Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 11 _____________________FRETTIR____________________ Samtök um þjóðareign ■ ávarp til íslendinga: Nytjastofnar á íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar STOFNFUNDUR Samtaka um þjóð- areign verður haldinn á Grand Hótel við Sigtún í kvöld, miðvikudaginn 8. október 1997, og hefst kl 20.30. í frétt frá samtökunum, sem Morg- unblaðinu barst í gær ásamt ávarpi þeirra, er tekið fram að allir séu velkomnir á fundinn sem taka undir markmið samtakanna, og vilja eign- ast aðild að þeim. Jafnframt geta þeir hringt í Gulu línuna, síma 580 8000. Ávarp samtakanna fer hér á eftir ásamt nöfnum þeirra sem undir það hafa skrifað nú þegar: íslandsmið hafa verið sameign þjóðarinnar frá öndverðu. Á þessari öld háðu íslendingar harða baráttu fyrir því að aðrar þjóðir viðurkenndu eignarrétt íslendinga á miðunum. Nýting fiskimiða landsins hefur lagt dijúgan skerf að framförum og vel- sæld þjóðarinnar á 20. öld. Með lögunum um stjórn fiskveiða og framsali ríkisvaldsins á sameign þjóðarinnar til einstakra manna og félaga, án þess að gjald komi fyrir, er brotið gegn eignarrétti þjóðarinn- ar, - horfið frá leikreglum lýðræðis og jafnréttis. Fiskimiðin eru í raun að hverfa úr eign íslensks almennings til kvótaeigenda þrátt fyrir þau ákvæði 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, að nytjastofnar á Islandsmiðum séu sameign þjóðarinnar og að úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögunum myndi ekki eignarrétt eða óaftur- kallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Þetta samræm- ist ekki hagsmunum og réttlætis- kennd þjóðarinnar né hefð í nýtingu fiskimiðanna. Sjálfstæðisbarátta 19. aldar og sóknin til lýðveldis á fyrri hluta 20. aldar var ekki aðeins háð til að losna undan erlendri áþján heldur einnig til þess að losna undan sérdrægu forréttindakerfi fyrri alda. Frelsi, réttlæti og jafnrétti allra til atvinnu, búsetu, menntunar og velsældar hafa verið hornsteinar íslensks sam- félags. Með lögunum um stjórn fisk- veiða er þeim hróflað en höft, for- réttindi, ójöfnuður og ranglæti sett í staðinn. íslendingar geta aldrei unað slíku til langframa. Við, sem setjum nöfn okkar hér undir, skorum á alla íslendinga, hvar í flokki sem þeir standa, að taka saman höndum með okkur í samtökum til að tryggja að þjóðin öll njóti réttláts arðs af sameign sinni - íslandsmiðum. Þetta verða samtök sjálfstæðra Islendinga sem una ekki óréttlætinu lengur, - Samtök um þjóðareign. Ágúst Einarsson, Reykjavík, al- þingismaður Arnbjörn Gunnarsson, Grindavík, skipstjóri Árni Jónasson, Garði, skipstjóri Bárður G. Halldórsson, Bessa- staðahreppi, menntaskólakennari Bjarni Arason, Hafnarfirði, hljóm- listarmaður Bjarni Bragi Jónsson, Reykjavík, hagfræðingur Bjami Finnsson, Reykjavík, kaúp- maður Flosi Ólafsson, Reykholtsdal, leik- ari Grétar Mar Jónsson, Sandgerði, form. Skipstjóra og stýrimannafél. Vísis Guðmundur Erlendsson, Höfn, stýrimaður Guðmundur Kristjónsson, Ólafs- vík, skipstjóri Guðmundur Ólafsson, Reykjavík, hagfræðingur Gylfi Þ. Gíslason, Reykjavík, fyrrv. ráðherra Halldór Bjarnason, Mosfellsbæ, framk væmdastj óri Halldór Hermannsson, ísafírði, skipstjóri Haraldur Sumarliðason, Reykja- vík, formaður Samtaka iðnaðarins Hólmar Víðir Gunnarsson, Þor- lákshöfn, skipstjóri Ingólfur Karlsson, Grindavík, skipstjóri Jón Arason, Þorlákshöfn, skip- stjóri Jón Ásbjörnsson, Reykjavík, fiskútflytjandi Jón Sigurðsson, Reykjavík, fyrrv. framkvstj_ ísl. járnblendifélagsins Jónas Árnason, Reykholtsdal, rit- höfundur, fyrrv. alþingismaður Karvel Pálmason, Bolungarvík, fyrrv. alþingismaður Kolbrún Halldórsdóttir, ísafirði, bæjarfulltrúi Kristinn Arnberg, Grindavík, skipstjóri Kristján Kristjánsson, Akureyri, heimspekingur Lúðvík Emil Kaaber, Reykjavík, lögfræðingur Markús Möller, Garðabæ, hag- fræðingur Matthías Bjarnason, Reykjavík, fyrrv. ráðherra Njörður P. Njarðvík, Reykjavík, prófessor Ólafur Hannibalsson, Reykjavík, blaðamaður Pétur Sigurðsson, ísafirði, forseti Alþýðusambands Vestfjarða Sigríður Þorgeirsdóttir, Reykja- vík, heimspekingur Sigurður R. Ólafsson, ísafirði, formaður Sjómannafélags ísfirðinga Sigurður T. Sigurðsson, Hafnar- firði, formaður Verkamannafélags- ins Hlífar Stefán Erlendsson, Hveragerði, stjórnmálafræðingur Steingrímur Hermannsson, Garðabæ, seðlabankastjóri Sveinn Tryggvason, Kópavogi, fiskverkandi Valdimar Jóhannesson, Mos- fellsbæ, framkvæmdastjóri Vilhjálmur Árnason, Reykjavík, heimspekingur Þórarinn Eldjárn, Reykjavík, rit- höfundur Þórir Sigurðsson, Akureyri, kenn- ari við sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri Þórólfur Matthíasson, Reykjavík, hagfræðingur Þorsteinn Gylfason, Reykjavík, prófessor Þorsteinn Jóhannesson, ísafirði, yfirlæknir Þorvaldur Elbergsson, Grundar- firði, skipstjóri Þorvaldur Gylfason, Reykjavík, prófessor Gothe-stofnunin í Reykjavík Aformaðri lokun mótmælt HÓPUR manna afhenti þrjá undir- skriftalista í þýska sendiráðinu á íslandi í gær og skoraði á þýsk stjórnvöld að falla frá þeirri ákvörð- un að loka Goethe-stofnuninni í Reykjavík. I hópnum voru meðal annars nem- endur og kennarar í þýsku við Há- skóla íslands og hafði hann áður gengið frá Tryggvagötu, þar sem Goethe-stofnunin er til húsa, að þýska sendiráðinu við Laufásveg. „Eindregin ósk“ „Við lögðum fram eindregna ósk um að þessi ákvörðun yrði endur- skoðuð," sagði Oddný Sverrisdóttir sem kennir þýsku við Háskólann. Hún sagði að safnað hefði verið undirskriftum meðal frammámanna í þjóðfélaginu og á hann hefðu með- al annars skrifað nafn sitt Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Ólafur Skúlason biskup og ýmsir listamenn og rithöfundar. Sá listi hefði verið sendur til Þýskalands og myndi Ingimundur Sigfússon, sendi- herra íslands í Bonn, afhenda hann í þýska utanríkisráðuneytinu, en af- rit af honum hefði verið afhent hér. Annan lista hefðu félagar í Félagi þýskukennara undirritað og hinn þriðja þýskunemar og verða þeir einnig afhentir í höfuðstöðvum Goethe-stofnunarinnar í Múnchen. í bréfi, sem fylgdi frammámanna- listanum, segir að íslendingar glati mikilvægum hlekk í menningarsam- skiptunum við Þýskaland verði Goet- he-stofnuninni lokað. í bréfínu er bent á að við lokun hennar yrði engin Goethe-stofnun eftir á íslandi sem yrði þá éina Evr- ópulandið í þeirri stöðu. „Vegna þess hvað Island er af- skekkt gegnir Goethe-stofnunin í Reykjavík sérlega mikilvægu hlut- verki sem tengill við þýskt menning- arlíf,“ segir í bréfínu. „Ef hann glat- ast er enginn til að taka við því hlut- verki." Jurt meí stafinn Athl: Þeirsem eru með alvarleg einkenni sjúkdóma s.s. liðagigtar, sykursýki eða blóðrásartruflana, ættu leita sár ráðlegginga lækna áður en komið er tí! okkar.___________________________________________________________________ „Ég var slæmur í fótunum, er með gigt. Það var eins og fæturnir neituðu að hlýða og því var ég mjög óöruggurtil gangs. Gekk með staf hvert sem ég fór. Ég fékk sprautur hjá lækni trekk í trekk en að iokum sagði hann mér að fara til Stoðtækni og láta skoða fótstigið hjá mér, sem ég og gerði. Ég hitti Kolbein, hann sá strax að stigið hjá mér var mjög skakkt og smíðaði handa mér innlegg. Eftir 2’/2 mánuð leið mér mikið betur ífótunum og þurfti ekki lengur á stafnum að halda. Nú geng ég um allt án þess að nota hann." Haukur Bjarnason ellilífeyrisþegi Xi STOÐTÆKM Lœkjargötu 4 • S: 551 4711 Morgunblaðið/Ásdís VELUNNARAR Goethe-stofnunar ganga eftir Fríkirkjuveginum. LANCOME1 édl Le GiftN^ Núer LANCÖME veisla. *Allt þetta fylgir við kaup á 2 vörum þar af einu Primordiale næturkremi. • Eau Bienfait hreinsivatn 50 ml • Taska • Bienfait Total dagkrem 15 ml • Trésor ilmur 5 ml • Eau de Treint faroi 10 ml • Absolu varalitur Verðmæti kaupaukans er 3.200 kr. Þetta er aðeins eitt sýnishorn aí því sem í boði er. Vertu velkomin á næsta LANCÖME útsölustað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.