Morgunblaðið - 08.10.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 17
ERLENT
Umræða um innflytjendur í Noregi
Hundruð ungmenna
neydd í hjónaband
Brazausk-
as dregur
sig í hlé
HÖFUÐANDSTÆÐINGUR
Vytautas Landsbergis, forseta
litháíska þingsins, í forseta-
kosningunum í Litháen, Alg-
irdas Brazauskas forseti, hef-
ur dregið framboð sitt til baka.
Brazauskas kveðst ekki munu
sækjast eftir endurkjöri þar
sem kommúnísk fortíð hans
skaðaði ímynd landsins.
Landsbergis á þó enn á bratt-
ann að sækja því samkvæmt
skoðanakönnunum njóta tveir
frambjóðendur meira fylgis en
hann. Eru þeir báðir óreyndir
í stjórnmálum.
Sihanouk vill
segja af sér
NORODOM Sihanouk, kon-
ungur Kambódíu, kvaðst í gær
vilja afsala sér völdum en að
hann biði samþykkis forsætis-
ráðherrans, Huns Sens. Sagð-
ist Sihanouk styðja hvern þann
í embætti sem gæti komið á
friði í hinu „ógæfusama"
heimalandi hans.
Verðlaun
„óhugsandi“
KÍNVERSK stjórnvöld lýstu
því yfir í gær að „óhugsandi"
væri að kínverski andófsmað-
urinn Wei Jingsheng fengi
friðarverðlaun Nóbels, þar sem
hann hefði brotið kínversk lög.
Wei er einn þeirra sem til-
nefndur hefur verið til verð-
launanna en hann situr í fang-
elsi í heimalandi sínu.
Umbría
skelfur enn
ENN einn jarðskjálftinn reið
yfir Mið-Italíu í fyrrinótt og
olli hann enn frekara tjóni á
kirkju heilags Frans frá Ass-
isi. Skjálftinn mældist á milli
4 og 5 stig á Richter og átti
upptök sín í Umbríu-héraði en
hann fannst m.a. í Róm, um
100 km frá upptökunum. Ekki
er vitað um tjón á húsum eða
slys á mönnum.
Lúkasjenkó
sammála
kommúnistum
ALEXANDER Lúkasjenkó,
forseti Hvíta-Rússlands, lýsti
því yfir á fundi með kommún-
istum og öðrum vinstrimönnum
að hann styddi stefnu þeirra.
Talið er fullvíst að þessi um-
mæli muni vekja litla hrifningu
á Vesturlöndum, sem hafa ós-
part gagnrýnt Lúkasjenkó fyrir
stefnu hans í mannréttindamál-
um og fýrir að draga lappirnar
í efnahagsumbótum.
Papon
fyrir rétt
FYRRVERANDI fjárlagaráð-
herra Frakklands, Maurice
Papon, gaf sig í gær fram við
lögreglu í Bordeaux en í dag
hefjast réttarhöld yfir honum
vegna aðildar hans að stríðs-
glæpum í heimsstyijöldinni
síðari. Papon, sem er 87 ára
og sat í Vichy-stjórninni í
stríðinu, segir málið allt farsa-
kennt, hann hafi aðeins hlýtt
skipunum þýskra yfirvalda.
NOKKUR hundruð ungmenni hafa
verið flutt frá Noregi undanfarin ár,
mörg hver nauðug viljug, til að gift-
ast ókunnugum í heimalandi foreldr-
anna. Unga fólkið er flest fætt og
uppalið í Noregi, böm múslimskra
innflytjenda. Norski Rauði krossinn
segir þetta færast í vöxt en á síð-
asta ári tókst starfsmönnum hans
að aðstoða sex ungmenni við að
snúa aftur til Noregs, eftir að þau
höfðu verið flutt til Pakistans, Ind-
lands, Marokkó og Tyrklands til að
ganga í hjónaband.
Það var mál átján ára gamallar
stúlku, Nadiu, sem hratt af stað
umræðunni um málið nú en fýrir
rúmum mánuði fiuttu foreldrar
hennar hana til Marokkó þar sem
neyða átti hana til að giftast manni
sem hún hafði aldrei augum litið.
Foreldrar Nadiu eru frá Marokkó
en norskir ríkisborgarar og hún er
fædd og uppalin í Noregi.
Dagbladet sagði henni hafa verið
ógnað með hnífí og gefin róandi lyf
er hún var flutt til Marokkó. Stúlk-
unni tókst að láta norska sendiráðið
í Rabat vita og gekk utanríkisráðu-
neytið norska í málið, þ.á m. ráðherr-
ann sjálfur. Var foreldmm Nadiu
gerð grein fyrir að þeir hefðu gerst
sekir um mannrán og gáfu þeir að
lokum eftir. Um helgina sneri Nadia
heim til Noregs en foreldramir urðu
eftir í Marokkó.
Vandinn eykst
Alþjóðamiðstöð Rauða krossins í
Ósló hefur aðstoðað ungmenni sem
þess óska við að komast heim eftir
að hafa verið flutt nauðug úr landi.
Það gengur þó ekki alltaf eftir þar
sem foreldramir em oft á tíðum
ósveigjanlegir. Fæst málin koma
fyrir augu almennings, Rauði kross-
inn hefur á skrá yfir 100 mál frá
síðasta ári og það sem af er þessu
ári og segja starfsmenn hans að
vandinn hafi aukist.
í samtölum Aftenposten við mú-
siimskar konur í Noregi kemur fram
að það samrýmist ekki Kóraninum
að þvinga fólk í hjónaband þótt slíkt
sé tíðkað. Þær lýsa allar ánægju
sinni með að mál Nadiu skuli hafa
komið fram í fjölmiðlum þar sem
það hafi orðið til að vekja athygli á
stöðu ungra stúlkna sem séu undir
geysilegum þrýstingi foreldra sinna.
Hins vegar benda þær á tvískinn-
unginn sem felist í því að er ijallað
var um mál Nadiu hafi hún verið
sögð norsk en þegar skrifað sé um
afbrot fólks af erlendum uppruna
sé það ævinlega sagt innfiytjendur.
Bjóðum þér sérstaklega velkomin í reynsluakstur
Lítiii á rýmið
hœðina, vinnuaðstöðuna - vélaraflið og beygjuradíusinn.
MISSAIM
■ TRADE
meö dísel vél, turbo með millikæli 108 hö.
Kostar kr. 1.889.930.- án Vsk.
Einnig fáanlegur á rekstrarleigu.
Hliðarhuröir opnast vel til hliðanna
svo auðvelt er að koma stöðluðum
evrópubrettum inn - hvort heldur
er að aftan eða í gegnum
hliðarrennihurð.
Ingvar
Helgason hf.
Sœvcirhöfda 2
Sími 525 8000