Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eldri borgarar afhenda Alþingi kröfugerð um bætt kjör Morgunblaðið/Halldór FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra og Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, taka við kröfu- gerð samtaka aldraðra við Alþingishúsið. FJÖLDI eldri borgara safnaðist saman við Alþingishúsið þegar kröfugerðin var afhent. Ofbeldislaust sjónvarp á Bamarásinni Kre^jast tengingar launa og eftirlauna MIKILL fjöldi eldri borgara safnaðist saman við Alþingis- húsið í gær þegar Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssam- band eldri borgara og Samtök aldraðra afhentu kröfugerð þess efnis að tengingu launa og eftirlauna verði komið á að nýju. Tenging þessi var afnumin með bráðabirgðaákvæði árið 1995. „Eldra fólk, sem komið var út af vinnumarkaði þegar efna- hagslífið varð fyrir áföllum fyr- ir nokkrum árum galt að fullu þeirrar niðursveiflu kjara sem þá varð,“ sagði Benedikt Davíðs- son, formaður Landssambands eldri borgara, í ræðu sem hann hélt þegar kröfugerðin var af- hent. „Kjör þessa fólks voru þá bundin órjúfanlegum tengslum við þróun almennra kjara verka- fólks.... Nú þegar kaupmáttur almennra launa fer stígandi hef- ur viðmiðun eftirlauna verið rofin úr tengslum við almenna launaþróun í landinu." Benedikt sagði tenginguna vera forsendu sáttar milli kyn- slóða og milli stjórnvalda og eldra fólks. Hann krafðist einnig aðgerða til lækkunar jaðar- skatta, lægra skattþreps fyrir lífeyristekjur og endurskoðunar almannatrygginarlaganna. „VIÐ ætlum eingöngu að bjóða upp á efni fyrir börn og unglinga, það verður helgað þeim. Það gerir eng- inn annar í dag. Á dagskrá verður erlent efni sem við talsetjum og íslenskt efni sem við framleiðum að einhverju leyti með börnunum," sagði Böðvar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Hljóð og mynd, sem reka mun sjónvarps- stöðina Barnarásina. Ráðgert er að hefja útsendingar í gegnum breiðband Pósts og síma í desember. Böðvar Guðmundsson segir að hægt verði á kaupa áskrift eingöngu að Barnarásinni og muni verðið vera innan við þúsund krónur á mánuði. Gjald fyrir allar 20 rás- irnar sem Póstur og sími ráðgerir að senda um breiðbandið segir hann hins vegar verða kringum tvö þús- und krónur. Sent verður erlent efni sem verð- ur tal- og hljóðsett og framleiða á innlent efni eftir föngum. Senda á ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna hefur endurflutt þingsályktunartil- lögu um að taka beri upp veiði- leyfagjald í tengslum við úthlutun veiðiheimilda fyrir afnot af sameig- inlegri auðlind. Fyrsti flutningsmaður er Ágúst Einarsson en allir þingmenn Þing- flokks jafnaðarmanna standa að tillögunni. Þar er lagt til að Al- þingi kjósi nefnd til að undirbúa löggjöf um veiðileyfagjald og skili áliti fyrir lok apríl 1998. í greinargerð með tillögunni kemur fram að ýmsir hagfræðingar telji að fiskveiðiarðurinn muni nema 15-30 milljörðum króna árlega þegar fyllstu hagkvæmni sé náð. út alla daga milli klukkan 16 og 19 og um helgar milli 8.30 og 12 að auki og segir Böðvar stefnuna þá að bjóða efni án ofbeldis. Telur hann ljóst að teiknimyndir með of- beldi hafi slæm áhrif á börn og því verði sneitt hjá slíku efni; nóg sé af öðru skemmtilegu efni. Áskriftar- og auglýsingatekjur Dagskrá stöðvarinnar verður fjármögnuð með áskriftartekjum, auglýsingum og beinni kostun og segir Böðvar að það verði að koma í ljós hvemig hlutfallið verði. Póstur og sími munu annast útlán á mynd- lyklum og innheimtu áskriftar- gjalds. Böðvar segir þessa leið til miðlunar sjónvarpsefnis mun hag- kvæmari en þá að stofna sérstaka sjónvarpsstöð með eigin dreifikerfi. Sjö manns munu starfa við Barna- rásina auk nokkurra leikara og annarra sem koma þurfa við sögu í einstökum þáttum. Núverandi fiskveiðiarður sé mun minni, eða innan við 5 milljarða króna. Að mati flutningsmanna sé eðlilegt að í fýrstu verði um 2 millj- arðar greiddir í veiðileyfagjald en það þýði að mikill hagnaður sé enn innan greinarinnar. Flutningsmenn tillögunnar gera ráð fyrir að veiðileyfagjaldið renni í ríkissjóð en því verði varið til hagsbóta fyrir almenning. Til greina komi að lækka tekjuskatt einstaklinga, lækka erlendar skuldir, auka vegagerð á lands- byggðinni, auka framlög til mennta- og heilbrigðismála og styðja sérstaklega eldri borgara og öryrkja. Þingflokkur jafnaðarmanna Tillaga um veiði- leyfagjald endurflutt Nöfn tvíburanna Fyrsti dómur í máli vegna upplýsingalaganna Iðnlánasjóður afhendi upplýsingar um styrki j MENNIRNIR tveir, se_m hafa játað að hafa banað Lárusi Ágústi Lárus- syni í Heiðmörk aðfaranótt sl. fimmtudags, heita Sigurður Júlíus Hálfdánarson og Ólafur Hannes Hálfdánarson. Þeir eru tvíburar, 25 ára að aldri, búsettir í Reykjavík. í úrskurði um gæsluvarðhald yfir mönnunum segir að Sigurður Júlíus hafi viðurkennt að hafa lent í átök- um við hinn látna. Hann hafi tekið upp stein og barið manninn í ennið með honum með þeim afleiðingum að hann féll til jarðar. Þar segir einnig að Ólafur Hannes hafi borið fyrir dómi að hafa ekið yfir hinn látna á vettvangi. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 14. nóvember næstkomandi. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Iðnlánasjóð til þess að veita Einari S. Hálfdánarsyni, lögmanni og löggiltum endurskoð- anda, aðgang að upplýsingum um yfírlit yfir úthlutun um styrki sem Iðnlánasjóður veitti á árunum 1990 til 1996. Úrskurðarnefnd um upp- lýsingamál hafði úrskurðað að samkvæmt upplýsingalögum bæri Iðnlánasjóði að verða við beiðni um aðgang að gögnunum en sjóð- urinn bar þann úrskurð undir dóm- inn. Dómurinn frá í gær er sá fyrsti sem byggist á upplýsingalögunum. Óafturkræf framlög úr ríkissjóði Samkvæmt lögum um Iðnlána- sjóð á hann að verja 10% af iðnl- ánasjóðsgjaldi til að greiða fyrir hagaðgerðum sem stuðla að þjóð- hagslega hagkvæmri iðnþróun í landinu. Styrkir til hag- rannsókna og iðn- þróunar njóta ekki bankaleyndar Einnig er sjóðnum skylt að styrkja ný útflutnings- og þróunar- verkefni og rannsóknir í iðnaði. Dómur féll á sömu leið í gær og niðurstaða úrskurðamefndar um upplýsingamál hafði verið. í niðurstöðum Allans Vagns Magn- ússonar héraðsdómara segir að styrkveitingar Iðnlánasjóðs séu einhliða ráðstöfun opinbers fjár með óafturkræfum framlögum og styrkjum. Ákvæði í lögum um Iðnlánasjóð né almenn þagnarskylduákvæði laga um banka og sparisjóði gildi ekki um efnið. Dómarinn segist telja að eðli málsins leiði ekki til þess að þessi gögn skuli fara leynt og að ákvæði laga um bankaleynd geri það ekki heldur né ákvæði upplýsingalaga enda sé hér einings um að ræða upplýsingar um nöfn styrkþega og fjárhæð framlaga til þeirra. Afturvirk upplýsingalög Iðnlánasjóður hafði einnig borið því við að ákvæðum upplýsingalag- anna yrði ekki beitt afturvirkt en dómurinn áréttar að samkvæmt skýru ákvæði upplýsingalaga gildi þau um öll gögn án tillits til þess hvenær þau urðu til eða hvenær þau bámst stjómvöldum. Auk þess sem Iðnlánasjóði var gert að afhenda gögnin var sjóðn- um gert að greiða Einari S. Hálf- j dánarsyni 200 þúsund krónur í málskostnað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.