Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ EFTIR að hljóðið hélt innreið sína í sjónlistir, helstan tjámiðil þagnarinnar, var að sjálfsögðu stutt í aðrar hjáleitar athafnir svo sem fóðrun smáfugla. Listaverkið er eftir hinn unga Kestius Andrasiún- as (f. 1973) og er frá 1995. „Neðanmálsgreinar“ MYNDLIST Kjarvalsstaöir SAMTÍMALIST FRÁ LITHÁEN Opið alla daga frá 10-18. Til 12. október. Aðgangur 300 kr. Sýningarskrá 500 krónur. ÞAÐ er ekki ýkja mikið sem rýn- irinn þekkir til af myndlist frá Lit- háen, eða Lithaugalandi, sem til skamms tíma var lokuð ein- ing sovétvaldsins. Einstaka myndir hins viðurkennda raun- sæis sama valds bar þó fyrir sjónir hans í Rostock, á tímum Tvíærings Eystrasaltsland- anna, meðan sá var og hét, aðallega frá Vilnu eða Vilnius sem höfuðborgin nefnist. Hins vegar veit hann að samskipti norrænna listamanna við balt- nesku löndin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, var um- talsverð á þeim góðu tímum fyrir margt löngu er þau gátu heitið sjálfstæð, einkum Finn- lands og Svíþjóðar, enda liggja strandlengjurnar meira og minna saman. í Stokkhólmi var eitt sinn mikil sýning á list þjóðanna er dijúga athygli vakti. Þá er rétt bæjarleið milli Helsingfors og Tallin í finnska flóanum, höfuðborgar Eist- lands. Það var því eðlilega af mik- illi forvitni sem ég nálgaðist sýningu á litháskri samtímalist í vestari sal Kjarvalsstaða, en komst þá að því að hugtakið „samtímalist" er skil- greint á mjög svipaðan hátt og með- al afmarkaðs hóps ungra í „fram- varðsveitinni" hér á útskerinu. Það er annars afar margt líkt með þess- um einangruðu þjóðum, þrátt fyrir að íbúatala Litháen mun nær 4 millj- ónum. Helst í þá veru að ef einum gengur vel vilja allir hinir fylgja í fótspor hans og líkja eftir honum. Þetta eru að vísu einkenni meðal flestra þjóða, telst til eðlisborins metnaðar sem býr með hveijum heil- brigðum einstaklingi, en ber sums staðar meir á þeim en annars staðar og tekur á sig skringilegar myndir. Einangrunin gerir að menn verða í ríkara mæli auðtrúa og um leið auð- veldari fómardýr alþjóðlegra bendi- prika er fjarstýra íþrótta- og listhug- tökum, bólusetja og heilaþvo óþrosk- uð ungmenni. í grein nr. 66 í sýningarskrá í samantekt Raimundas Malasaukas, rakst ég á þessar upplýsandi máls- greinar: Nr. 66; „íþrótta-hetju- þjóð- in: Þegar hin litháska stjarna í bandaríska körfuboltanum, Arvydes Sabonis, keypti sér flösku af Issey Myake ilmvatni fyrir karlmenn í borginni Kaunas í Litháen seldist það nær samstundis upp í öllum verzlunum" (!). Nr. 68; Að hlaupa fyrir Litháen ... - Núna-? Og til hvers? „Hlaupari FYRIR“ gefur til kynna að það sé nauðsynlegt að hlaupa fyrir Litháen vegna þess að landið sé „óþekkt“: Það sé miskilið sem nafn á matseðli, Króatíu eða áfengistegund. „Hlaupari FYRIR" samsamar sig við alla þjóðina. í huga hans „eykur það frægð Lithá- en“ að hlaupa með þessi auðkenni á alþjóðlegum vettvangi." Nr. 73; „Listamenn sem spyija spurninga búa í Vilnius." Nr. 74; „Það fyrir- finnst engin lithásk samtímalist; aðeins listalífið í Vilnius, og það er steingelt í þjóðleika sínum. Það sam- L, , m GJÖRNINGUR Zilvinas Kempinas (f. 1969), andlitsmyndir, steingervingar frá 1996, er það sem helst vekur athygli. anstendur af listamönnum frá öllum landshomum; í Vilnius geta þeir tal- að ensku við ókunnuga, á sama tfma og þeir þegja í návist hvers annars.“ Allt eru þetta meira en kunnugleg einkenni, þjóðlegheitum hafnað sem myrkum miðöldum og enskan tekin fram yfir þjóðtunguna, sem einkum sér stað í textum myndanna. Rétt að minna á, að t.d. franskir og rúss- neskir núlistamenn gera það sjaldn- ast og notast þó einnig við texta. Sýningargestirnir verða í fyrstu hálf gáttaðir, því þeir eru lítið nær um list Litháa eftir skoðun fram- kvæmdarinnar, sem er afar keimlík tilraunum annarra listamanna af sama upplagi í vestrinu og gæti allt eins komið frá Sidney, San Franc- iskó eða Singapúr, þetta sett fram með allri virðingu fyrir þessari teg- und listar, en sannfæring mín og vissa er, að til séu fleiri hliðar á blóðríkri litháskri samtímalist. Þær vildi ég og margir fleiri einnig hafa fengið að sjá og sömuleiðis fá tæki- færi til að rýna í hvað gert hefur verið í myndlist í þessu marghijáða landi f tímans rás, en talið er að það hafi verið hernumið í 22 skipti. Má vera mjög spennandi og upplýsandi um kúgaða þjóð með ómælda og aðdáunarverða frelsisþrá. Menn verða því að taka sýning- unni sem afmörkuðum og á sinn hátt eðlilegum hræringum í litháskri list eftir 1990, og segir nokkuð að fimm af sjö listamönnum eru um og yfir þrítugt, sá yngsti, Kestutis An- drasiúnas, einungis 24 ára. Einn, Gintautas Trimakas, er fæddur 1958, en langelstur er málarinn Povilas Ricardas Vaitekúnas fæddur 1940. Torsótt mun mönnum reynast að finna lithásk sérkenni í verkunum sjálfum, og er ráðlagt að lesa texta sýningarskrár, en þeir geyma upp- lýsandi fróðleik og tilvísanir, þannig að gesturinn ætti frekar að ná áttum um bakgrunn og inntak verkanna. í flestum tilvikum er þannig um að ræða unga og framgjama lista- menn á línu með þeirri hug- myndafræði sem kennd er í svonefndum fjöltæknideildum listaskólanna. Rýnirinn sá gott sýnishorn slíkra víða að í Brúnu kjöthöllinni í Kaup- mannahöfn í tilefni menning- arborgarárs 1996 og einnig á Gámasýningunni svonefndu, en báðum sýningunum gerði hann skil á síðum blaðsins. Og þessi ójarðtengda kúvending frá sósíalraunsæinu er mjög í anda einangrunar eins og við þekkjum afar vel til hér á landi, einkum er menn hurfu frá hlut- bundinni túlkun eftir stríð, og er hugmyndafræðilega liðið fór á einni nóttu að mála í anda nýbylgjunnar í upphafi níunda áratugarins. Hér er verkið með fótboltanum og fylltu lakks- kónum eftir Deimantas Narkevicius (f. 1964) mjögein- kennandi og mun trúlega kím- in vísun til íþróttahetjuhug- taksins. Miðsalurinn telst líf- rænasti hluti sýningarinnar með sín- um 50 andlitsmyndum, stein- gervingum, í gipsi eftir fyrrnefndan Kestutis Andrasiúnas (f. 1973). Hið stóra veggtjald Audrius Vovickas (f. 1968) „Svartur engill“ frá 1996 samansett af 1.521 ljósmynd og Jafnvægislist Audrius Novickas (f. 1968) sem er hvítur trefjaglerhlutur með lágan þyngdarpunkt, smíðaður í flugvélaverksmiðju, magnari fyrir hljóðmerki, hátalarar, aska, tuska frá 1996, koma ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Viðbótin er svo helst myndbandið stóra „í hunangi“, 1996, eftir hinn þrítuga Eglé Rakauskaité, en er sömuleiðis mjög í línu með því sem maður sér á myndbandasýningum. Mikill misskilningur að telja fram- sláttinn neikvæða gagnrýni í sjálfu sér, gjömingarnir geta allt eins skoð- ast sem hliðstæða og fullgilt innlegg í skylda samræðu í heimslistinni eins og átti sér stað um abstraktið og strangflatalistina á sínum upphafsá- rum. Hér er þó um mun altækari hreyfmgu að ræða, og hvorug stefn- an var viðurkennd salonlist né því síður sérstakt námsfag í listaskólum þeirra tíma, enn síður var um að ræða hræringar á heimsvísu. Auðvitað þakkar maður fyrir þetta brotabrot litháskrar Iistar með miklum virktum, en biður um leið um stærra og fyllra samhengi í framtíðinni. Aleitinni spurningu um inntak og eðli litháskrar listar telst enn ósvarað, en allt er fyrst ... Bragi Ásgeirsson Syngjandi fiðlutónn TÓNLIST Gcrðarsafn KAMMERTÓNLEIKAR Gerður Gunnarsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir fluttu verk eftir Mozart, Beethoven og Snorra Sigfús Birgisson. Mánudagurinn 6. október 1997. í EFNISSKRÁ tónleikanna vantaði að gera grein fyrir kaflaheitum í sónötum Mozarts og Beethovens, en úr því var bætt með sérprentuðum fylgimiða. Á þessum miða var ekki talað um hraðaheiti, heldur kafla- heiti, sem vekur upp þá hugmynd að ítölsku „hraðaheitin“ séu flest í raun ranglega þýdd. Largo (Breiður - stór) þýðir ekki hægt og Allegro (glaðlega) ekki hratt og er því miklu fremur leiðsögn um leikmáta frekar en hraða. Auðvitað má tengja stemmningu við ákveðinn hraða, þó hins vegar væri athugandi, hvort nákvæmari þýðing á svonefndum „hraðaheitum" gæti haft í för með sér meiri skilning á innihaldi tón- verkanna. Tónleikarnir hófust á són- ötu í B-dúr, K454, eftir Mozart. Gerður Gunnarsdóttir er frábær fiðl- ari og flutti hún sónötuna af mikilli mýkt, sérstaklega fyrsta þáttinn. Klassískur flutningur hennar og yf- irveguð tónmótun er „evrópsk“ og því hefði farið betur á að píanóleikar- inn hefði verið aðeins tónmýkri og hefði jafnvel mátt loka flyglinum alveg, „eins og sagt er“. Þó verður að hafa það í huga að hljómrými salarins er mun hagstæðara fyrir flygilinn en fiðluna. Annað viðfangsefnið var Nove- lette, eftir Snorra Sigfús Birgisson, er var einstaklega vel flutt og var samspilið oft mjög fallega mótað í styrk og blæbrigðum andstæðra tón- hugmynda. Fyrir undirritaðan var flutningur Gerðar og Önnu hrein endursköpun á þessu ágæta verki, frá því að hafa heyrt það flutt í Iðnó fyrir nokkrum árum. Tónleikunum lauk með síðustu fiðlusónötunni eftir meistara Beethoven en verkið er op. 96 (1812). Þetta verk er oft tilgreint þegar Qallað er um lýrískar tilhneig- ingar meistarans, sem urðu mjög áberandi á „þriðja tímabilinu" og einnig tengist áhuga hans á alþýðu- lögum, aðallega enskum, sem hann raddsetti um svipað leyti og hann samdi op. 96 og lagaflokkinn An die feme Geliebte, píanósónötuna i e- moll, op. 90 og sellósónötuna, op.102. Hinar svarthvítu og skörpu andstæður, sem einkenndu oft tón- mál Beethovens eru horfnar og í staðinn eru mörg síðustu verka hans orðin sérlega ljóðræn, friðsæl og bera í sátt við lífið og tilveruna . Syngjandi fiðlutónninn hjá Gerði og klassískur flutningur hennar var í anda verksins og oft brá fyrir fal- legum samleik, þó píanpið væri á stundum nokkuð sterkt. í heild voru þetta góðir tónleikar og var flutning- ur Gerðar sérlega fallegur í fyrsta þætti Mozarts-sónötunnar, frábær- lega góður í Novelettunum eftir Snorra Sigfús og einnig í sónötu Beethovens. Jón Ásgeirsson ÚR kvikmyndinni Perlur og svín sem frumsýnd verður á morgun. Frumsýnmg á perlum og svínum KVIKMYNDIN Perlur og svín eftir Óskar Jónasson verður frumsýnd í 3 kvikmyndahúsum á morgun, 9. október. Þetta er önnur kvikmyndin sem Óskar gerir en kvikmynd hans Sódóma Reykjavík var fmmsýnd sumarið 1992. íslenski draumurinn er viðfangs- efni gamanmyndarinnar Perlur og svín. Hjónin Lísa og Finnbogi eru nýlega flutt til borgarinnar frá Seyðisfirði og dreymir um að auðg- ast hratt og komast svo í langt frí til heitra landa. Þau kaupa niður- nítt bakarí og byija að baka, meira af vilja en getu. Þrátt fyrir smæð bakarísins tekst þeim fljótt að stíga á tána á risanum í brauðbransanum, sem bregst við með offorsi. Það reynist þeim Lísu og Finnboga dýr- keypt. Hjónin leika þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Sigurðarson. Með önnur stór hlutverk fara Ólaf- ur Darri Ólafsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, María Guðmundsdótt- ir, Edda Björgvinsdóttir og Ingvar Sigurðsson. Óskar er bæði leikstjóri og hand- ritshöfundur Perlna og svína og leitaði hann nýrra leiða við hand- ritsskrifin. Kaus hann að setja þró- un persónanna í hendur leikara sem spunnu texta sem Óskar vann síðan úr. Þröstur Leó Gunnarsson leikur Erling sem kemur til starfa í bakaríinu, nýsloppinn út af vafa- sömum stað. „Það var margt við vinnu myndarinnar sem kom skemmtilega á óvart,“ segir Þröst- ur. „Það að leikaramir skildu taka þátt í persónusköpun i upphafi var líka góð reynsla, þó svo að miklar breytingar hafi síðan verið gerðar á síðari vinnslustigum. Mér finnst ég eiga svolítið meira í persónu minni fyrir vikið.“ Hann segir Perl- ur og svín lýsa dæmigerðum ís- lenskum aðstæðum. Kvikmyndatöku annaðist Sig- urður Sverrir Pálsson, leikmynd gerði Árni Páll Jóhannsson og bún- inga Áslaug Leifsdóttir. Hljóð- hönnun er Kjartans Kjartanssonar og um klippingu sá Steingrímur Karlsson. Gerð kvikmyndarinnar var styrkt af Kvikmyndasjóði ís- lands og Norræna Kvikmynda- sjóðnum. Framleiðandi myndarinn- ar ásamt Óskari er Friðrik Þór Friðriksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.