Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 29 ALÞJÓÐLEGI GEÐHEILBRIGÐISDAGURIIMIM Dæmi um geðheilbrigðis- þjónustu fyrir börn FANNAR Þór er fjórtán ára nemi í 9. bekk sem nemenda- verndarráð ákvað að vísa til sérfræðiþjónustu Fræðslumiðstöðvar þegar tilraunir til að fá hann til að mæta á ný í skólann dugðu skammt. Mætingar höfðu Qarað út og bar Fannar við verkjum víðsvegar um líkamann og þreytu auk þess sem honum hundleiddist skólinn enda gekk nám- ið mun verr en áður. Mömmu hans tókst að drösla honum útá heilsugæslustöð þar sem hann var skoðaður og tekin blóð- próf sem reyndust eðlileg. Læknirinn fann „ekkert að“ honum, Fannar væri stressaður og þyrfti að taka upp heilsusamlegra líferni en fengnar yrðu frekari rannsóknir „til öryggis". Geirlaugur skólasálfræðingur setti sig inn í málið, m.a. með því að tala við Fannar og mömmu hans. í ljós kom að hann hangir mest heima og gerir mest lítið og verður pirraður og uppstökkur ef yrt er á hann, þann- ig að tilraunum mömmu hans til sam- skipta lauk iðulega með rifrildi og að Fannar rauk á dyr. Mamma hans átti í fullu fangi með sjálfa sig vegna eigin depurðar, sem hún hafði ekki leitað sér aðstoðar vegna, og vissi lítið um þann félagsskap sem Fannar var í en hafði áhyggjur af að hann var farinn að reykja og kom æ oftar heim lyktandi af áfengi. Fannari fannst hann vera „lúser“ og eiga það skilið enda væri hann bara til vand- ræða en það gerði svo sem ekkert til því heimurinn væri hvort eð er rotinn. Sem lítill drengur hræddist hann auðveldlega nýjar aðstæður, varð fælinn og tók breytingum illa. Kennarinn, sem hafði kennt honum í nokkur ár, sagði hann alla tíð hafa verið frekar feiminn og til baka, átt í erfiðleikum með stafsetningu og stærðfræði en getað haldið í við hina þar sem hann hafi verið samviskusam- ur þar til síðast liðinn vetur að honum virtist líða verr og fór að bera á andfé- lagslegri hegðun og „stælum". Geirlaugur taldi Fannar dapran með neikvæða sjálfsmynd og skóla- leiða og kannski áfengissjúkan eða í öðrum vímuefnum, en pabbi hans hafði drukkið nokkuð áður en hann svipti sig lífi fyrir tveimur árum. Fannar var til í að koma og ræða við Geirlaug um föðurmissinn, skóla- vandann og samskiptin við mömmu hans og þó að ástæða hafi verið til að halda þeirri með- ferðarvinnu áfram sem hafin var, fór Geirlaug- ur eftir verklagsreglum sem honum eru settar með að sinna eingöngu greiningu vandans og ráðgjöf til skólans og vísaði því Fannari áfram. Hann sendi því tilvísun til Stuðla þar sem drengurinn átti við vímuefna- og hegðunarvanda, á Vog af sömu ástæðu og til barna- og unglingageð- deildarinnar (BUGL). Biðin eftir með- ferð reyndist styst hjá SÁÁ og áður en menn vissu af var Fannar farinn að þylja AA-sporin 12 í grúppu með ungum alkóhólistum á Vogi. Mynd sú sem dregin er upp af BUGL kemur að for- varnarstarfi á öllum stigum, segir Olafur O. Guðmundsson, og er sem sérfræðimiðstöð barna- og unglingageð- lækninga einn mikil- vægasti hlekkurinn í meðferðarkeðjunni. Fannari er einfölduð lýsing á barni með fjölmarga áhættuþætti tilfinn- ingatruflana svo sem þunglyndis. Má nefna erfðir, skapgerðarþætti, náms- erfiðleika, fjölskylduaðstæður og áföll. Þegar vanlíðan og hömlun eykst og fjölskyldan, heilsugæslan, skóla- kerfið og meðferðarkerfið bregst, eru vímuefnin og sjálfsvígshættan skammt undan. Þetta tilbúna dæmi lýsir því hve erfitt það getur verið fyrir börn og unglinga í geðrænum vanda að fá rétta aðstoð. Þjónustan er víða van- búin að mæta geðrænum vanda barna og ungmenna, hlutverk aðil- anna óljós sem og boðleiðir milli þeirra og sérhæfðu meðferðartilboðin í meira samræmi við afleiðingar en eðli vandans. Forvarnir, sem mikið er rætt um nú og oft eingöngu tengdar vímu- efnavanda, beinast að því að hindra uppkomu og minnka líkur á að vandi verði að röskun, að stytta sjúkdóms- tíma og koma í veg fyrir fylgikvilla og loks að hindra að röskun/sjúkdóm- ur leiði til fötlunar. Starfshópur, sem heilbrigðisráðherra skipaði fyrr á ár- inu, sendir í dag frá sér fyrstu tillög- ur um leiðir til úrlausnar á þjónustu- vandanum. Þar er bent á að grund- völlur forvarnaretarfs á öllum stigum er öflug lagskipt þjónusta með skýr- um boðleiðum milli aðila, svo sem ungbarna- og mæðravemd heilsu- gæslunnar, félagsþjónusta sveitarfé- laga, heilsugæsla og sérfræðiþjón- usta skóla, starf sérfræðinga á stof- um allt til sérhæfðra stofnana eins og _ barnageðdeildarinnar. í dag er hinn alþjóðiegi geðheil- brigðisdagur, 10. október, helgaður börnum og unglingum og því tilefni til að skoða geðheilbrigðisþjónustuna sem sinnir bömum eins og Fannari Þór. Af þessu tilefni er Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) að hluta til opin almenningi í dag milli kl 14 og 18 auk þess sem deildin stendur að útgáfu bæklinga um geðheilsu barna í samvinnu við Geðhjálp. Þá munum við í vetur vera með mánaðarlega fræðslu fyrir al- menning um sama málefni og verður sú fyrsta 10. nóvember nk. um börn í hegðunarvanda. BUGL kemur að forvarnarstarfi á öllum stigum og er sem sérfræðimið- stöð barna- og unglingageðlækninga einn mikilvægasti hlekkurinn í með- ferðarkeðjunni. Þrátt fyrir tilfinnan- legan skort á barna- og unglingageð- læknum hefur starfsfólki BUGL tek- ist að snúa vörn í sókn en ef stofnun- in á að geta sinnt margþættu hlut- verki sínu verður að eiga sér stað uppbygging í samræmi við fram- komnar tillögur starfshópsins um stefnumótun í geðheilbrigðismálum. Er nú komið að yfii’völdum að sýna viljann í verki með því að veita þeim tillögum brautargengi. Höfundur eryfirlæknir barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) ALÞJÓÐLEGI geð- heilbrigðisdagurinn 10. október er í ár helgaður málefnum barna og unglinga. Verndari dagsins er frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú. Horfast verður í augu við þá bláköldu staðreynd að geðheilbrigðisvandamál eru hlutfallslega algeng hjá bömum. Talið er að á milli 10 og 20% bama þurfi á einhvers konar hjálp að halda einhvern tímann á barnsaldri - á íslandi erum við að tala um 7-14 þúsund börn. Alvarlegir geðsjúkdóm- ar eru hins vegar tiltölulega sjaldgæf- ir hjá börnum og á unglingsárunum. Það er þó talið nauðsynlegt að barna- og unglingageðdeildir nái á hvequm tíma að sinna að minnsta kosti 2% barna. Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, sú eina hér á landi, sinnir um það bil 0,5% barna upp að 18 ára aldri. Það er því ljóst að bet- ur má ef duga skal. Barna- og unglingageð- deild Landspítala heldur fræðslukvöld, segir Ey- dís Sveinbjarnardótt- ir, 10. hvers mánaðar - í fyrsta sinn 10. nóvem- ber nk. Sú neikvæða umræða sem skap- aðist í kringum þennan málaflokk fyrr á árinu er vonandi að snúast í andhverfu sína þar sem vöm er snúið í sókn. Starfshópur á vegum heilbrigð- isráðuneytis sem vinnur að stefnumót- un í málefnum geðsjúkra hefur gert nákvæma úttekt á málefnum barna og unglinga. í tilefni 10. október mun starfshópurinn skila af sér stefnumót- unartillögum í tengslum við geðheil- brigðismál bama og unglinga þar sem m.a. er lagt til að auka veröi fjár- magn til bama- og unglingageðdeildar þannig að hægt verði að auka og bæta þjónustuna þar. Ef tekið verður mark á tillögum starfshópsins ætti bama- og unglingageð- deild Landspítalans að sex árum liðnum, eða árið 2003, að geta veitt u.þ.b. 2% barna nauð- synlega sérfræðiþjón- ustu árlega eins og best gerist í nágrannalöndum okkar í fyrra var 10. október á Islandi helgaður mál- efnum aðstandenda geð- sjúkra. I framhaldi af þeim degi skapaðist mik- il umræða um ijölskyld- ur geðsjúkra og hvernig þeim er sinnt innan geð- heilbrigðiskerfisins. Þjónustu til aðstandenda geðsjúkra þarf að auka og bæta á formi fræðslu, ráðgjafar og stuðnings. Gera þarf þessa þjón- ustu formlegri og sýnilegri. Foreldrar og systkini barna og unglinga sem leggjast inn á geðdeild þurfa á marvís- legum og markvissum stuðningi að halda jafnt tilfmningalegum sem „praktískum". Geðhjúkmnarfræðing- ar í vinnu á bama- og unglingageð- deild hafa fullan hug á að reyna að bæta og auka þá þjónustu sem að- standendur fá í tengslum við innlögn barns eða unglings á geðdeild. í tilefni af Alþjóðlegum geðheil- brigðisdegi hafa Geðhjálp og barna- og unglingageðdeild tekið höndum saman og þýtt tvo bæklinga frá WHO (alþjóðlega heilbrigðisstofnunin) sem dreifðir verða á hvert heimili lands- manna; Þú og geðheilsan. Hvað er málið? og Geðheilsa bamsins þíns. Það sem sérhver Qölskylda ætti að vita. í framhaldi af 10. október verða haldin fræðslukvöld fyrir almenning á bama- og unglingageðdeild Landspítala, tí- unda hvers mánaðar í tíu skipti. Fyrsta fræðslukvöldið verður 10. nóv- ember nk. og mun fjalla um börn í hegðunarvanda. Fræðslukvöldin verða auglýst sérstaklega. í tilefni dagsins verður einnig opið hús á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Dal- braut 12, frá kl. 14.00-18.00 og eru allir velkomnir. Starfsfólk mun upp- lýsa gesti um starfsemina og boðið veröur upp á léttar veitingar. Höfundur er hjúkrunarfram- kvæmdastjóri barna og unglinageðdeildar Landspítalans. (BUGL.) Ólafur Ó. Guðmundsson Geðheilsa bama o g unglinga? Hvað er málið? Eydís Sveinbjarnardóttir Er ég með fordóma? Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur helgaður börnum og unglingum GUÐRUN Katrín Þorbergsdóttir, for- setafrú, er verndari al- þjóðlegs geðheilbrigðis- dags, 10. október, sem í ár er helgaður börnum og unglingum. Fyrir ári heiðraði Guðrún Katrín geðsjúka með því að láta það vera sitt fyrsta opinbera embættisverk að ávarpa hátíðarsam- komu í ráðhúsinu í til- efni af geðheilbrigðis- deginum. Fundurinn var fjölsóttur og ræða Guðrúnar Katrínar hvatti menn til dáða. Nú er hugur okkar allra með henni. Félagsmenn Geðhjálpar senda henni innilegar óskir um skjótan og góðan bata. I ávarpi sínu ræddi Guðrún Katr- ín um þá þjóðarvakningu sem varð til þess að nánast útrýma berklaveik- inni um allt land fyrir mörgum árum. Þannig samstöðu þyrftu geðsjúkir á að halda, sagði hún. Þessi bjartsýni Guðrúnar Katrínar er einmitt það sem við þurfum á að halda nú. Sam- staða hefur aldrei verið nauðsynlegri. Ekki bara vegna þess að á móti blæs. Nú er ein- mitt von. Nú eru meiri möguleikar en .áður að ná árangri í baráttunni gegn fordómum, beij- ast gegn einangrun geðsjúkra og fyrir betri kjörum þeirra og bættri meðferð. Þetta á ekki síst við um þá sem dag- urinn er helgaður, börn og unglinga sem þjást af geðrænum kvillum. Af hverjum fjórum börnum sem þurfa á þjónustu geðheil- brigðiskerfisins að halda er aðeins eitt sem fær slíka aðstoð nú. Þessar tölur fást með því að bera okkur saman við nágranna- lönd. Úrbætur í málum geðsjúkra barna og unglinga eru forgangs- verkefni. Þjónustu hins opinbera á þessu sviði er sannarlega hægt að bæta á ýmsan hátt, fyrst og fremst með aukinni göngudeildarstarfsemi. Eg geri mér vonir um að hugmynd- Pétur Hauksson ir sem settar hafa verið fram um úrbætur geti orðið að raunveruleika í nánustu framtíð. En það er ekki nóg að benda bara á hvað hið opinbera getur gert bet- ur. Ýmislegt er í undirbúningi hjá Geðhjálp. Fjölskyldulínan, hjálpar- sími aðstandenda, er eitt af því sem er á döfinni. Fræðsluátak um geð- heilbrigðismál fyrir skóla og foreldra er einnig í undirbúningi hjá félaginu. Eigin fordómar og annara Á síðasta geðheilbrigðisdegi komu nokkrar hetjur í ræðustól og sögðu frá sinni reynslu af eigin geðsjúkdómi. Þeir sögðu einnig að Úrbætur í málum geð- sjúkra barna og ungl- inga, segir Pétur Hauksson er forgangs- verkefni. baráttan gegn fordómum byrjaði hjá manni sjálfum. Þar eru fordóm- arnir alltaf alvarlegastir. Þess vegna er svo brýnt að hafa alltaf í huga hvernig maður dæmir eða myndar sér skoðun á öðrum fyrir- fram, án nauðsynlegrar þekkingar. Það er sennilega besta leiðin til að draga úr fordómum. Þeir sem eru með geðræn ein- kenni lýsa því oft hvernig -viðhorf til þeirra breytast þegar einkennin koma fram. Þá er nærvera þeirra ekki lengur eftirsótt, þeir njóta ekki sama trausts, verða jafnvel varir við hræðslu annarra. Gæti það verið hræðsla við eigin tilfinningar? Alla vega leiðir þetta til útilokunar, bæði hins geðsjúka og e.t.v. eigin tilfinn- inga. Framtíðarverkefni Geðhjálpar Landssöfnun Geðhjálpar stendur nú yfir. Söfnunin hefur tekist vel, margir hafa styrkt félagið. Ég færi stuðningsmönnum hér með hinar bestu þakkir. Með aðstoð Stöðvar 2 og Bylgjunnar verður geisladiskur seldur um helgina. Listamennirnir gáfu vinnu sína og rennur allt sölu- verð disksins til félagsins. Tilgangur með söfununum er að bæta úr hús- næðisvanda geðsjúkra með kaupum bæði á íbúðum og húsnæði fyrir starfsemi félagsins, sem nú fer fram í Hafnarbúðum, Tryggvagötu 9. Það húsnæði er í eigu ríkis, en 2 hæðir standa ónotaðar og húsið er til sölu. Geðhjálp hefur hug á að eignast húsið til afnota fyrir geðsjúka. í húsinu er félagsmiðstöð og þar eru starfræktir sjálfshjálparhópar, fræðslustarf, matarfélag og fleira. Vinnustofa Geðhjálpar hefur einnig verið starfrækt í Hafnarbúðum og hefur reynst vel. Þegar verkefni eru fyrir hendi eru margir til í að vinna þar eins og starfsorkan leyfir, og uppskera laun fyrir. í undirbúningi er að koma af stað starfsmiðlun fyr- ir geðfatlaða sem kallast Klúbburinn Geysir. Störfum er miðlað á almenn- um vinnumarkaði en þetta fyrir- komulag hefur gefið góða raun víða erlendis og verið kennt við Fountain House. Er líf eftir útskrift? Nú fá 30 geðfatlaðir aðstoð Stuðningsþjónustu Geðhjálpar. 19 þeirra eru á sambýlum Geðhjálpar. 30 aðrir eru á biðlista og eru marg- ir þeirra í brýnni þörf fyrir þjónustu- íbúð eða sambýlispláss. Félagið hef- ur hug á að reyna að útvega þessum einstaklingum húsnæði og stuðn- ingsþjónustu. Hægt er að hafa íbúð- ir á einni hæð Hafnarbúða og hýsa margvíslega starfsemi á hinum tveimur hæðunum og í kjallaranum. Fjölbreytt starfsemi og þjónusta ut- an stofnana, í anda Geðhjálpar, er það sem félagsmenn vilja byggja upp. Til að gera þessi áform að raun- veruleika þarf samstillt átak margra. Stöndum því saman og horfurn bjart- sýn til framtíðar, þannig geturn við náð markmiðinu: Að draga úr for- dómum og bæta hag geðsjúkra. Mætum í hátíðargönguna í dag og á tónleikana í Háskólabíói. Höfundur er formaður Geðlyálpar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.