Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 2
2 E SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BÍLASALAN það sera af er þessu ári er raeiri en mörg undanfarin ár og spáð er áframhaldandi vexti í bílasölu á næsta ári. Aukinn kaupmáttur endur- speglast þannig í stórauknum bflaviðskiptum og breytingar sem gerðar hafa verið á aðflutnings- gjöldum hafa einnig leitt til þess að nú bjóða bflaum- boðin upp á fleiri valkosti en áður. I blaðinu Bflar 98 eru kynningar á um 250 bflum af árgerð 1998 sem fluttir eru inn til landsins. Þetta er því sem næst tæmandi úttekt á fólksbflum, jepp- um og pallbflum en í blaðinu er ekki fjallað um sendibfla og stærri atvinnubifreiðir. Kynningunum er skipt niður í fimm flokka eftir verði viðkomandi bfls. ►í fyrsta fiokki eru bflar sem kosta undir 1,2 millj- ónum kr. Hvernig er best að lesa blaðið? ►í öðrum flokki eru bflar á verði frá 1,2 til 1,5 miHj- ónir kr. ►I þriðja flokki eru bflar á verði frá 1,5 til 2 milljón- ir króna. ►í fjórða flokki bflar á yfír 2 milljónir kr. ►I fimmta flokki eru jeppar og pallbflar. Birtar eru myndir af bflunum og undir þeim talna- dálkur þar sem sagt er frá hámarkshraða bflsins, hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst, þyngdar- dreifingu á hvert hestafl vélar og loks eyðslu miðað við blandaðan akstur. Þar sem ekki hafa fengist upplýsingar kemur skammstöfunin e.u. (ekki upp- gefið). I megintexta er fjallað almennt um bflinn, kosti hans og búnað og loks fylgja nokkrar staðreyndir um vél, búnað, eyðslu og fleira. Byggt er á upplýs- ingum frá bifreiðaumboðunum og erlendum bfla- blöðum. Aftast í blaðinu eru töflur yfir staðalbúnað, auka- búnað og verð á aukabúnaði á öllum þeim bflum sem fjallað er um. Þá er í blaðinu einnig Qallað um margvíslegt efni sem tengist bflum, hjólbörðum, hljómtækjum, akstri, tryggingum, bflaviðskiptum og sagt er frá sérstök- um bflum í eigu Islendinga. Talsverður fjöldi nýrrá bíla er væntanlegur á markað hérlendis á næstu ___ misserum. Hér verður stiklað á stóru um helstu nýjungarnar MERCEDES-Benz M jeppinn kemur á markað í Evrópu næsta vor. AÐ minnsta kosti tveir nýir jeppar koma til landsins á næsta eða þamæsta ári, þ.e. ný kynslóð Nissan Patrol jeppans harð- gera, og splunkunýr valkostur í jepplingadeildinni, Land Rover Freelander. Auk þess er von á litlum sportbíl, litlum fjölnotabílum og millistærðarbílum sem gleðja munu augu ís- lenskra vegfarenda á næstu misserum. Freelander Fyrstan að telja er Land Rover Freelander jepplinginn þótt hans sé reyndar seinna von til landsins en flestra ann- arra af væntanlegum bílum. Líklega fá íslendingar ekki að kynnast honum að ráði fyrr en seint á næsta ári eða í upphafi árs 1999. Freelander er ekki með millikassa og því ekki með lágu drifi heldur sítengdu aldrifl líkt og Toyota RAV4 og Honda CR-V. Hann verður líklegast boðinn með Rover vél- um, 1,8 1 bensínvél, 120 hestafla, og 2ja 1 forþjöppudísilvél, 97 hestafla. Framleiðendur lofa honum einnig á markaðinn með V-6 vél. Hann verður með sjálfstæðri gormafjöðrun á fram- og afturhjólum. Freelander verður fáanlegur í tveimur út- færslum, 3ja og fimm dyra. M-jeppi Benz í lúxusjeppadeildina bætist Mercedes-Benz ML 230 sem NISSAN Patrol er með gjörbreyttu útliti. Tveir jepp- ar og einn jepplingur smíðaður er í Bandaríkjunum. Fáir bilar hafa fengið jafn ítar- lega kynningu í fjölmiðlum. Jeppinn var ein af skærustu stjörnunum í kvikmynd Steven Spielberg, Horfnum heimi og hann stal nánast senunni á alþjóðlegu bílasýningunni í Frank- furt í september þegar hann var frumsýndur í Evrópu. ML 230 er sérstaklega ætlaður á Evrópumarkað, með fjögurra strokka, 2,3 1 vél, 150 hestafla. Hann er byggður á grind og LAND Rover Freelander verður m.a. fáanlegur þriggja dyra með blæju yfir afturhluta þaksins. með sjálfstæðri fjöðrun að framan og aftan. Staðalbúnaður verður fimm gíra handskipting, uppgefinn hámarkshraði er 178 km á klst og eyðslan um 12,8 1 á hundraðið í blönduðum akstri. Tveir líknarbelgir eru í bflnum auk tveggja hliðar- belgja en mesta tækninýjungin er eflaust veggripsstýringar- kerfið 4 ETS. Það vinnur án mismunadrifslæsingar. Örtölva fylgist með veggripi hjólanna og eykur hemlaálag á þau hjól bílsins sem snúast hraðar en önnur eins og gerist t.d. í hálku. Einnig er fáanlegt í bflinn ESP-kerfi sem dregur úr afli frá vélinni þegar hjól fara að spóla. Grunnverðið í Þýskalandi er um 2,4 milljónir ÍSK en ekki hefur verið sett verð á hann hér- lendis. Hann kemur á markað í Evrópu næsta vor en óvíst er hvenær Islendingar eiga kost á að eignast gripinn. Patrol fjallojeppinn Fimmta kynslóð Patrol var frumsýnd í Frankfurt í haust og eru talsverðar útlitsbreytingar á bflnum. Hann er 7 sm lengri og 3 sm breiðari og með nýjum og mýkri línum. Inn- réttingin er líka ný. Bfllinn verður fáanlegur hér á landi í febrúar 1998 og verðið verður innan við fjórar milljónir kr. með 2,8 lítra forþjöppudísilvél og millikæli, 130 hestafla. Mesta nýjungin í Patrol er e.t.v. aftengjanleg jafnvægisstöng og stórbætt hljóðeinangrun. FJÓRÐA kynslóð VW Golf verður mun betur búinn. hM NYR Opel Astra kemur á markað næsta haust. Morgunblaðia/Ámi Sæberg Nýr Golf og í JANÚAR á næsta ári er von á fyrstu VW Golf bflunum með nýju lagi því kynslóðaskipti verða nú á þessum mikla sölubíl. Fram að því verður gamli bfllinn í árgerð 1998 til sölu. Sömu sögu er að segja af öðr- um góðum sölubfl, Opel Astra, en lengra er þangað til hann kemur á markað, líklega ekki fyrr en síðla næsta árs. Útlitsbreytingar á fjórðu kynslóð Golf eru minni en margir hefðu bú- ist við. Þó er bfllinn talsvert lengri, 4,16 m, eða þrettán sm lengri og 3 sm breiðari en fyrirrennarinn. Bíll- inn er líka með meira innanrými og ökumannssæti eru hæðarstillanleg. I framrúðunni eru nú skynjarar sem setja rúðuþurrkur af stað þeg- ar sest vatn á rúðuna. En það sem mestu varðar er að Golf er nú ör- uggari bíll en áður. Sérstök áhersla var lögð á öryggisþáttinn við hönn- un nýja bílsins. Farþegarýmið er sérstaklega styrkt til að þola álag við veltu og í hurðum eru styrktar- bitar. Líknarbélgir eru fyrir öku- mann og farþega í framsæti og hægt er að fá hliðarbelgi í dýrari gerðum. ABS-hemlakerfi er einnig staðalbúnaður í öllum gerðum og diskahemlar eru á öllum hjólum, kældir að framan. Ekki er búist við Astra að bíllinn hækki mikið í verði þrátt fyrir meiri búnað. Astra- leyndarmáliö Opel Astra var h'tillega kynntur á bflasýningunni í Frankfurt. Gestir fengu þó aðeins að berja bílinn aug- um að utan en alls ekki að setjast upp í hann. Það sem þeir sáu var býsna laglegt. Bíllinn hefur verið al- gjörlega endurhannaður og framendinn minnir örlítið á stóra bílinn Omega. Yfirbygging nýja bflsins er galvaníseruð og er bíllinn með 12 ára ábyrgð gegn gegnum- tæringu eins og nýr VW Golf. Stað- albúnaður verður m.a. tveir líknar- belgir, ABS-hemlakerfi og disk- hemlar. Nýi bfllinn er með 9,7 sm lengra hjólhafi en fyrirrennarinn. Ný Opel Astra verður fyrst fáanleg á íslandi í 1999 árgerð, væntanlega haustið 1998. SJÁ BLS 4 ►

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.