Morgunblaðið - 10.10.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.10.1997, Qupperneq 1
r 72 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 230. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 55. ríkisstjórn ftalíu eftir stríð fallin eftir 17 mánuði við völd Prodi biðst lausnar eftir Reuter Leiðtogar heilsa JACQUES Chirac Frakklandsfor- seti horfír sposkur á er Borís Jeltsín Rússlandsforseti veifar til manníjölda fyrir utan Chez Yvonne krána í Strasbourg í Frakklandi í gær. Þar eru þeir staddir vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í dag og á morgun. ■ Áhersla á mannréttindi/19 ------------- Skeggstutt- ir strýktir Kabúl. Daily Telegraph. HERT hefur verið á eftirliti með skeggvexti í Kabúl, höfuðborg Afganistans, og sæta karlmenn með ónógan hárvöxt í andliti refsingu af hálfu Taliban-stjórnarinnar. „Þeir mældu skeggvöxtinn og ákváðu að hann væri ónógur og ég var hirtur. Sleginn sex sinnum á hvora hendi með stálstreng," sagði einn hinna snöggskeggjuðu, sem varð fyrir barðinu á eftirlitssveitum stjórnarinnar. Samkvæmt skipun strangtrúarstjórnar múhameðstrú- armanna mega afganskir karlmenn hvorki raka skegg sitt né snyrta. strand fjárlagafrumvarps Róm. Reuter. ROMANO Prodi, forsætisráð- herra Italíu, baðst í gær lausnar fyiir sig og ráðuneyti sitt eftir að tilraunir til að fá þingmenn vinstri- flokksins „kommúnískrar endur- reisnar“, sem fram að þessu höfðu stutt minnihlutastjórn Prodis, til að samþykkja fjárlagafrumvarp stjórnarinnar, strönduðu. Prodi, sem hafði veitt fyrstu vinstristjórn Italíu eftir lok síðari heimsstyi'jaldar forsæti, kom í veg fyrir að stjórnin byði lægi'i hlut í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrum- varpið í neðri deild þingsins í gær með því að bjóða afsögn sína. Það er nú í höndum Oscars Luigis Scalfaro forseta að ákveða hvort hann fallist á afsögn Prodis eða hvort hann feli honum um- boð til myndtinar nýrrar stjórnar. Walter Veltroni, varaforsætisráðherra, sagðist búast við að boða þyrfti til nýrra þingkosn- inga. Kommúnistar brugðust Ríkisstjóm „Ólífubanda- lags“ miðju- og vinstri- flokka, sem sat í 17 mánuði undir forystu Prodis, var háð stuðningi þingmanna „kommúnískrar endur- reisnar," til að tryggja stjómar- frumvörpum brautargengi á þing- inu. En kommúnistarnir, undir for- ystu Faustos Bertinottis, neituðu að styðja fjárlagafrumvarp- ið íyrir næsta ár, sem fól í sér verulegan niðurskurð ríkisútgjalda. KommúiiisL ar gerðu kröfur um breyt-' ingar á frumvarpinu, meðal annars um að lífeyrisþegar og atvinnulausir fengju meira í sinn hlut. PRODI ygglir sig á þinginu í gær. Berlusconi vill þjóðstjórn Strax eftir að Prodi hafði yfir- gefið þingið á leið á fund forsetans tilkynnti Silvio Berlusconi, leiðtogi Frelsisbandalags mið- og hægii- flokka, sem era í stjórnarand- stöðu, að Italía þyrfti á þjóðstjórn beggja stærstu þingfiokkanna að halda til að stýi-a landinu örugg- lega í höfn Efnahags- og mynt- bandalags Evrópu, EMU. „Eina raunhæfa lausnin er þjóðstjórn. Það er öruggasta leiðin til að eiga greiða leið inn í Evrópu og til að gera umbætur á efnahagi lands- ins,“ sagði Berlusconi. Scalfaro forseti er sagður lítt hrifinn af þvi að kallað verði til kosninga þremur og hálfú ári áður en kjörtímabili sitjandi þings lýk- ur. Hann mun í dag og næstu daga eiga fundi með forystumönnum þingflokka til að kanna möguleika á myndun nýrrar stjórnar, fyrst með leiðtogum smærri flokkanna. Prodi og Berlusconi hitta forset- ann á mánudaginn. Gardermo-brautinni líkt við umhverfísslys Reuter Ósló. Morgunblaðið. „UMHVERFISVERKEFNIÐ sem varð að umhveríisslysi," segir Odd- vard Nilsen, formaður samgöngu- nefndar norska þingsins, um eitt umfangsmesta klúður sem komið hefur upp í samgöngumálum þai' í landi, Gardermo-brautina svoköll- uðu. Er sprengt var fyrir henni nærri Ósló, reyndist bergið svo óþétt að grunnvatnsstaða í ná- grenninu hefur lækkað úr öllu valdi, lítil vötn eru við það að hverfa og hús hafa skekkst á grunni. Er reynt var að þétta bergið var notað fyll- ingarefni sem getur reynst hættu- legt mönnum við þessar aðstæður. Flytja á allt utanríkisflug frá Fornebu til Gardermoen-vallar á næsta ári og ætlunin er að yfii' helmingur allrar umferðar til vallar- ins verði með járnbraut. Nú bendir allt til þess að veruiegar tafír verði á að hún komist í gagnið vegna áð- urnefndra vandamála með lagningu brautarinnar. Stjórnvöld halda enn fast við þá ákvörðun að flugvöllur- inn verði tekinn í notkun á næsta ári og fyrirséð era samgönguvanda- mál, verði járnbrautin ekki tilbúin. Lekinn í berginu kom í ljós í byrj- un árs og hefur verið reynt með ýmsum ráðum að hækka grunn- vatnsstöðuna, sem hefur lækkað á tólf ferkíiómetra svæði. Það hefur hins vegar ekki tekist vegna þess hversu mikið vatn lekur í jarðgöng- unum og hefur jarðsig orðið á Hell- erud-svæðinu við Ósló, með þeim af- leiðingum að 61 hús hefur skekkst á grunninum. Tvö þeirra hafa skemmst svo mikið að norsku járn- brautirnar hafa boðist til að kaupa þau. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist efni sem notað var til að þétta göngin vera eitrað og hefur starfið í göngunum verið stöðvað, auk þess sem starfsmennirnir gang- ast undir læknisskoðun. Sama efni hefur verið notað við gangagerð í Halland í Svíþjóð, þar sem fimm kýr veiktust eftir að hafa drukkið vatn sem rann úr göngunum. Um er að ræða efnið Rhoca-Gil en í því er m.a. akrýlamíð, sem er krabba- meinsvaldandi og getur valdið út- brotum og skaða á taugakerfi. Hvölum komið í sjó HUNDRUÐUM sjálfboðaliða tókst að konia 48 grindhvölum til sjávar á ný eftir að 100 hvala vaða synti upp í íjöru á Karikari- ströndinni á norðurhluta Nýja Sjálands í gær. Voru vinnuvélar notaðar til að flytja þá sem lengst voru komnir upp í fjöru. Kínverj- ar opni markað sinn Genf. Reuter. RENATO Ruggerio, fram- kvæmdastjóri Heimsviðskipta- stofnunarinnar (WTO), sagði í gær, að Kínverjar yrðu að opna fyrir innflutning á vörum og þjónustu til Kína áður en þeir gætu vonast til að langþráður draumur þeirra um aðild að WTO rættist. Vill gagnkvæmni Ruggerio varaði Kínverja við því að búast við að þeim tækist að yfirstíga allar hindranir, sem enn væru í vegi aðildar, í ferð Jiangs Zemins forseta til Bandaríkjanna seinna í þessum mánuði. „Kínverjar verða að átta sig á því að viðskiptalönd ætlast til gagnkvæmni; að sami aðgangur verði að þeirra markaði og þeir hafa að mörkuðum erlendis,“ sagði Ruggerio í upphafi við- ræðna við kínverska sendinefnd um skilyrði fyrir inngöngu í WTO. Reno varð bálreið Wa.shington. Reutcr. JANET Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær hafa orðið báh'eið yfir því hve Hvíta húsið hefði dregið að afhenda myndbandsupptökur af meintum fjáröflunarfundum Bills Clintons forseta í Hvíta húsinu. Ráðuneytið hafði óskað eftir því að upptökur af 44 kaffifundum Clintons með aðilum er létu fé af hendi rakna í kosningasjóði forset- ans yrðu afhentar vegna rann- sóknar á meintum brotum hans í starfi. Tilvist myndbandanna kom í ljós 1. október en það var ekki kynnt ráðuneytinu fyrr en 4. október, eða daginn eftir að Reno skrifaði þing- mönnum bréf og hreinsaði Clinton af broti í starfí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.