Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 41
MINIMINGAR
SIG URBJORN
EIRÍKSSON
+ Sigurbjörn Ei-
ríksson fædd-
ist á Gestsstöðum
í Fáskrúðsfirði 5.
desember 1925.
Hann lést á Land-
spítalanum í
Reykjavík 10.
október síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá
Fossvogskirkju
21. október.
Það er ekki auðvelt
að festa á blað minn-
ingar um föður sem
var mér og okkur öllum svo ástkær
og mikill vinur. Sannarlega var hann
raungóður og fús til þess að hjálpa
og styðja aðra. Aldrei neitaði hann
nokkurri bón, ef það var á hans
valdi að geta hjálpað til.
Það er svo margt sem mér er
minnisstætt þegar ég hugsa til föður
míns og sem hefur haft sterk áhrif
á mig. Sem dæmi heyrði ég aldrei
föður minn hallmæla einum einasta
manni eða að beiskja væri í garð
nokkurs manns. Hann talaði vinsam-
lega um alla og aldrei heyrðust blæ-
brigði í rómi hans, þótt ég vissi að
íjölmargir hefðu gert honum afar
rangt til. Þetta kom til af því að
pabbi var kærleiksríkur og skildi
afar vel mannlegt eðli og fyrirgaf
öllum allt. Þeir voru margir sem
komu að máli við föður minn og vildu
rétta hlut hans gegn rógburði og
ósannindum sem oft voru á forsíðum
blaðanna sem allir landsmenn gátu
lesið og höfðu dæmt hann sekan
þótt saklaus væri. Já, þeir sem
þekktu pabba vissu betur. Og pabbi
var þakklátur fyrir að hann var ekki
vinafár.
Síðustu ár föður míns voru honum
erfið því hann var rúmliggjandi í níu
ár. A þeim tíma gafst mér gott tæki-
færi til þess að kynnast honum enn-
þá betur og þeim viðhorfum sem
hann hafði til lífsins.
Hann játaði Jesúm Krist sem sinn
frelsara og átti óbilandi trú á Guðs
náð og miskunn. Síðustu orð af
munni föður míns heyrði ég hann
segja er við kvöddum hann, ég og
barnabörnin hans, þau voru: Guð
blessi ykkur.
Og um leið og við minnumst hans
þá skulum við hugleiða orð Guðs þar
sem segir í 1. Þess. 4.13-18: „Ekki
viljum vér, bræður, láta yður vera
ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru,
til þess að þér séuð ekki hryggir
eins og hinir, sem ekki hafa von.
Því að ef vér trúum því að Jesús sé
dáinn og upprisinn, þá mun guð fyr-
ir Jesú leiða ásamt honum fram þá,
sem sofnaðir eru. Því að það segjum
vér yður, og það er orð Drottins, að
vér, sem verðum eftir á lífi við komu
Drottins, munum alls ekki fyrri
verða en hinir sofnuðu. Þvi að sjálf-
ur Drottinn mun stíga niður af himni
með kalli, með höfuðengils raust og
með básúnu Guðs, og þeir, sem dán-
ir eru í trú á Krist, munu fyrst upp
rísa. Síðan munum vér, sem eftir
lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt
í skýjum til fundar við Drottin í loft-
inu. Og síðan munum vér vera með
Drottni alla tíma. Uppörvið því hver
annan með þessum orðum.“
Eiríkur Sigurbjörnsson.
Nú hefur kærleiksríkur og elsku-
legur faðir minn kvatt þetta jarð-
neska líf og er ég Guði þakklátur
fyrir það tækifæri sem hann gaf
mér síðustu árin til þess að eiga
samfélag við föður minn og ræða
um okkar lifandi von sem við eigum
fyrir trú á Jesúm Krist og endur-
lausnina.
Þótt faðir minn hafi verið mikið
hraustmenni og mjög dugmikill mað-
ur í þessu jarðneska lífi þá átti hann
eitthvað sem var dýrmætt og gott
veganesti inn í eilífðina, einfalda og
barnslega trú á Jesúm Krist sem
endurlausnara sinn.
Enginn hefur reynst mér eins vel
í raunum mínum og þrengingum og
faðir minn og er ég þakklátur fyrir
það og stoltur að eiga
föður sem sýndi kærleika
sinn í verki og gerði allt
það sem hann gat til að
hjálpa okkur börnunum.
Mig langar að vitna í
þennan sálm:
Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg.
Það allt, er áttu í vonum,
og allt, er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her,
hann fótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
Ef vel þú vilt þér líði,
þín von á Guð sé fest.
Hann styrkir þig i stríði
og stjórnar öllu best.
Að sýta sárt og kvíða
á sjálfan þig er hrís.
Nei, þú skalt biðja og bíða,
þá blessun Guðs er vís.
Ó, þú, minn faðir, þekkir
og það í miskunn sér,
sem hagsæld minni hnekkir,
og hvað mér gagnlegt er,
og ráð þitt hæsta hlýtur
að hafa framgang sinn,
því allt þér einum lýtur
og eflir vilja þinn.
Að lokum, megi Guð blessa minn-
ingu föður míns með þakklæti til
allra vina sem studdu hann.
Guð biessi minningu föður míns.
Gestur Guðjón Sigurbjörnsson.
Elsku pabbi minn, nú ertu horfinn
úr þessu jarðneska lífi.
Söknuðurinn er sár, en ég veit
að þú varst hvíldinni feginn, svo
sjúkur varstu orðinn. Nú hvílir þú í
faðmi Drottins og þér líður aftur vel.
Minningarnar hrannast upp. Ég
man hve góður þú varst gömlu fólki,
börnum og þeim sem minna máttu
sín, alltaf varstu reiðubúinn að rétta
fram hjálparhönd. Ég man eins og
gerst hefði í gær þegar við gengum
saman yfir Miklubrautina, þú hélst
í hönd mína þegar ég var 6 ára og
ég hugsaði með mér, mikið er nú
höndin hans pabba traust, sterk og
hlý, þegar ég verð stór ætla ég að
eignast mann með svona trausta
hönd.
Ég vil þakka þér fyrir hversu
góður þú varst börnunum okkar Ing-
þórs. Þær voru ekki fáar ferðirnar
sem þú fórst með þau austur á
Stóra-Hof. Þá var alltaf stoppað í
sjoppu og keypt kók og prins póló.
Eg veit að þetta var þeim svo mikils-
vert. Svo komu barnabörnin og þú
brostir og varst svo glaður að sjá
þau, þótt þú værir þá rúmliggjandi.
Ég kveð þig með sárum söknuði
og kærleik í huga, en ég veit að við
hittumst aftur. Vertu nú sæll, elsku
pabbi minn, og hvíl þú í friði og
megi armar Drottins umvefja þig.
Ó, blessuð stund, er burtu þokan líður,
sem blindar þessi dauðleg augu vor,
en æðri dagur, dýrðarskær og blíður,
með Drottins ljósi skln á öll vor spor.
Ó, blessuð stund, er sérhver rún er ráðin
og raunaspuming, sem mér duldist hér,
og ég sé vel, að viskan tóm og náðin
því veldur, að ei meira sagt oss er.
Ó, blessuð stund, er stillast skulu sárin
og stöðvast óp og kvein hins þjáða manns,
og loksins þverra þungu sorgartárin
og þorna fyrir geislum kærleikans.
Guðný Sigurbjörnsdóttir
og Ingþór Arnórsson.
GUÐRUN
BJÖRNSDÓTTIR
+ Guðrún Björns-
dóttir fæddist í
Ospaksstaðaseli í
Húnavatnssýslu 9.
apríl 1906. Hún lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 11.
október síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Askirkju
17. október.
Efþúsérðgamlakonu, þá
minnstu móðurþinnar,
sem mildast átti hjartað og
þyngstu störfin vann,
og fómaði þér kröftum og feg-
urð æsku sinnar,
og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann.
Þú veist að gömul kona var ung og fögur
forðum,
og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest.
Ó sýndu henni vinsemd í verki og í orðum.
Sú virðing sæmir henni og móður þinni best.
Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína
móður,
að minning hennar verði þér alltaf hrein og
skýr,
og veki hjá þér lönpn til að vera öðmm góður,
og vaxa inn í himin - þar sem kærleikurinn býr.
(Ók. höf.)
Hjartans þakklæti fyrir allt,
mamma mín.
Ingveldur Gunnars
Guðbjörnsdóttir.
Mig langar til að minnast hennar
ömmu minnar með örfáum orðum.
Amma lést á Landspítalanum, 91
árs að aldri.
Elsku amma, ekki sá ég þig síð-
ustu tvö árin þar sem ég bý erlend-
is. Ailtaf spurði ég um þig þegar
ég talaði við hana mömmu mína í
símann, varð að vita hvernig þú
hefðir það. Ég vissi að þér fór hrak-
andi svo það er gott að þú hefur
fengið hvíldina.
Amma, þú varst eins og ömmur
best geta hugsast. Alltaf var gott
að koma til þín, öllum tekið opnum
örmum og alltaf tími til að sinna
mér. Þú varst svo trú og trygg.
Ég ólst upp á Selfossi
og ef þú ekki komst í
afmælið mitt þá var svo
spennandi að fara og
sækja pakkann frá þér
á rútuna, ég vissi jú að
ég yrði ánægð með það
sem þú sendir. Allt var
svo vel valið. Ekki fór
ég fáar ferðir suður til
ykkar afa með rútunni
bara til að hafa það
gott. Ég fékk oft að
fara með þér að skúra
hjá Bændasamtökunum
á Hótel Sögu þar sem
þú skúraðir til margra
ára, þar fékk ég að
vaska upp.
Oft löbbuðum við niður í bæ og
alltaf var laumað að manni smá
gotti eða smá dóti. Manstu þegar
við vorum að spila rommí, það var
ekki sjaldan, svo í dag er ég ekki í
vafa um hvaðan ég erfði þessa miklu
spilafíkn. Þú last lfka fyrir mig Gosa.
Aldrei fór ég svöng frá þér. Ég
var ekki fyrr komin inn úr dyrunum
en þú hafðir dekkað borð og matur-
inn var alltaf fyrsta flokks. Þú saum-
aðir á mig margar flíkurnar og ég
fékk þá oft að fara með þér að velja
efni. Alltaf var þinn saumaskapur
fullkominn og flott voru þau dressin
sem þú saumaðir á mig og ekki síst
upphluturinn.
Nú þegar ég komst á unglingsárin
fór ég þá ásamt vinkonum mínum í
bæjarferð og ekki brást að ég kæmi
við hjá þér, því þar vissi ég að öllum
var vel tekið, hvenær sem var.
Nú, svo fluttist ég suður og eign-
aðist drengina mína tvo, Ara og
Steinar. Alltaf vildu þeir heimsækja
langömmu um helgar og ósjaldan
minnast þeir á þig. Ekki tók hann
Ari minn það í mál að þú yrðir jarð-
sett án þess að fá að vera viðstadd-
ur, svo nú erum við Ari komin til
íslands að fylgja þér til grafar,
amma mín.
Ég vil þakka þér fyrir öll góðu
árin sem ég fékk að njóta þín. Minn-
ing um góða ömmu mun ætíð lifa.
Guð blessi þig, elsku amma.
Kveðja,
Edda Björk.
VISA BIKARMÖTIÐ Stig (1j 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. RÖÐ:
1 J.-A. Nielsen, Fær. 7 31oBO 0 'A 'A 0 0 0 0 Vz '/2 0 2 14.
2 Jóhann Hiartarson 2.605 1 1 'A A '/2 1 1 1 'A 1 1 9 1.-2.
3 T. Hillarp-Persson, Sv. 2.445 1 0 0 'A 0 0 'A 0 0 ’/2 'a 3 13.
4 R. Akesson, Sviþi. 2.520 a 'A 1 0 1 0 'A 0 0 A 'A A 5 8.
5 J. Tisdall, Noreqi 2.480 'A 'A 'A 0 0 A 'A 1 'A A 4% 9.-10.
6 J. Hector, Svíþióð 2.470 1 'A 1 1 1 1 A 1 1 '/2 'A 9 1.-2.
7 L. Schandorff, Danm. 2.505 1 0 1 'A 1 'A '/2 A 1 1 0 7 3.4.
8 Curt Hansen, Danm. 2.600 1 0 'A 1 'A A 'A 1 '/2 0 '/2 1 6’/2 5.
9 Helqi Ass Grétarsson 2.475 1 0 1 0 'A 'A /2 0 'A 0 4A 9.-10.
10 Þrðstur Þórhallsson 2.510 A 'A '/2 /2 'A 0 'A 1 0 0 0 4 11.-12
11 H. Westerinen, Finnl. 2.410 'A 1 '/2 0 0 'A 'A 0 0 0 1 4 11.-12
12 R. Diurhuus, Noreqi 2.525 1 ’/2 0 0 0 1 1 1 1 0 0 5 'A 7.
13 E. Gausel, Noreqi 2.540 0 'A 'A 'A a 1 'A A 1 1 1 7 3.4.
14 Hannes Hlífar Stefáns. 2.545 1 0 'A A 'A A 0 1 1 0 1 6 6.
Lokaum-
ferðin í dag
SKAK
Grand Ilótcl
Rcykjavík, 8.-22.
októbcr:
VISA NORDIC GRAND
PRIX:
Síðasta umferðin hefst í dag kl.
14. Aðeins tveir keppendur eiga
möguleika á sigri, þeir Jóhaim
Hjartarson og Jonny Hector.
BÁÐIR efstu menn hafa svart
í dag. Jóhann mætir Norðmannin-
um Rune Djurhuus, en Hector
teflir við ríkjandi Norðurlanda-
meistara, Danann Curt Hansen.
Það er þó þegar orðið útséð um
að Hansen mun sjá af titlinum.
Djurhuus teflir mjög skemmti-
lega rétt eins og Hector, en er
líka afskaplega mistækur. Það
nægir að líta á frammistöðu Djur-
huus í þessu móti. Hann vann
fyrstu skákina, tapaði svo þremur
í röð, en vann svo fjórar í röð.
Hannes Hlífar kom honum þá
niður á jörðina og síðan tapaði
hann annarri skák.
Hector á við erfiðari andstæð-
ing að glíma, jafnvel þótt Curt
Hansen hafi
ekki verið eins
heppinn á þessu
móti og fyrir
tveimur árum,
þá er hann
mjög traustur
og öflugur
skákmaður sem
erfitt er að
leggja að velli.
Það er óger-
legt að spá um
úrslit, en miklu
meiri reynsla
Jóhanns af erf-
iðum skákum
ætti þó að vega
þungt. Hann
hefur teflt mjög
frísklega á þessu móti og teflt
stíft upp á vinning í hverri ein-
ustu skák. í elleftu umferðinni á
mánudagskvöldið fómaði hann
snemma skiptamun á Þröst Þór-
hallsson fyrir óvissar bætur. En
Jóhanni tókst að flækja taflið
nægjanlega mikið og í tímahraki
lét Þröstur sömu stöðuna koma
upp þrívegis. Þótt hlutlægt séð
væru möguleikarnir hans megin
var þetta skiljanleg ákvörðun
gegn miklu stigahærri andstæð-
ing í frábæru formi. Það hefði
heldur ekkert mátt út af bregða
hjá Þresti og skákin var mjög
langt frá því að geta talist unnin.
A töflunni sést hvernig staðan
er eftir ellefu umferðir en úrslit
gærkvöldsins má sjá á fréttasíðu
Morgunblaðsins.
Taflið hefst kl. 14
Skákáhugamenn verða að
gæta sín á því að umferðin í dag
hefst kl. 14 og því ekki seinna
vænna en að drífa sig niðureftir
um fimmleytið. Annars er hætta
á að missa af úrslitaaugna-
blikunum.
Keppendur á Hellismótinu
1. Jörg Hickl, Þýskal. SM 2565
2. Hannes Hlífar Stefánsson SM 2545
3. Ludger Keitlinghaus, Þýskal. AM 2525
4. Helgi Ólafsson SM 2505
5. Michael Bezold, Þýskal. 2490
6. Helgi Áss Grétarsson SM 2475
7. Jonny Hector, Svíþj. SM 2470
8. Erling Mortensen, Danm. AM 2455
9. Albert Blees, Hollandi AM 2450
10. Tiger Hillarp—Persson, Svíþj. AM 2445
11. Heikki Westerinen, Finnl. SM 2410
12. Christian Wilhelmi, Þýskal. AM 2405
13. Jón Garðar Viðarsson FM 2380
14. Sebastian Schmidt-Schaeffer, Þýskal. 2365
15. Thomas Engqvist, Sviþj. AM 2355
16. Jón Viktor Gunnarsson 2315
17. Áskell Örn Kárason 2305
18. Bragi Halldórsson 2270
19. Sævar Bjamason AM 2265
20. Einar Hjalti Jensson 2225
21. Bjöm Freyr Björnsson 2220
22. Bragi Þorfinnsson 2215
23. Kristján Ó. Eðvarðsson 2210
24. Sigurður Daði Sigfússon FM 2205
25. Jón Ámi Halldórsson 2160
26. Davíð Kjartansson 2130
27. Jóhann H. Ragnarsson 2115
28. Björn Þorfinnsson 2105
29. Louise Fredericia, Danm. 2100
30. Dan E. Mayers, Engl. 2085
31. Stefán Kristjánsson
32. Guðfríður Lilja Grétarsd.
33. Þórir Júlíusson
34. Ólafur Kjartansson
35. Valgarð Ingibergsson
Hellis taka þátt í mótinu, en Jón
L. Árnason sá sér ekki fært að
vera með vegna mikilla anna í
nýju starfi. Hann hefur nú gerst
fjármálastjóri hjá OZ. Athyglin
mun að sjálfsögðu beinast að ís-
lendingunum í mótinu. T.d. hafa
þeir Jón Garðar Viðarsson og Jón
Viktor Gunnarsson tryggt sér
áfanga að alþjóðlegum meistara-
titli á þessu ári og spennandi
verður að fylgjast með hvort þeim
tekst það á nýjan leik í þessu
móti. Lítill vafi leikur á því að
fleiri skákmenn á mótinu hafa
nægilegan styrkleika til að ná
alþjóðlegum áföngum. Þá er ljóst
að nokkrir íslendinganna eiga
góða möguleika á að tryggja sér
verðlaunasæti og jafnvel sigur á
mótinu.
Hellismótið hefst föstudaginn
24. október og teflt verður á
hveijum degi fram til 1. nóvem-
ber, þegar níunda og síðasta
umferð verður tefld. Mótið verður
haldið í Hellisheimilinu, Þöngla-
bakka 1 í Mjódd.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
Þrír af fjórum stórmeisturum
Jóhann Hjartarson Jonny Hector