Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 10. OKTÖBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni /UnsDRE'iMDI AÐ KjjtWÐ AUTTGAHN \ j JÆ7A, NU N/&UR. £Ht>A LAUS GÖN611 fi? KOM/NN | ALUEQ / GCGNU/H JÖEB.\NW MGU£ \ /M4 Ljóska þetta. er^Mpria. utnkona mín teTíN-rÁ. ?iun, cr fraÍMtr r>\ hÚshcJSarC / ' ErþessC MonCc . húshaJolari.?1 'flsuosannar. ©KFS/Distr. BULLS Ferdinand Fljót, Magga ... mig vantar blý- Og mig vantar strokleður, penna Nei, kennari... ég er hjálpar- ant og fáeinar pappírsarkir ... og reglustiku . .. mær hennar ... - .................. .......................................... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Aldraðir og góðærið Frá Félagi eldri borgara í Reykja- vík, Samtökum aldraðra og Lands- sambandi eldri borgara. KRAFAN um bætt kjör þegar vel árar er rökrétt afleiðing af þátttök- unni í að styðja við efnahagskerfið þegar verr áraði. Eldra fólk, sem komið var út af vinnumarkaði þegar efnahagslífið varð fyrir áföllum fyrir nokkrum árum, galt að fullu þeirrar niðursveiflu kjara sem þá varð. Kjör þessa fólks voru þá bundin ótjúfandi tengslum við þróun almennra kjara verka- fólks. Kaupmáttur eftirlauna minnkaði þess vegna þá, á sama hátt og kaupmáttur almennra launa. Nú þegar kaupmáttur almennra launa fer stígandi hefur viðmiðun eftirlauna verið rofin úr tengslum við almenna launaþróun í landinu. Það er því einróma krafa allra samtaka eldra fólks í landinu að þessari tengingu verði aftur á komið og misvægið milli almennra launa- tekna og eftirlauna verði að fullu leiðrétt. Með því einu er hægt að tala um að sátt geti haldist milli kynslóða og milli stjórnvalda og eldra fólks. Krafan um óskertan grunnlífeyri almannatrygginga, sem nái á núver- andi samningstímabili almennra kja- rasamninga í landinu sama verðgildi og hann hafði áður en skerðingarnar hófust, er því grundvallarkrafan. Krafan um raunhæfar aðgerðir til lækkunar jaðarskatta og krafa um annaðhvort nýtt lágt skattþrep í stað 40% skattsins nú á allar tekj- ur innan við 120 þús. á mánuði eða nýtt skattþrep á lífeyristekjur, sem ekki væri hærra en skattþrep fjár- magnstekna er nú, eru einnig grund- vallarkröfur. Þá krefjast samtökin þess að í alvöru verði sett í gang vinna við endurskoðun almannatryggingalag- anna. Vinna sem miði að því að koma þeim lögum í það horf að þau tryggi öllum öldruðum viðunandi kjör og vinni ekki gegn þróun al- mennra lífeyrissjóðakerfa. Öll samtök eldra fólks í landinu heita á stjórn- völd og hið háa Alþingi að bregðast nú skjótt og vel við. Með af- greiðslu þeirra fjárlaga sem nú er að hefjast fyrsta umræða um þarf að færa til betri vegar það sem misfar- ist hefir á síðustu árum í afkomutryggingu eldra fólks. Sá almenni kynslóðasamningur sem gerður var fyrir nær 30 árum fyrir alla almenna launamenn. Samningurinn um stofnun almennu lífeyrissjóðanna getur verið góð fyr- irmynd þess kynslóðasáttmála sem þarf að koma á. Kynslóðasáttmála sem þarf að leiða til þeirrar endur- sköpunar almannatrygginga og skattalaga sem svo mjög er brýn og leitt geti til þess að eftirlaunafólk geti lifað mannsæmandi lífi í landi þessu. Við krefjumst ekki neinna forrétt- inda okkur til handa. Við krefjumst hins vegar fullra leiðréttinga vegna skerðinga á undanförnum árum. Við krefjumst einnig fullrar hlutdeildar til handa okkar fólki í ávöxtunum af margrómuðu góðæri. PÁLL GÍSLASON, Félagi eldri borgara í Reykjavík, GUÐMUNDUR GUNNARSSON, Samtökum aldraðra, BENEDIKT DAVÍÐSSON, Landssambandi eldri borgara. FRÁ fjölmennum útifundi á Lækjartorgi sl. miðvikudag. Athugasemd við tónlistargagnrýni Frá Stefáni Guðmundssyni: ÉG SKRIFA þetta bréf í von um að Morgunblaðið hafi ennþá til að bera vott af sjálfsvirðingu og vilji láta taka mark á tónlistarumfjöllunum í blaðinu framvegis sem áður. Tilefnið er umfjöllun Atla Heimis um Rolling Stones og nýja diskinn þeirra, „Bridges to Babylon" í blað- inu 30. sept. Mér hefur nú fundist sem tónlistarferill Atla Heimis hafi verið nokkuð þyrnum stráður og fáir skilið hvert hann hefur verið að fara í tónlistarsköpun sinni. Það er því ekki við því að búast, að hann geti skrifað svo um einn rokkdisk, að vel skiljist hvert hann er að fara í skrifum sínum. Það eina sem skilst er að honum er meinilla við Rolling Stones og allt það sem þeir eru að fást við. Nú er það svo að þessi nýjasta afurð hinna öldnu rokkara hefur fengið frábæra dóma erlendis m.a. í bandaríska tímaritinu Rolling Stone sem mun vera mest selda popptónlistarblað í heimi. Ég hef hlustað mikið á „Bridges to Babyl- on“ síðustu daga og er sammála erlendu dómunum. Diskurinn er mjög góður í alla staði og líklega þeirra besti í 16 ár. Að lokum vil ég segja við Atla Heimi: Það er hroki, að gefa það í skyn, að þær milljónir manna sem fíla R. Stones hljóti að vera fyllibytt- ur og dópistar. Það er iíka hröki að gefa í skyn að „ómenntaðir" tónlist- armenn geti ekki verið merkilegir, en í lok greinar þinnar hrósar þú öðrum tónlistarmönnum, sem þú segir vera „pena og vel menntaða tónlistarmenn". Að síðustu er ég með spurningu til Morgunblaðsins: Má kannski bú- ast við að Atli Heimir verði fenginn til að skrifa um næsta landsleik ís- lendinga í fótbolta? STEFÁN GUÐMUNDSSON, Tjarnarbóli 2, Seltjarnarnesi. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Roykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, íþróttir 569 1 156, sórblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkori 569 1115. NETKANG: MBI^dCENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. oinlakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.