Morgunblaðið - 22.10.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.10.1997, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Þorkell ELFAR Logi Hannesson og Róbert Snorrason í hlutverkum sínum í Kómedíu ópus eitt. Trúðurinn þarf ekki endilega að vera með rautt nef KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ sýnir lát- bragðsskopleikinn Kómedíu ópus eitt í Möguleikhúsinu við Hlemm í kvöld, annað kvöld og á sunnu- dagskvöld kl. 21. Kómedíuleikhúsið mynda Elfar Logi Hannesson og Róbert Snorrason, fyrrverandi nemendur við The Comedia School í Kaup- mannahöfn, sem sérhæfir sig í hinu svonefnda „physical“-leik- húsi, þar sem iátbragð og notkun líkamans hafa meira vægi en flutningur texta. „Bráðfjörug gamansýning fyrir fólk á flestum aldri,“ eru orðin sem félagarnir velja til að lýsa sýningunni sem samanstendur af tveimur sögum, Kjúklingnum og Bósa sögu, auk þess sem leikar- arnir „hita sig upp“ með fimleika- atriði að hætti sirkusa. „Sögurnar eru settar upp á nýstáriegan hátt en þetta leikhúsform, sem leggur meðal annars áherslu á látbragðs- leik, trúðaleik og spuna, hefur lít- ið verið notað hér á iandi,“ segir Elfar Logi. Kómedía ópus eitt var frumsýnd í Kaupmannahöfn síðastliðið vor en félagarnir eru nýkomnir úr ferð um iandið, þar sem þá bar niður á Bíldudal, Tálknafirði og Selfossi. „Kómedía ópus eitt er fyrsta lota af mörgum í þeirri við- leitni að kynna þetta leikhúsform fyrir íslendingum," segir Róbert og Elfar Logi heldur áfram: „Við erum sannfærðir um að íslending- ar hafa húmor fyrir þessu, að minnsta kosti voru viðtökumar sem við fengum úti á landi okkur mikil hvatning - þær voru vonum framar." Fyrsta lota, segja þeir. Er þá eitthvað fleira í deiglunni? „Ætli við einbeitum okkur ekki að þess- ari sýningu í fyrstu en því er ekki að neita að ýmsar hugmyndir bíða úrvinnslu. Það væri til dæmis gaman að setja barnaleikrit á svið,“ segir Róbert og Elfar Logi bætir við að frelsi „physical“-leik- hússins henti afar vel fyrir bama- leikhús. „Það em svo fáar tak- markanir.“ Elfar Logi hefur und- anfarið verið með trúðanámskeið í framhaldsskólum og félagsmið- stöðvum og velkist ekki í vafa um að trúðurinn sé að sækja í sig veðrið hér á landi. Til að mynda hafi Götuleikhúsið, sem hann hafði umsjón með á liðnu sumri, lagt áherslu á trúðatilburði við góðar undirtektir fólks. „Ég get ekki fallist á þá skýr- ingu að trúðurinn muni alltaf eiga erfitt uppdráttar á íslandi, þar sem hefðin sé ekki fyrir hendi. Það felst svo margt í orðinu trúð- ur - trúðurinn þarf ekki endilega að vera með rautt nef,“ segir Elf- ar Logi og bendir á goðsögu- kennda „trúða“ á borð við Buster Keaton og Charlie Chaplin máli sínu til stuðnings, að ekki sé minnst á Mr. Bean, sem á breiða sveit fylgismanna hér á landi. Elfar Logi leggur þvi til að ís- lendingar taki trúðinn í sína þjón- ustu, vitaskuld á eigin forsendum, og „hvers vegna ekki að tengja hann við hina sterku álfa- og tröllahefð sem ríkir hér á landi“? Kjaftaskur kemst í fréttirnar KVIKMYNPIR Laugarásbíó MONEY TALKS ★★ Leikstjóri Brett Ratner. Handrits- höfundar Joel Cohen, Alec Sokolow og Vince McKuen. Kvikmyndatökustjóri Russeil Carpenter. Tónlist Lalo Schifrin. Aðalleikendur Chris Tucker, Charlie Sheen, Heather Locklear, Gerard Ismael, Paul Sorvino, Victoria Cartwright, David Wam- er, Paul Gleason. 92 mín. Banda- rísk. New Line 1997. GRÍNSPENNUMYNDIR um félaga þar sem annar er hvítur, hinn svartur hafa margar hveij- ar lukkast vel, hér er reynt að feta í fótspor þeirra Murphys og Reinholds, Murphys og Nolte, Glovers og Gibsons, Harrelsons og Snipes, o.fl. o.fl. Tucker og Sheen standa sig hreint ekki illa, það gerir hinsvegar handritshöf- undurinn Joel Cohen (ruglist ekki á honum og Joel Coen!), sem brýtur ekki uppá neinu nýju í grínöktugum samskiptum kyn- þáttana en skutlar aftur á móti áhorfendum og persónum sínum óforvarendis inní nýja sögu um gimsteinasmygl um miðja mynd. Sheen leikur sjónvarpsfrétta- manninn James sem er við það að fá rauða spjaldið hjá yfir- manni sínum (vel leiknum af David Warner) fyrir dugleysi þegar hann setur á svið hand- töku á Franklin (Chris Tucker), ótýndum smákrimma og kjaft- aski. Sú aðgerð rennur útí sandinn en dregur dilk á eftir sér því Franklin er tekinn fastur og settur í rútu sem flytur hann og aðra hættulegri glæpamenn í fangelsi. Einn þeirra, Frans- maðurinn Willard (Gerard Ism- ael), er svo mikilvægur að félag- ar hans ræna vagninum og frelsa hann og Franklin fylgir með þar sem hann er hlekkjaður við Will- ard. Franklin kemst í fréttirnar og er hundeltur bæði af lögregl- unni, þar sem hún telur hann ábyrgan fyrir ráninu, gömlum lánardrottnum og síðast en ekki síst Willard eftir að stórfellt smyglmál slæðist inní söguþráð- inn. James eygir leið til að halda vinnunni með því að hafa uppá Franklin og upphefst marg- slunginn eltingarleikur um Los Angeles. Chris Tucker var það skásta í tveimur myndum, Dead Presid- ents og The Fifth Element, hann bjargar því sem bjargað verður hér. Vörumerki Tuckers er sann- kallaður vélbyssukjaftur, það er með ólíkindum hvað hann getur bunað útúr sér með tilheyrandi fettum og brettum og fjölskrúð- ugri raddbeitingu (sem verður reyndar hálfþreytandi til lengd- ar). Sheen gerir laglega grín að sinni persónu en fær mun lélegri línur til að moða úr. Aukahlut- verkin eru sum hver bærilega mönnuð dágóðum leikurum ein- sog Wamer, Paul Sorvino og Paul Gleason, en eru alltof mörg. Meðalmennskan grúfir yfir handritinu sem siglir í strand um miðja mynd og fitjar þá uppá nýrri fléttu. Money Talks verður fyrir bragðið sjaldan sérlega fyndin - ef undan eru skildar nokkrar fínar senur með kjaft- asknum - en manni leiðist ekki heldur. Og gaman að heyra í gamla, góða Barry White. Sæbjörn Valdimarsson „tarGet“ TARGET hópurinn er skipaður listaspírum frá Noregi, Svíþjóð og íslandi. MYNPLIST Norræna húsið HUGMYNDAFRÆÐI Birgitta Silverhielm, Magnea Ás- mundsdóttir, John Öivind Eggesbö, Sólveig Bima Stefánsdóttir, Maria Friberg, Brynhild Bye, Torbjöm Skárild. Opið alla daga frá 14-19. Til 3. nóvember. Aðgangur 200 krón- ur, sýnirit 600 krónur. UNGT fólk sækir fram í hug- myndafræðinni og nú er hljóðið á fullu. Athöfnin eða gjömingurinn hefur raunar fengið nafnið hljóð- mynd, og er engin ástæða til að véfengja þetta nýja hugtak. Ýmsir hafna þó hljóði sem optískri eind, sjónrænum vemleika, og hafa vissulega einnig sitthvað til síns máls. Myndlist hefur til mjög skamms tíma talist list þagnarinn- ar, þótt borðleggandi sé að litir og form veki upp hjá fólki marg- víslegar kenndir skyldar tónum, og var ekki með öllu óþekkt. Tón- ar framkalla svo einnig rafmagn- aðar bylgjuhreyfingar sem yfír- færast í liti og línusveiflur, og hefur sömuleiðis lengi verið vitað. Hlaut að koma að því að listamenn virkjuðu hátækni nútímans til að þrengja sér dýpra inn í þessi sann- indi, en sennilega full langt geng- ið þegar hljóðgjörningur á mynd- listarsýningum fer yfir heilsusam- leg mörk eins og gerðist á sýning- unni Now Here á Louisiana á sl. ári, gólf og veggir nötruðu. Trú- lega er þetta list kynslóðarinnar, sem tók að hafa dijúgan viðbúnað þá hún nálgaðist olíuliti, setti á sig gúmmíhanska, jafnvel vinnu- vetlinga og grisjugrímu fyrir vitin. Þessu tilheyrir svo vasadiskó og minnir þá allur viðbúnaðurinn á skokkara, sem er líka nýtt fyrir- bæri, sem vígbúast einnig áður en lagt er af stað og eru iðulega með slík tæki á fullu^ vísast til að auka adrealínflæðið. I gamla daga hljóp maður einfaldlega eftir þörf og eins og maður var klæddur og fór í hæsta lagi í slopp eða vinnugalla er maður nálgaðist málverkið, en með nýjum tímum koma nýir sið- ir. Listhópinn tarGet skipa sjö listspírur sem hafa búið saman að Straumi í hálfan þriðja mánuð og unnið að þessu markaða verkefni, en slík hópvinna hefur verið ofar- lega á baugi á síðustu árum og notið mikillar fyrirgreiðslu opin- berra aðila. Fyrirgreiðslu sem var einnig óþekkt hér áður fyrr, er listamenn og listhópar urðu að treysta á mátt sinn og megin. Kemur í kjölfar nýrra áherslna í norrænni samvinnu sem unga kyn- slóðin hefur kunnað betur að nýta sér, einkum skólafólk og skipti- nemar og í þessu tilfelli eru þetta einmitt fyrrverandi skiptinemar milli íslands, Noregs og Svíþjóðar. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og Stokkhólms- borg, sem er lista- og menningar- borg Evrópu 1998, og sýningin heldur áfram til Stokkhólms, Ósló- ar og Þrándheims. Nýtur auk þess fjölda annarra framlaga frá öllum löndunum. Hér er þannig um að ræða fólk sem er að leggja út á listabrautina og má vera auðséð að það hefur haft aðgang að hátækni nútímans, sem í þeim mæli hefur lagt undir sig suma skóla, að sígildu miðlarn- ir eru orðnir að fágæti. Allt snýst í hring því róttækir núlistamenn eru farnir að sækja í gömlu miðl- ana, og þannig heggur sá alræmdi Dani, Christian Lemmerz, er vann áður á svipuðum grunni og Eng- lendingurinn Damian Hirst, nú hlutvakin form í marmara! Vísa til þessa hér vegna þess að Lemm- erz segir vandamálið vera, að nú sé svo mikið að velja á milli, sem hafi samt sem áður ekki tiltakan- legt vægi og framkalli því eins konar tómarúm á milli fólks, í raun komi enginn hinum við leng- ur. Það má þannig vera að ungir vilji brúa þetta tóm með því að vinna saman en þó er ekki um beina samvinnu að ræða í þessu tilviki nema nýjan hugmyndalegan grunn. Hver og einn heldur sína leið þótt hann sé sér vel vitandi um vinnuferli hinna og þó hefur framkvæmdin einhvern svip af tómleika og það er fátt sem grípur athygli skoðandans. Helst er það hið vel gerða, einfalda og hnitmið- aða verk „Hinum megin við hafið I“, ljósmynd, stálhandföng, eftir Birgittu Silverhielm. Verkið þykir mér bera af fyrir einfaldleika og klára útfærslu, þó öðru fremur hina óræðu lifun og hljóðu skila- boð. Hin mikla og djúpa þögn og kyrralíf sem eins og streymir úr myndinni segir til að mynda ólíkt meira en myndaröð hennar um Ódysseif. Verk Magneu Ásmunds- dóttur er vel og hugvitsamlega útfært, þótt minna fari fyrir frum- leikanum, en nokkuð þröngt um það á staðnum. Ljósmyndaverk John Öivinds Eggesbö, Mariu Fri- berg og Sólveigar Birnu eru sömu- leiðis afar tæknilega vel útfærð, einkum sundkona Eggesbös, en þessar sífelldu endurtekningar myndefna eru yfirmáta margtugg- inn gjörningur. Verð að setja „mál- verk“ Brynhildar Bye í gæsalapp- ir, því mun frekar er um samklipp- ur að ræða, collage, í blandaðri tækni. Furðuleg og fyrirferðar- mikil rýmisverk Thorbjörns Skár- ild sem hlykkjast um miðju stóra salar leiða hugann bæði að sjúkra- rúmum og/eða stólum í framtíðar- kvikmyndum. Sýningin í heild ber annars mjög svip af því sem mað- ur getur búist við af fólki nýút- skrifuðu úr fjöltæknideild og hefur nokkurn svip af skólasýningu. Hér skortir á skilgreiningar og skila- boð til áhorfandans sem veit sjálf- sagt ekki hvaðan á sig stendur veðrið og hverfur engu nær á braut. Sýniritið sem liggur frammi eykur svo naumast á skilning þeirra því hér er um mjög dadaísk vinnubrögð að ræða sem nutu aft- ur mikilla vinsælda á áttunda ára- tugnum. Og eru risin upp á ný. I ljósi hinna mörgu styrktarað- ila hefði mátt ætlast til að sýning- unni yrði fylgt úr hlaði með veg- legri hætti, en kannski kemur hún hinum almenna sýningargesti minna við. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.