Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 38
&8 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir og bróðir, VALDIMAR ÖRN JÓNSSON, Smárahlíð 3B, Akureyri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Seli 21. septem- ber, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26. september kl. 10.00. Unnur Pálsdóttir, Svanur Heiðar, Þröstur Heiðar, Margrét Kristinsdóttir, systkini hins látna og fjölskyldur þeirra. t Ástkær eíginkona mín, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir okkar, DAGRÚN HELGA HAUKSDÓTTIR, Hlíðarhjalla 63, Kópavogi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 24. september Bergþór Bjarnason, Sigrún Steinsdóttir, Vignir Bragi Hauksson, Gíslína Vilhjálmsdóttir, Andri Már Bergþórsson, Haukur Harðarson, Þóra Valgerður Jónsdóttir, Bjarni Sæmundsson. t Elskulegur faðir okkar, sonur og bróðir, ÁRNI GUÐMUNDSSON, andaðist á Vaðbrekku, Jökuldal, fimmtudaginn 18. september. Jarðsett verður frá Hólskirkju, Bolungarvík laugardaginn 27. september kl. 14.00. Gunnar Árnason, Jón Árnason, Hrönn Árnadóttir, Guðrún Sigurðardóttir og systkini hins látna. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON, Hjallbraut 33, Hafnarfirði, sem lést laugardaginn 20. september sl., verður jarðsunginn frá Viðistaðakirkju á morg- un, föstudaginn 26. september, kl. 15.00. Björgvin Sigurðsson, Aðalheiður Einarsdóttir, Margrét Vilbergsdóttir, Hrönn Sigurjónsdóttir, Björgvin Högnason, Lillý Jónsson, Auður Adolfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Grétar Þorleifsson, Sigurður Már Sigurðsson, Sigurlín Sigurðardóttir, Þorleifur Sigurðsson, t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN I. ZÓFONIASSON, frá Núpi, Dýrafirði, síðast til heimilis á Kópavogsbraut 1A, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 26. september kl. 13.30. Ólöf S. Jónsdóttir, Stefán Lárusson, Einar Jónsson, Soffía Guðrún Ágústsdóttir, Sigurður B. Jónsson, Sólrún Hafsteinsdóttir, Brynjólfur Jónsson, Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins i bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. "-•jlöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. VALTÝR HÁKONARSON + Valtýr Hákon- arson fæddist hinn 17. febrúar 1923 að Rauðkolls- stöðum, Eyja- hreppi, Hnappa- dalssýslu. Hann lést í Reykjavík 14. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Hákon Kristjánsson, bóndi og póstafgreiðslu- maður á Rauðkolls- stöðum, f. 27.10. 1884, d. 31.5. 1971, og kona hans Elísa- bet Jónsdóttir, húsfreyja, f. 20.6. 1885, d. 28.1. 1963. Systk- ini Valtýs voru: Jóhann, bif- reiðastjóri, f. 1919, d. 1980, Kristján, útvarpsvirki, f. 1921, d. 1995, og Guðbjörg (Stella), f. 1925 d. 1995. Hinn 24. maí 1952 kvæntist Valtýr Ingunni Eyjólfsdóttur, húsfreyju, f. 14. apríl 1928 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru: Eyjólfur Brynjólfsson, sjómaður og síðar verkamaður f. 1889, d. 1973, og kona hans, Kristín Arnadóttir, húsfreyja, f. 1899, d. 1974. Dætur Valtýs og Ingunnar eru: 1) Elísabet, framhaldsskóiakennari, f. 1952, í Reykjavík, maki Gísli Skúlason, framhaldsskólakenn- ari, synir þeirra: Skúli, f. 1990, og Hákon, f. 1995. Áður átti Elísabet Kára Hrafn Kjartans- son, f.1972. 2) Kristín, banka- fulltrúi, f. 1954 í Kaupmanna- höfn, maki Þórður Daníel Berg- mann, fjármálastjóri, synir þeirra: Valtýr, f. 1976, Þröstur, f. 1979 og Ingvi Björn, f. 1981. 3) Margrét, sálfræðingur, f. 1958 í Kaupmannahöfn, maki Henrik Zachariassen, útsend- ingarstjóri sjónvarps, synir þeirra: Alexander, f. 1993, og Þungur harmur er kveðinn að fjölskyldu míns elskulega tengda- föður, Valtýs Hákonarsonar, við skyndilegt fráfall hans. Að kvöldi sólbjarts síðsumardags kvaddi hann þetta jarðneska líf á 75. aldursári. Þegar ég horfi 24 ár aftur í tím- ann, sé ég hve lánsamur ég var að kynnast honum og að eiga hann að tengdaföður og vini. Hann var grandvar og háttvís heimsborgari sem er öllum ógleymanlegur sem kynntust honum. Hann sóttist ekki eftir athygli, hafði þó sterka útgeisl- un og bað sjaldan um nokkuð fyrir sjálfan sig. Öðrum gaf hann þó mikið og var mér eilíf uppspretta fróðleiks og innblásturs. Hann var víðlesinn og hafði fastmótaðar skoðanir á þeim málefnum sem hann hafði áhuga á. Fjölskyldu sinni var hann örlátur og umhyggjusam- ur og fylgdist vel með hvað hver var að sýsla. Að koma á hlýlegt og Magnús, f. 1996. 4) Anna María, kerfis- fræðingur, f. 1964 í Reykjavík, maki Tomasz Ríkarður Tomczyk, flugmað- ur, sonur þeirra: Snorri, f. 1993. Valtýr stundaði nám í Flensborgar- skóla, Hafnarfirði og Samvinnuskóla- num í Reykjavík og brautskráðist það- an 1943. Hann var verslunarmaður hjá Kaupfélagi Aust- fjarða, Seyðisfirði 1943-1944. Réðst til Hf. Eimskipafélags Islands 1944 sem bókari á aðal- skrifstofu til 1949. Á árinu 1949 starfaði hann sem skrifstofu- maður á skrifstofu félagsins í Kaupmannahöfn. Deildarsljóri í farþegadeild 1950-1954, skrif- stofustjóri á skrifstofu félags- ins í Kaupmannahöfn 1954- 1962 er hann réðst sem skrif- stofustjóri á aðalskrifstofu fé- lagsins í Reykjavík til ársloka 1979. Framkvæmdastjóri flutn- inga- og markaðssviðs 1980- 1986, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs 1986-1989. Lét af störfum 30.11.1989. Sat í stjórn Vinnuveitenda- sambands íslands í 15 ár, frá 1969 og í framkvæmdasljórn þess frá 1973-1983. Átti sæti í stjórn Lífeyrissjóðs Dagsbrún- ar og Framsóknar á starfstíma þess sjóðs, frá 1970-1995. Auk þess gegndi hann fjölmörgum öðrum félags- og trúnaðar- störfum. Valtýr var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1990. Útför Valtýs verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fallegt heimili hans og Ingu tengda- móður minnar var í senn notalegt og auðgandi augnakonfekt. Saman höfðu þau skapað fagra umgjörð um lif sitt, innan- sem utandyra, hvarvetna gaf að líta handbragð Valtýs og útsjónarsemi í uppsetn- ingu á munum, jafnvel geymslan var rannsóknarefni út af fyrir sig í uppröðun og hver hlutur vandlega merktur. Hann var listrænn og hafði yndi af að skoða fagra bygg- ingarlist á ferðalögum um heiminn og mikill unnandi klassískrar tón- listar. Þegar hann settist í helgan stein árið 1989 eftir 45 ára farsælt starf hjá Eimskipafélagi íslands, gafst þeim hjónum betri tími til að dveljast til lengri eða skemmri tíma erlendis. Oft keyrði hann vítt og breitt eftir hraðbrautum sem ungur maður værh Þá naut hann þess að ferðast um ísland og lagði að baki nokkrar hringferðir um landið, síð- + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HREINN SVAVARSSON, Austurbrún 6, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 20. september sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 26. september kl. 13.30. Margrét Hreinsdóttir, Stefán Steingrímsson, Jónas Þór Hreinsson, Marta Hallgrímsdóttir, Júiía Hreinsdóttir, Arnþór Hreinsson, Daði Hreinsson, Lena Bernhoj, Karl Smári Hreinsson og afabörnin. ast á nýliðnu sumri. Líf okkar allra verður fátæklegra án hans, við geymum allar minningarnar okkur til hughreystingar. Elsku Inga mín, Guð styrki þig nú þegar þinn góði lífsförunautur er horfínn á braut. Blessuð sé minn- ing Valtýs Hákonarsonar. Þórður D. Bergmann. Kveðjustund er runnin upp. Straumur tímans ber okkur fram um veg og minnir okkur á að vinir koma og vinir kveðja. Morgundag- urinn er okkur hulinn. Kær vinur, ijúfur og góður maður er skyndilega hrifinn burt frá eiginkonu, dætrum og öðrum ástvinum. Það er oft erf- itt að sætta sig við hið óumflýjan- lega. í huga okkar koma margar góðar minningar sem við áttum með þeim hjónum á liðnum árum. Ekki hefði okkur dottið í hug er við vorum hjá þeim á þeirra fallega heimili á björtu sumarkvöldi fyrir stuttu, að þetta yrðu síðustu sam- verustundir okkar allra saman. Þær minningar er gott að eiga. Valtýr var mikið prúðmenni og traustur maður, átti gott með að umgangast fólk. Hann fór of fljótt. Að leiðarlokum kveðjum við góðan vin, með þakklæti fyrir samfylgd- ina. Hans verður sárt saknað. Elsku Ingunn, dætur og ástvinir. Missir ykkar er mikill. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðj- um Guð að styrkja ykkur í sorginni. Kristbjörg og Daníel. Skjótt hefur sól brugðið sumri, þvi séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri. Sofinn er nú sðngurinn ljúfi í svölum fjalldölum. Grátþögull harmafugl hnípir á húsgafli hveijum. (Jónas Hallgrímsson) Þegar góður vinur kveður þennan heim, vill hugurinn hvarfla að stöðu mannsins í jarðiífinu. Við gerum okkur þá betur en ella grein fyrir því, að við erum hér sem gestir og fáum sjálf litlu um það ráðið, hvað gistingin verður löng. Okkur er heldur ekki veitt nein vitneskja um það, hvað á und- an hefur farið, né hvað á eftir kem- ur. Þar kemur trúin til bjargar. Það er skrýtið að setjast niður og skrifa minningarorð um hann Valtý, mág okkar; svo stutt frá því að við vorum öll íjölskyldan saman norður í Eyja- firði við brúðkaup Bjarna frænda okkar og Heiðu. Við vissum jú, að hann Valtýr var veikur, en ekkert okkar óraði fyrir því, að hann ætti svo stutt eftir. Oft höfðum við verið saman, stór- flölskyldan, með börnum okkar, en síðari ár, eftir að vinnu lauk hjá okkur, nutum við þess systkinin að eyða stundum saman með mökum okkar. Valtýr var afar traustur maður og trygglyndur; aðalsmerki hans var rósemi hugans. Allri starfsævi sinni varði hann hjá Eimskipafélagi íslands. Þar hefur hann skilað sínu dagsverki með þeim sóma, sem við öll þekkt- um hann af. Valtýr var mikill og góður heimil- ismaður, heimili þeirra hjóna, Ingu og Valtýs, var alla tíð fagurt og þau voru samstiga í því sem öllu öðru. Dætrum sínum voru þau umhyggjusamir foreldrar. Síðar nutu tengdasynir og barnabörn þess hins sama. Það eru ekki nema fáein- ar vikur síðan þau fóru saman til Kaupmannahafnar til að vera í af- mæli barna sinna. Þessa ferð var hann mjög ákveð- inn að takast á hendur. Kannski hefur hann fundið að ferðirnar yrðu ekki fleiri. Sími 555-4477
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.