekkert áhorfsmál, að nota öryggishjálm við hjólreiðar, og í því sambandi má enn minna á, að tveir piltar, tólf og fjórtán ára, slösuðust alvarlega á reiðhjólum fyrir síðustu helgi og hvorugur var með hlífðarhjálm. Þau hörmulegu tíðindi bárust sl. sunnudag, að yngri drengurinn hefði látizt af meiðslum sínum. Kannanir sýna, að yngstu börnin eru viljugust til að nota hjálma, en erfiðara sé að fá ungmenni á tánings- aldri til þess. Nú verður það skylda til fimmtán ára ald- urs. Ljóst er þó, að jafnt börn, ungmenni og fyllorðnir þurfa að nota reiðhjólahjálma og líta verður á þá sem öryggistæki fyrst og fremst. Mjög algengt er, að fullorðn- ir, sem margir eru að sjálfsögðu foreldrar, noti ekki ör- yggishjálma. Þeir eru því ekki sú fyrirmynd barna sinna sem æskilegt er. VSÓ-skýrslan er aðeins fyrsta skrefið í átt að endanlegri niðurstöðu um framtíðarskipan sjúkrahúsmála á suðvesturhorninu Varast verður að umræðan fari langt fram úr efninu Hin svokallaða VSÓ-skýrsla er aðeins byrjunin á löngu ferli í átt að framtíðarskipan sjúkrahúsmála á suðvesturhominu. Svanbjöm Thor- oddsen, hjá VSÓ-Ráðgjöf, segir í samtali við Önnu G. Ólafs- dóttur að töluvert af gagnrýni á hugmyndir í skýrslunni eigi við um nánari útfærslur síðar í ferlinu. Varast verði að umræðan fari langt fram úr efninu eða týnist í smáatriðum. SVANBJÖRN Thoroddsen, hjá VSÓ-Ráðgjöf, er verkefnisstjóri við skipulagsathugun sjúkrahús- anna. Framtíðarsýn skýrslunnar gerir ráð fyrir að sex sjúkrahús í Reykjavík og næsta nágrenni sameinist í eitt stórt háskólasjúkrahús. UPPBYGGING VERKEFNIS cH RATHUG ---,--- Núverandi staða T J Greining lykiltalna I mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmjmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmM Styrkleikar og veikleik a r | I F r a m tTð a r s ý n | 1 ______r______ M a rkm i ð o g s t e f n a - Akvörðun um samstarfstorm Skipulag og ferlari --------T— -----—1 Aðstöðu- og mannafIaþörf I ------— ,— -------------J Lausnir og f ramkvæmdamáti | I Kostnaður og fjármögnun | -----------T----------- Aðgerðaáætlun I Á teikningunni má sjá hversu langt er í tand með að endanleg niður- staða náist um framtíðarskipan sjúkrahúsmála á suðvesturhorninu. SVANBJÖRN, sem er verk- efnisstjóri við skipulagsat- hugunina, byijaði á því að rifja upp að vegna umfangs verkefnisins hefði verið byrjað á því að skipta því niður í nokkra hluta og velja erlent ráðgjafafyrirtæki til samstarfs. „Við völdum ráðgjafafyr- irtækið Ernst & Young. Fyrirtækið var valið vegna góðs árangurs við verkefni af svipuðum toga á hinum Norðurlöndunum. Með því var stuðl- að að faglegum vinnubrögðum í öllu ferlinu," sagði hann. VSÓ og Ernst & Young hafa skil- að af sér fyrsta hluta verkefnisins. Fyrsti hlutinn felur í sér greiningu á núverandi ástandi og tillögur um framtíðarsýn. „Næstu skrefin felast í því að útfæra framtíðarsýnina nán- ar. Þar þarf að taka ákvarðanir um samstarfsform sjúkrahúsanna, út- færa skipulag og ferla, meta aðstöðu og mannaflaþörf, leggja mat á kostnað og leita leiða til fjármögn- unar.“ - Hverju svarar þú gagnrýni á tölulegan grunn skýrslunnar? „Við styðjumst við tölur frá stjórnendum sjúkrahúsanna. Töl- urnar eru með ákveðnum þekktum aðferðum notaðar til að reikna út afköst. Markmiðið er að geta með samanburði, á milli innlendra sjúkrahúsa og samanburðarhæfra sjúkrahúsa á Norðurlöndunum, greint betur aðalatriðin. Að ljósara verði hvar gengur vel og hvar skór- inn kreppir og hægt er að gera bet- ur. Okkar tölulegu upplýsingar eru algjörlega fullnægjandi í ofan- greindum tilgangi. Þegar tölumar eru notaðar til að bera íslensk sjúkrahús saman við önnur norræn sjúkrahús kemur í ljós að árangur íslensku sjúkrahúsanna er almennt góður. Flestir taka undir niðurstöðurnar og eru sammála um að mælikvarðinn sé gagnlegur til að leiða þessa staðreynd fram. Töl- umar eru ekki síður gagnlegar til að leggja mat á stærðargráðu þess ávinnings sem við teljum raunhæft að ná fram á grundvelli framtíðarsýnar. Stór hluti ávinningsins liggur í því að draga úr tvöföldun, t.d. varðandi innkaupa- og birgðahald, apóteks- og skrifstofurekstur, tæknimál o.s.frv. Ekki er tekinn með í reikninginn ávinningur til lengri tíma, t.d. vegna úrbóta fyrir langlegusjúklinga. Framtíðarsýnin gerir ráð fyrir að langlegusjúklingar séu utan samein- aðs háskólasjúkrahúss. Hugsanlegt er að hægt sé að veita aðra tiltekna þjónustu utan kerfisins.“ Ávinningur 520 ársverk Svanbjörn segir að ávinningurinn sé metinn á grundvelli ársverka og áætlaður samtals um 520 ársverk. „Önnur sýn er að segja að ávinning- urinn geti falið í sér aukna þjónustu sem nemur þessum mælda ávinningi eða fjölda ársverka. Það er skoðun okkar ráðgjafanna að það verði ein- mitt mikilvægt að nota ávinninginn innan kerfisins til þess að bæta þjón- ustu, stytta biðlista, rækta betur háskólahlutverkið eða fjárfesta í nýrri tækni og þekkingu," segir hann og nefnir að enginn hafi lagt til að 520 manns yrði sagt upp störf- um. - Hafið þið ekki orðið vör við skekkjur í einstökum tölum og út- reikningum? „Fram hafa komið ábendingar um að skekkjur séu í einstökum tölum og hefur heilbrigðisráðuneytið óskað eftir leiðréttingum á þeim frá sjúkrahúsunum. Leiðréttingar á út- reikningum verða að sjálfsögðu gerðar í beinu framhaldi. Hins vegar er alveg klárt að leiðréttingar, sem okkur er kunnugt um, hafa hvorki áhrif á heildarniðurstöðurnar né til- lögur okkar um framtíðarsýn.“ Framtíðarsýn - Hvernig fór vinnan við fyrsta hlutann fram? „Við greiningu á núverandi ástandi er uppbygging starfsemi sjúkrahúsanna ítarlega kortlögð. Við fengum lykiltölur úr starfsem- inni og notuðum í samanburðinum til að greina aðalatriðin. Þann grunn, ásamt viðtölum við 80 til 100 stjórnendur stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík og framkvæmdastjóra smærri sjúkrahúsanna í nágrenni Reykjavíkur, notuðum við til að meta styrkleika og veikleika núver- andi ástands. Á grundvelli matsins, sem alltaf hlýtur að ákveðnu marki að vera huglægt, byggjum við svo tillögur um framtíðarsýn. Framtíðarsýn er heppilegasta leiðin til að standa vörð um mikinn og mikilvægan styrkleika og yfirvinna veikleikana. Þarna ligg- ur tengingin á milli núverandi ástands og framtíðarsýnarinnar. Þessi nálgun er sú aðferðafræði sem við hjá VSÓ-Ráðgjöf höfum ávallt stuðst við í stefnu- mótunarvinnu með fyrir- tækjum og stofnunum. Sömu aðferðafræði nota samstarfsaðilarnir við í stefnumótuninni og reyndar allir aðrir á þessu sviði,“ sagði Svanbjörn. „Stefnumótun af þessu tagi er alveg nauðsynleg í öllum rekstri fyrirtækja og stofnana og öll vel rekin fyrirtæki tileinka sér slík vinnubrögð.“ Samtenging á þjónustu - Hvert er meginmarkmiðið? „í okkar huga er alveg ljóst að sameining ein og sér skilar litlum árangri. Lykilatriðið í okkar tillögum er samtenging á þjónustu sjúkrahús- anna. Að dregið verði úr óhag- kvæmri tvöföldun. Þrátt fyrir gagn- rýni á skýrsluna úr ýmsum áttum virðast flestir sammála því að ná megi árangri með auknu samstarfi, samþættingu og skýrari verkaskipt- ingu. Framtíðarsýnin gengur út á að byggð verði upp sjúkrahúsþjónusta þar sem sjúklingurinn er í öndvegi. Þjónusta verði byggð upp út frá þörfum sjúklinga, t.d. verði tryggt að sjúklingurinn fái rétta þjónustu á réttum tíma svo tími hans fari ekki til spillis, hann sé ávallt upp- lýstur um gang meðferðar, árangur o.s.frv. Við leggjum áherslu á að við uppbygginguna verði hverju klínísku sérsviði stýrt frá einum stað. Með því verði dregið úr tvöföld- un og margföldun þjónustunnar eins og oft er raunin í dag. Skýrsluhöfundar telja að tvær leiðir séu að ákjósanlegri framtíðar- sýn. „Önnur leiðin og sú sem við teljum vænlegri til árangurs er að færa starfsemi sjúkrahúsanna undir eina yfirstjórn sem fyrst. Sú yfir- stjóm vinni að því að útfæra og innleiða framtíðarsýnina. Hin leiðin er að sjúkrahúsin starfi áfram sem sjálfstæðar einingar en vinni að því að samþætta þjónustuna og skipta skýrar með sér verkum eftir fyrir- mælum sameiginlegrar stýrinefnd- ar.“ Takmarkað val sjúklinga - Ófáir hafa nefnt að óheppilegt væri að útiloka samkeppni á milli sjúkrahúsa með einu sameinuðu sjúkrahúsi. „Þegar litið er til þeirrar niður- stöðu að gæði þjónustunnar eru mikil og afköst víða góð er freist- andi að draga þá ályktun að árang- urinn megi að hluta til rekja til sam- keppni á milli stóru sjúkrahúsanna tveggja. Slíkar ályktanir geta hins vegar verið varhugaverðar því að raunverulegt val sjúklinga á sjúkra- húsi er mjög takmarkað. Yfírleitt hefur sjúklingurinn ekki nægjanleg- ar upplýsingar til að taka jafn mikil- væga ákvörðun. Ef um er að ræða bráðatilfelli ræður sjúklingurinn engu um hvert hann er fluttur held- ur ræðst ákvörðunarstaðurinn af því hvort sjúkrahúsanna er með bráða- vakt þann daginn en sjúkrahúsin skipta að jafnaði með sér bráðavakt annan hvern dag. Þegar sjúklingur- inn þarf að koma inn aftur fer hann yfirleitt inn á sama sjúkrahús. Hins vegar hafa sjúklingarnir í mörgum tilfellum tækifæri til að velja þegar um er að ræða fyrirfram skipulagð- ar aðgerðir. Þá er hann að velja sér sérfræðing fremur en sjúkrahús. Þess vegna er erfitt að réttlæta sam- keppni á milli tveggja sjúkrahúsa út frá þessu sjónarmiði. Önnur rök um mikilvægi sam- keppni snúast um að samkeppni við- haldi nauðsynlegu aðhaldi. Þannig geti samkeppni t.d. tryggt að ef ein- hver deild á öðru sjúkrahúsinu standi sig illa muni sambærileg deild á hinu sjúkrahúsinu bjóða upp á betri þjónustu og veita með því að- hald. Þarna erum við hins vegar fremur komin að áherslu á rétta stjórnun og hvata til stjórnenda en samkeppni. Við teljum að hægt sé að byggja upp stjórnunarlega og fjárhagslega hvata til stjórnenda og starfsmanna til þess að tryggja fag- legan metnað og gæði þjónustunnar - og það kallar ekki á tvöfalt og dýrara kerfí. Réttir stjómunarlegir og fjárhagslegir hvatar og saman- burður, annars vegar á milli deilda innanlands og hins vegar á milli sambærilegra deilda hér og erlendis, geti verið nægileg til tryggja fagleg- an metnað og þar með gæði þjón- ustunnar," segir Svanbjörn og bætir við að nú séu sum sérsvið aðeins á öðru sjúkrahúsinu. Engum dytti í hug að segja að þau sérsvið væru öll slæm af því að þau væm ein- göngu á einu sjúkrahúsi. Mikill faglegur metnaður Svanbjörn minnir á að mikilvægur styrkleiki felist í því hversu faglegur metnaður sé mikill innan sjúkrahús- anna. „Læknar og hjúkranarfræð- ingar sækja yfirleitt sína sérmennt- un til útlanda og koma hingað frá mörgum löndum með nýjustu tækni og þekkingu í meðferð sjúkdóma. Sú staðreynd er lykilatriði í miklum gæðum þjónustunnar hér á landi. Fá lönd búa við þennan kost,“ segir hann og leggur áherslu á að fjár- hagslegir og stjórnunarlegir hvatar þurfi að tryggja að hæfustu starfs- mennimir veljist til stjómunar- starfa." - Er heppilegt að aðeins sé slysa- og bráðaþjónusta í annarri sjúkra- húsbyggingunni? „Framtíðarsýnin byggist á því að æskilegt sé að í framtíðinni verði slysa- og bráðamóttaka á einum stað enda verði um eitt sjúkrahús að ræða þar sem teymi sérfræðinga starfar þótt í tveimur byggingum sé. En nánari útfærsla á þessu verð- ur eitt af mikilvægustu viðfangsefnunum á næstu stigum verkefnisins." - Sú rödd heyrist að eðlilegt sé að byggja sér- staklega undir sameinað sjúkrahús. „Okkar framtíðarsýn byggist á því að ná árangri innan núverandi ramma, þ.e. í sjúkrahúsbyggingun- um tveimur. Aðeins era um tveir kílómetrar á milli bygginganna og ekki er útilokað að sjá fyrir sér að jafnumfangsmikil starfsemi, sem þarna er og verður, fari fram í tveim- ur byggingum. Hins vegar þarf nán- ari útfærsla á síðari stigum verkefn- isins að leiða í ljós með hvaða hætti þessar byggingar verði best nýttar, hvaða starfsemi á að vera hvar og hvaða breytingar þarf að gera á byggingum o.s.frv. Jafnframt verð- ur að meta hvaða fjárfestingar eru hagkvæmastar í framtíðinni. Fram- tíðarfjárfestingar þurfa að taka mið af sameiginlegri framtíðarsýn þann- ig að ekki verði um að ræða tvöföld- un í fjárfestingum." - Nýtist reynslan af sameiningu Borgarspítala og Landakots við sameiningu stóru sjúkrahúsanna? „Þegar kemur að útfærslunni er ekki spurning að hægt verður að draga mikinn lærdóm af sameiningu Borgarspítala og Landakots. Áður en hafist var handa vom gerðar áætlanir um sameininguna. Eftir á að hyggja virðast ýmsir telja að það hafí ekki verið gert nægilega ítar- lega og nákvæmlega. í þessari vinnu sem við emm að tala um hér á að fara að kafa mjög djúpt í hvern ein- asta þátt.“ Starfsmenn með í ráðum Svanbjörn sagði afar mikilvægt að starfsmenn yrðu hafðir með í ráðum og fengju upplýsingar um ferlið jafnóðum. „Við erum að tala um að breytingin snerti á fjórða þúsund starfsmenn og svo auðvitað sjúklingana. Þjónustan er auðvitað fyrst og fremst fyrir sjúklingana og sjúklingamir greiða fyrir þjónustuna með skattpeningum sínum og eiga heimtingu á því að hún sé sem allra best og fjármunirnir nýttir á sem hagkvæmastan hátt. Rekstrarkostn- aður allra sex sjúkrahúsanna er á bilinu 14 til 15 milljarðar á ári.“ Svanbjörn leggur áherslu á að starfsumhverfi sjúkrahúsanna sé sérstakt. „Stöðugt eru gerðar kröfur til meiri og betri þjónustu, tækninni fleygir fram og kröfur aukast sífellt um fjárfestingar í þekkingu og bún- aði. Á sama tíma er fjárhagur sjúkrahúsanna að þrengjast ár frá ári. Ef við ætlum að tryggja áfram jafngóða heilbrigðisþjónustu og hingað til, er þörf á gagngerum breytingum. Styrkja þarf sjúkrahús- in til þess að þau geti staðist kröf- urnar við þessar aðstæður og það teljum við best tryggt með því að byggja hér upp eitt öflugt háskólasjúkrahús sem hefur kraft og burði til þess að geta í framtíðinni boðið það besta sem völ er á.“ Svanbjörn segir að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um framhald verkefnisins. „Aðstandendurnir, heilbrigðisráðuneytið, fj árm ál aráðu- neytið og borgarstjórinn í Reykjavík, hafa ekki tekið ákvörðun um fram- haldið. Við teljum mjög mikilvægt að geta hafist handa við að reyna að útfæra framtíðarsýnina og draga inn í þá vinnu lykilfólk úr hópi stjórnenda og starfsmanna sjúkra- húsanna. Hvað tekur langan tíma að fara í gegnum ferlið fer eftir því hvernig það er keyrt. Það tekur hins vegar aldrei skemmri tíma en hálft til heilt ár.“ Val sjúklinga á sjúkrahúsi takmarkað Mikill fagleg- ur metnaður á sjúkrahúsum Málþing um aukna umferðarfræðslu í skólum Oru gg leið í skólann og forvarnir MÁLÞING á vegum Umferð- arráðs um hvemig auka megi og efla umferðar- fræðslu í skólum var hald- ið sl. þriðjudag. Meðal fyrirlesara var Torgeir Tande, fræðsiustjóri Trygg Trafíkk í Noregi, sem eru systursamtök Umferðarráðs. Einnig fluttu m.a. erindi Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Reykjavík, Þröstur Hjör- leifsson, varðstjóri í Kópavogi, og Helga Hannesdóttir barnageðlæknir. Trygg Trafíkk er tengiliður milli opinberra aðila og fijálsra félaga í Noregi og innan vébanda þess eru 19 fylkisfulltrúar og 58 svaeðisfulltrúar. Torgeir Tande segir að sérstöku átaki hafí verið hrundið af stað í Noregi á vegum samtakanna til að kanna þær leiðir sem skólaböm þurfa að fara á leið sinni í skólann. Tilgangurinn með >essari rannsóknarvinnu sé að geta krafíð hið opinbera um úrbæt- ur þar sem þeirra er þörf. 6 ára börn eru í fyrsta sinn að hefla skólanám í Noregi á iessu haust og hafa samtökin áhyggjur af_ velferð þeirra í umferðinni. Á síðasta ári slös- uðust 1.500 böm á aldrinum 0-16 ára í umferðinni í Nor- egi, sem er um 15% af öllum slysum á bömum í landinu. 40% þessara bama létust í slysunum. Tande segir að engar reglu- gerðir séu sérstaklega sniðnar að umferð við skóla en vonir standi til að norsk stjómvöld setji reglugerðir í þá veru sem taki gildi næsta vor. í fram- haldi af rannsókninni verði m.a. lagðar fram tillögur um hámarkshraða á götum við skóla, uppsetningu hraða- hindrana og fleira í þeim dúr. „Við teljum mjög mikilvægt að tekið verði tillit til staðla okkar í væntanlegri reglugerð og sömuleiðis er mikilvægt að vita hvað sé örugg leið í skól- ann. Án staðla á þessu sviði gæti menn greint á um hvað teldist örugg leið eftir lands- hlutum. Örugg leið í skólann fyrir böm í fyrsta bekk gmnn- skóla telst t.d. vera vistgata að því tilskildu að leyfður há- markshraði þar sé ekki hærri en 30 km á klst. Við götur þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km á klst. gemm við kröfu um að sé gangstétt," segir Tande. Einelti og jafn réttur Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfírlög- regluþjónn í Reykjavík, greindi frá fræðsluverkefninu ÞOR, Þú og raun- veruleikinn, fyrir 10 til 16 ára gömul grunnskólaböm sem lögreglan fór af stað með í fyrra. „Við útbjuggum námsefnið með hlið- sjón af svipuðum verkefnum í Banda- ríkjunum og Svíþjóð. Lögreglan vinnur námsefnið með börnunum og undirbýr þau undir lífið og þau lög og reglur sem gilda í landinu. Við fórum líka inn á einelti og reynum að vekja börnin til umhugsunar um það að allir eigi sama rétt. Við fjöllum líka um áhrifagimi og að það eigi ekki að láta aðra segja sér að bijóta lög, stela, reykja og drekka. Bamið á að geta sagt nei ef það vill ekki taka þátt í slíku. Við erum því að taka undir það sem flestallir foreldrar segja við bömin sín en það virðist oft eins og það þurfí þriðja aðil- ann til að auka áhrifamáttinn," sagði Geir Jón. Frelsi eða vanræksla Helga Hannesdóttir, bama- og ungl- ingageðlæknir, sagði að samkvæmt rannsóknarniðurstöðum virtist heimilið vera algengasti slysastaður bama og umhverfið utan heimilisins hjá eldri bömum. Hún sagði ábyrgð foreldra ekki síst fólgna í því að þeir átti sig á þvi hvenær barnið hefur sjálft þroska til að sjá og skilja aðsteðjandi hættur. „íslendingum hefur verið tíðrætt um það að böm hafí mikið frelsi til athafna og það er eins og frelsið hafí breyst í vanrækslu í allt of mörgum tilvikum þegar slys hafa átt sér stað. Umburðar- lyndi foreldra er einnig hættulegt og getur leitt til slysa ef það er viðvar- andi,“ sagði Helga. Unglingar virþjaðir Þröstur Hjörleifsson, varðstjóri í Kópavogi, hefur starfað að umferð- arfræðslu í Kópavogi í 18 ár. Hann kvaðst hafa sérstakan áhuga á að virkja unglinga til þess að taka þátt í forvamastarfí með það að markmiði að auka virðingu þeirra og annarra nemenda fyrir umhverfí sínu og al- mennum reglum. Þröstur hefur lagt fram tvær tillögur í þessu augnamiði á skólanefndarfundi í Kópavogi og kynnti hann hana í öllum skólum í Kópavogi. Fyrri tillagan felur í sér að 10. bekkj- ar nemendur taki að sér hlutverk gang- brautarvarða í um það bil hálfa klukku- stund að morgni hvers skóladags við fjölfomustu gangbraut við skólann. Þeim er ekki ætlað að hafa afskipti af umferð heldur eiga þeir með viðvem sinni að vera eins og lifandi aðvöranar- merki á gangstéttinni við gangbrautina til aðstoðar þeim yngri sem era að koma í skólann í fyrsta sinn. Tækju allir nemendur í 10. bekk þátt í gang- brautarvörslunni yrði viðvera hvers og eins varla meiri en í eitt skipti annan hvern mánuð. Tryggingafélag sæi síð- an um kaup á hlífðarfatnaði gangbraut- ai-varða og nauðsynlegum útbúnaði þeirra auk þess að leggja fram sem ákveðinn hvata umsamda fjárhæð í ferðasjóð 10. bekkja nemenda í lok skólaársins. Seinni tillagan felur í sér að nemend- ur í 10. bekkjum láti sig varða um- gengni barna og ungmenna með það að markmiði að hamla gegn hvers kon- ar skemmdarverkum. Þeir haldi sjálfir fund í skólanum um málefnið eða heim- sæki aðrar bekkjardeildir. Þeir reyni þannig að bæta umgengni barna ogC ungmenna, efli auk þess skilning þeirra og virðingu fyrir eigin umhverfí og stuðli þannig að viðhorfsbreytingu þeirra sem stundað hafa rúðubrot eða önnur skemmdarverk. Tryggingafélag leggi síðan umsamda fjárhæð í ferða- sjóð 10. bekkjar nemenda í lok skóla- ársins sem þakklætisvott fyrir störf að forvörnum. Geir Jón Þórisson Þröstur Hjörleifs- aðstoðaryfirlög- son, varðstjóri í regluþjónn. Kópavogi. Helga Hannesdótt- Torgeir Tande, ir, barna- og ungl- fræðslusljóri ingageðlæknir. Trygg Trafikk. |*#ÍÍÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.