Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FIUDIUK HAXSFiX
(ÍII1)MUNI)SS()1N
í eitt af efstu sætunum
Kosningaskrifstofa
Laugavegi 13,3. hæð
s: 551 3499 fax: 551 3479
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins 24. - 25. okt.
Skagfirðintfafélagfö i Reykjaéík
oq náqrenni 60 ára
(tilefni af þessum merku tímamótum aetla Skagfirðingar að skemmta
sér í félagsheimilinu Drangey í Stakkahlíð 17, Reykjavík helgina 24,—
26. október 1997 og endurtaka 8. nóvember nk. en þá leikur fyrir
dansi Hðrður Ólafsson.
Hátíðin byrjar föstudagskvöldið 24. okt. fyrir unga fólkið sem kemur þá
saman og skemmtir sér fram eftir nóttu við diskótek, karaoke,
samkvæmisleiki og söng. Miðar seldir við innganginn á kr. 300.
Dagskrá laugardagsins hefst með menningarvöku frá kl. 14—16.
Stjórnandi: Haraldur Bessason frá Kýrholti.
Dagskrá:
Söngur, málverkasýning, Ijóðalestur þar sem m.a. verður lesið upp úr
óútkominni bók Skagfirsk skemmtiljóð. Aðgangur ókeypis.
Hátíð kvöldsins hefst kl. 19.30. Ávarp formanns félagsins, Sveins
Skagfjörð Pálmasonar. Borðhald.
Skemmtidagskrá:
• Hagyrðingaþáttur og söngur:
• Félagar úr Skagfirsku söngsveitinni,
• Svanagerðisbræður, tvöfaldur karlakvartett ásamt söngkonunni
• Svanhildi Sveinbjörnsdóttur. Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson.
• Dans: Fyrir dansi leika Sveinn Ingason og sonur.
Miðaverð kr. 2.500. Miðar einnig seldir eftir borðhald á kr. 1.000.
Forsala aðgöngumiða verður í Drangey miðvikudaginn 22. okt. milli kl.
17 og 20. Hægt að panta miða símleiðis á sama tíma í síma 568 5540
Málverkasýningin verður einnig opin sunnudaginn milli kl. 14 og 18.
Fisléttar veitingar á boðstólum á sama tíma.
LIFANDI
VÍSINDI
NÝTT MÁNAÐARTÍMARIT
Kemur út í nóvember
Hvert tölublað á kr. 665.- í áskrift.
Þú greiðir því aðeins kr. 1.995.-
fyrir þrjá mánuði
Hringdu núna
Tt 881 2061
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudeg-i til föstudags
Skriftar-
trúnaður -
trúnaðargát?
„MARGT á maður eftir
að heyra áður en eyrun
detta af manni!“ Nú heyrði
ég í gær sjálfan yfirbiskup
landsins og þjóðkirkjunnar
lýsa því yfir við alþjóð, að
skriftatrúnaður og trúnað-
argát presta vær skilyrt:
Túlki prestur þær upplýs-
ingar sem honum eru
veittar í trúnaði þannig
að þær verði samkvæmt
hans skilningi skjólstæð-
ingi til gagns fyrir dóm-
stólum eða annars staðar,
má greinilega láta skrifta-
trúnað og trúnaðargát
lönd og leið.
í mínum huga og vænt-
anlega fleiri er hér um
grafalvarlega yfirlýsingu
að ræða, sem kollvarpar
hugmyndum sem flestir
hafa haft um skriftatrún-
að og trúnaðargát.
Nú er það ekki aðeins
presta innan íslensku
þjóðkirkjunnar, sem svona
yfirlýsing snertir. Það er
aldagömul hefð fyrir þeirri
siðfræði, að milli lækna
og sjúklinga þeirra eigi að
ríkja slík trúnaðargát, að
sjúklingur megi treysta.
Sama á raunar við um
fleiri heilbrigðisstéttir,
sem verða áskynja um
málefni sjúklinga í þeirra
umsjá, beinni eða óbeinni.
Mér sýnist yfirbiskup-
inn hafa rétt einu sinni
farið offari með þessari
yfirlýsingu sinni í fjölmiðl-
um. Siðfræði trúnaðargát-
ar getur ekki verið skilyrt!
Fróðlegt væri að heyra
og sjá sjónarmið fleiri, og
vonandi setur væntanleg-
ur yfirbiskup undir þenn-
an leka í fyrsta hirðbréfi
sínu!^
Ásmundur Brekkan.
„Látum skóna
ganga aftur“
„ÉG vona að Morgunblað-
ið ljái línum þessum rými
á síðum sínum, þannig að
þær nái til þín. Og ég
geti vakið þig til umhugs-
unar um innihald og til-
gang þeirra.
Fyrst af öllu er löngun
til að þakka þér. Einhvern
tíma varst þú að taka til
hjá þér, og sast með milli
handa þinna skó, sem þér
fannst of góðir til að
henda. En þér var samt
ljóst að þeir yrðu ekki
nýttir af þér eða þínum.
Hér varst þú með á milli
handa þinna hlut sem var
of mikið í spunnið til að
verða eyðingaröflunum að
bráð, og þér kom ólíklega
til hugar að þessi hlutur
ætti eftir að verða gagn-
legur persónu á öðru
heimshveli. Ég get sagt
þér að það gleður mig
verulega mikið í hvert sinn
sem ég sé einstakling
koma með pokann sinn
með gömlum skóm, ein-
stakling sem kom til að
vera með í þessu góða
verki. Hafðu heila þökk
fýrir þátttöku þína. Ég
veit að þú væntir ekki
ávinnings, en hefur löngun
til að gera öðrum til góða.
Þessum verkum þínum
vænti ég að fylgi velvilji
og góðar hugsanir, sem ég
er sannfærður um að hafi
sitt góða gildi.
Því má bæta við að Skó-
verslanir Steinars Waáge
hf. í Domus Medica og
Kringlunni, Toppskórinn
við Ingólfstorg og allar
gámastöðvar Sorpu taka
við notuðum og ónotuðum
skóm. Allir skór eru gjald-
gengir í söfnunina, hversu
illa farnir eða gamlir sem
þeir eru. Og þegar þessar
línur eru ritaðar, þá hafa
15, 20 feta gámar verið
sendir frá íslandi í söfnun-
ina „látum skóna ganga
aftur“.
Steinar Waage,
skókaupmaður.
Tapað/fundið
Lítil leiktölva
týndist í
Kolaportinu
LÍTIL leiktölva, með leik
sem er bleikt hús með lít-
illi kínverskri stúlku, týnd-
ist í Kolaportinu sl. laugar-
dag. Leiksins er sárt sakn-
að. Þeir sem hafa orðið
varir við tölvuna hafi sam-
band í síma 567 1787.
HÖGNIHREKKVÍSI
SKÁK
Umsjón Margcir
Pctursson
STAÐAN kom upp á úrslita-
mótinu í VISA bikarkeppn-
inni, sem lýkur í dag. Jó-
hann Hjartarson (2.605)
hafði hvítt og átti leik, en
Helgi Áss Grétarsson
(2.475) var með svart. .
37. Hf8+! og svartur gafst
upp, því eftir 37. - Hxf8
38. Dxe6+ hefur hann tapað
drottningunni.
Síðasta umferðin á mót-
inu verður tefld í dag á
Grand Hótel Reykjavík við
Sigtún. Taflið hefst kl. 14
og ráðlegt fyrir skákáhuga-
menn að mæta í síðasta lagi
kl. 17.30, ef þeir ætla að
eiga möguleika á því að
fylgjast með úrslitaaugna-
blikunum á mótinu.
1 S
i. A A
A í 'M- Wk - n
mmi & m &
fi &
fi&
HVÍTUR leikur og vinn-
ur.
Með morgunkaffinu
KING Kong hefur verið
hér, það fer ekkert á
milli mála.
ÞÚ ert fyrsta stúikan
sem ég býð í bíó, er það
ekki mamma?
í HVERJU fólst þessi
langa reynsla sem nýi
maðurinn sagðist hafa?
ÉG átti síðasta orðið. lampinn sem við gáfum
Kveðja, Gerður. á tombólu i fyrra.
Víkveiji skrifar...
UM helgina viðraði dýrlega hér
í Reykjavík og nýttu margir
sér veðurblíðuna til margvíslegrar
útivistar. Víkverji fór í gönguferð
í Heiðmörk í eftirmiðdaginn á laug-
ardag og þar var fjöldi manns á
göngu, enda Heiðmörk sannkölluð
náttúruperla og lagning og frá-
gangur göngustíga þar er til hreinn-
ar fyrirmyndar. Litadýrðin er að
vísu ekki söm og fyrir svona þrem-
ur vikum, en samt sem áður er hún
óumræðileg. Ekki spillir, á dögum
eins og gáfust um helgina, að ganga
þar sem sést vel yfir sundin blá og
til fjalla.
XXX
Ð vísu urðu Víkverji og göngu-
félagar hans fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu á göngu
sinni um Heiðmörk, því við beygj-
una á einum göngustíganna gengu
þeir fram á risavaxinn hund, sem
Víkverji kann ekki að nefna. Hann
lét heldur dólgslega, urraði, gelti
og sýndi tennurnar. Gönguhópnum
tókst þó að komast leiðar sinnar,
með því að æpa heldur valdsmanns-
lega á djöfsa og skipa honum á
braut. Eins og 10 mínútum síðar
mættu göngu-Hrólfarnir svo eldri
manni sem var með beisli eitt sér
í hönd, en engan hundinn. Var hann
spurður hvort hann saknaði hunds
og kvað hann já við. Var hann þá
upplýstur um hvar gengið hafði
verið fram á hunds-ferlíkið, um leið
og hann var beðinn að gæta þess
að hafa dýrið í beisli, þar sem það
væri hvimleitt fyrir þá sem vildu
njóta útivistar í Heiðmörk að labba
fram á óbeislaðan hund, sem léti
við ókunnuga eins og hundur hans
hafði gert. Maðurinn kunni göngu-
hópnum litlar þakkir og taldi aug-
ijóslega að afskiptasemi göngu-
hópsins af gönguvenjum hans og
hundsins væru þeirra einkamál. Þar
telur Víkveiji reyndar að hundseig-
andinn, og aðrir hundaeigendur sem
eru sömu skoðunar, hafi alrangt
fyrir sér. Hundar eiga að vera
bundnir í þéttbýli og jafnsjálfsagt
er að þeir séu bundnir þegar farið
er með þá á útivistarsvæði manna.
xxx
NNAR og gjörólíkur staður
sem einnig er skemmtilegt
að sækja heim á fallegum góðviðris-
dögum er Perlan í Öskjuhlíð. Vík-
verji fór ásamt fjölskyldu sinni í
síðdegiskaffi í Perluna á sunnudag-
inn og þar var, eins og jafnan á
slíkum dögum, mjög margt um
manninn. Augljóslega hefur Perl-
unni tekist að festa sig í sessi hjá
mörgum sem skemmtilegur heim-
sóknarstaður, þegar vel viðrar, enda
er frábært útsýni þaðan til allra
átta og ágætis veitingar fyrir alla
aldurshópa, þótt verðlagið sé að
vísu í hærra lagi.