Morgunblaðið - 10.10.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 21
LISTIR
GLÆSILEIKI
OG GALSI
ISLENSKI
DRAUMURINN
TONLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Schubert,
Vieuxtemps, Sarasate og Bizet.
Einleikari: Pálína Arnadóttir.
Stjórnandi: Ronald Zollman.
Fimmtudagurinn 9. október, 1997.
TÓNLEIKARNIR hófust á þeirri
ófullgerðu eftir Franz Schubert,
fallegu verki sem var fallega flutt,
svolítið blátt áfram og í klassískum
anda. Eitt atriði truflaði undirritað-
an en það var einn hljómur, sem
ekki fer saman við stíl verksins og
munar þar einni nótu í fagottrödd.
í Petersútgáfunnni er þessari nótu
vikið til um stóra tvíund svo að
hljómurinn verður hreint fimmta
sæti, þríferundarhljómur, í h-moll.
Það gæti verið, að svo hafi ekki
verið gert í frumútgáfunni, sem
gæti þrátt fyrir það verið prent-
villa, enda losar Schubert um liggj-
andi h-nótuna í öðrum röddum.
Þessi sami hljómur kom aftur fyrir,
rétt á undan „codanum" og var pirr-
andi áheyrnar.
Pálína Árnadóttir er efnilegur
konsertfiðlari og lék Fiðlukonsert
nr. 5, eftir Vieuxtemps. Pálína lék
mjög vel og sama má segja um
Carmen fantasíuna eftir Sarasate,
sem var nokkuð varlega leikin fram-
an af, þótt tekið væri á svo um
munaði undir lokin. Pálína ræður
yfir mikilli tækni og lék tandur-
hreint öll tæknibrögð verkanna en
vantar auðvitað enn þann þroska,
er gerir flutninginn annað og meira
en flutning, enda enn svo ung, að
ekki verður séð fyrir hversu iangt
henni mun auðnast að ná í að full-
komna leik sinn. Pálína Árnadóttir
er stórefnilegur fiðlari og var leikur
hennar í heild að mörgu leyti glæsi-
legur og verður spennandi að fylgj-
ast með henni er námi lýkur og við
taka ár listamannsins.
Tónleikunum lauk með C-dúr sin-
fóníunni eftir Bizet, er hann samdi
17 ára (1855) í námi hjá Gounod
og var ekki frumflutt fyrr en 1935,
í Basel, undir stjórn Weingartner.
Verkið er sérlega glaðlegt, þar sem
saman fer klassík sem rekja má til
Mozarts, lýrik, sem minnir á Schu-
bert, og leikandi fjör, ættað frá
Rossini og Mendelssohn. Þrátt fyrir
galsann mátti heyra fallegar tónlín-
ur, eins og óbósólóana í öðrum
þætti, sem Hólmfríður Þóroddsdótt-
ir og Daði Kolbeinsson skiptu með
sér mjög fallega. Lokakaflinn er
sannkölluð leikniþraut, sem lék í
höndum fiðlusveitarinnar. Hljóm-
sveitin skilaði þessu leikglaða verki
mjög vel og var auðheyrt að Ron-
ald Zollman er góður hljómsveitar-
stjóri.
Jón Ásgeirsson
KVIKMYNPIR
Stjörnubíö/
Iláskólabíó/
S a m b í ó i n , Áifabakka
PERLUR OG SVÍN ★ ★ Vi
Leikstjóni og handrit: Óskar Jónas-
son. Kvikmyndataka: Sigurður Sverr-
ir Pálsson. Leikmynd: Arni Páll
Jóhannsson. Búningar: Áslaug Leifs-
dóttir. Hljóðhönnun: Kjartan Kjart-
ansson. Klipping: Steingrímur Karls-
son. Leikarar: Olafia Hrönn Jónsdótt-
ir, Jóhann Sigurðarson, Olafur Darri
Olafsson, Þröstur Leó Gunnarsson,
Steinunn Olína Þorsteinsdóttir, María
Guðmundsdóttir, Edda Björgvinsdótt-
ir og Ingvar Sigurðsson. 100 mín.
Islensk. Islenska kvikmyndasam-
steypan/ Zentropa. 1997.
í SÓDÓMU Reykjavíkur bauð
Óskar Jónasson áhorfendum í ævin-
týralegt ferðalag um höfuðborgina
í leit að fjarstýringu. Sú leit hafði
ýmsa útúrdúra og leyfði áhorfendum
að kynnast kostulegum persónum. í
Perlum og svínum fá áhorfendur
aftur að kynnast sérstæðum karakt-
erum og ævintýrum þeirra í Reykja-
vík dagsins í dag.
Aðalpersónur myndarinnar eru
hjónin Lísa (Ólafía Hrönn Jónsdótt-
ir) og Finnbogi (Jóhann Sigurðar-
son) sem eru að brölta við að höndla
íslenska drauminn, þ.e. hann vill
meika það í bissniss, verða ríkur,
og hún vill komast á sólarströnd í
langþráð frí. Barátta þeirra við að
láta draumana rætast leiðir af sér
ýmsa útúrdúra og skringilegar per-
sónur flækast inn í líf þeirra hjóna.
Leikstjóri og leikarar hafa sagt í
viðtölum að undirstaða handritsins
og persónusköpum hafi mótast í
spunavinnu þar sem hver leikari fékk
tækifæri til þess að þróa sinn karakt-
er. Þessi nálgun er bæði sterkasta
hlið myndarinnar og hennar veik-
asta. Hún er sterk vegna þess að
persónur Lísu og Finnboga eru
dregnar sterkum dráttum. Ólafía og
Jóhann gefa þeim hiýju og dýpt sem
vantar oft í persónur gamanmynda.
Einnig ná Ölafur Darri Ólafsson,
sem sonur Finnboga og Lísu með
eigin viðskiptadrauma, og Ingvar
Sigurðsson, sem rússneskur togara-
sjómaður, að vinna mjög skemmti-
lega með sína karaktera. Ingvar er
rússneskari en nokkur Rússi, í sinni
stílfærðu útgáfu. Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Edda Björgvinsdótt-
ir og María Guðmundsdóttir, sem
kræfar mæðgur í bakarísviðskiptum,
og Þröstur Leó Gunnarsson, sem
bakari með vafasama fortíð, eru
óljósari og flatari persónur þó að þau
eigi öll góða spretti inn á milli.
Spunavinnan hefur þannig getið
af sér nokkrar spennandi persónur
sem gaman er að fylgjast með en
ramminn, söguþráðurinn, sem þau
eru sett inn í virkar ekki eins vel.
Barátta bakaría, sala á Lödum til
Rússlands, og birgðir af hjálpartækj-
um ástarlífsins sem illa gengur að
losna við, eru þau ævintýri sem
sögupersónur þurfa að takast á við
og verður að segjast að þó að sumt
sé sprenghlægilegt þá fellur annað
gjörsamlega.
Svikamyllan sem eigendur
stærstu brauðgerðar landsins fara
af stað með til þess að hnekkja á
Lísubakaríi fer einhvern veginn fyrir
ofan garð og neðan hjá manni. Bard-
úsið í kringum njósnir og slægð og
spurninguna hver heldur með hveij-
um kveikir mjög takmarkaða for-
vitni og skapar sáralitla dramatíska
spennu. Það sama má segja um
vandræðagang Finnboga með hjálp-
artæki ástarlífsins. Það eru einna
helst samskipti Bjartmars (Ólafs
Darra) við Rússana sem halda at-
hyglinni. Eitt og eitt atriði er þó
fyndið og má því segja að takmarki
gamanmyndar séð náð að hluta.
Það er orðin þreytt lumma að
fjalla um tæknilegan frágang ís-
lenskra kvikmynda. Byijunarörðug-
leikar íslenska kvikmyndavorsins
eru löngu að baki og flestar kvik-
myndir síðustu ára standast allan
samanburð við erlenda fjöldafram-
leiðslu bandarísku draumaverk-
smiðjunnar. Það sama á við um Perl-
ur og svín. Hún er gerð af fag-
mennsku. Það er engin ástæða til
að afsaka eitt né neitt og tala um
myndir gerðar af vanefnum.
Anna Sveinbjarnardóttir
NOATUN
Verslanir Nóatúns eru opnar
til kl. 21, öll kvöld.
NÓATÚN11? • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
Veisla íypir litið!