Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 5 FRÉTTIR Utanríkisráðherra Kína ræddi við íslenska embættismenn Kvaðst vilja vinna að góð- um og auknum samskiptum Morgunblaðið/Þorkell LITILL yndisauki er að rusl- inu sem safnast fyrir í Tjarn- arhorninu við Skothúsveg. Rusl á Tjarn- arbökkunum ÞRÁTT fyrir að bakkar Tjarnar- innar í Reykjavík séu hreinsaðir reglulega virðist töluvert rusl ná að safnast þar fyrir. „Það sem hefur verið erfiðast að hreinsa úr tjörninni tengist fuglunum, bæði það sem fólk er að gefa þeim og fuglaskítur og annað sem þeim fylgir,“ segir Sigurður Skarphéðinsson gatnamála- stjóri. „Við höfum átt í mestum erfið- leikum með Tjarnarhornið við Iðnó. Plast og annað dót sem flýtur á vatninu leitar hins vegar oft í krikann við Skothúsveg þegar norðanátt er. Þetta er rusl sem annaðhvort er hent í Tjörnina eða fýkur þangað úr miðbænum og berst síðan fyrir vindum að bökkunum. Um- gengni í miðborginni er slæm, þannig að mikið af plastílátum og fleira rusli endar í Tjörninni.“ QUIAN Qichen, utanríkisráðherra og varaforseti Kína, sagði í viðræð- um við íslenska embættismenn í gær að hann vildi vinna að góðum og auknum samskiptum íslendinga og Kínverja. Quian ítrekaði einnig á fundinum að Kínveijum þætti óviðunandi hvernig tekið var á móti Lien Chan, varaforseta Tæ- vans, á íslandi 6. til 10. október. Helgi Ágústsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, Hjálmar W. Hannesson, sendiherra íslands í Kína, og Jón Egill Egils- son, skrifstofustjóri alþjóðaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, áttu í gær hálfrar klukkustundar fund með Quian í Peking. Helgi og Jón Egill héldu á laugardag til Peking til að ræða þessi mál við kínverska ráðamenn og var erindi þeirra að reyna að koma á eðlilegum sam- skiptum að nýju milli Islendinga og Kínveija. Þeir fara í dag til Japans og tengist sú ferð mögu- legri opnun íslensks sendiráðs í Tókýó. „Quian Qichen endurtók áhyggj- ur Kínveija vegna heimsóknar Li- ens Chans og hans föruneytis til íslands og hann ítrekaði það sem hafði komið fram [á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Kína á mánudag] að það væri óviðunandi af hálfu Kína að tekið var á móti tævönskum ráðamönnum með op- inberum hætti,“ sagði Helgi eftir fundinn í gær. „Hann ræddi sín góðu kynni af íslandi og ýmsum Islendingum, til dæmis fyrrverandi forseta og ýmsum ráðherrum, sem hann hefur hitt, og kvaðst vilja vinna að góðum og auknum sam- skiptum þjóðanna." Tók undir óskir um samstarf Helgi sagði að fulltrúar íslands á fundinum hefðu ítrekað afstöðu íslenskra stjórnvalda. „Þar á meðal þá margyfirlýstu stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar að ísland viður- kenndi aðeins eitt Kína og óskipt- anlegt. Einnig tók ég undir góðar óskir um samstarf við Kínvetja," sagði hann. Þótt Kínveijar, sem líta svo á að Tævan sé uppreisnarhérað í Kína, hafi gagnrýnt það að Lien skyldi ræða við Davíð Oddsson forsætisráðherra þegar hann kom til íslands var ekki minnst á að Kínveijar færu fram á afsökunar- beiðni á fundunum í Peking. „Það kom fram á fundinum [á mánudag] að það væri ekki verið að biðja Islendinga um afsökun,“ sagði Helgi. „Aðstoðarutanríkis- ráðherrann vísaði tii fréttaflutn- ings á Islandi og sagði að það hefði aldrei verið fram á það farið og þeir myndu ekki gera það.“ Helgi sagði að fundirnir í gær og á mánudag hefðu verið vinsam- legir, þótt þeir hefðu verið alvar- legs eðlis. „Þeir voru afar vinsamlegir og kurteisir, en þeir létu alvarlega í ljósi óánægju sína yfir því að við hefðum tekið á móti Lien Chan,“ sagði Helgi. Fréttaritari Morgunblaðsins í Peking spurði Shen Guofeng, tals- mann kínverska utanríkisráðu- neytisins, á daglegum blaða- mannafundi hans í gærmorgun um fundi Kínveija með íslensku erind- rekunum. „Með því að taka á móti Lien Chen frá Tævan hefur stjórn ís- lands skaðað hið góða samband milli Kína og íslands á nokkrum sviðum,“ sagði Shen. „En íslensku embættismennirnir hafa undir- strikað að ísland vilji áfram styrkja góð samskipti og samband við Kína og íslendingar séu ekki þeirrar hyggju að þeir hafi skaðað sam- skiptin. Við erum hins vegar þeirr- ar hyggju að íslenska stjórnin hafi grafið undan því og því segjum við að nú eigi Islendingar að taka frumkvæðið til að bæta það á ný.“ Shen vildi ekkert láta hafa eftir sér um fund íslensku sendimann- anna og utanríkisráðherra Kína. Ekki rætt um hindranir Kínveijar hafa hótað því á ýms- um vettvangi að ekki yrði látið sitja við orðin tóm vegna heimsóknar Liens Chans. Slíkar hótanir hafa meðal annars komið fram í yfirlýs- ingum sendiherra Kína á íslandi, á blaðamannafundum talsmanna kín- verska utanríkisráðuneytisins og í leiðara dagblaðsins China Daily. Getum hefur meðal annars verið leitt að því að Kínveijar myndu grípa til viðskiptahindrana. „Það var ekki rætt um neinar slíkar hindranir við af hálfu Kín- veija við okkur,“ sagði Helgi. „Það kæmi mér á óvart ef um það yrði að ræða.“ Miðborg Reykjavíkur Kveikt á öryggis- myndavélum 1. febrúar BORGARRÁÐ hefur samþykkt drög að samkomulagi vegna ör- yggismyndavéla í miðborginni. Gert er ráð fyrir að kerfið verði tekið í notkun í tilraunaskyni 1. febrúar 1998. Samkomulagið er milli Reykja- víkurborgar, dómsmálaráðuneyt- is, lögreglustjórans í Reykjavík og Pósts & síma hf. um uppsetn- ingu og rekstur að minnsta kosti fimm öryggismyndavéla. Gert er ráð fyrir að tilraunin standi í 1-1'A ár og munu aðilar skipta með sér kostnaði við kaup og uppsetningu búnaðar og kynn- ingu. Áætlaður kostnaður borg- arinnar er 3,7 milljónir. Staðalbúnaðurinn í Baleno langbak er ríkulegur - m.a. 2 öryggis- loftpúðar, rafmagn í rúðum og útispeglum, samlæsingar, vökva- og veltistýri, toppgrind, upphituð framsæti, útvarp og segulband með 4 hátölurum, vindkljúfur með hemlaljósi að aftan, bensíniok opnanlegt innanfrá, geymsluhólf undir farangursrými og draghlíf yfir farangursrými. Aflmikill, rúmgóður, öruggur og einstaklega hagkvœmur með notagildið í fyrirrúmi SUZUKI \I ! . OkYGCI SUZUKI BILAR HF SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Gardabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. iBALENO WAGON 1998 4WD: 1.595.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.