Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 11 FRÉTTIR Erfiður rekstur Seaflower Whitefish í Namibíu vegna of lítils kvóta Samstarf við annað út- gerðarfélag undirbúið ÚTGERÐAR- og fiskvinnslufyrir- tækið Seaflower Whitefish í Namib- íu, sem er að hluta til í eigu Is- lenskra sjávarafurða hf., er um þessar mundir að ganga frá samn- ingi við útgerðarfélagið Lalandii í Namibíu um samnýtingu veiði og yinnslu. Fyrirtæki í eigu namibískra stjórnvalda á 80% í Seaflower Whitefish og íslenskar sjávarafurð- ir eiga 20% í fyrirtækinu. Lalandii er með álíka mikinn kvóta og Sea- flower Whitefish, en að sögn Bene- dikts Sveinssonar, forstjóra ÍS, er kvóti hvors félags um sig of lítili til að félögin geti náð árangri við núverandi aðstæður, en með sam- vinnu og hagræðingu ættu þau að geta staðið betur að vígi. í byijun þessa árs var var úthlut- aður kvóti lýsings í Namibíu skorinn niður um 30% og lækkaði kvóti Seaflower þá úr tæplega 13 þúsund tonnum í fyrra í um 8.500 tonn. |Áður hafði kvóti fyrirtækisins verið aukinn um 30% m.a. fyrir milli- göngu íslenskra stjórnvalda. Að sögn Benedikts var kvóti Seaflower svo aukinn nýlega um 10% á ný, en kvótaúthlutun fyrir næsta ár verður ljós í næsta mánuði. Hann sagði að í áætlunum væri miðað við að kvótinn yrði ekki aukinn frek- ar og því væri verið að ganga frá samningi við Lalandii um samstarf sem ætti að leiða til aukinnar hag- ræðingar. Meiri tekjur en gjöld „Seaflower seldi tvö skip fyrr á þessú ári bæði vegna þess að kvót- inn hafði minnkað og einnig vegna þess að fyrirtækið hafði bætt við sig nýju skipi áður og var því um ákveðna hagræðingu að ræða í samsetningu flotans. Þessi rekstur hefur gengið svona frekar illa þar sem þetta félag hef- ur aldrei haft nægilega mikinn kvóta til að rífa sig virkilega upp. Það var upphaflega reiknað með því í öllum áætlunum að kvótinn yrði meiri og við það miðað, en það hefur ekki gengið eftir og rekstur- inn því verið erfiður. íslenskar sjáv- arafurðir hafa hins vegar alla tíð haft af þessu meiri tekjur en gjöld. Namibíumenn hafa mikinn áhuga á því að við höldum áfram að vinna saman og viija þeir leggja töluvert á sig til þess. Við höfum líka áhuga á samstarfinu og við verðum að telja að það sé einhver framtíð í þessu,“ sagði Benedikt. Heimsókn sjávarútvegs- ráðherra styrkir tengslin Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra er nú í Namibíu og sagð- ist Benedikt eiga von á að hann myndi leggja inn gott orð í þessu sambandi eins og hann hefði reynd- ar alla tíð gert hingað til. „í fyrra báðum við íslensk yfir- völd um hjálp vegna þess að þá þurftum við nauðsynlega að fá meiri kvóta til þess að ná rekstrin- FRÁ stofnfundi samtakanna í fyrrakvöld, FYRSTI stjórnarfundur Sam- taka um þjóðareign var haldinn í gær. Jón Arason, formaður samtakanna, segir að félags- menn séu nú á sjötta hundrað og búast megi við að félagið stækki mikið á næstu dögum þegar það komi sjónarmiðum sínum á framfæri í auglýsing- um fjölmiðlanna. Jón kveðst ekki vera móti kvótakerfinu heldur þeim agnúum sem eru á því. „Við erum fyrst og fremst að beij- ast gegn þeim misrétti að auð- lindin færist á nokkrar hendur. Menn eru að kaupa og selja þjóðareign því það stendur skýrum stöfum að fiskurinn sé sameign þjóðarinnar. Við ætl- um að láta á það reyna hvort þjóðin vilji fá úr því endanlega úr því skorið hvort svo sé eða ekki,“ sagði Jón. Jón sagði að viðtökur al- mennings við stofnun samtak- anna hefðu verið langt umfram væntingar sínar. „Ég er ekki lentur ennþá og varð hálf- hræddur á fundinum við við- brögðin. Það er að fæðast nýtt afl í þjóðfélaginu þrátt fyrir að þessi umræða sé ekki ný af nálinni. Samtökin eru samein- ingarskjól fyrir alla þá sem eru andvígir allri þessari eignaupp- töku. Málið snýst ekki einvörð- ungu um kvótakerfið og hverjir eigi kvótann heldur miklu fremur um öryggi fólksins í landinu, búsetu þess og annað slíkt. Kvótinn hefur horf- ið úr byggð og margir þurft að yf- irgefa eignir sínar og hefja lífsbarátt- una upp á nýtt vegna eignaupptök- unnar,“ sagði Jón. Hann kvaðst ekki geta svarað því hvers konar fyrir- komulag hann sæi fyrir sér. Samtökin hefðu ekki útkljáð það mál. „Það verða alltaf skiptar skoð- anir því við finnum aldrei til það gott kerfi að það verði ekki ósætti um það. Hjá ýmsum þjóðum er það fyrirkomulag að ríkið eigi kvótann og leigi hann út. Aðrir deila þjóðar- auðnum niður á hvert manns- barn og til eru margar leiðir að markmiðinu. Hvað sem öllu líður hefur núverandi fyrirkomulag geng- ið sér til húðar. Það eru tímamót í land- inu. Við finnum það á öllum, það er ekki hægt að bjóða fólki upp á slíka eigna- upptöku lengur," sagði Jón. Hann kvaðst sjá vissa annmarka á veiðileyfagjaldi. „Ef þeir sem leigja kvóta þyrftu einnig að greiða gjald fyrir veiðileyfi Jenti það gjald á endan- um á þeim sem vinn- ur á dekkinu. Það yrði einung- is einn viðbótarskatturinn á sjómenn landsins. Við viljum að allir fái að njóta fisksins í sjónum áfram og fái arð af sinni eign. A sjötta hundrað félagar í Samtök- um um þjóðareign Morgunblaðið/Ásdís JÓN Arason, for- maður Samtaka um þjóðareign. um saman. Það leiddi til þess að kvótinn var aukinn, en við erum auðvitað ekki að ætlast til þess að opinberir aðilar reki þessi viðskipti fyrir okkur. Hins vegar er gott að íslensk stjórnvöld fylgist með þessu og leggi inn gott orð þegar á þarf að halda, og ég held að það sé nákvæmlega þannig sem Þorsteinn hefur farið að málum,“ sagði Bene- dikt. Hann sagði aðspurður að ekkert hefði verið leitað sérstaklega til Þorsteins í þessu sambandi áður en hann hélt í opinberu heimsóknina til Namibíu, en honum og ráðunejá- isstjóra sjávarútvegsráðuneytisins hefði þó verið kynnt nákvæmlega starfsemi ÍS þar í landi. Benedikt sagði að hins vegar væri ljóst að heimsókn Þorsteins til Namibíu styrkti þau tengsl sem komin væru á og auk þess gæfi hún íslenskum sjávarafurðum og fleiri fyrirtækjum aukna möguleika á að ná meiri at- hygli stjórnvalda í Namibíu. Við getum ímyndað okkur hvernig Iífsafkoman væri í Noregi ef olíugróðinn væri í höndum 10-15 manna. Útgerð- armönnum var treyst fyrir því að hafa kerfið á þann hátt sem það er orðið núna og þeir spil- uðu vitlaust úr því. Sljórnvöld hafa sofið á verðinum. Nú boða stjórnvöld að fyrirtæki í sjávar- útvegi megi ekki eiga meira en 10% kvótans. Það verður að byrja á því að móta leikreglurn- ar áður en gefið er út í spil. Auk þess skiptir sú hugmynd engum sköpum því reglugerðin verður svo götótt að það verður hægt að smjúga í gegnum hana. Þetta er aðeins gert til að slá á óánægju manna og kaupa sér grið,“ sagði Jón. Hann kveðst eiga von á því að Samtök um þjóðareign eigi eftir að vera öflug hreyfing. Á næstu dögum verði auglýsingar í útvarpi og sjónvarp þar sem landsmenn verða hvattir til að skrá sig í félagið. Samtökin fjármagna auglýsingarnar með félagsgjöldum. Félagsgjald er 2.000 kr. á ári. „Það verður blásið í herlúðra því við vitum að við höfum mótbyr úr röðum kvótaeig- enda. Því er líka ósvarað hvern- ig svona hreyfing þróast. Verði engin viðbrögð og ekki á okkur hlustað geta samtökin þróast út í að vera stjórnmálaafl,“ sagði Jón. Stjórn Samtaka um þjóðar- eign kom saman á sínum fyrsta stjórnarfundi í gær. Sjö aðal- menn skipa sljórnina. Þeir eru: Jón Arason formaður, skip- stjóri frá Þorlákshöfn, Bárður G. Halldórsson menntaskóla- kennari, Bessastaðahreppi, Kristinn Arnberg skipstjóri, Grindavík, Valdimar Jóhannes- son framkvæmdastjóri, Reykja- vík, Árni Jónasson skipstjóri, Garði, Stefán Erlendsson stjórnmálafræðingur, Hvera- gerði, og Halldór Hermannsson skipstjóri, ísafirði. I varastjórn sitja: Guðmund- ur Erlendsson stýrimaður, Hornafirði, Guðmundur Olafs- son hagfræðingur, Reykjavík, Ólafur Hannibalsson blaðamað- ur, Reykjavík, Lúðvík Emil Kaaber lögfræðingur, Reykja- vík, og Þórir Sigurðsson, Akur- eyri. Ráðherra athugar reglur LIN MENNTAMÁLARÁÐHERRA sagði í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær að hann hefði beint þeim tilmæl- um til stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna að hún framfylgdi ekki þeirri ákvörðun sinni, frá því í síð- ustu viku, að þeir nemendur sem byggju við fjöldatakmarkanir myndu aðeins fá eitt tækifæri á námslánum til að reyna að komast af fyrsta misseri yfir á annað misseri, í stað þess að fá tvö tækifæri, eins og verið hefur. Ráðherra sagði málið vera til efn- islegrar athugunar hjá ráðuneytinu í samráði við námsmenn og stjórn Lánasjóðsins og taldi líklegt að hægt yrði að komast að sameiginlegri nið- urstöðu sem allir gætu unað við. Málshefjandi Svavar Gestsson, þingmaður Alþýðubandalags, gagn- rýndi í ræðu sinni fyrrgreinda ákvörðun stjórnar LÍN og sagði að um stjórnsýsluleg mistök væri _að ræða. Nýjar reglur stjórnar LÍN hefðu verið afturvirkar og því snert þá námsmenn sem þegar hefðu haf- ið nám á grundvelli annars kerfis. Svavar fagnaði fyrrgreindri ákvörð- un ráðherra og sagði að með henni gætu þeir nemendur sem þegar hefðu skráð sig í þær deildir sem hefðu fjöldatakmarkanir, treyst því að gamla kerfið gilti að minnsta kosti í vetur. í fréttatilkynningu, sem formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands hefur sent frá sér, er þessari ákvörðun ráðherra einnig fagnað. ♦ ♦ ♦----- Hæstiréttur Kirkjugarðar o g útfarar- þjónusta verði aðskilin HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær með dómi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um stjórnunarleg- an aðskilnað Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma og Útfararstofu kirkjugarðanna, sem hefur um 80% markaðshlutdeild í útfararþjónustu. Upphaf málsins var það að dóms- og kirkjumálaráðuneytið skaut kvörtun keppinauta Útfararstofunn- ar til samkeppnisyfirvalda. Þá gegndi forstjóri kirkjugarðanna framkvæmdastjórastarfi útfarar- þjónustunnar og var það metið sem 25% af starfi hans. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála mælti svo fyrir að kirkjugarðsstjórn skyldi skipa serstaka framkvæmda- stjórn fyrir Útfararstofuna. Fram- kvæmdastjórnin skuli ráða fram- kvæmdastjóra fyrir Útfararstofuna. Framkvæmdastjórn Útfararstofunn- ar skuli ekki skipuð sömu mönnum og framkvæmdastjórn Kirkjugarð- anna og sami maður skuli ekki gegna starfi framkvæmdastjóra Útf- ararstofunnar og Kirkjugarðanna. Laun framkvæmdastjórnar og fram- kvæmdastjóra Útfararstofunnar skuli greidd af Útfararstofu Kirkju- garðanna. Stjórn kirkjugarðanna skaut þess- um úrskurði áfrýjunamefndar til Héraðsdóms sem staðfesti hann í mars sl. og það gerði Hæstiréttur einnig í gær. M.a. hafnar rétturinn þeirri málsástæðu kirkjugarðanna, sem eru sjálfseignarstofnun, að starfsemin hafi ekki fallið undir sam- keppnislög. Telur rétturinn að sam- keppnisyfirvöld hafi haft formlega heimild til aðgerða á þessu sviði. Einnig telur Hæstiréttur að ákvörðun samkeppnisyfirvalda um stjórnunarlegan aðskilnað hafi verið málefnaleg, stuðlað að lögmætu markmiði og ekki gengið lengra en góðu hófi gegndi. Því var aðskilnað- urinn staðfestur og kirkjugörðunum gert að greiða samkeppnisráði 400 þúsund krónur í málskostnað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.