Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 47
Kærleika í sljórnmál
Frá Guðmundi Rafni Geirdal:
ÉG ÞAKKA allskjóta birtingu á
bréfi eftir mig sem bar yfirskriftina
„Siðareglur fyrir stjórnmálamenn -
já, takk!“ Ég tel að bréfið hafi ver-
ið ágætt innlegg í umræðu sem
hefur átt sér stað á undanförnum
árum, meðal annars með nýlegri
i leiðaragrein í Morgunblaðinu um
að taka ætti upp siðareglur hér á
landi. Með því eykist skriðþunginn
í áttina að því að réttara þyki að
vísa í siðareglur ef einhverjir stjórn-
málamenn þyki fara á svig við
þær. Tilfellið er að fleiri stjórnmála-
menn en lögmenn hafa hlotið
menntun og starfsréttindi í atvinnu-
stéttum sem hafa með sér siðaregl-
ur. Til að mynda er Halldór As-
grímsson endurskoðandi og endur-
I skoðendur hafa með sér siðareglur.
En það er annað sem mig langar
til að ræða í þetta sinn, og það er
á vissan hátt í beinu framhaldi af
síðasta bréfi, og það er hvaða eigin-
leikar liggja að baki því að menn-
fylgi siðareglum yfirleitt! Siðspek-
ingar undanfarinna alda hafa talið
að forsendan liggi í hugarfari
manna, hvort sem það liggi í trú
þeirra á Guð eða þá trú á æðra
gildi. Meðal nýaldaráhugamanna
I hefur á undanförnum árum verið
lögð áhersla á að bein ræktun ein-
staklingsins á kærleika leiði sjálf-
krafa af sér betri breytni, án þess
að sá hinn sami þurfi eitthvað sér-
staklega að reyna það. Ef það dug-
ar á fjölda einstaklinga sem gegna
alls kyns störfum í þjóðfélögum
jarðar, af hveiju ætti það þá ekki
að duga á stjórnmálamenn, einkum
og sér í lagi af því að það eru til
dæmi um slíka leiðandi aðila á er-
f lendum vettvangi. Það er í því ljósi
sem ég óska eftir því að eftirfar-
andi bréf/grein sé birt, hvort sem
þið birtið hana sem bréf til blaðs-
ins, eða sem aðsenda grein.
Kærleikur hefur áhrif
I
>
I
)
)
I
)
>
)
)
I
Heimsbyggðin hefur mátt þola það
á undanfarinni viku að tvær kær-
leiksríkar konur eru horfnar af sjón-
arsviði alþjóðlegrar umfjöllunar, ann-
ars vegar Díana fyrrum prinsessa
sem vildi verða, og varð eftir dánar-
dægur, drottning í hjarta fólksins,
og hins vegar móðir Teresa, sem
fómaði sér í þágu fátækra um ára-
tuga skeið. Hin kærleiksríku áhrif
sem þessar tvær konu höfðu voru
svo mikil að helstu stjómmálamenn
mannkynsins héldu um þær ræður
sem vora fluttar í alþjóðafréttum.
Það merkilega gerðist að forsætisráð-
herra Bretlands, Tony Blair, flutti
ræðu við útför Díönu, þar sem hann
las upp úr Korinubréfi Nýja testa-
mentisins um kærleikann. Bill Clinton
hélt ræðu við Hvíta húsið þar sem
hann sagði að missir væri að þessum
tveimur konum.
Tilfellið er að kærleikur getur
haft mikil áhrif á stjórnmál, hvort
sem það er hérlendis eða erlendis.
Sagt er í andlegum fræðum að
kærleikur sé allt sem er. Sumir trú-
aðir einstaklingar segja að Guð sé
kærleikur. Jógameistarinn Gurudev
sem kom hingað til lands á árunum
1990 til 1994 sagði að kærleikur
væri bindiefnið sem byndi allt sam-
an þannig að það verkaði sem ein
heild og með því að hver einstakl-
ingur næði að virkja með sér kær-
leikann þá leiddi allt annað af sjálfu
sér. Meistari hans, Babuji, sagði
að hin einu sönnu trúarbrögð mann-
kynsins væru kærleikur.
Það merkilega er að kærleikur
er ekki einungis til staðar meðal
einstalinga sem eru að þroska sjálfa
sig eða meðal sanntrúaðs fólks sem
ræktar sína trú í einlægni, heldur
hafa komið fram stjórnmálaleiðtog-
ar sem hafa kærleika, og aðra svip-
aða eiginleika, sem megindrifkraft-
inn á bak við sín stjórnmál. Þjóðir
heimsins hafa kynnst báðum þeirra
á undanförnum áratugum, annars
vegar er það Mahatma Gandhi og
hins vegar Dalai Lama. Áhrif
Ghandis á þjóð sína voru svo sterk
að enn í dag er hann helsta bindi-
efni stjórnmála í Indlandi og þess
að Indveijar haldast sem ein þjóð.
Og enn í dag er Dalai Lama virtur
meðal landsmanna sinna, þrátt fyr-
ir að hann hafi verið útlægur frá
landi sínu í hartnær 40 ár.
Það merkilega er að ýmsir
frammámenn hér á landi hafa haft
kærleikann á orði. Þannig ræddi
hinn nýkjörni forseti íslands um
kærleikann í fyrstu áramótaræðu
sinni. Og hinn nýkjörni verðandi
biskup ræddi um mikilvægi þess
að biskupinn væri trúaður þjónn
sem hvetti til kærleika meðal safn-
aðanna. Deilur eru heldur ekki eins
hatrammar á Alþingi og áður var.
Þannig gæti verið að myndast and-
rúm fyrir aukna hlýju, tillitssemi,
umburðarlyndi og skilning meðal
núverandi stjórnmálamanna, sem
væri stórt framfarastökk frá
„Gaggó vest“ og „sandkassaleik"
sem þeir eru sagðir hafa iðkað á
undanförnum árum. Ég hvet því til
þess að kærleikur fái aukið vægi í
stjórnmálum hér á landi, þó ekki
væri nema um eina ögn. Með því
væri kominn enn einn jákvæður
eiginleikinn í áframhaldandi upp-
byggingu okkar ágætu þjóðar. Megi
svo vera.
GUÐMUNÐUR RAFN GEIRDAL
skólastjóri.
Öllum þeim sem glöddu mig og heiðruðu ú dtt-
rœðisafmœli mínu hinn 13. september síðastlið-
inn með heimsóknum, gjöfum, góðum kveðjum
eða á annan hátt, flyt ég innilegar þakkir og
blessunaróskir.
Jón Þórarinsson.
fZZ.
Sjúkranuddstofa Wolfgangs
Furugerði 3, 108 Reykjavík.
Tímapantanir í símurn
553 5332 og 896 4759.
Domus Medica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Mikið úrval
af herraskóm
Verð: 5.995,-
Tegund: 4441
Svart leður í stærðum 40-46
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
8 vikna námskeið í Mætti, Skipholti 50A.
Upplýsingar og innritun í síma 551 4949 eftir kl. 15.00.
Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 1. október.
Guðrún Gestsdóttir, sjúkraþjálfari.
BaRNaBPvöLt
fyrir börn 5-12 mán.
- syngjum
-dönsum
- leikum
- liðkumst
-styrkjumst
-hreyfumst
-fræðumst
„Föst störf tilheyra iðnbyltingunni,
ekki morgundeginum“
Námstefna meö William Bridges, þriöjudaginn 30. september. sriárnunarfðlaa
Skráning hjá Stjórnunarfélagi íslands f síma 533 4567. ísiands
Prestige"
lúxus boxdýna
90x200 sm Áður: 45.000,- I
105x200 sm Áður: 49.900,- I
120x200 sm Áður: 59.900,- !
140x200 sm Áður: 79.900,-
Lúxus dýnuhlff úr hreinu Latexi innrfalin í verði
Honey moon" tógahúsgögn
1 ■ - ý&lpVHK Nú aðeins:
Tll l 6.990,-
Hvrtur skenkur
Áður: Nú aðeins:
7 99° - 5.990,-
2 manna
sófi/svefnsófi
Nú aðeins:
12.900
Glœsilegur
sófi ó hjólum
1 Verðáður
ff sófi: 29.900,-
skemill: 9.900,
a!M sornau
Skeifunni 13
108 Reykjavlk
568 7499
Reykjavíkurvegi 72
220 Hafnarfjörður
565 5560
NorSurlanga 3
600 Akureyri
462 6662
Holtagöröum
v/Holtaveg
104 Reykjavik
588 7499
Líka til í beyki
aðeins 1000 kr. aukalega.