Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 E 17
Neyslustýring, nei takk
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur beitt sér fyrir breytingu á
bílasköttum. I grein Runólfs
Qlafssonar, framkvæmdastjóra
FIB, er lagt til að efsti gjaldflokk-
urinn verði lagður af og gjaldið á
bíla með vélarstærð frá 1600 að
2000 rúmsentimetrum verði lækk-
að úr 40 prósentum 130 prósent. Runóifur óiafsson
Fyrirsjáanlegt er að tekjur ríkis-
sjóðs af bílum munu fara a.m.k
2.500 m.kr. fram úr áætlun fjárlaga
fyrir þetta ár og verða um 25.000
m.kr. Bílaskattarnir eru einföld
tekjuöflunarleið fyrir ríkissjóð en
leggjast ekki að sama skapi af sann-
girni á skattborgarana. Notkunar-
skattar af bílum hafa hækkað veru-
lega undanfarin ár og fjölskyldubíll-
inn er nú dýrasti útgjaldaliður ís-
lenskra heimila. Bifreiðagjaldið er
eignaskattur sem ræðst af þyngd en
ekki verðmæti ökutækja. Alagning
innflutningsgjalda bif-
reiða miðast við vélar-
stærð og skiptist í þrjá
mismunandi gjald-
flokka 30%, 40% og
65%, óháð öryggi og
notkunarþörf.
Landsbyggðarskattur
- öryggisskattur
Greiðar samgöngur
eru grundvöllur efna-
hags- og félagslegar
velmegunar. Fjöl-
skyldubíllinn er órjúf-
anlegur hluti af gang-
verki daglegs lífs í
okkar strjálbýla og
veðurfarslega erfiða landi. Félag is-
lenskra bifreiðaeigenda hefur lengi
barist fyrir afnámi mismununar í
skattlagningu bfla, sem felst í mis-
háum vörugjöldum við innflutning
eftir vélarstærð eða öðru. Megin
rökin eru að stighækkandi vöru-
gjald bitnar harðast á barnmörgum
Tillögur FÍB um vörugjaldsflokka
Bensínvélar ý Dieselvélar > Gjaldflokkur
Sprengirými aflvélar allt að 2.000 rúmsentimetrar % Sprengirými aflvélar allt að 2.500 rúmsentimetrar 30%
Sprengirými aflvéiar yfir 2.000 rúmsentimetrar Sprengirými aflvélar yfir 2.500 rúmsentimetrar 40%
fjölskyldum og þeim sem búa við
erfíð skilyrði í samgöngum á lands-
byggðinni, auk þess að beina kaup-
um manna að minni og um leið óör-
uggari bílum.
Áfangar
Eðlilegast er að borga sama inn-
flutningsgjald af öllum fjölskyldu-
bílum enda er stærri og betur bú-
inn bíll dýrari frá framleiðanda og
þar með drýgri tekjuuppspretta í
innflutningi og vegna notkunar-
skatta. Fyrir tilstilli FIB vannst
áfangasigur í baráttunni á vormán-
uðum 1996 þegar Alþingi breytti
lögum um vörugjald af bifreiðum.
Gjaldflokkum var fækkað og vöru-
gjaldið lækkaði af mörgum bílum.
Fleiri bfleigendur gátu keypt ör-
uggari og betur búna bfla og
neyslubreytingarnar höfðu jákvæð
áhrif á afkomu ríkissjóðs. Nú þarf
að einfalda vörugjaldskerfið og
fækka gjaldflokkum með það að
lokamarkmiði að hafa aðeins einn
vörugjaldsflokk. Fækkun flokka
dregur úr neyslustýringu og eykur
jafnræði í skattheimtu.
Hugmyndir FIB gera ráð fyrir
eftirfarandi vörugjaldsflokkum:
FÍB leggur til að efsti gjaldflokk-
urinn verði lagður af og gjaldið á
bíla með vélarstærð frá 1600 að
2000 rúmsentimetrum verði lækkað
úr 40% í 30%.
Stærri dekk
þýða lægri
drifhlutföll
ERT þú á leið að kaupa jeppa?
Ætlar þú að láta breyta honum?
Lítið? Mikið?
Ef svo er, þarftu margt að vita.
Fyrsta spurningin sem þú þarft að
spyrja seijanda jeppans er þessi:
„Er hægt að fá lægri drifhlutfóll og
driflæsingar í bílinn?"
Ef það er ekki hægt er ekki ráð-
legt að fara í meiri breytingu en
fyrir 32-33 tommu. Ef þú ert
ákveðinn í að breyta bílnum fyrir
stærri dekk en 32 til 33 tommu,
verður þú að skoða jeppa sem er
hægt að fá í lægri drifhlutföll og
driflæsingar að framan og aftan.
En af hverju er þetta skilyrði
svo mikilvægt? Lítum á tæknilegar
ástæður:
Vinnslusvið bílvéla
Drifbúnaður flestra bíla tekur
mið af aflvél, eiginleikum hennar
og vinnslusviði. Eitt af þvi sem lítið
hefur breyst í heila öld síðan „Ott-
omótorinn" var fullgerður um
1870, er vinnslusvið og eldsneyt-
isnýting miðað við snúningshraða.
Nánast allar bensínvélar lúta
sama lögmáli með þetta. Þær skila
bestri nýtingu á eldsneyti á 2.500
til 3.000 sn. mín. Disilvélar eru
mjög mismunandi, en minni gerðir
þeirra, og sem algengastar eru í
jeppum og pallbílum af minni gerð-
inni, skila hámarks afköstum m.v.
eldsneytiseyðslu á 2.100 til 2.800
sn. mín. Stærri Disilvélar eins og
t.d. í flutningabílum eru hæggeng-
ari og vinna best undir 2.000 sn.
mín.
Stærri dekk:
lægri snúningur
Bíll sem kemur frá verksmiðju á
31 tommu dekkjum og drifhlutfall-
ið er 4,10 á móti einum, þarf nima
fjóra snúninga á drifskafti til að
snúa hjólunum einn hring. A 100
km hraða snýst vél þessa jeppa á
2.660 snúningum. Ef við setjum 35
tommu dekk undir þennan bíl án
þess að breyta drifhlutföllum og at-
hugum snúningshraða á 100 km
hraða aftur, kemur í ljós að hraði
vélarinnar hefur minnkað niður í
um 2.300 snúninga á mínútu.
Bíll sem er breytt svona vitlaust
mun innan skamms tíma sýna eft-
irfarandi einkenni: Eldsneyt-
iseyðsla mun aukast verulega, kúp-
ling mun slitna upp á stuttum tíma
og hætta er á að gírkassar og drif
gefí sig vegna mikils vogarálags
sem skapast. Sjálfskiptingar geta
ofhitnað og endingartími þeirra
verður brot af því sem áður var.
Það versta er þó vinnslan sem
verður lítil. Bíllinn verður þungur í
akstri, kraftlaus og almennt talað
heldur leiðinlegur.
Hversu lógt er
nógu lúgt?
Ef bílnum í dæminu að ofan væri
breytt rétt hefði verið skipt um
drifhlutföll í honum. Rétt drifhlut-
fall við vélina m.v. að hámarksaf-
köst náist á 2.600 til 2.800 sn. mín.
yrði þá að vera 4,56 :1, jafnvel 4,88
: 1. Ef lægra hlutfallið yrði notað er
örlítil hætta á að eldsneytiseyðsla
færi upp fyrir meðallag hins (4,56)
en það er ekki einhlítt. Ef t.d ætti
að nota bílinn til að draga kerru
(vélsleðakerrur, hestakerrar o.fl.),
þá væri 4,88 mjög álitlegt. Að auki
ætti eigandi bílsins þá möguleika á
að setja enn hærri dekk undir, t.d
ef hann vildi aka á 36-38 tommu
dekkjum að vetrinum en 35 tommu
að sumrinu. Mjög margir jeppaeig-
endur gera þetta með góðum ár-
angri.
36 tommur og uppúr:
alvöru fjallaför
Það er algert framskilyi-ði fyrir
þá sem ætla fyrr eða síðar að setja
dekk af stærðunum 36, 38, 40 eða
44 tommur undir jeppa sína að
kynna sér, áður en kaup eru gerð,
lykilatriði eins og hvort lægri drif-
hlutföll og 100% driflæsingar séu
fáanlegar í fra:n- og afturhásingar.
Bflar á þessum dekkjastærðum
eru mjög mikið breyttir að öðru
leyti en sem þetta eina atriði varð-
ar. Sé ekki hægt að breyta þeim
með réttum drifhlutföllum, er ekki
ráðlegt að fara í stærri dekk en 32
til 33 tommur.
Mikið er af jeppum á Islandi sem
breytt hefur verið án þess að þess-
ari reglu væri hlýtt til fulls. Kaup á
slíkum bíl er ávísun á dýrt viðhald
og erfiðleika í fjallaferðum. Það er í
sjálfu sér ekkert athugavert við að
festa kaup á bíl sem svona er ástatt
um, aðeins ef menn vita af því og
ganga að því vísu að þeir verði að
setja fé í að klára breytinguna á
bflnum til fulls.
Þeir sem breyta
bera óbyrgðina
Þetta vandamál er þannig til
komið á markaðinum að margir
aðilar berjast um jeppabreytingar
og margvíslegir breytingapakkar
eru í gangi. Breytingai' á jeppum
eru frekar dýrar - eigi að gera
þær þannig að eigandinn verði
ánægður til langframa og geti
gengið að því vísu að vetrarferðir í
snjó eða annarri ófærð endi ekki
dinglandi í kaðalspotta aftan í bet-
ur breyttum bílum ferðafélaganna.
Auðvelt er að lækka verðið með
því að sannfæra þá sem ekki vita
betur að ýmsir hlutir sem með
réttu eiga heima í breytingum fyr-
ir 35 tommu dekk og stærri, megi
missa sín.
Betra er að gera þá heldur
minna og vita nákvæmlega hver
geta bílsins er með þeirri breyt-
ingu sem gerð hefur verið. Drif-
hlutföll og driflæsingar eru það
fyrsta sem á að spyrja um við kaup
á jeppa sem á að breyta meira eða
minna.
A ÁLÍMINGAR !SugataI20C
SÍMI 567 0505 L • FAX 567 0177
Bremsuborðar - límingar
Rennum bremsuskálar og diska
Bremsuklossar
Bremsuskór
Bremsudiskar
Bremsuskálar
Dráttarbeisli
ÖII okkar vara er
samkvæmt Evrópustaðli.
Hestakerrur
Tveggja til átta hesta kerrur.
VÍKURVAGNAR
VlKURVAGNAR EHF.
ÖRYGGI - ÞJONUSTA
ÁRATUGA REYNSLA
Siðumúla 19*108 Reykjavík
Sími 568 4911 • Fox 568 4916
Leiðandi fyrirtæki í kerrum, vögnum og
Lögleg hemlakerfi fyrir
kerrur og vagna.
Skv. EES
Á allar gerðir bifreiða.
Ásetning á staðnum.
Allir hlutir til