Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 21
Fyrirlestrar
um Gunnar
Gunnarsson
RITHÖFUNDASAMBAND
íslands gengst fyrir bók-
menntakvöldi í Gunnarshúsi,
nýju aðsetri sambandsins,
Dyngjuvegi 8, í kvöld, mið-
vikudag, kl. 20.30.
Jón Yngvi Jóhannsson flyt-
ur erindi er hann nefnir: Eyða
eða eðli? Um viðtökur við
sögulegum skáldsögum Gunn-
ars Gunnarssonar. Soffía Auð-
ur Birgisdóttir fjallar um
Gunnar Gunnarsson sem tví-
tyngdan höfund og Guðmund-
ur Olafsson leikari les úr verk-
um Gunnars Gunnarssonar.
Aðgangur að bókmennta-
kvöldinu er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Aukasýning-
ar á einþátt-
ungum
Tsjekhovs
HJÁ Leikfélagi Kópavogs hafa
staðið yfir sýningar á þremur
einþáttungum eftir Anton
Tsjekhov. Þættirnir heita Bón-
orði, Skaðsemi tóbaks og
Björninn. Vegna mikillar að-
sóknar hefur verið ákveðið að
hafa tvær aukasýningar á
verkinu, þ.e. á fimmtudaginn
23. október og sunnudaginn
2. nóvember.
Sex áhugaleikarar koma
fram í uppfærslunni: Bjarni
Guðmarsson, Frosti Friðriks-
son, Jóhanna Pálsdóttir, Skúli
Rúnar Hilmarsson, Ragnhildur
Þórhallsdóttir og Örn Alex-
andersson.
Sýningum
lýkur
Hafnarborg, Hafnarfirði
MYNTSAFNARAFÉLAG ís-
lands stendur fyrir sýningu á
íslenskum og erlendum
gjaldmiðlum ásamt ýmsum
rnunum sem tengjast mynt-
söfnun. Síðasta sýningarhelgi
verður nú um helgina en sýn-
ingunni lýkur mánudaginn 27.
október.
Sýningin er í aðalsal og er
opin alla daga milli kl. 12-18.
Gallerí Horn,
Hafnarstræti 15
Sýningu Berglindar Björns-
dóttur og Fríðu Jónsdóttur á
ljósmyndum lýkur í dag, mið-
vikudag.
Sýningin er opin um leið og
veitingahúsið frá kl.
11-23.30.
Kvöldstund
með Vigdísi
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti íslands,
mun halda fyrirlestur á veg-
um íslensk-japanska félags-
ins á morgun, fimmtudag kl.
20, í Gerðubergi.
Aðgangseyrir er kr. 200
fyrir félagsmenn og kr. 500
fyrir utanfélagsmenn. Veittar
verða veitingar.
íslensk-japanska félagið er
félag áhugafólks um Japan
og japanska menningu og
opið öllum. Félagið hefur
staðið fyrir margs konar
uppákomum, svo sem lista-
sýningum, matreiðslunám-
skeiðum og almennum um-
ræðufundum og fyrir liggur
fjölbreitt dagskrá í vetur.
Eyþór, Mads
og djammdjass
TONLIST
1) j a s s
JÓMFRÚIN
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Jan zum Vohrde altósaxófón, Eyþór
Gunnarsson píanó, Mads Vinding
bassa og Mathias MD Hemstock
trommur. Jómfrúin, sunnudags-
kvöldið 19. október. Gitte Norby
ásamt Svend Skipper píanó, Mads
Vinding bassa og Jan zum Vohrde
altósaxófón og flautu. Þjóðleikiiúsið,
mánudagskvöldið 20. október.
HEIMSÓKN leikstjörnunnar
Gitte Norby var mikill hvalreki fyr-
ir unnendur leiklistar jafnt sem
danskrar tungu - det er ganske
vist - en djassunnendur nutu ekki
síður góðs af komu hennar því með
henni voru í för eiginmaður henn-
ar, píanistinn Svend Skipper, Mads
Vinding bassaleikari og Jan zum
Vohrde altsaxisti og flautuleikari.
Þeir Mads og Jan komu deginum
áður en hjónin, til að djassa með
íslenskum. Píanistinn Eyþór Gunn-
arsson og trommarinn Matthías
MD Hemstock léku með þeim tví-
menningum á Jómfrúnni sl. sunnu-
dagskvöld og var þá oft heitt í kol-
unum. Á efnisskránni voru sígild
lög er djassmenn leika gjaman er
þeir hittast óformlega: Coltrane,
Miles Davis og Cole Porter meðal
höfunda. Jan hafði faxað til Eyþórs
lagalista og tóntegundir og tæpum
klukkutíma fyrir tónleika hittust
þeir fjórmenningar og völdu þau lög
er leika skyldi. Sem sagt djamm-
sessjón.
Jan zum Vohrde er fínn altisti.
Hann hefur leikið mikið í alls kyns
bræðingshljómsveitum svo og Stór-
sveit danska útvarpsins, en er ekki
síður liðtækur bíboppblásari. Við
eigum svosem altista sem standa
honum jafnfætis - ogjafnvel fram-
ar - en það er alltaf fengur að fá
góða gesti í heimsókn. Jón Múli var
mættur á Jómfrúna þetta sunnu-
dagskvöld og honum fannst Jan
minna í mörgu á Gunnar Ormslev
þegar hann blés í altósax í gamla
daga.
Ekki þarf að spyija að Eyþóri
Gunnarssyni - ég held að hann sé
í röð fremstu djasspíanista Evrópu.
Þeir Mads náðu einstaklega vel
saman enda er Eyþór í mörgu skyld-
ur þeim píanistum er Mads hefur
leikið hvað mest með undanfarin
ár - Thomasi Clausen og Enrico
Pieranunzi - og það hefði verið
gaman að heyra Mads og Eyþór
leika nokkra dúetta þetta kvöld.
Mads fór sem venjulega á kostum
tandurhreinn og rýþmískur en
bassahljómurinn barst ekki nógu
vel um salinn frekar en fyrri daginn
á Jómfrúnni. Matthías var nokkuð
misjafn þetta kvöld, vantar mýkt í
burstahljóm hans að mínu mati og
á stundum vandræði í samleiknum
með bassanum. Bestur var Matthías
þegar leikið var á fijálslegri nótun-
um einsog í frábærri túlkun þeirra
fjórmenninga á Autumn leaves. Þar
voru ekki farnar neinar hefðbundn-
ar djammslóðir og hefði mátt halda
að þeir félagar hefðu rennt yfír
verkið fyrir tónleika. Þannig leika
aðeins alvörudjassspilarar.
Tónlistin á upplestrarkvöldi Gittu
Norby var af öðrum toga. Svend
Skipper er ekki neinn Eyþór Gunn-
arsson, en hefur þó næmt eyra fyr-
ir ljóðrænum nútímadjassi. Hann
lék einn nokkur kiassísk smáverk
sem svo eru kölluð á Islandi. Danir
eru það skynugir að tala um tón-
skáldamúsík í stað klassíkur. Djass-
inn þetta kvöld var eftir Chick
Corea, Lars Janson, einn fremsta
djasspíanista Svía, og Jan Garb-
arek; tveir fyrstu þættirnir úr hinu
undurfagra verki Molde Canticle
af I took up the ruins. Þarna naut
bassahljómur Mads sín betur en á
Jómfrúnni og heillaði hann áheyr-
endur, sem þó voru ekki allir af
djassættinni. Mads er skyldastur
Niels- Henning af dönsku bassa-
snillingunum og kom það glögglega
í Ijós í Þjóðleikhúsinu.
Frábær kvöld með fyrsta klassa
listamönnum - en djassinn dunar
áfram í Reykjavík og næsta föstu-
dagskvöld verða Jazzbræður á Múl-
anum á Jómfrúnni: Ólafur Jónsson,
Ástvaldur Traustason, Þórður
Högnason og Pétur Grétarsson.
Vernharður Linnet
Landsmót íslenskra kvennakóra í Reykholti um helgina
Fjölmenn-
asta kvenna-
kóramótið
til þessa
LANDSMÓT íslenskra kvenna-
kóra verður haldið í Reykholti
um næstu helgi, 24.-26. októ-
ber. Þetta er þriðja landsmót
íslenskra kvennakóra og hið
fjölmennasta til þessa. 10 kórar
alls staðar af landinu hafa boð-
að þátttöku sína og gert er ráð
fyrir um 300 þátttakendum.
Tónleikar verða haldnir á laug-
ardaginn kl. 16 og einnig verð-
ur helgistund og mótsslit á
sunnudeginum kl.14 opin al-
menningi.
Það er Freyjukórinn í
Borgarfirði sem stendur að
þriðja landsmót kvennakóra en
undirbúningur hefur staðið yfir
allt síðastliðið ár. Hin fyrri voru
haldin í Ydölum í Þingeyjar-
sýslu á vegum Lissýjarkórsins
1992 og í Reykjavík 1995 undir
sljórn Kvennakórs Reykjavík-
ur. Kóramótið í Reykholti fer
fram í nýrri aðstöðu í kirkju
og Snorrastofu, gist verður í
Reykholtsskóla og að Varma-
landi. Kórarnir koma til móts-
ins á föstudagskvöld og taka
Morgunblaðið/RAX
Söngskemmtun í Víðihlíð
ÁLFTAGERÐISBRÆÐURNIR,
Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli,
ásamt undirleikaranum Stefáni
R. Gíslasyni halda söngskemmt-
un í Víðihlíð á morgun, fimmtu-
dag kl. 21. Söngskemmtunin er
á vegum Tónlistarfélags Vestur-
Húnvetninga.
Brynhildur Olgeirsdóttir
stofnandi Leikhóps
eldri borgara
Einar Magnússon
skólastjóri
Guðrún Beck
stjórnarmaður í Hvöt
Gunnar Jóhann Birgisson
borgarfulltrúi
Hilmar Guðlaugsson
borgarfulltrúi
JónÁsbergsson
framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs
Ólafur B. Thors
framkvæmdastjóri
Páll Kr. Pálsson
framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs
Ragna Ragnars
lögg. skjalaþýðandi
Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari
Unnur Sigtryggsdóttir
deildarstjóri Hjartadeildar
Landspítalans
Þuríður Pálsdóttir
óperusöngkona
Stuðningsmenn
Kosningamiðstöðin Austurstræti
Símar: 561 9599 / 561 9526 / 561 9527
næstu öld
FREYJUKÓRINN hefur blásið til landsmóts kvennakóra í Reyk-
holti um næstu helgi. Þátttakendur eru um 300 en mikil gróska er
í starfí kvennakóra á landinu. Freyjukórinn er við æfíngar ásamt
kórstjómandanum Bjama Guðráðssyni í Nesi og undirleikaranum
Steinunni Ámadóttur frá Brennistöðum, píanókennara í Borgamesi.
þá til við æfingar á efnisskrá
mótsins. Ýmist verður um að
ræða samsöng allra þátttak-
enda eða smærri hópa. Þá mun
hver kór um sig flylja verk sem
þeir hafa undirbúið heirna fyr-
ir.
Lögin sem fíutt verða eru af
ýmsum toga. Á efnisskrá eru
m.a. íslensk ættjarðarlög, sálm-
ar, Dúett úr Stabat mater dolo-
rosa eftir G.B. Pergolesi, Ave
María eftir Brahms og Laudate
Pueri dominum eftir Mendelso-
hn-Bartholdy. Þá verður frum-
flutt sérstakt lag sem samið
hefur verið af Hildigunni Rún-
arsdóttur tónskáldi, og tileink-
að er mótinu. Lagið er við ljóð
Þuríðar Guðmundsdóttur frá
Sámastöðum, Aðeins eittblóm.
•DANIR tilkynntu fyrir
skemmstu hverjir hlytu
Sonning-tónlistarverð-
launin, ekki aðeins á
næsta ári, heldur einnig
1999. Sópransöngkonan
Hildegard Behrens hlýtur
þau árið 1998 en rúss-
neska tónskáldið Sofia
Gubajdulína hlýtur þau
ári síðar. Gubajdulína er
66 ára og búsett í Þýska-
landi en hún vakti fyrst
verulega athygli árið
1980 er fiðlukonsert
hennar, Offertorium, var
frumfluttur. Segist hún
aðallega undir áhrifum
frá Sjostakovitsj og Web-
ern.
EyþÓPAmalds
í 5.-6. sœti