Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ohefð-
bundin
hönnun
► TÍSKUVIKUNNI í París er
lokið en þar voru kynntar línurn-
ar fyrir vor- og sumartískuna
1998. Undirbúningur er þegar
hafínn hjá hönnuðunum fyrir
haust og vetrartísku næsta árs
. á meðan kaupendur eru enn að
J átta sig á nýjustu straumum og
stefnum. A tískuvikunni í París
sýndu fremstu tískuhönnuðir
heimsins og var fjölbreytnin í
fyrirrúmi. Tveir af óhefðbundn-
ari hönnuðum tískuheimsins
sýndu hönnun sina sem
endranær en það eru þau
Vivienne Westwood og Jean-
Paul Gaultier. Þau eru þekkt
fyrir allt annað en hönnun
hefðbundins eða venjulegs fatn-
aðar. Sýningar þeirra eru
einmitt eftirsóttar vegna
frumlegrar hönnunar sem ein-
kennist af sköpunargleði og því
óvænta.
BRÚÐARKJÓLL breska hönn-
uðarins Vivienne Westwood
þótti óhefðbundinn með villtu
yfirbragði sjóræningjaleppsins.
FJÓLUBLÁ dragt með stráhatt
sem fylgihlut er sköpun franska
hönnuðarins Jean-Paul Gaultier
sem jafnan fer ótroðnar slóðir.
20% afsláttur
jL\J /\J
afeláttur af Triumph
undirfatnaði á Kringlukasti
lymp!
FÓLK I' FRÉTTUM
VIVIENNE Westwood hannaði
þessar stuttbuxur og þrönga
toppinn sem var fullkomnað
með sérstöku höfuðskarti.
STUTTBUXUR Vivienne West-
wood vöktu athygli á tískuvik-
unni í París en hún hefur jafnan
verið með óvenjulegan og líf-
legan stfl.
ÞÝSKA fyrirsætan Nadja Auermann minnti helst á norn þegar hún
sýndi hönnun Jean-Paul Gaultier á tískuvikunni í París.
MYNPBÖNP
/
Olíkir heimar mætast
Áttunda daginn
(Le Huiti'eme Jour)_____________
I) r a m a
irk
Framleiðandi: Samevrópskt verkefni.
Leikstjóri og handritshöfundur: Jaco
van Dormael. Kvikmyndataka:
Walther Van den Ende. Tónlist:
Pierre van Dormael. Aðalhlutverk:
Daniel Auteuil og Pascal Duquenne.
114 mín. Belgía og Frakkland.
Polygram/Háskólabíó 1997. Útgáfu-
dagur: 14. október 1997. Myndin er
öllum leyfð.
HARRY er sölustjóri í banka,
sem vinnur það mikið að eiginkon-
an er farin frá honum með dætur
hans tvær, sem hann tekur mjög
nærri sér. Nótt
eina keyrir
hann niður
hund. Eigandi
hundsins er Ge-
org, mongólíti
sem hefur
strokið af hæli.
Harry verður að
koma honum til
síns heima og
saman leggja þeir af stað í ferð.
Belgíski leikstjórinn Jaco van
Dormael heillaði marga bíófara
með mynd sinni „Toto Le Héros“
fyrir nokkrum árum. I þessari
mynd má þekkja stílbrögð hans aft-
ur, og þá sérstaklegá á notkun hans
á myndmáli, sem er mjög falleg. I
báðum kvikmyndunum setur hann
fram draumheim aðalpersónanna á
mjög skemmtilegan og absúrd hátt,
og í báðum myndunum er
mongólíti. Það mætti draga þá
álýktun að hann þekki vel til
mongólíta og reynsluheims þeirra,
enda sést það í Attunda deginum.
Það er hins vegar ekki nóg að
vilja gera hrifnæma mynd um
mongólíta. Hér vantar tilfinnanlega
sterkari söguþráð, en myndin er
byggð upp á röð atriða sem flest
eru eitt og sér ágæt. Þau eru
lýsandi fyrir reynsluheim mongólít-
ans í samfélagi sem veit ekki hvern-
ig það á að koma fram við þá, og
þar sem þeir virðast oft fjTÍr. Hér
mætast heimar tilfinngalausa sölu-
stjórans og vangefna mannsins sem
lætur tilfinningarnar ráða í einu og
öllu. Þetta verður fremur klént.
Eitt atriðið minnir tilfinnanlega á
Gaukshreiðrið, og endalokin í sam-
bandi Harry og eiginkonunnar eru
heldur skrýtin. Endir myndarinnar
er samt mjög fallegur.
Aðalleikararnir tveir tóku saman
við Gullpálmanum í Cannes fyrir
túlkun sína. Pascal Duquenne, sem
leikur Georg, er alveg frábær og
van Dormael hefur unnið frábært
verk með honum. Hins vegar finnst
mér hinn stórgóði leikari Daniel
Auteuil ekki nógu sannfærandi, og
maður hefur það á tilfinningunni að
honum líði ekki of vel með sig.
Áttundi dagurinn er ljóðræn og
falleg mynd, sem verður á stundum
of væmin. En hún er öðruvísi og
forvitnileg fjrir fólk sem hefur
áhuga á mannlegu eðli.
Hildur Loftsdóttir