Morgunblaðið - 22.10.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Háskólafrum-
varp verði sam-
þykkt í haust
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra rnælti fyrir frumvarpi um há-
skóia á Alþingi í gær. Frumvarpið
var áður flutt á síðasta þingi og að
sögn ráðherra
hefur það ekki
tekið neinum efn-
islegum breyting-
um síðan þá.
Stefnir ráðherra
að því að frum-
varpið verði sam-
þykkt á þessu
haustþingi.
Frumvarpið
lýtur almennt að
þeim starfs-
ramma sem búa ber menntastofnun-
um sem veita æðri menntun á ís-
landi. I frumvarpinu er m.a. gerð
grein fyrir því að háskólar geti verið
ríkisreknir, sjálfseignarstofnanir eða
einkaskólar, mælt er fyrir um eftir-
lit með gæðum menntunarinnar,
hvernig haga skuli réttindum kenn-
ara og nemenda og fyrirkomulagi í
kennslu. Þá er í fímmta kafla fjallað
um fjárhag og mæit fyrir um það
að samið verði við skólana um fjár-
veitingar á grundvelli fjárhags- og
starfsáætlunar.
í framsögu sinni greindi ráðherra
frá því að viðræður menntamála-
ráðuneytisins við Háskóla íslands
um fyrrgreindan samning hefðu
staðið yfir í nokkur misseri og að
enn biði ráðuneytið eftir því að Há-
. ' j -j
!!!§ sf §§§§
ALÞINGI
skólinn kæmi með sínar lokahug-
myndir.
Ráðherra lét þess ennfremur getið
að nú væri starfandi nefnd ráðuneyt-
isins og Háskóla
íslands sem ynni
að því að semja
sérlög um Há-
skólann í ljósi
þessarar ramma-
löggjafar. Sagði
ráðherra að sú
nefnd væri enn
að störfum og
vonaðist hann til
að niðurstöður
——'“ nefndarinnar
lægju fyrir í lok ársins eða áður en
frumvarpið yrði að lögum.
Ráðherra skipi rektor
samkvæmt tilnefningu
Svavar Gestsson, þingmaður Al-
þýðubandalags, sagði m.a. í umræð-
um um frumvarpið að ekki væri
hægt að afgreiða frumvarpið og
gera það að lögum fyrr en niðurstöð-
ur nefndar ráðuneytisins og Háskóla
Islands lægju fyrir. Hann sagði að
eðlilegt væri að fresta afgreiðslu
þessa frumvarps þar til búið væri
að fara yfir frumvörp til sérlaga
fyrir hina ýmsu háskóla.
Ráðherra svaraði og benti á að
enginn skólanna hefði óskað eftir
því að rammalöggjöfinni yrði ýtt til
hliðar á meðan sérlögin yrðu samin;
Morgunblaðið/Kristinn
AÐALBYGGING Háskóla íslands.
hvorki Háskóli íslands né aðrar
stofnanir.
Svavar gagnrýndi einnig, sem og
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, að menntamálaráð-
herra ætti samkvæmt frumvarpinu
að skipa rektor til fimm ára. Vildi
Guðný að því yrði sleppt úr lögunum
að rektor yrði skipaður af ráðherra.
í svari sínu sagðist ráðherra telja
að það væri í samræmi við góða
stjómsýsluhætti að hafa þessi tengsl
á milli ráðuneytis og háskóla. Hann
benti hins vegar á að þrátt fyrir þessa
skipan væri ráðherrann bundinn af
ákvörðunum háskólaráðsins og að
honum bæri að skipa þann rektor sem
háskólasamfélagið hefði kosið.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra um kjaramál kennara
Fráleitt að ráðherra hlut-
ist til um kjaradeiluna
BJÖRN Bjamason menntamálaráðherra sagði í utandagskrárumræðu á Al-
þingi í gær að það væri út í bláinn að ætlast til þess að menntamálaráð-
herra hlutaðist til um kjaradeilu gmnnskólakennara. Vísaði hann til samkomu-
lags um flutning grunnskólans til sveitarfélaganna og sagði að í því kæmi
hvergi fram að ríkið ætti að hafa afskipti af kjaramálum grunnskólakennara.
Stjórnarandstæðingar gagnrýndu
hins vegar ráðherra fyrir aðgerðar-
leysi í kjaradeilunni og sögðu m.a.
að ríkisvaldið gæti ekki horft að-
gerðarlaust upp á það að skólastarf-
ið í landinu lamaðist.
Málshefjandinn Svanfríður Jón-
asdóttir, Þingflokki jafnaðarmanna,
gagnrýndi ráðherra fyrir að aðhaf-
ast ekkert í kjaradeilu kennara og
fullyrti að nú væri ögurstund í sögu
íslenska grunnskólans. Ekki aðeins
vegna þess að nú vofði yfir verkfall
kennara heldur einnig vegna þess
að fjölmargir þeirra hefðu þegar
sagt upp störfum. Þá sagði hún að
þeir fjármunir sem sveitarfélögin
hefðu fengið með grunnskólanum
stæðu engan veginn undir þeim
umbótum sem þyrftu til að íslenski
grunnskólinn gæti staðist saman-
burð við skóla í öðrum OECD-ríkj-
Sími 555-1500
Garðabær
Stórás
Rúmgóð ca 70 fm 2—3 herb. ib. á
neðri hæð í tvíb. Ný eldinnr. Nýtt gler.
Parket.
Boðahlein
Höfum fengið til sölu fyrir aldraða við
Hrafnistu í Hf., gott endaraðh., ca 90
fm auk bílsk. Áhv. ca 1,5 millj.
Verð 11,5 millj.
Hafnarfjörður
Ótturstaðir
Til sölu ca 5—6 hektara landspilda úr
landi Óttarstaða I. Liggur að sjó. Verð:
Tilboð.
Reykjavíkurvegur
Gott skrifstofuhúsnaeði ca 120 fm á 2.
hæð. Verð 4,9 millj.
Breiðvangur
Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri sérh.
í tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh. Áhv.
byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj.
Gunnarssund
Til söiu er góð 3ja herb. íb. á jarðh.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið end-
urn. Ath. skipti á lítilli íb.
Vantar
ca 100 fm íb. nærri miöbæ Hafnar-
fjarðar.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Ámi Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
if
arfélögin hefðu lagt
fram í kjaradeilunni
yrði til þess að greiða
fyrir lausn þessa við-
kvæma vandamáls.
Mikill skaði þegar
orðinn
Guðný Guðbjörns-
dóttir, þingmaður
Kvennalistans, benti á
að í samkomulaginu á
milli ríkis og sveitarfé-
laga um flutning
grunnskólans væri að
finna ákvæði sem
kvæðu á um það að
endurskoða bæri
kostnaðar- og tekjuþörf sveitarfé-
laga vegna grunnskólans ef veruleg
röskun yrði á forsendum samkomu-
lagsins. Hún sagði að nú væri full
ástæða til að endurskoða samning-
inn til að sveitarfélögin ættu mögu-
leika á að bæta kjör kennara umfram
aðra. Meðal annars vegna þess að
um uppsafnaðan vanda
væri að ræða.
Steingrímur J. Sig-
fússon, þingmaður Al-
þýðubandalags, sagði
það ljóst að þegar væri
orðinn mikill skaði í
kennaradeilunni.
Spurningin væri ekki
hvort heldur hve mikill
hann yrði. Hversu mik-
ill flótti yrði úr stétt-
inni. Hann gagnrýndi
aðgerðarleysi stjórn-
valda og sagði að sveit-
arfélögin hefðu ekki
_. bara fengið heiman-
Bjorn Bjarnason mund eða fjármuni með
grunnskólanum heldur einnig gífur-
lega uppsafnaða þörf fyrir úrbætur
í skólamáium. Þess vegna væri það
óumflýjanlegt að í kjölfar þess að
kjaradeilan vonandi leystist myndu
sveitarfélögin og ríkisvaldið taka
upp viðræður á nýjan leik um stöðu
grunnskólans.
um.
Björn Bjarnason sagði að þegar
farið væri yfír gögn sem snertu
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laganna kæmi fram að aldrei hefði
verið gert ráð fyrir því að ríkið hefði
afskipti af kjaramálum kennara. „Og
að sjálfsögðu ber menntamálaráðu-
neytinu að starfa í samræmi við
landslög og þær reglur sem settar
eru á grundvelli þeirra," sagði hann.
Björn benti einnig á að með flutn-
ingi grunnskólans hefðu sveitarfé-
lögin fengið aukin fjárframlög frá
ríkinu.
Þá tók Björn fram að hann von-
aðist til þess að það tilboð sem sveit-
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
13.30 í dag. Fyrst verða teknar
fyrir fyrirspurnir til ráðherra.
Fyrirspurn til menntamálaráð-
herra um öryggismál í skólum.
Fyrirspurn til samgönguráð-
herra um áhrif lýsingar við
Reykjanesbraut á slysatíðni.
Fyrirspurn til landbúnaðar-
ráðherra um Aburðarverksmiðj-
una.
Fyrirspurn til iðnaðarráð-
herra um málefni skipasmíðaiðn-
aðarins.
Fyrirspurn til heilbrigðisráð-
herra um rétt tannsmiða og sjón-
tækjafræðinga.
Eftirfarandi mál eru á dag-
skrá: 1. Háskólar. Framhald
fyrstu umræðu. (Atkvgr.)
2. Kennara- og uppeldisháskóli
íslands. Framhald I. umr.
(Atkvgr.)
3. Örnefnastofnun íslands.
Framhald 1. umr. (Atkvgr.)
4. Bæjamöfn. Frh. 1. umr.
(Atkvgr.)
5. Aðgerðir til að draga úr
Umræður um afnám
kvótaframsals
Komið
verðií veg
fyrir
kvótabrask
GUÐMUNDUR Hallvarðsson og
Guðjón Guðmundsson, þingmenn
Sjálfstæðisflokks, hafa öðru sinni
lagt fram frumvarp til laga um
breytingu á lögum um stjórn fisk-
veiða. Frumvarpið hefur þann til-
gang að afnema að mestu leyti heim-
ildir til framsals veiðiheimilda sam-
kvæmt lögum nr. 38/1990, um
stjórn fiskveiða. . Gert er ráð fyrir
í frumvarpinu að veiðiheimildum sem
ekki veiðast á fiskveiðiárinu verði
skilað til Fiskistofu og þeim síðan
úthlutað til annarra skipa gegn
umsýslugjaldi. Jafnframt er gert ráð
fyrir að veiðiheimildum sem eru
ónýttar í lok fískveiðiársins verði
úthlutað á næsta fiskveiðiári gegn
umsýslugjaldi.
í framsögu Guðmundar kom m.a.
fram að framsal veiðiheimilda á
grundvelli heimilda í lögum um
stjórn fiskveiða hefði verið gagnrýnt
látlaust á undanförnum árum. Gagn-
rýnin hefði verið færð fram af mörg-
um samtökum, félögum og einstakl-
ingum úr öllum þjóðfélagshópum.
„Vafasamt er að þjóðarsátt sé um
gildandi kerfi um stjórn fiskveiða,
hvað þá heldur almenn sátt um fram-
sal veiðiheimilda," sagði hann. Þá
sagði Guðmundur það vafasamt að
framsal veiðiheimilda hefði skilað
sjávarútveginum þeim ávinningi sem
upphaflega hefði verið reiknað með,
en hins vegar benti ýmislegt til þess
að framsalið leiddi til aukins kostn-
aðar fyrir greinina og þjóðarbúið í
heild.
Guðjón Guðmundsson tók fram
að yrði frumvarpið að lögum yrði
framsal veiðiheimilda að mestu
bannað nema þegar um væri að
ræða skipti á jöfnum heimildum á
þeim tegundum sem sæta afla-
marki. Þar með yrði komið í veg
fyrir það takmarkalausa verslunar-
kerfi sem þróast hefði á undanförum
árum og í daglegu tali væri kallað
kvótabrask.
Úthlutað í sama
hlutfalli og nú
Lúðvík Bergvinsson, Þingflokki
jafnaðarmanna, sagðist geta tekið
undir það sem kom fram í ræðu
Guðjóns um að kvótabraskið væri
líklega það sem hefði komið hvað
mestu óorði á núverandi fískveiði-
stjórnunarkerfí. Hann spurði hins
vegar m.a. að því hvernig flutnings-
menn teldu að endurúthluta ætti
þessum veiðiheimildum sem skilað
yrði inn.
Guðjón sagðist telja það afskap-
lega einfalt að endurúthluta kvótan-
um. Það yrði gert í sömu hlutföllum
og kvótanum er úthlutað í dag. En
5% umsýslugjald væri til að mæta
beinum kostnaði við þær gjörðir.
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmað-
ur Kvennalista, sagði að þetta frum-
varp væri mjög athyglisvert og von-
aðist til að það yrði tekið fyrir al-
vöru í sjávarútvegsnefnd. Hún sagði
þó að það yrði að fínpússa því þær
leiðir sem þar væru lagðar til væru
að nokkru leyti óraunhæfar.
ofbeldisdýrkun. Framhald fyrri
umr. (Atkvgr.)
6. Aðgangur nemenda að tölv-
um og tölvutæku námsefni. Frh.
fyrri umr. (Atkvgr.)
7. Meðferð og eftirlit sjávaraf-
urða. 2. umr.
8. Endurskoðun viðskipta-
banns á írak. Fyrri umr.
9. Tekjuskattur og eignar-
skattur. 1. umr.
10. Bann við kynferðislegri
áreitni. 1. umr.