Morgunblaðið - 10.10.1997, Side 60
qrœntu
@ BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Jtewu&t
-setur brag á sérhvern dag!
MORGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG RITSTJ(a)MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ekki tókst að veiða allan norsk-íslenska síldarkvótann
Heildarverðmætið
um 20 milljarðar kr.
ÚTSÉÐ er með að allur kvóti ís-
lendinga úr norsk-íslenska síldar-
stofninum náist á þessari vertíð.
Islensk skip hafa veitt um 220
þúsund tonn af síld frá því í vor
en sá hluti sem kom í hlut íslend-
inga við skiptingu veiða úr stofn-
inum í ár nam 233 þúsund tonn-
um. Sé hlutur Islands í norsk-ís-
lensku síldinni framreiknaður er
verðmæti kvótans um 20 milljarð-
ar.
Síðustu skipin af síldarmiðun-
um komu til hafnar í fyrradag og
er ekki búist við að fleiri skip
reyni veiðar. Ekki tókst heldur að
veiða allan kvóta íslands úr norsk-
íslenska síldarstofninum í fyrra.
Kvótanum var ekki skipt niður á
skip á síðustu vertíð heldur gátu
allir sem sóttu um leyfi veitt þar
til ákveðnu marki var náð. Ekki
liggur fyrir hvemig staðið verður
að úthlutun á næsta ári.
í Morgunblaðinu í gær er frá
því greint, að verðmæti kvóta til
að veiða íslensku suðurlandssíld-
ina er metið á 80-100 milljónir
króna. Með sömu aðferðum er
hægt að reikna út að verðmæti
hlutdeildar íslendinga í norsk-ís-
lenska sfldveiðistofninum sé um
20 milljarðar króna. Ýmsa fyrir-
vara verður þó að hafa á þessum
útreikningum, m.a. vegna til-
kostnaðar við veiðarnar og gæða
hráefnis.
Er norsk-íslenski/31
Kínverjar gefa aftur út yfirlýsingu
Afleiðingarnar á
ábyrgð Islendinga
WANG Jiangxing, sendiherra Kína á
Islandi, gaf í gær út aðra yfirlýsingu
sína á þremur dögum og átaldi ís-
lensk stjómvöld harðlega vegna
heimsóknar Liens Chans, varafor-
seta Tævans, hingað til lands. Sagði í
yfirlýsingunni að Islendingar bæru
fulla ábyrgð á öllum afleiðingum þess
að tilmæli stjórnvalda í Peking hefðu
verið hunsuð. Yfirlýsingin vai- send
íslenskum stjómvöldum á faxi, en
var ekki afhent formlega.
„Ríkisstjórn Islands hefur ítrekað
virt að vettugi hai'ðorðar yfirlýsing-
ar Kínverja og ekki aðeins leyft Lien
Chan að heimsækja Island, heldur
einnig komið á fundum við embættis-
menn stjórnai’innar," sagði í yfirlýs-
ingu sendiherrans. „Hún hefur orðið
ber að afskiptum af innanríkismálum
Kína, sært tilfinningar kínversku
þjóðarinnar og þannig valdið sam-
skiptum Kína og Islands tjóni. Kín-
verjar hafa lagt fram alvarlegar
diplómatískar athugasemdir gegn
þessari heimsókn. íslendingar bera
að öllu leyti ábyrgð á öllum afleiðing-
um af þessu.“
Wang krafðist þess í yfirlýsingu á
þriðjudag að Lien yrði vísað úr landi
og til vai-a að íslenskir embættis-
menn ættu ekki fundi með honum.
Óhjákvæmilegt/30
Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi í gærkvöldi
LÖGREGLA og björgunarmenn ad störfum á vettvangi á Vesturlandsvegi við Leirvogsá.
Morgunblaðið/Júlíus
Tveggja ára drengur og faðir hans létust
TVEGGJA ára drengur og faðir hans létust í
hörðum árekstri á Vesturlandsvegi við Leir-
vogsá laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi.
Móðir barnsins er einnig mikið slösuð, sem og
ökumaður hins bílsins, sem í árekstrinum
lenti.
Að sögn lögreglu eru tildrög slyssins óljós.
í hlut áttu Pord Econoline-sendibíll, þar sem
ökumaður var einn á ferð, og fólksbíll, sem í
voru litli drengurinn og foreldrar hans. Þriðji
bíllinn ók inn á slysavettvanginn en ökumað-
ur hans var ekki talinn alvarlega slasaður.
Drengurinn og faðir hans voru látnir þegar
að var komið en móðirin og ökumaður hins
bflsins voru flutt mikið slösuð á sjúkrahús.
Aðgerðir lögreglu og björgunarliðs á vett-
vangi voru tímafrekar. Meðal annars þurfti
að kalla til tækjabfl slökkviliðs til að klippa
flök bflanna í sundur svo hægt væri að ná
fólki út.
Oll umferð um Vesturlandsveg var stöðvuð
í rúmlega 2 klukkustundir meðan á aðgerðun-
um stóð og henni beint um Kjósarskarð eða
gömlu brúna yfir Leirvogsá.
Lftil ásókn í nýja deild Lffeyrissjóðs starfsmanna rikisins
Nokkrir tugir
í nvja kerfínu
AÐEINS nokkrir tugir sjóðfélaga í
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
(LSR) hafa tilkynnt flutning yfir í
hina nýju A-deild sjóðsins en rúm-
lega 20 þúsund opinberir starfs-
menn eiga þess kost að velja á milli
gamla og nýja réttindakerfisins sem
komið var á fót með setningu nýrra
laga um LSR og Lífeyrissjóð hjúkr-
unarkvenna um seinustu áramót.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
W" 54 félagsmenn tilkynnt flutn-
ing úr gamla kerfinu yfir í hið nýja
þegar stjórn sjóðsins fór yfir stöðu
mála nýlega.
Frestur til að taka ákvörðun um
flutning á milli deilda sjóðsins renn-
ur út 1. desember, og er ekki mögu-
legt að breyta þeirri tímasetningu
nema með lagabreytingu á Alþingi.
Fjármálaráðherra og forysta
BSRB, BHM, Kennarasambands
Islands og Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga undirrituðu sam-
komulag í nóvember í fyrra um
breytingar á lífeyrissjóðakerfi
starfsmanna ríkisins sem fólu m.a. i
sér stofnun nýrrar deildar við sjóð-
inn. Allir nýir starfsmenn ríkisins
verða sjálfkrafa aðilar að A-deiId.
Kynning á breytingunum hófst í
febrúar og hafa verið haldnir 60
fundir meðal opinberra starfs-
manna. Skv. upplýsingum Hauks
Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra
LSR, verður kynningu á þessum
valkostum haldið áfram af krafti.
Töluverður munur er á gamla og
nýja kerfinu. í A-deildinni eru ið-
gjöld greidd af heildarlaunum en í
gamla kerfinu er hins vegar einung-
is greitt af dagvinnulaunum og
vaktaálagi.
Vilja framlengja
lokafrestinn
Martha Hjálmarsdóttir, formað-
ur BHM, telur að margir starfs-
menn eigi eftir að færa sig milli
deilda þegar frá líður. Hún segir að
það hafi verið mistök að setja sjóðfé-
lögum frest til 1. desember og telur
að það yrði til hagsbóta fyrir sjóðinn
ef fresturinn yrði felldur niður. Og-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
tekur undir þetta sjónarmið.
Að sögn Friðriks Sophussonar
íjármálaráðherra hafa engar
ákvarðanir verið teknar um að
framlengja frestinn.
Kínverska
sendiherr-
anum hótað
LÖGREGLAN hefur verið með
gæslu við kínverska sendiráðið á
Islandi síðan í fyrrakvöld. Astæðan
er sú að sendiráðinu hafa borist
hótanir símleiðis og taldi kínverski
sendiherrann ástæðu til að láta
lögreglu vita og óska eftir vernd.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu sendiráðinu hafa
borist fleiri tugir símtala þar sem
lýst er andúð á kínverskum stjórn-
völdum og fulltrúum þeirra hér á
landi. Eftir því sem næst verður
komist hefur ekkert gerst við kín-
verska sendiráðið sem hefur gefið
tilefni til afskipta af hálfu lögi-egl-
unnar.
Jónmundur Kjartansson, yfir-
lögregluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, vildi aðspurður hvorki
játa né neita því að lögreglumenn
væru með vakt við kínverska send-
iráðið. Gæsla sendiráða heyrði
undir öryggishagsmuni og því gæfi
lögreglan engar upplýsingar um
málið.
Flugfreyjubúningar
Franskt
tilboð
lægra en
íslensk
NÝIR einkennisbúningar fyr-
ir flugmenn, flugfreyjur og af-
greiðslumenn sem starfa fyrir
Flugfélag Islands verða tekn-
ir í notkun á næstunni. Bún-
ingamir voru keyptir frá
frönsku fyrirtæki og segir
Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, að
verð Frakkanna hafi verið um
20% lægra en tilboð frá tveim-
ur innlendum aðilum.
Þörf var á um 150 einkenn-
isbúningum fyrir flugliða og
afgreiðslufólk FÍ og segir Páll
Halldórsson að leitað hafi ver-
ið eftir tilboðum í hönnun og
saumaskap hjá innlendum og
erlendum aðilum. Valin var
hönnun eftir Maríu Ólafsdótt-
ur en franskt fyrirtæki annast
saumaskapinn.