Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997_____________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ^ FRÉTTIR SAMNINGUR hefur verið gerður við hljómsveitarstjórann Rico Saccani um að liann taki að sér stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sin- fóníuhljómsveitar íslands frá 1. september 1998 til 30. júní árið 2000. Saccani tekur við af núver- andi aðalhljómsveitarstjóra, Petri Sakari, sem þá lætur af störfum. Rico Saccani hefur komið hingað til lands nokkrum sinnum og stjórnað Sinfóníunni. Það var fyrir tilstilli vinar hans, Kristjáns Jóhannssonar, óperusöngvara, að Saccani stjórnaði tónleikum til styrktar Barnaheill í Hall- grímskirkju árið 1992. Síðast var hann hér í mai 1995 og sljórnaði konsertuppfærslu á óperunni Othello eftir Giuseppe Verdi. Saccani var ráðinn aðalhljóm- sveitarstjóri Fílharmóníuhljóm- sveitarinnar í Búdapest árið 1997 til þriggja ára og ætlar hann að gegna því starfi samhliða starfi sínu hér. Að auki kemur hann fram sem gestastjórnandi víða um heim, aðallega þó í Evrópu og Asíu. Hann er bandarískur ríkisborgari en rekur ættir sínar til Ítalíu og Rúss- lands. Saccani er framúrskarandi píanisti og fyrr á árum kom hann viða fram sem slíkur og tók m.a. þátt í Tchaikovsky píanó- keppninni árið 1978. Vill fá mikilsmetna gestaleikara hingað Rico Saccani er staddur í Köln þar sem hann stjórnaði nýverið tónleikum Fílharmóníuhljóm- sveitarinnar þar í borg og hljómsveit Kölnaróper- unnar í uppfærslu á Falstaff eft- ir Verdi. Hann segir það hafa komið sér í opna skjöldu þegar honum barst i sumar boð um að stjórna Sinfóníu- hljómsveitinni. „Tímasetningin var góð og ég þekki hljómsveitina af já- kvæðu einu. Ég gleðst þvi yfir þessu boði og því að ég skyldi geta tekið starfið að mér en það er ekki síst heiður að fá að vera með hljóm- sveitinni þegar hún fagnar hálfrar aldar afmæli sínu í mars árið 2000.“ Aðspurður hvað hann hyggist leggja áherslu á í starfi sínu seg- ist Saccani ætla að leggja sig fram við að fá hingað til lands mikilsmetna gestaleikara víðs vegar að úr heiminum. „Ég hef áhuga á að stýra efnisskrá verka sem hljómsveitin hefur ekki mik- ið leikið að undanförnu. Hefð- bundinni efnisskrá en engu að síður áhugaverðri, bæði fyrir hljómsveitina og áheyrendur." Áherslur eftir bakgrunni stjórnandans Guðný Guðmundsdóttir, kon- sertmeistari Sínfóníuhljómsveit- arinnar, segist hlakka til samver- unnar með Saccani. „Ég geri ráð fyrir að við eigum eftir að leika meira af verkum rómantíska timabilsins og jafnvel óperur því þær eru sérsvið Saccanis," segir Guðný. „Þó að tónlist sé alþjóðlegt list- form þá fara áherslur alltaf eftir bakgrunni stjórnandans. Það er mín tilfinning að hann eigi eftir að fara meira aftur í tímann en við höfum verið og í því felst auðvitað tilbreyting. Fjölbreyti- leikinn verður að vera í fyrirrúmi svo tónlistin.höfði til sem flestra." Saccani ráðinn næsti aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníunnar Rico Saccani Fangelsis- dómur staðfestur HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær tveggja og hálfs árs fang- elsisdóm Héraðsdóms Reykja- vikur yfir Sigurbirni Gunnari Utley, einum þriggja manna sem dæmdir voru fyrir að hafa ráðist á starfsmann verslana- keðjunnar 10-11 og ræna pok- um með uppgjöri. Þremenningarnir voru sak- felldir fyrir að hafa hinn 14. apríl sl. með fyrirframgerðri áætlun staðið að þessu ráni og haft upp úr krafsinu 2,2 milljónir króna í reiðufé, 175 þúsund krónur í ávísunum og 4,1 m.kr. í rafrænum færslum, alls 6.475 þúsund krónur. Sigurbjörn Gunnar var sá eini sem áfrýjaði en Hæstirétt- ur tók sjónarmið hans ekki til greina. FÍB-trygging starfað í eitt ár Beinn sparnað- ur bíleigenda 1,1 milljarður HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands áætlar að beinn sparnaður bifreiðaeigenda vegna lægri ið- gjalda sé tæplega 1,1 milljarður króna á árinu 1997. Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda óskaði álits Hagfræðistofnunar á þessu í tilefni af því að eitt ár var í september frá því Ibex Motor Policies tók að sér tryggingar fyrir félagsmenn FÍB. Lækkun varð á iðgjöldum ann- arra tryggingafélaga eftir að FÍB- tryggingar tóku til starfa. FÍB óskaði eftir áliti Hagfræðistofnun- ar á beinum sparnaði bifreiðaeig- enda vegna lækkunar á iðgjöldum og lækkun vísitölu neysluverðs og áhrifum þess á skuldir heimilanna. Útgjöld vegna bifreiðatrygginga hefðu orðið 6.432 milljónir króna ef iðgjöld hefðu þróast eins og verð á öðrum vörum og þjónustu. Útgjöldin urðu hins vegar 5.335 milljónir króna. Beinn sparnaður bifreiðaeigenda er því 1.096.452.165 krónur á árinu 1997. Hagfræðistofnun áætlaði hvað vísitala neysluverðs hefði hækkað ef ekki hefði komið til lækkun á iðgjöldum. Niðurstaðan er sú að hækkun hefði orðið 2% á tímabilinu september 1996 til loka ágúst 1997. Miðað er við að iðgjöld bif- reiðatrygginga hefðu hækkað jafn mikið og önnur vara og þjónusta á tímabilinu. Skuldir heimilanna lækka um 1,2 milljarða kr. Þar sem iðgjöld bifreiðatrygg- inga lækkuðu í stað þess að hækka leiddi það til áhrifa á vísitölu neysluverðs. í stað 2% hækkunar vísitölu neysluverðs varð hækkunin 1,62%. Hagfræðistofnun metur þetta til lækkunar á skuldum heim- ilanna um rúmlega 1,2 milljarða króna á þessu tímabili. Samtals hafi landsmenn því hagnast um rúmlega 2,3 milljarða króna á einu ári vegna aðgerða FÍB til að skapa virka samkeppni í bifreiðatrygg- ingum. Félagsmenn í FÍB eru um 18.000 talsins en þeir sem hafa tekið tryggingu hjá FÍB-tryggingu hjá Lloyd’s eru á sjötta þúsund. Arni Sigfússon, formaður FÍB, segir að Ibex Motor tryggingahóp- urinn sé sáttur við útkomuna fyrsta árið sem FÍB-trygging starfi hérlendis. Nú sé unnið að undir- búningi þess að bjóða upp á fleiri tryggingaþætti í starfseminni. Mor^unblaðið/Kristinn TRYGGVI Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla íslands, og Árni Sigfús- son, formaður FÍB, kynntu niðurstöður álitsgerðar Hagfræðistofnunar. Rannsóknarnefnd flugslysa vegna slyssins á TF-CCP Settar verði takmarkan- ir um lágmarksreynslu LOKIÐ er rannsókn Rannsóknar- nefndar flugslysa á flugvélinni TF- CCP, eins hreyfils, tveggja manna flugvél sem fórst skammt út af Straumsvík 5. apríl og með henni tveir menn. Rannsóknarnefndin leggur til að Flugmálastjórn setji sérstakar takmarkanir um lág- marksreynslu flugmanns á vand- meðfarnar flugvélar, sem skráðar eru eða kunna að verða skráðar hérlendis, varðandi starfrækslu í listflugi. TF-CCP var af gerðinni Yakolev, Yak-52, hönnuð af Yakolev Design Bureau í Moskvu en smíðuð hjá Bacau flugvélaverksmiðjunum í Búkarest í Rúmeniu 1984. Hún var keypt notuð hingað til lands og gaf Flugmálastjórn út lofthæfisskírteini 16. mars 1995 til tilrauna- ogeinka- flugs. TF-CCP hóf flug af Reykjavíkur- flugvelli kl. 13:35 og flugmaðurinn hafði nýhafíð æfingar í listflugsæf- ingasvæði suður af Álftanesi þegar hún hafnaði í sjónum, um 1.600 m frá landi út af Straumsvík. Svo virð- ist sem flugvélin hafi ofrisið á hvolfí í um 3.000 til 4.000 feta flughæð og fallið í spuna til jarðar. Niður- staða þessarar skýrslu er sú að ekki var unnt að finna neina bilun í flugvélarflakinu sem hugsanlega gat verið orsök eða orsakavaldur slyssins. Ekki er talið að flugmaður- inn eða farþeginn, sem einnig var flugmaður, hafi ætlað sér í þetta flugbragð, heldur hafi ofrisið verið óvænt og snarpt í flugi á hvolfí. Einnig er talið að sá sem höndlaði stjórntækin, hafi ekki náð að koma fram réttum viðbrögðum til þess að stöðva spunann til jarðar. í niðurstöðum Rannsóknarnefnd- ar flugslysa segir m.a.: Skjöl flugvélarinnar voru í gildi; flugmaðurinn hafði gild réttindi til flugsins; farþeginn sem var reyndur listflugmaður en hafði enga reynslu á Yak-52, var við stjórnvöl þegar flugvélin féll í sjóinn; ekki fannst bilun í flugvélarflakinu, sem ætla má að hafi verið fyrir hendi fyrir slysið. Þá segir svo í niðurstöðunum um líklega orsakaþætti: Flugvélin var á eða rétt yfir há- marksþyngd með þyngdarmiðju við aftari takmörk; hraður spuni varð eftir ofris í flugi á hvolfi í um 3.000 til 4.000 feta hæð; flugvélin var í hröðum spuna á hvolfi þegar hún hafnaði í sjónum; lítil reynsla flug- mannsins í listflugi á Yak-52 og mikil reynsla farþegans í listflugi en engin á Yak-52 kann að hafa valdið því að rétt viðbrögð til að stöðva spuna til jarðar hafi komið of seint. Hvatt til stofnunar sambands listflugmanna í lok skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa eru settar fram tillögur í öryggisátt. Er því beint til Flug- málastjórnar að hún setji sérstakar takmarkanir um lágmarksreynslú flugmanns á Yak-52 og aðrar vand- meðfarnar flugvélar sem skráðar eru eða kunna að verða skráðar hér á landi varðandi starfrækslu í list- flugi. Einnig er því beint til Flug- málastjórnar að hún skrái sérstakar takmarkanir í rekstrarfyrirmæl' fyrir tilraunaloftför sem eiga við hveija sérstaka tegund og mælt er með því að Flugmálastjórn beiti sér fyrir stofnun sambands listflug' manna sem hafí umsjón með list- flugi og setji sér reglur þar um er Flugmálastjórn viðurkenni. í lögum um rannsókn flugslysa nr. 59 frá 1996 segir m.a. að mark- mið flugslysarannsókna sé að greina orsakaþætti flugslysa í þv' skyni einu að koma í veg fyrir að flugslys endurtaki sig og að örygg1 í flugi megi aukast. Tilgangurinn sé ekki sá að skipta sök eða ábyrgð’

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.