Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 13
AKUREYRI
Vélsleða-
menn gefa
hreinlætistæki
„ Morgunblaðið/
TOMAS Búi Böðvarsson, formaður Félags vélsleðamanna í
Eyjafirði, afhendir Ingvari Teitssyni, formanni Ferðafélags
Akureyrar, ávísun upp á hreinlætistæki í nýja snyrtihúsið í
Laugafelli.
FÉLAGAR í Félagi vélsleða-
manna í Eyjafirði afhentu á
dögunum Ferðafélagi Akur-
eyrar ávísun upp á hluta af
hreinlætistækjum sem sett
verða upp í nýju snyrtihúsi við
skála félagins að Laugafelli.
Aður hafa sleðamenn lagt
ferðafélaginu lið, m.a. staðið
fyrir og kostað hitaveitufram-
kvæmdir sem nýtast við snyrti-
húsið.
Um tvö ár eru frá því eyf-
irskir vélsleðamenn bundust
formlegum samtökum og er
félag þeirra deild innan Lands-
sambands íslenskra vélsleða-
manna. Markmið hinna ey-
firsku sleðamanna er að styðja
við og efla sleðamennsku á
svæðinu, þannig hefur félagið
látið fræðslumál til sín taka,
beitt sér fyrir lagfæringum á
vegarslóðum með það að
markmiði að koma í veg fyrir
akstur utan vega og staðið
fyrir byggingu og endurbótum
á fjallaskálum.
Laugafell, norðaustur af
Hofsjökli, er einn þeirra staða
sem vélsleðamenn hafa tekið
verulegan þátt í uppbyggingu
og viðhaldi á undanförnum
árum. Þegar vélsleðaferðir
hófust um hálendið fyrir al-
vöru nutu vélsleðamenn góðs
af brautryðjendastarfi ferð-
afélaganna víða um land og
eyfirskir vélsleðamenn áttu til
að mynda víst húsaskjól í skál-
um Ferðafélags Akureyrar,
m.a. í Laugafelli þar sem skáli
var reistur árið 1948.
Ferðafélag Akureyrar hefur
verið að koma upp nýju veg-
legu snyrtihúsi við Laugafell,
þar sem verða salerni, hand-
laugar, búningsaðstaða og
sturtur. Leitaði félagið eftir
stuðningi hjá Félagi vélsleða-
manna í Eyjafirði og var
ákveðið að gefa hluta af þeim
hreinlætistækjum sem til þarf
í húsið.
Málþing um
börn og
unglinga
UMBOÐSMAÐUR barna efnir til
málþings um málefni barna og
ungmenna á Norðurlandi eystra á
sal Menntaskólans á Akureyri á
morgun, laugardaginn 11. október,
og stendur það frá kl. 13.30 til
16.30.
Frummælendur eru börn og
unglingar undir 18 ára aldri sem
m.a. munu ræða um sjálfræði,
framtíðina eins og hún blasir við
þeim og hvað þau myndu gera
mættu þau ráða. Á milli erinda
verða skemmtiatriði í umsjón
barna og ungmenna. Eyþing, sam-
tök sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, býður upp á
hressingu í hléi.
Síðasti liður dagskrárinnar er
pallborðsumræða þar sem ráðherr-
ar og sveitarstjórnarmenn úr kjör-
dæminu svara fyrirspurnum frá
börnum og ungmennum.
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, flytur ávarp og setur mál-
þingið en málþingsstjóri er Tryggvi
Gíslason, skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri.
Norræna félagið
á Akureyri
Kvikmynda-
sýning
fyrir börn
NORRÆNA félagið á Akureyri
efnir til kvikmyndasýningar fyrir
börn á morgun, laugardaginn 11.
október kl. 11 í stofu 16 í Glerár-
skóla.
Sýnd verður myndin Elvis Elvis
og er um 6 ára strák, bráðum 7
sem skírður er í höfuðið á átrúnað-
argoði móður sinnar, Elvis Pres-
ley. Brallar hann ýmislegt með
vinkonu sinni, Önnu Rósu, en eina
vandamálið er að hann á oft erfitt
að skilja fullorðna fólkið. Myndin
er gerð eftir sögu Marie Gripe.
Myndin er sænsk og með sænsku
tali.
í tilefni af 75 ára afmæli Nor-
ræna félagsins verður afmælis-
fundur haldinn á Akureyri 24.
október næstkomandi. Þá verður
ungmennastarf innan Norræna
félagsins kynnt á fundi 7. nóvem-
ber næstkomandi og síðar í þeim
mánuði, eða dagana 10. til 16.
nóvember, verður norræn bóka-
safnsvika.
Norræn upplýsingaskrifstofa er
opin á Akureyri alla virka daga
frá kl. 9 til 12 eða á öðrum tímum
eftir samkomulagi. Hún er að
Glerárgötu 26 og veitir Valgerður
Hrólfsdóttir henni forstöðu. Þar
er hægt að kynna sér starf Nor-
ræna félagsins og fá ýmsar upp-
lýsingar.
-----*—*—*---
Mat í
skólastarfi
RANNSÓKNARSTOFNUN Há-
skólans á Akureyri og kennara-
deildar háskólans efnir til ráð-
stefnu á morgun, laugardaginn 11.
október, og hefst hún kl. 9.
Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Gildi mats og matsaðferðir í
skólastarfi." Meðal annars verður
fjallað um félagslegan veruleika í
skólastarfi, sjálfsmat í framhalds-
skólum, prófatriðabanka sem leið
til gæðastjórnunar og fleira. Ráð-
stefnan verður haldin í sal Fiðlar-
ans á 4. hæð í Alþýðuhúsinu.
Skráning á ráðstefnuna er hjá
Háskólanum á Akureyri.
Við óskum Verslun KÁ á Selfossi
til hamingju með nýtt
og glæsilegt Mjólkurtorg
í dag verður opnað með pomp og prakt nýtt glæsilegt MjÓlkurtOIg hjá Verslun KÁ á Selfossi.
Mjólkurtorgið er fyrsta sinnar tegundar á íslandi, bylting í bættri þjónustu við neytendur. Þarna verða allar
mjólkurvörur á einu yfirbyggðu torgi og fá því viðskiptavinir Verslunar KÁ góða yfirsýn yfir fjölbreytt úrval
og innkaupin verða skemmtilega þægileg. Ýmis tilboð á mjólkurafurðum og uppátæki í tilefni dagsins.
Við óskum Verslun KÁ og viðskiptavinum til hamingju með þessa merku nýjung.
MJÓLKURBÚ
FLOAMANNA
OSTA- OG
SMJÖRSALAN SF.