Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Kristín Halldórsdóttir alþingismaður segir línuveg Landsvirkjunar á Hengilssvæði löglegan en siðlausan Morgunblaðið/Kristinn UNNIÐ er með stórvirkum vinnuvélum við lagningu vegarslóða við fyrirhugað línustæði á Hengilssvæðinu. Ráðherra telur ekki óskyn- samlegt að Landsvirkjun bíði GUÐMUNDUR Bjarnason um- hverfisráðherra segist ekki telja sig hafa neina heimild til að stöðva framkvæmdir varðandi lagningu 220 kv Búrfellslínu Landsvirkjun- ar á Hengilssvæðinu. Hins vegar telji hann ekki óskynsamlegt af hálfu Landsvirkjunar að bíða með framkvæmdir meðan mat á um- hverfisáhrifum vegna umsóknar fyrirtækisins um stækkun línunn- ar í 400 kv er í vinnslu. Kristín Halldórsdóttir alþingismaður, sem situr í umhverfisnefnd Alþingis, segist telja rétt að umhverfisráð- herra kalli forstjóra Landsvirkjun- ar á sinn fund og leiði honum fyr- ir sjónir „að svona gera menn ekki“. Hún segir að framkvæmdir Landsvirkjunar á Hengilssvæðinu séu ef til vill löglegar en áreiðan- lega siðlausar. Guðmundur Bjarnason um- hverfisráðherra sagði að sín krafa um umhverfismat vegna 400 kv Búrfellslínu tæki fyrst og fremst til þeirra breytinga sem yrðu við það að í stað 220 kv línu kæmi 400 kv lína. „Þeir hafa hins vegar gamalt leyfi fyrir 220 volta línunni og ef ekki hefði verið spuming um annað hefðu þeir farið í þær fram- kvæmdir og haft, að okkar áliti, leyfi fyrir því, án athugasemda af hálfu umhverfisyfirvalda.“ Ráðherra sagði að menn hefðu talið hættu á að krafa um mat á umhverfisáhrifum vegna 400 kv línu gæti orðið til þess að Lands- virkjun hæfist handa við lagningu 220 kv. Það væri ekki góður kost- ur því til langs tíma litið væri skyn- samlegra að leggja línuna með hærri spennu, m.a. vegna þess að því verklagi fylgdu minni línulagn- ir. „En ég ræð því ekki og get í sjálfu sér ekki stjórnað því og veit ekki hvernig Landsvirkjun vill standa að því að undirbúa sín mál til að uppfylla þá samninga sem þeir hafa gert,“ sagði Guðmundur Bjarnason Ráðherra var spurður hvort segja mætti að umhverfismat vegna viðbótarlínu væri markleysa því rask á svæðinu væri óháð nið- urstöðum matsins ef eldra leyfi til að leggja 220 kv línu stendur óhaggað. „Það, sem við byggjum það álit okkar á að fara fram á mat um- hverfisáhrifum, er að þarna er um að ræða möstur af annarri gerð, hærri og breiðari, og það eru fleiri og sverari línur þannig að það er annað sjónmat. Svo er spennusviðið annað. Það er þetta sem við krefj- umst mats á en það hefur ekki komið til álita og er enginn ágrein- ingur um það að Landsvirkjun hefði haft leyfi fyrir 220 kv Iínu.“ Aðspurður sagði ráðherra að við matið á umhverfisáhrifum 400 kv línunnar væru öll umhverfisáhrif undir, jarðrask og annað, og ekk- ert væri undanskilið. „Það er aftur spurning hvernig Landsvirkjun hagar sér við að tryggja að þeir geti staðið við þá samninga sem þeir telja sig vera skuldbundna til að gera á ákveðnum tíma. Þeir verða að svara fyrir það.“ Heildarendurskoðun laganna Guðmundur sagðist ennfremur aðspurður ekki telja sig hafa neina heimild til að stöðva neinar fram- kvæmdir sem gætu varðað 220 kv línuna eða þá heimild sem Lands- virkjun hefur. „Það er svo aftur spurning hvort ekki er skynsamlegt af hálfu fyrir- tækisins að bíða eftir því um- hverfismati og hvernig því muni reiða af. Ég get haft mínar skoðan- ir á því en ég hef ekki vald til að grípa fram í framkvæmdir sem þeir hafa leyfi til að framkvæma og umhverfisyfirvöld hafa ekki gert athugasemdir við,“ sagði Guð- mundur. Hann kvaðst telja að það væri ekki óskynsamlegt af Lands- virkjun að bíða með framkvæmdir meðan málið er í vinnslu. Ráðherrann sagði ennfremur að í lögum um mat á umhverfisáhrif- um væri tekið fram að þau leyfi sem gefin voru fyrir gildistöku lag- anna skuli standa. Til að breyta því þurfi lagabreytingu. „Lögin um mat á umhverfisáhrifum eru núna að fara í heildarendurskoðun. Mér finnst ekki óeðlilegt að menn skoði það við endurskoðun laganna hvort ekki sé rétt að gera breytingu á því að Ieyfí sem fékkst fyrir 5, 10 eða 20 árum standi endalaust. Við- horfin breytast og sjónarmið manna til umhverismála hafa auð- vitað verið að breytast mjög á und- anförnum misserum. Kristín Halldórsdóttir, þingmað- ur Kvennalista og nefndarmaður í umhverfísnefnd Alþingis, sagði að þetta mál væri skólabókardæmi um hagsmunaárekstra umhverfis- verndar og orkuvinnslu sem hún býst við að verði algengari í fram- tíðinni. „Landsvirkjun hefur svo lengi farið sínu fram undir yfírskini framfara og brýnna nauðsynja að hún telur sig eflaust hafa einhvern forgangsrétt og yfirburðastöðu, sem er mikill misskilningur. Það er í raun skelfilegt að fylgjast með því hvað yfirstjórn náttúruverndar- mála lætur yfir sig ganga, því það er ekkert annað en yfirgangur og frekja að ryðjast af stað með fram- kvæmdir áður en niðurstöður um- hverfísmats vegna 400 kv línu liggja fyrir.“ „Svona gera menn ekki“ „Aðgerðir Landsvirkjunar á Hengilssvæðinu eru kannski lög- legar en þær eru alveg tvímæla- laust siðlausar og um það á um- hverfisráðherra að tjá sig og beita sér í málinu. Líka Náttúruvernd ríkisins, Náttúruverndarráð og fleiri í stað þess að bugta sig fyrir orkuveldinu, sem hagar sér einatt eins og ríki í ríkinu. Auðvitað á umhverfisráðherra bara að kalla forstjóra Landsvirkjunar á teppið hjá sér og leiða honum fyrir sjónir að svona gera menn ekki, eins og sagt var af öðru tilefni," segir Kristín. Hún sagði að sjónarmið náttúru- verndar væru að vinna á en þetta mál væri til marks um að við ramm- an reip væri að draga. „Þar sem sjónarmið efnahagsmála og at- vinnumála stangast á við náttúru- verndarsjónarmið hafa hin fyrr- nefndu því miður oftast betur. Mér finnst gæslumenn náttúruverndar- mála beygja sig um of undir þetta. Þeir eiga að standa miklu betur í ístaðinu. Það er eiginlega með ólík- indum vegna þessara sterku efna- hagslegu sjónarmiða hve blindir menn eru á þá möguleika sem fel- ast í náttúruvernd og ímynd lands- ins með sérstæða náttúru og lítt snortnar víðáttur." Kristín sagði einnig sérkennilegt að útgefin framkvæmdaleyfí gildi um langt árabii, t.d. leyfi frá því fyrir setningu laga um mat á um- hverfisáhrifum og kvaðst mundu beita sér fyrir breytingu á því, m.a. við þá endurskoðun laga um mat á umhverfísáhrifum sem er að hefjast. íslenskur prestur sett- ur í embætti í Noregi Fá afnot af kirkju bandaríska safnaðarins Ósló. Morgunblaðið. SÉRA Sigrún Óskarsdóttir var sett í embætti prests íslenska safnaðar- ins í Ósló sl. sunnudag að viðstödd- um mörg hundruð íslendingum.^ Fjöldi íslendinga skartaði þjóð- búningum og mörg börn voru með- al viðstaddra, er í fyrsta sinn var haldin guðsþjónusta íslensks safn- aðar í Noregi. Bandaríski söfnuður- inn í Ósló mun lána þeim íslenska kirkju sína tvo sunnudaga í mánuði. „Þetta er stór dagur fyrir mig,“ sagði séra Sigrún. „Það gleður mig að fá að taka þátt í að byggja upp virkan söfnuð og ég mun ieggja sérstaka áherslu á barna- og ungl- ingastarfíð og íslenska menningu." Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur í Reykjavík, sem setti séra Sigrúnu í embætti. Andreas Aarflot, biskup í Noregi, bauð söfn- uðinn velkominn í hóp safnaða Norðurlanda í Ósló, en auk íslensks eru þar sænskur og finnskur. Laun prests eru greidd af kirkjuskatti er Islendingar, búsettir í Noregi, greiða, en þeirra á meðal eru um 1.200 námsmenn og aðrir sem þar hafa búsetu um skemmri tíma. Andlát Jón Eiríksson JÓN Eiríksson, fyrrverandi skattstjóri í Vestmannaeyjum og Vesturlands- umdæmi, lést á Sjúkrahúsi Akraness í gær á 82. aldursári. Jón var fæddur 13. mars 1916 í Reykjavík. Faðir hans var Eiríkur Valdimar Albertsson, skólastjóri Hvít- árbakkaskóla og prestur á Hesti í Andakílshreppi, og móðir hans Sigríð- ur Bjömsdóttir, húsfreyja og kennari. Jón lauk lagaprófi frá Háskóla Is- lands 1943 með fyrstu einkunn og gegndi ýmsum ritara- og fulltrúa- störfum í Reykjavík. Hann var settur skattstjóri í Vestmannaeyjum frá 1. janúar 1945 til 1962 og skipaður skattstjóri í Vesturlandsumdæmi með aðsetur á Akranesi frá 1. október 1962 og gegndi því starfi til 1986. Jón var einn af stofnendum Tónlistar- félags Vestmannaeyja og formaður þess um tíma. Hann var formaður stjómar Skattstjórafélags íslands frá stofnun þess 1960 til 1968. -----» »-»---- Brenndist þegar ruslapoki sprakk FIMMTÁN ára drengur hlaut bruna- sár á andliti þegar ruslapoki sprakk á Fylkisvelli í Árbæjarhverfi i fyrra- kvöld. Að sögn lögreglunnar er ekki vitað hvað olli sprengingunm, en rannsókn málsins stóð yfir í gær og átti þá meðal annars eftir að ræða við piltinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.