Morgunblaðið - 08.10.1997, Síða 25
24 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Jlfargtiiifybifrife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hailgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Sendiherra Kína mótmælir heimsókn varaforseta Tævans til íslands
KREFST ÞESS AÐ LIEN
VERÐIVÍSAÐ ÚR LANDI
EVROPA GEGN
KRABBAMEINI
KRABBAMEIN leiðir til dauða fjórða hvers Evrópubúa.
Krabbamein getur heijað á hvern sem er, hvar sem er
og hvenær sem er. Það var því af ærnu tilefni sem Evrópu-
sambandið ýtti úr vör verkefninu „Evrópa gegn krabba-
meini“ árið 1987. Þriðja áætlun þess verkefnis, sem Skúli
Thoroddsen gerði grein fyrir hér í blaðinu í gær, spannar
árin 1996 til 2000. Áherzluþættir eru einkum fjórir: krabba-
meinsleit, krabbameinsvarnir, starfsþjálfum heilbrigðisstétta
og síðast en ekki sízt kraÓbameinsrannsóknir.
Þessi þriðja krabbameinsaágtlun Evrópusambandsins er
stærsta einstaka heilbrigðisverliefni þess. Hún felur m.a. í
sér rannsókn með þátttöku 270 þúsund sjálfboðaliöa til að
kanna fylgni krabbameins við tilteknar neyzluvenjur. Vax-
andi áherzla er og lögð á baráttu gegn reykingum. Sjálfgef-
ið er að Island og önnur Evrópuríki utan Evrópusambands-
ins leggi sitt af mörkum í átakinu „Evrópa gegn krabba-
meini“ og standi að sérstakri „Evrópuviku gegn krabba-
meini“, sem árlega er efnt til í októbermánuði.
Skúli Thoroddsen leggur áherzlu á einstaklingsbundnar
krabbameinsvarnir, samhliða samátaki Evrópuþjóða. í því
sambandi tíundar hann svonefnd „Evrópuráð": höfnun tób-
aksreykinga, hóf í áfengisneyzlu, dagleg neyzla ferskra
ávaxta, grænmetis og trefjaríkrar fæðu, viðspyrna gegn
offitu, hóf í sólböðum - einkum barna og varúð í umgengni
við krabbameinsvaldandi efni. Fólk er og hvatt til að leita
læknis ef það finnur fyrir hnúðum, fær sár sem gróa ekki
eða ef breytingar verða á hægða- og þvaglátsvenjum. Konur
eru minntar á að skoða bijóst reglulega og sinna skipulegri
leit að forstigum vegna leghálskrabbameins.
Samátak Evrópuþjóða á eftir að skila góðum árangri í
leit að sjúkdómnum á forstigum, í meðferð hans og í rann-
sóknum á rótum vandans. En einstaklingsbundnar og fyrir-
byggjandi heilsuvarnir, sem felast í lífsmáta hvers og eins,
skipta ekki síður máli. Heilbrigði til líkama og sálar er dýr-
mætasta eign hverrar manneskju.
HEIMSÓKN FRÁ TÆVAN
KÍNVERSK stjórnvöid bregðast nær undantekningarlaust
harkalega við er fulltrúar Tævanstjórnar eiga sam-
skipti við fulltrúa annarra ríkja. Kínverjar líta á Tævan sem
hérað í ríki sínu, sem neitar að hlýða kalli miðstýringarvalds-
ins í Peking, og að samskipti við þetta „hérað“ jafngildi
afskiptum af innanríkismálum Kínverja.
Tævanir líta hins vegar á sig sem hina einu sönnu ríkis-
stjórn Kína þótt þeir hafi orðið undir í baráttunni um alþjóð-
lega viðurkenningu er stjórn Richards Nixons Bandaríkjafor-
seta ákvað að taka upp samskipti við Pekingstjórnina í upp-
hafi áttunda áratugarins. Sú afstaða byggðist á pólitísku
raunsæi. Þrátt fyrir andstöðu við hina efnahagslegu og póli-
tísku stefnu kommúnistastjórnarinnar var ekki hægt að líta
fram hjá fjölmennasta ríki veraldar til lengdar og neita því
um alþjóðlega viðurkenningu.
Tævanir berjast hins vegar áfram fyrir sjálfstæðri viður-
kenningu í samfélagi þjóðanna. Viðbrögð Kínastjórnar við
einkaheimsókn varaforseta Tævans, Lien Chan, hingað til
lands sýna glögglega hversu þungur sá róður er. Sendiherra
íslands í Peking var kallaður á fund í kínverska utanríkis-
ráðuneytinu og kínverski sendiherrann hér á landi afhenti
stjórnvöldum mótmæli.
íslendingar vilja eiga vinaleg og góð samskipti við Kín-
veija. Samskipti ríkjanna á flestum sviðum hafa farið vax-
andi á undanförnum árum og munu vonandi halda áfram
að dafna. Það er hins vegar ekki hægt að fallast á að Kín-
veijar segi íslenskum ráðamönnum fyrir um það, hvaða ein-
staklinga þeir tala við. Þótt ísland viðurkenni Pekingstjórn
sem hina lögmætu ríkisstjórn Kína á það ekki að koma í
veg fyrir að við eigum viðskipti jafnt sem samskipti við fyrir-
tæki jafnt sem stjórnvöld á Tævan.
Ástæða er til að minna á, að við íslendingar áttum mikil
viðskipti við Sovétríkin á valdatíma kommúnista. Við héldum
uppi harðri gagnrýni á sovézk stjórnvöld fyrir einræði og
kúgun. Sovétmenn reyndu á allan hátt að efla pólitísk áhrif
sín hér en djúpstæður skoðanamunur á hinum pólitíska vett-
vangi kom ekki í veg fyrir mikil viðskipti á milli þjóðanna.
Harðvítugar deilur eru á milli ísraela og Palestínumanna
í Miðausturlöndum. Við íslendingar, sem og aðrar lýðræðis-
þjóðir tölum við báða aðila og hvorugur þeirra gerir tilraun
til að koma í veg fyrir slík samskipti. Tilraunir Kínveija til
þess að koma í veg fyrir samtöl okkar við Tævani eru til
marks um vinnubrögð, sem okkur eru framandi og verða
ekki til þess að auka veg þessa mikla ríkis í okkar augum.
Kínveijar hafa mótmælt
kornu Liens Chans,
varaforseta Tævans,
hingað til lands harka-
lega. Karl Blöndal fjall-
ar um heimsókn ferða-
mannsins frá Tævan.
SENDIHERRA Kína á íslandi,
Wang Jiangxing, gaf í gær-
kvöldi út tilkynningu þar sem
Iagt er að íslenskum stjórn-
völdum að vísa Lien Chan, varafor-
seta Tævans, sem nú er staddur í
óformlegri heimsókn á íslandi, úr
landi. Fyrr í gær var stjórnendum
fyrirtækisins Silfurtúns, sem vinnur
nú að uppsetningu verksmiðju til að
framleiða eggjabakka í Kína, tilkynnt
að ekki yrði af fundum fulltrúa fyrir-
tækisins með kínverskum ráðamönn-
um í Peking vegna heimsóknar Liens.
Fundirnir áttu annars vegar að snú-
ast um eggjabakkaverksmiðjuna og
hins vegar jarðhitaverkefni í Tíbet.
Kínveijar hafa brugðist hart við
vegna heimsóknar Liens, sem kom
hingað til lands í óformlega heimsókn
á mánudag og ræðir í dag við Davíð
Oddsson forsætisráðherra, en afboðun
viðræðnanna við fulltrúa Silfurtúns
er fyrsta dæmið um beinar aðgerðir
af hálfu Kína. í mótmælum sendiherr-
ans segir að aðeins sé til eitt Kína,
stjómin í Peking sé eini fulltrúi alls
Kína og Tævan sé óijúfanlegur hluti
Kína.
„Laumast inn í ísland“
„Lien Chan hefur nú laumast inn
í ísland, sem er í stjómmálasambandi
við Kínverska alþýðulýðveldið, undir
því yfirskini að hann sé „ferðamað-
ur“,“ segir í yfirlýsingunni. „Hann
hyggst stuðla að því hér að mynda
„tvö Kína“, „eitt Kína og eitt Tæ-
van“, og vinna spellvirki á góðum
samskiptum milli Kína og íslands.“
Sendiherrann skrifar að með því
að leyfa Lien _að koma í heimsókn til
íslands hafi íslendingar gerst sekir
um „alvarleg afskipti af innanríkis-
málum Kína og sært tilfmningar kín-
versku þjóðarinnar illilega" því að einu
gildi í hvaða erindum hann sé sagður
vera eða hvernig heimsókn hans sé
skilgreind sé heimsókn hans opinber
og „eðli hennar sérdeilis slærnt".
Því næst fylgir krafa Kínveija um
að íslensk stjórnvöld grípi til aðgerða:
„Kína getur því ekki annað en brugð-
ist hart við. Við krefjumst þess að
stjórn íslands geri sér grein fyrir
hagsmununum af samskiptum íslands
og Kína, vegi kostina og gallana af
alvöm og ákveði þegar hún gerir upp
hug sinn að binda tafarlaust enda á
heimsókn Liens og athafnir hans á
íslandi og banni einnig öllum íslensk-
um embættismönnum að hitta hann,
hvort sem það er formlega eða
„óformlega", sem svo er nefnt. Eila
verða afleiðingarnar alvarlegar."
Jiangxing hefur haft mikið að gera
undanfarna tvo daga. Hann ræddi í
gær við Geir H. Haarde, formann
utanríkismálanefndar Alþingis, og í
fyrradag gekk hann á fund embættis-
manna í utanríkisráðuneytinu. Á
mánudag var Hjálmar W. Hannesson,
sendiherra íslands í Peking, kallaður
á fund í kínverska utanríkisráðuneyt-
inu vegna heimsóknar Liens. Mót-
mælabréf sendiherrans fylgdi í kjölfar
yfirlýsingar, sem gefin var út í Peking
í gær.
„Kínveijar eiga ekki annars kost
en að bregðast við af hörku,“ sagði
Shen Guofang, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, við blaðamenn
í Peking í gær. „Við biðjum þau ríki,
sem eiga í hlut, að leyfa Lien Chan
ekki að koma í heimsókn þar sem það
mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir tvíhliða samskipti.“
I skeyti frá Reuíers-fréttastofunni
sagði að Guofang hefði ekki viljað
segja hveijar þær afleiðingar yrðu.
I leiðara dagblaðsins Hong Kong
Standard sagði hins vegar í gær að
létu stjórnvöld í Kína reiði sína í ljósi
vegna þessa máls hlyti að verða um
meira en mótmæli formsins vegna
(pro formá) að ræða. Þar er spurt
hvort fyrir Tævönum vaki að tryggja
að viðræður við ráðamenn í Peking
frestist enn eða varaforsetinn hafi
eingöngu verið gripinn ferðalöngun:
„Hvort heldur sem er þjónar ferðin
aðeins þeim tilgangi að eitra andrúms-
loftið einmitt þegar við ættum að
vera hreinsa burt alla pólitíska meng-
un, sem liggur yfír sundunum [milli
Kína og Tævans].“
Fundi aflýst
Friðrik Jónsson, framkvæmdastjóri
Silfurtúns, sagði í gær að fulltrúar
fyrirtækisins í Peking hefðu átt að
eiga fund með fulltrúum ráðuneytis
utanríkisviðskipta og efnahagssam-
starfs Kína í dag. Að sögn Friðriks
er verkefni Silfurtúns í Kína mjög
langt komið og verið að ganga frá
lokaatriðum samnings um að setja
upp verksmiðju til að framleiða eggja-
bakka fyrir Peking-borg. Hann kvaðst
ekki óttast að þessum samningi væri
stefnt í hættu, en þetta væri engu
að síður slæmt.
„Þetta tefur fyrir og tími er pening-
ar,“ sagði Friðrik og bætti við að
þetta væri um 100 milljóna króna
verkefni. Hann sagði einnig að hann
ætti von á að gera nokkra samninga
til viðbótar fyrir áramót um að setja
upp svipaðar verksmiðjur víðar í Kína.
Það væri því „mjög slæmt" ef nú hlypi
snurða á þráðinn.
Silfurtún rekur skrifstofu með
þremur starfsmönnum, þar af einum
Islendingi, Rúnari Má Sverrissyni, í
Peking og að auki starfa tveir menn
á vegum fyrirtækisins við uppsetningu
tækja. Tækin eru hins vegar framleidd
í Garðabæ.
Silfurtún er einnig fulltrúi Útflutn-
ingsráðs íslands í Kína og átti að sitja
fund í utanríkisviðskiptaráðuneytinu
um jarðhitaverkefni í Tíbet í dag.
Þeim fundi var einnig aflýst.
Vilhjálmur Guðmundsson, for-
stöðumaður iðnaðar og þjónustu hjá
Útflutningsráði, sagði í gær að ætl-
unin væri að halda óbreyttri áætlun.
„Okkur var beinlínis sagt að vegna
heimsóknar varaforseta Tævans gæti
ekki orðið af þessum fundi á meðan
á einkaheimsókn varaforseta Tævans
stæði,“ sagði Vilhjáimur. „Ég lít svo
á að þetta sé táknrænt. Þeir eru að
senda okkur skilaboð um að þetta séu
ekki bara orðin tóm, heldur láti þeir
verkin tala. Ég held hins vegar að
þetta sé mál, sem muni fjara út og
leysast."
Vilhjálmur sagði að jarðhitaverk-
efnið í Tíbet væri á frumstigi. Hann
kvaðst ekki vilja spá um hvert fram-
haldið yrði á aðgerðum Kínverja, eða
hvort þeim yrði haldið áfram eftir að
heimsókn Liens lyki.
Útflutningur til Kína eykst
Verðmæti útflutnings frá íslandi til
Kína nam 69 milljónum króna á síð-
asta ári, en 238 milljónum króna á
tímabilinu janúar til maí á þessu ári
samkvæmt Hagtölum mánaðarins,
sem Seðlabanki Islands gefur út. Sagði
Vilhjálmur að viðskiptin við Kína hefðu
vaxið margfalt eftir sýningu, sem hald-
in var í Xingdao í nóvember i fyrra
og næmi andvirði útflutnings 400 millj-
ónum króna það sem af væri þessu ári.
Vöruskiptajöfnuðurinn við Kína hef-
ur verið íslendingum óhagstæður. í
fyrra var andvirði innflutnings frá Kína
1,774 milljarðar, en 650 milljónir á
tímabilinu janúar til maí á þessu ári.
Andvirði útflutnings til Tævans
nam hins vegar tæpum tveimur millj-
örðum króna á síðasta ári samkvæmt
Hagtölum mánaðarins og rúmum
milljarði á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs. Verðmæti innflutningsvara
frá Tævan hefur á sama tíma verið
um helmingi minna en verðmæti út-
flutningsvara.
Lien Chan er á 10 til 12 daga heim-
sókn til Evrópu og hafa dagblöð á
Tævan sagt að hann muni einnig fara
til Spánar og sennilega Frakklands
og Belgíu.
í dagblaðinu China Times, sem
gefið er út í Tævan, sagði á mánudag
að íslenskir embættismenn hefðu að-
stoðað við að skipuleggja för varafor-
setans þegar þeir heimsóttu Tævan.
Vangaveltur um
viðskiptaskrifstofu
Tævan rekur viðskiptaskrifstofu í
öllum ríkjum Evrópu utan íslands. í
China Times sagði að ekki væri vitað
hvort Lien hygðist ræða opnun slíkrar
skrifstofu í viðræðum sínum hér á
landi. John Chang, varaforsætisráð-
herra Tævans, þvertók fyrir að slík
skrifstofa yrði opnuð um leið og Lien
færi brott frá íslandi og lagði áherslu
á að meta þyrfti málið.
„Það er mikilvægt að varaforseti
okkar fari utan,“ sagði Chang. „Það
varðar öryggi Tævans."
Stjórnvöld í Peking hafa litið svo á
allt frá því að borgarastyijöldinni lauk
með sigri kommúnista árið 1949 og
þjóðernissinnar undir forustu Changs
Kaisheks flúðu til Tævans að Tævan
væri uppreisnarhérað í Kína. Þegar
spurst var fyrir um mótmæli Kínveija
vegna heimsóknar varaforseta Tæ-
vans í kínverska sendiráðinu í gær
var spurt á móti: „Þú átt við Tævan-
Kína?“
Kínveijar mótmæla ávallt af festu
öllum formlegum samskiptum ríkja,
sem þeir hafa við stjórnmálasamband,
við Tævan á þeirri forsendu að um
afskipti af kínverskum innanríkismál-
um sé að ræða.
Tævanar hafa nú stjórnmálasam-
band við 30 ríki og eru flest þeirra í
Afríku og Rómönsku Ameríku. Páfa-
garður er eina ríkið í Evrópu, sem
hefur stjórnmálasamaband við Tæ-
van. íslendingar gengu frá samningi
um stjórnmálasamband við Kínverska
alþýðulýðveldið í desember 1971.
Bandaríkjamenn slitu stjórnmála-
sambandi við Tævan árið 1979 þegar
þeir tóku upp stjórnmálasamband við
Kína. Bandaríkjamenn hafa þó ávallt
stutt Tævan gegn ágangi Kínveija
og meðal annars veitt Tævönum hern-
aðaraðstoð.
Markmið Bandaríkjamanna er að
styðja Tævana án þess að styggja
Kínveija. Það hefur gengið misvel og
fyrir tveimur árum andaði svo köldu
milli Kínveija og Bandaríkjamanna
eftir að þeir síðarnefndu ákváðu að
leyfa Lee Teng-hui,forseta Tævans
að koma í einkaheimsókn til Banda-
ríkjanna, þar sem hann hitti meðal
annars A1 Gore varaforseta og Bill
Clinton forseta (þann síðarnefnda fyr-
ir tilviljun, eins og haldið var fram)
að nálgaðist frostmark. Þegar Kín-
veijar reyndu að skjóta Tævönum
skelk i bringu með heræfingum fyrir
kosningarnar á Tævan í mars í fyrra
sendu Bandaríkjamenn flugmóðurskip
til eyjarinnar til að sýna stjórnvöldum
í Taipei stuðning.
Kínveijar mótmæltu einnig þegar
Danir lögðu fram tillögu um mann-
réttindamál í Kína hjá Sameinuðu
þjóðunum í fyrra og hótuðu að það
mundi draga dilk á eftir sér. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur það mál ekki leitt til samdráttar
í viðskiptum Dana og Kínveija.
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1997 25
Útfiutningnr til Kína jókst úr 69 milljónum í fyrra í 381 fyrstu átta mánuðina 1997
Stærsti
fiskmarkaður
heims eftir
aldamót?
Heildarútflutningur frá íslandi til Kína hefur
margfaldast á seinustu mánuðum. Verðmæti
útflutnings til Kína nam tæpum 7 0 milljónum
í fyrra en frá janúar til ágústloka í ár var flutt
■-----------------—----->--------
á Kínamarkað fyrir 381 millj. kr. Omar Frið-
riksson komst að raun um að Kínveijar lækk-
uðu 1. október sl. tolla á sjávarafurðum sem
Islendingar selja til Kína úr 30% í 15-20%.
— -------------------------
Ymsir eru þeirrar skoðunar að Kína verði
mikilvægasti einstaki markaður heims fyrir
sjávarafurðir innan fárra ára.
Mikilvægi kínverska mark-
aðarins fyrir íslenskar
sjávarafurðir fer stöðugt
vaxandi. Breytingarnar
eru svo örar að fæstir treysta sér til
að spá með einhverri vissu um þróun-
ina á kínverska markaðsveldinu þar
sem nú búa 1,2 milljarðar manna.
Ekkert land í heiminum getur sýnt
fram á jafn mikla aukningu í inn-
flutningi sjávarafurða síðustu ár og
Kína og spáð er stöðugri aukningu
á næstu árum. Eftir aldamót verði
Kína sennilega stærsti einstaki mark-
aður í heimi fyrir sjávarafurðir. Fisk-
neysla Kínveija er talin hafa tvöfald-
ast á seinustu fímm árum og er nú
orðin um 20 kg á mann á ári. Áætl-
að er að 70-100 milljónir íbúa hafi
efni á að kaupa innflutt, tilbúin mat-
væli. Skv. opinberum tölum í Kína
hafa Kínveijar aukið innflutning sinn
á sjávarafurðum úr sem svarar 400
milljónum Bandaríkjadala (28,4 millj-
örðum ísl. kr.) í 1,5 milljarða dala
(106,5 milljarða kr.) á tæpum fímm
árum með vaxandi kaupmætti í ein-
stökum héruðum og fylkjum. Áætlað
hefur verið að það sem af er þessu
ári hafi innflutningur sjávarfangs í
Kína aukist um 10% frá í fyrra og
að innflutningur sjávarafurða muni
fjórfaldast fram til ársins 2010.
Kína er án efa stærsti framleið-
andi sjávarafurða í heiminum í dag
og halda kínversk stjórnvöld því fram
að þjóðin standi undir fjórðungi allrar
sjávarafurðaframleiðslu í heiminum
í dag (25 milljónum tonna).
„Þrátt fyrir miklar veiðar og fisk-
eldi í landinu dugar það ekki til að
mæta eftirspurninni og því hafa þeir
verið tilneyddir að opna landið fyrir
innflutningi sjávarafurða frá öðrum
löndum. Kína er án efa mikilvægasti
markaðurinn fyrir sjávarafurðir af
þeim markaðssvæðum sem eru í ör-
um vexti í heiminum. Hann er örugg-
lega sá stærsti," segir í skýrslu um
markaðsathugun á Kína sem Vil-
hjálmur Guðmundsson hjá Útflutn-
ingsráði íslands gerði fyrir tveimur
árum.
Lítill útflutningur samanborið
við Tævan og Hong Kong
Útflutningur ísienskra aðila til
Kína og fjárfestingar í landinu hafa
verið sáralitlar fram á allra seinustu
ár en íslendingar hafa hins vegar
keypt þeim mun meira frá Kína. Á
seinasta ári nam verðmæti innflutn-
ings frá Kína 1.774 milljónum kr.
og hefur hann farið stigvaxandi ár
frá ári. Uppistaðan í innflutningnum
hefur verið málmgrýti og kol sem
íslenska jámblendifélagið hefur flutt
inn en einnig hefur verið fluttur inn
fatnaður, pappírsvörur, leðurvörur,
sprengiefni o.fl.
Á undanförnum árum
vom loðnulýsi og land-
fryst loðna uppistaðan í
útflutningi íslenskra að-
ila til Kína auk lítilshátt-
ar karfa. Upp á síðkastið
hefur hins vegar útflutningur á skel-
rækju stóraukist. Þá hefur fyrirtækið
Silfurtún ehf. náð stómm viðskipta-
samningi í landinu um sölu og upp-
setningu vélasamstæðu til fram-
leiðslu á matarbökkum úr pappír fyr-
ir kínversku járnbrautirnar. Silfurtún
verður í samstarfi við kínverska aðila
við framleiðsluna sem á að hefjast
undir lok október og hafa opnað sölu-
skrifstofu í landinu. Gera forráða-
menn fyrirtækisins sér vonir um sölu
á fleiri pappírsmótunarvélum í Kína
ef vel tekst til, að sögn Björns Inga
Sveinssonar, framkvæmdastjóra Silf-
urtúns. Söluverðmæti vélarinnar sem
nú er verið að taka í notkun nam
rúmum 100 milljónum kr.
Virkir Orkint hefur einnig um
skeið unnið að jarðhitaverkefni í
Tangoo-borg og eru nú hafnar við-
ræður við aðila í Tíbet um sams kon-
ar verkefni þar og undirbúningur
undir það verkefni er í fullum gangi
að sögn Vilhjálms Guðmundssonar.
Árið 1993 var heildarverðmæti
útflutnings til Kína 8,6 milljónir kr.
Á síðasta ári skilaði beinn útflutning-
ur til Kína 69,1 millj. kr. en á fyrstu
átta mánuðum þessa árs nam verð-
mæti hans 380,9 milljónum kr. Út-
flutningur til Kína er enn sem komið
er smár í sniðum samanborið við við-
skipti íslendinga við Tævan og Hong
Kong. í fyrra voru fluttar út vörur
til Hong Kong fyrir 81,8 millj. kr.
en markaðurinn í Tævan skilaði
1.605 milljóna kr. útflutningstekjum.
Verðmæti útflutnings til Tævan hef-
ur numið á annan milljarð kr. árlega
allan þennan áratug. Þessar tölur
segja þó ekki alla söguna því nokkuð
hefur verið um óbeinan innflutning
íslenskra afurða til Kína í gegnum
milliliði í Evrópu og einnig hefur tölu-
verður hluti innflutnings til Hong
Kong verið fluttur áfram til Kína.
Unnið markvisst að auknum
samskiptum milli þjóðanna
„Viðskiptin hafa verið lítil við Kína
fram á seinustu ár en margfalt meiri
við Tævan. Við sjáum hins vegar
möguleikana í Kína, sérstaklega í
ljósi þeirra breytinga sem þar eiga
sér stað. Við fórum því af stað með
markaðsrannsókn á árunum 1994 og
1995. Því var fylgt eftir þegar send
var viðskiptasendinefnd með forseta
íslands til Kína í ágúst 1995.
Við höfum einnig tekið á
móti viðskiptasendinefndum
frá Kína og höfum unnið
markvisst að því að auka
samskiptin. Okkur varð það
ljóst að samskiptaörðugleikar á milli
landanna voru flöskuháls og réðumst
við þá í útgáfu á kynningarriti um
ísland á kínversku, sem var dreift í
Kína í fyrrasumar. Héldum við svo
mikla ráðstefnu í nóvember í fyrra
þar sem við kynntum ellefu íslensk
fyrirtæki samhiiða sjávarútvegssýn-
ingu sem haldin var í Qingdao. Fjög-
ur íslensk fyrirtæki voru með bás á
sýningunni og í framhaldi af þessu
fóru hjólin að snúast. Við gerðum
okkur grein fyrir því að þarna væri
markaður fyrir rækju en við höfðum
fram að því lagt mesta áherslu á
loðnu," segir Vilhjálmur Guðmunds-
son í samtali við Morgunblaðið.
4.-6. nóvember næstkomandi verð-
ur haldin önnur stór sjávarútvegs-
sýning í Peking og er áætlað að
12.000 gestir verði á sýningunni, sem
er talin mikilvægur vettvangur til
að koma á viðskiptasamböndum og
hasla sér völl á kínverska markað-
inum. Meðal þátttakenda á sýning-
unni í ár verða Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Hampiðjan, Samherji
og Kassagerð Reykjavíkur.
SH flytur út 1.400 tonn í ár
SH hefur margfaldað útflutning
sinn á skelrækju beint til Kína og
gera áætlanir SH ráð fyrir að heild-
arútflutningurinn á árinu verði um
1.400 tonn, skv. upplýsing-
um Halldórs G. Eyjólfsson-
ar, deildarstjóra hjá SH.
Gott verð hefur fengist
fyrir rækju í Kína og
heimsmarkaðsverð hefur
hækkað á þessu ári en einnig er nú
unnið að markaðssetningu fyrir
loðnu. Mjög lágt verð hefur hins veg-
ar fengist fyrir síid, sem er eftirsótt
í norðurhéruðum Kína. Nýlega kom
fram í fréttum að norskir síldarút-
flytjendur leggja mikið kapp á síldar-
útflutning til Kína og ætla að vinna
henni stóran sess á Kínamarkaði
með von um að verð fari hækkandi
með bættum efnahag þjóðarinnar.
Halldór G. Eyjólfsson segir dæmi um
að aðeins fáist 450 dalir fyrir tonnið ^
af síld en á sama tíma sé flutnings-
kostnaður í gámi 350 dalir og skila-
verð til framleiðenda því svo lágt að
það skili engum hagnaði.
Tollar lækka
Hár flutningskostnaður og háir
tollar og aðrar innflutningshindranir
hafa verið helstu hindranir í vegi
útflutnings íslenskra fyrirtækja til
Kína. Einstakar tegundir hafa verið
bundnar ákveðnum innflutningsk-
vótum. Á þessu eru þó að verða
mikilverðar breytingar, sem hafa _
greitt fyrir fijálsari viðskiptum. Fyr-' ~
ir nokkru afnam ríkið verðlagshöft
á fiskverði og tollmúrar hafa lækk-
að. Þannig hafa tollar á þeim sjávar-
afurðum sem íslendingar selja til
Kína nú verið iækkaðir úr 30% í
15-20% frá og með 1. október sl.,
skv. upplýsingum sem fengust á við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins. Útflyijendur hafa enn ekki feng-
ið tollskiptinguna sundurliðaða eftir
tengundum en telja þó ljóst að lækk-
unin skipti miklu fyrir íslenska út-
flutningshagsmuni. Toilalækkunin
er liður í allsherjartollalækkun sem
kínversk stjórnvöld tilkynntu í sein-
asta mánuði þar sem tollar voru al-
mennt lækkaðir úr 23% í 17% og
nær hún til 4.800 vörutegunda eða
73% af öllum innfluttum vörutegund-
um sem tollaðar eru í Kína. Þetta er
í annað skiptið á árinu sem Kínveij-
ar lækka tolla en aðgerðirnar eru
liður í opnun Kína fyrir alþjóðlegum
viðskiptum og aðlögun að reglum
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO), en Kínveijar sækja fast að
fá aðild að stofnuninni.
Útflutningsráð telur mikilvægt að
kannaðir. verði möguleikar á útflutn-
ingi fleiri fisktegunda til Kína og
áhugaverðir kostir kunni einnig að*'
vera á framleiðslu tæknivara til fisk-
vinnslu í Kína. Vilhjálmur Guð-
mundsson varar þó við því að litið
sé á Kína sem einn markað. í land-
inu séu 30 fylki mjög misjafnlega í
sveit sett en strandfylkin séu hvað
áhugaverðust, enda uppgangur þar
mestur og kaupgeta vaxandi.
Ekkert lát er á uppganginum í
Kína. Þótt lítillega hafi dregið úr
hagvexti mældist hann 9,7% á sein-
asta ári og verðbólga hefur farið
lækkandi, var 6,1% í fyrra. Á ný-
legri ráðstefnu á vegum OECD um
framtíðarþróunina í Kína var því
spáð að gera mætti ráð fyrir um 8%
árlegum hagvexti í Kína næsta ára-
tuginn. Bent var á að Kína er heim-
kynni 22% alls mannkyns en þar er
aðeins 7% ræktanlegs
lands og því verði fæðuöfl-
un meðal forgangsverk-
efna stjórnvalda á komandi
árum. Mestar líkur eru því
á að Kínveijar muni sækj-
ast eftir fiski í auknum mæli enda
fiskneysla í hávegum höfð í Kína.
„í Kína er fiskur táknrænn fyrir
bæði góða heilsu og mikil auðæfí.
Fiskafurðir eru því taldar vera mjög
góðar gjafír til vina og fjölskyldu-
meðlima,“ segir { skýrslu Útflutn-
ingsráðs um Kína.
Viðskipti Islands við Kína, Hong Kong og Taiwan
Island
Milljónir / |rína
króna • l'jn«
2.000 yE3 Keypt frá Kína (cif-verð)
B Selt tii Kína (fob-verð)
1.500
1.000
□ Keypt frá Hong Kong (cif-verð) -
B Selt til Hong Kong (fob-verð)
500
Island
/ Taiwan
-■ Keypt frá Taiwan
B Selt til
Taiwan
(fob-verð)
rrrrrrp
iuiui
1991 199219931994199519961997 1991 19921993199419951996 1991 199219931994199519961997
Viðræður
um verkefni
í Tíbet
íslensk fyrir-
tæki á sýn-
ingu í Peking