Morgunblaðið - 10.10.1997, Side 16

Morgunblaðið - 10.10.1997, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Lágmarksbinditími inn- og útlána lengist Bankar óttast versnandi sam- keppnisstöðu LAGMARKSBINDITIMI verð- tryggðra innlána lengist uni næstu áramót úr einu ári í þrjú ár og bindi- tími verðtryggðra lána og skulda- bréfa lengist úr þremur árum í fimm ár á sama tíma, samkvæmt reglum Seðlabankans. Þessar reglur miða að því að draga smám saman úr vægi verðtryggingar hér á landi. Bankamenn óttast hins vegar að þær leiði til versnandi samkeppnis- stöðu bankanna. Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra viðskiptabanka, sagði í samtali við Morgunblaðið að bankarnir sæu fram á það að nokkuð hallaði á samkeppnisstöðu þeirra gagnvart verðbréfasjóðum eftir frekari leng- ingu á binditíma verðtryggða inn- lána. Enda þótt hlutdeildarskírteini í verðbréfasjóðum væru ekki verð- tryggð, ijárfestu þeir í verðtryggð- um bréfum. „Bankarnir eru ugg- andi yfir þessu,“ sagði hann. Þá hefur það ekki gerst jafnhratt og stjórnvöld hafa væntanlega vonast til að markaðurinn færði sig úr verðtryggðum bréfum yfir í óverð- tryggð bréf. Bönkunum finnst því að fyrst og fremst sé verið að þrengja að þeim.“ Finnur sagði að sú hugmynd hefði komið upp meðal bankamanna að óska eftir frestun á gildistöku þessara reglna, .sérstaklega með hliðsjón af hagsmunum innstæðu- eigenda. Umax PhotoRun stairæn myndavál frá kr. 19.901 Lóttasta stafræna myndavélá Linsa: F2.8/Í = 60 mm Upplausn: 504 X 376 dpi Tongi: PCMCIA eða Parallel 2 Mb korttekur 15 myndir, möguleiki á allt að 150 myndum með 20 Mb korti NYHERJI - Vsrslun - Skaftahlið 24 - Simi 5GS 7700 http://www.nyherji.is IB M ThinkPad TP 365 XD Fartölvumar frá IBM eru margfaldir sigurvegarar Örgforvi: Pentium 120 MHz Minni: 8 Mb ED0 Diskur: 1,08 Gb Skjár: 1 0,4" TFT litaskjár MargmiAlun: Hljóðkort, hljóðnemi, hátalarar, geisladrif AnnaA: IrDA þráðlaus samskipti 2 stæði PCMCIA HugbúnaAur: Windows 95 Sárhönnuð fyrir margvíslag viðskipta- og taikniforrit Örgjörvi: Pentium 166 MHz Minni: 16 Mb ED0 Skyndiminni: 256 Kb SbjáhraAall: Fullkominn 64 Diskur: 1,6 Gb Skjár: 1 5" XVGA litaskjár Tangi: 1 ISA, 1 PCI, 1 PCl/ISA og 1 USB HughúnaAur: Windows® 95 kr. 159.900^ LEXM^RK Ótrúleg myndgmði á lágu verði UMAX BarA: A4 geislaprentari Postscript Level 2, PCL5e Minni: 4 Mb Upplausn: 1200 X 1200 dpi HraAi: 16 bls/mín Morgunblaðið/Ásdís MIKILL áhugi reyndist vera fyrir fundi Imarks um innanlandsflugið og var hann vel sóttur. * Tap af innanlandsflugi Flugfélags Islands og Islandsflugs Gert ráð fyrir að far- gjöld muni hækka FORSVARSMENN íslandsflugs og Flugfélags íslands segja að far- gjöld félaganna í áætlunarflugi innanlands muni hækka. Spurning- in sé aðeins hvenær. Sú mikla far- gjaldalækkun sem átt hafi sér stað í sumar hafi ekki skilað sér nægi- lega í auknum viðskiptum og fyrir- sjáanlegt sé að tap muni verða af innanlandsflugi beggja félaga í ár. Þetta _kom fram á hádegisverðar- fundi ÍMARKS í gær þar sem verð- stríð í innanlandsflugi var til um- ræðu. Páll Halldórsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags íslands, sagði að endurskoðun á fargjaldakerfi fé- lagsins stæði nú yfir og muni_ nýtt kerfi taka gildi um áramótin. Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri íslandsfiugs, sagði félagið ekki hafa gefist upp á þessari tilraun enn en líklegast verði þó að telja að fargjöld félagsins muni hækka. Spurningin sé aðeins hvenær. Páll sagði á fundinum að áætlan- ir um rekstur Flugfélags íslands LANDSVIRKJUN hefur fengið sér- staka lánshæfiseinkunn hjá Stand- ard & Poor’s í fyrsta sinn. Hiaut fyrirtækið sömu einkunn og íslenska ríkið, bæði hvað varðar skammtíma- og langtímalán í innlendum og er- lendum gjaldmiðlum. Að sögn Stef- áns Péturssonar, deildarstjóri fjár- mála- og markaðsdeildar Lands- virkjunar, gerir þetta fyrirtækinu kleift að leita á lánamarkaði sem það hefur hingað til ekki haft að- gang að, jafnframt því sem þetta stuðlar að lækkun á fjármagns- kostnaði þess. Stefán segir að Landsvirkjun hafi ekki áður leitað eftir slíkri láns- hæfiseinkunn. „Það má segja að við höfum verið metnir á grundvelii tveggja þátta. Annars vegar á mati manna á fjárhagsstöðu Landsvirkj- unar og hins vegar á mati þeirra á ábyrgð eigenda, en Landsvirkjun er sameignarfélag og nýtur því ótak- markaðrar ábyrgðar eigenda sinna sem er ríkissjóður, Reykjavíkurborg og Akureyrarbær.“ Stefán segir að ekki hafi verið nægur skilningur meðal erlendra hefðu að sjálfsögðu gert ráð fyrir gjörbreyttu umhverfi í innanlands- flugi með afnámi sérleyfa þann 1. júlí sl. Þessi mikla verðlækkun ís- landsflugs hefði hins vegar komið félaginu í opna skjöldu. Verðlækkanir íslandsflugs hreint skemmdarverk „Það er mín skoðun að aðgerðir íslandsflugs hvað verðlagningu varðar geti vart flokkast undir ann- að en skemmdarstarfsemi. Það er ljóst að það verð sem þeir riðu á vaðið með í sumar stendur engan veginn undir kostnaði." Sagði Páil það ljóst að þessar verðiækkanir hefðu hins vegar stækkað markaðinn um 25-30% og væri hlutur Flugfélags íslands í þeirri aukningu u.þ.b. 25-30%. Hann sagði þessar verðlækkanir hins vegar hafa valdið því að af- koma félagsins yrði verri á þessu ári en ráð hefði verið fyrir gert og ljóst væri að tap yrði af rekstri þess á árinu. Félagið stæði því fjárfesta á slíkri ábyrgð og því hafi hún torveldað mat þeirra á láns- hæfi fyrirtækisins. Þetta vandamál sé því úr sögunni með lánshæfis- mati. 30 milljarða fjármögnun framundan Að sögn Stefáns er veruleg fjár- mögnun framundan hjá Landsvirkj- un og því muni þetta lánshæfismat koma fyrirtækinu vel. Alls þurfi 18 milljarða króna í tengslum við þær framkvæmdir Landsvirkjunar vegna samninga um stóriðju. Að auki standi til að endurfjármagna eldri lán að fjárhæð u.þ.b. 12 milljarða króna á árunum 1999-2001. Sam- tals muni Landsvirkjun því leita eft- ir um 30 milljarða fjármögnun á næstu árum. Aðspurður hvort fyrirtækið muni fjármagna hluta þessa innanlands segir Stefán að Landsvirkjun hafi lokið lántökum í ár. „Við munum hins vegar fara aftur af stað á næsta ári og þá kemur vel til greina innlend lántaka ef markaðsaðstæð- ur Ieyfa,“ segir Stefán. frammi fyrir þeim kosti að hækka verð eða minnka þjónustu og yrði að teljast líklegt að nýtt fargjalda- kerfi myndi fara bil beggja. Markmið um 70% sætanýtingu ekki náðst enn Ómar sagði að þau markmið sem féiagið hefði sett sér um 70% sæta- nýtingu hefðu ekki náðst enn og því væri ljóst að tap yrði af rekstri innanlandsflugs félagsins á þessu ári. „Það er ljóst að við ætlum okkur ekki að tapa á þessari starf- semi í langan tíma en við gerðum okkur hins vegar grein fyrir því í upphafi að það þyrfti ákveðið út- hald til að þetta gengi upp,“ sagði Ómar. Hann sagði það vera ljóst að félagið myndi grípa til einhverra aðgerða til að reyna að öi’va sæta- nýtingu. Nokkuð góður árangur hefði náðst í áætlunarfiugi til smærri staða en hins vegar hefði árangurinn á stærri markaðssvæð- um félagsins valdið vonbrigðum. Commerz- bank hefur ekki áhuga áBZW Frankfurt. Reuter. ÞÝZKI Commerzbankinn kveðst ekki hafa hug á að kaupa alla verðbréfa- og ráð- gjafastarfsemi Barclays Plc eða hluta hennar. „Við höfum ekki áhuga á BZW eða hluta deildarinnar," sagði talsmaður Commerz- bank í svari við fyrirspurn. Villa í töflu sjávarútvegs- fyrirtækja í TÖFLU yfir afkomu 9 sjáv- arútvegsfyrirtækja á fyrstu sex mánuðum ársins, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, var rangt farið með eigið fé Vinnslustöðvarinnar. Rétt tala þar er 2,44 milljarðar króna og samsvarandi ávöxt- un eigin ijár því 10,7%. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Lánshæfiseinkunn Standard & Poor’s Landsvirkjun áþekk ríkinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.