Morgunblaðið - 11.10.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBJ3R 1997 E 21
Hjólbarðar eru
flókið fyrirbæri
HJOLBARÐAR eru mun flóknara
fyrirbæri en halda mætti og hefur
því verið haldíð fram að hjólbarðar
séu tæknilega einn fullkomnasti
hluti bílsins. Ekki er sama hvernig
með þá er farið og gildir það hvort
sem þeir eru undir bflnum eða í
geymslu. I báðum tilvikum er gott
að hafa nokkrar einfaldar reglur í
heiðri. Er drepið á þær helstu hér
á eftir.
Undir bílnum
Fylgjast þarf með loftþrýstingn-
um einu sinni til tvisvar í mánuði.
Hjólbarðar era ekki loftþéttir og
því sígur loftið úr þeim smám sam-
an. Það á einnig við um varahjólið
og þarf að gæta þess að athuga
einnig þrýstinginn þar.
Gott er að víxla fram- og aftur-
hjólbörðum á 5-7 þúsund km fresti.
Hjólbarðar á drifásnum slitna mun
fyiT en hinir. Þannig slitna t.d.
framhjólbarðar á framdrifnum bíl
um 4 mm á vetri en aðeins um 1
mm að aftan. Því er æskilegt að
skipta á miðjum vetri og eins á
miðju sumri. Með því má jafna slit-
ið.
Gefa verður hjólbörðum ráðrúm
til að jafna sig eftir nokkuraa mán-
aða geymslu þegar skipt er milli
vetrar- og sumarhjólbarða - og öf-
ugt. Hjólbarðarnir ná ekki strax
öllum eiginleikum sínum eftir
geymsluna og þurfa fyrst að
minnsta kosti um 50 km akstur á
þurrum vegi áður en þeir ná aftur
upphaflegum eiginleikum.
Í geymslunni
Kjörhitastig fyrir hjólbarða í
geymslu er undir 15 gráðum en
óþarfi er þó að hafa þá í kulda.
Best er að geyma hjólbarða á
þurram stað (ekki gott að hafa þá
undir svölum úti í garði!) og ekki er
gott að geyma þá í raka. Þegar
sumarhjólbarðar era teknir undan
og þeim kannski stungið blautum í
plastpoka er rétt að taka þá úr
pokanum og láta þá þorna. í lagi er
hins vegar að geyma þá í þurrum
pokanum. Varast skal að stilla
þeim upp við ofn, t.d. í bílskúr.
Stafla má hjólbörðum upp en þó
er ekki ráðlegt að hafa þá mikið
fleiri en 6-8 í hæð. Til era krókar til
að hengja þá upp og ef menn kjósa
það heldur.
I lokin má nefna að við venju-
legan árlegan akstur, 15-20 þús-
und km á ári, eru sumarhjólbarð-
ar góðir tvö sumur og sæmilegir
það þriðja og á sama hátt eru
vetrarhjólbarðar góðir í tvo vetur
en verða ekki nema sæmilegir úr
því.
Merkingar á hjólbörðum
ALLIR hjólbarðar hafa ýmsar merkingar, nöfn, tölur, skammstafanir og
fleira sem hafa sína þýðingu. Teikningin sýnir hverjar þessar merkingar
era og útskýringar fylgja með. Teikningin er gefin út af Bílgreinasamband-
inu.
Skýringar við númer á teikningunni
1. Framleiðandi.
2. Stærð.
3. Hraðamerking.
4. Tegund. R merkir hjólbarða með
þverböndum (radial), B með ská-
böndum og beltum, D með ská-
böndum og M+S merkir vetrar-
hjólbarða.
5. Hleðslutafla.
6. Hámarkshleðsla.
7. Hámarksloftþrýstingur.
8. Bandaefni, þ.e. fjöldi laga í hlið-
um og slitfleti.
9. Slöngulaus.
10. Slöngutegund.
11. Þverbönd ef um þau er að ræða.
12. Sólaður.
13. Sérstök merking.
14. Framleiðslunúmer.
Hreinsiefni og rúðu-
úði hjá Skeljungi
HJÁ söludeild Skeljungs er að
fínna tvær nýjungar, annars
vegar Rain-x Antifog sem bera
má á rúður til að koma í veg
fyrir móðumyndun og hins veg-
ar Blue Coral hreinsiefni sem
er umhverfisvænn íjölnota-
hreinsir, eins og segir í frétt frá
Skeljungi.
Rain-x Antifog má bera á
gler, bílrúður og raunar hvaða
rúður sem er þar sem búast má
við myndun móðu, t.d. einnig á
glerhlíf hjálma. Efnið er borið á
með klút og síðan strokið af.
Það verður að þorna og má
endurtaka verkið ef mönnum
sýnist árangurinn ekki nógu
góður í fyrstu tilraun.
Blue Coral hreinsiefnið er
ætlað til nota nánast á hvað-
eina, svo sem á rúður að innan
sem utan, spegla, áklæði og
fleira og hentar einnig sem
blettahreinsir. Það má einnig
nota á mælaborð og hjólbarða.
Væta á fyrst það sem hreinsa
skal með köldu vatni, síðan úða
úr fíöskunni yfír svæðið og
þurrka að lokum. Efnið má
einnig blanda með vatni og
gæti sú aðferð verið hentugri
þegar hreinsa skal stærri
svæði.
aðferð
Bílar létta okkur lífið og veita
okkur margvíslega ánægju.
En góður bíll kostar sitt og því þarf
að vega og meta mismunandi kosti
varðandi lán og greiðslur.
Það er einfalt og öruggt að fá Bílalán
hjá Sjóvá-Almennum. Þú færð svar
við lánsbeiðni án tafar og ekur burt
á nýja bílnum samdægurs.
Kynntu þér Bílalán Sjóvá-Almennra hjá
bílaumboðum eða bílasölum og berðu
það saman við önnur lán sem standa
þér til boða.
Niðurstaðan er þér í hag.
Alha þi
s
SJÓVÁ - ALMENNRA 1
569 2500 800 5692
Akranes: Garðabraut 2, s. 431 2800
Akureyri: Ráðhústorgi 5, s. 462 2244
Egilsstaðir: Miðvangi 2, s. 471 1616
Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14, s. 555 3900
ísafjörður: Eyrarskála v/Sundahöfn, s. 456 4555
Keflavík: Hafnargötu 36, s. 421 3099
Reykjavík: Kringlunni 5, s. 569 2500
Sclfoss: Austurvegi 38, s. 482 1022
SJOVAHirTALMENNAR
Traustur þáttur í tilverunni