Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 36

Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 36
V 36 MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐFINNUR SIGFÚSSON + Guðfinnur Sig- fússon fæddist í Tjaldtanga við ísa- fjarðardjúp 14. apríl 1918. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 14. október síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Sigfúsar Guðfinnssonar, ^ skipstjóra á djúp- bátnum Fagranesi, síðar kaupmanns í Reykjavík, f. 9.8. 1895, d. 6.2. 1980, og Maríu Kristjánsdóttur, f. 8.10. 1896, d. 9.12. 1981. Systk- ini Guðfinns eru: Kristján Páll, f. 4.3. 1921, María Rebekka, f. 21.8. 1922, d. 18.4. 1985, Þor- gerður, f. 24.3. 1925, d. 2.10. 1957, Garðar, f. 9.7. 1926, Hall- dóra, f. 21.7. 1930, Jenný, f. 13.7. 1933. Guðfinnur kvæntist Ingi- björgu Guðmundsdóttur hinn 1. september 1956. Ingibjörg er dóttir hjónanna Guðmundar ♦ Jóhannssonar kaupmanns og bæjarfulltrúa í Reykjavík, f. 6.6. 1893, d. 1.9. 1931, og konu hans Sigríðar Jóns- dóttur, f. 8.6. 1906, d. 29.9. 1982. Ingi- björg er fædd 19.12. 1926. Börn Ingi- bjargar frá fyrra hjónabandi eru: 1) Sveinn Rúnar, f. 10.5. 1947, kvæntur Björk Vilhelmsdótt- ur. 2) Ottar Felix, f. 19.1. 1950, kvænt- ur Guðnýju Þöll Aðalsteinsdóttur. 3) Sigríður Guð- munda, f. 1.11. 1951, gift Evald Sæmundsen. Börn Guðfinns og Ingibjargar eru: 1) Sigfús, f. 28.11. 1957, kvæntur Andreu Maríu Henk. 2) Guðmundur, f. 26.1.1959, kvæntur Lenu Maríu Gústafsdóttur. 3) María Þor- gerður, f. 17.5. 1960, gift Herði Haukssyni. Barnabörn Guðfinns og Ingi- bjargar eru átján talsins. Guð- finnur starfaði alla sína starfs- ævi sem bakari, lengst af sem bakarameistari í Reykjavík. Útför Guðfinns fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar Guðfinns Sigfússonar er minnst kemst einkum ein tilfinning að. Það er óendanlegt þakklæti fyr- ir elsku hans og umhyggju, fyrir öryggið sem hann skóp sínum nán- ustu og fyrir það takmarkalausa traust sem hann auðsýndi okkur börnunum. Ég get ekki neitað mér um að minnast hans nokkrum orð- 'j um. Guðfinnur var í báðar ættir kom- inn af fólki sem stundaði sjósókn og búskap við ísafjarðardjúp. í föð- urætt var lika stutt i presta, biskup og sálmaskáld. Hann var fæddur á annesi við sunnanvert Djúp. Þar stunduðu saman útgerð Guðfinnur afi hans Einarsson frá Hvítanesi, faðir hans Sigfús og Einar föður- bróðir hans, sem síðar varð stórút- gerðarmaður í Bolungarvík. Sjö ára gamall fluttist Guðfinnur með for- eldrum sínum til ísafjarðar og ólst þar upp elstur sjö systkina. Ungur átti hann sér þann draum að verða sjómaður, en við því lagði María móðir hans blátt bann. Hún _ mátti ekki til þess hugsa að frum- burður hennar færi á sjóinn. Guð- finnur var tveggja ára gamall þegar afi hans, sem hann hét í höfuðið á, drukknaði skammt frá landi, ásamt með bróður Maríu. Hlýðinn drengur virti ósk viljasterkrar móð- ur, sem hafði orðið að sjá á eftir allt of mörgum sinna nánustu í hafið. Guðfinnur gerðist bakari. Hann lærði iðnina í heimahögum og varð fljótt bakarameistari. Hann kom við sögu á Siglufirði og hjálpaði frænd- um sínum á Bolungarvík við að koma upp bakaríi á vegum Einars Guðfinnssonar hf. Lengst af var hann þó bakarameistari í Björns- Hh bakaríi við Vallarstræti og með eig- ið bakarí í Fossvogi, Bakaríið í Grímsbæ. í bókstaflegri merkingu átti hann eftir að sjá allri fjölskyldu sinni fyrir daglegu brauði og lífsviður- væri, því að nánast hvert einasta barn, tengdabarn og barnabarn sem sprottið hefur úr grasi, hefur unnið í Afabakaríi í Iengri eða skemmri tíma. Þrír sonanna voru í hópi margra þakklátra, sem lærðu iðn sína af honum og njóta þess að hafa mótast af því vinnusiðgæði sem alla tíð einkenndi hann. Ég var á áttunda ári þegar ég kynntist Guðfinni. Ég var elstur þriggja barna móður minnar, en foreldrar mínir voru þá skilin. Ég minnist þess skýrt hvernig blendnar tilfinningar mínar féllu fljótt í far- veg fullkomins trausts og ástar sem aldrei þraut. Ellefu ára gamall var ég í fyrsta sinn allt sumarið að heiman í kaupa- vinnu í Lundarreykjadal. Þá fann ég hvers virði þessi maður var mér og skrifaði honum bréf. Ég lét hann vita að ég hefði ákveðið að kalla hann pabba. Ég held að ég hafi ekkert spurt hann um leyfi til þess, enda þurfti ég ekki að velkjast í vafa um að það yrði auðsótt. Þetta hefur stundum valdið misskilningi, því að ég hef átt tvo ástkæra pabba og talað um þá jöfnum höndum sem slíka. Við því hefur ekkert verið að gera. Guðfinnur var mér eins góður pabbi og nokkur maður getur verið. Hann var það án þess að skyggja nokkru sinni á föður minn, þvert á móti. Ófáar ferðirnar ók hann með mig og systkinin suður í Hafnar- fjörð í heimsókn til föður míns og konu hans og ýtti á allan hátt und- ir ræktarsemi mína við föðurfólkið. Hann var þijátíu og átta ára gamall piparsveinn er hann gekk að eiga móður mína. Hann þóttist aldrei skilja í því, hvernig honum hefði öðlast þessi undurfagra eigin- kona og að auki þrjú börn án þess að hafa nokkuð til þess unnið. Hann lét okkur fínna að honum hefði hlotnast mikil hamingja. Þannig voru viðhorfm sem mættu okkur, ekki bara hjá pabba, heldur hjá allri hans fjölskyldu, foreldrum, systkin- um, systkinabörnum og frændgarði öilum. Faðmur þeirra stóð okkur opinn frá upphafi til þessa dags. Það verður seint fullþakkað. Haustið sem þau giftust fluttum við saman í íbúð við Kleppsveginn. Ef einhver hefði gægst í öskutunn- una um þær mundir hefði mátt sjá þar pípusafn og vindlakassa. Pabbi hafði reykt, en daginn sem hann gerðist heimilisfaðir með þijú börn fannst honum ekki lengur koma til greina að hafa tóbak um hönd, hvað þá áfengi. Þau höfðu raunar kynnst í Góðtemplarareglunni. Aldrei heyrðum við þó nein boð eða bönn, og hvers virði er ekki slík fyrirmynd? Guðfinnur pabbi og mamma eignuðust þijú börn til viðbótar. Hún vildi ekki gera upp á milli eigin- mannanna, sagði hún hlæjandi, þegar þau höfðu eignast til viðbótar tvo drengi og eina stúlku og það í sömu mánuðum og fyrri bópurinn hafði fæðst. Engan mun gerði pabbi á þeim okkar sem hann hlaut í meðgjöf og þeim sem honum fædd- ust síðar, nema ef vera skyldi að með okkur eldri börnin hafí enn meira verið látið. Ég var ungur að árum þegar ég fór að venja komur mínar í Björns- bakarí. Mér varð fljótt ljóst hvílíkra vinsælda pabbi naut á sínum vinnu- stað. Jafnframt því að vera harð- duglegur og ósérhlífinn var hann svo skemmtilegur á hávaðalítinn hátt, að unun var að. Þegar hann kom heim úr sinni erfiðisvinnu þá fleygði hann sér um stund, en hófst svo handa við heimilisstörfin. Það hljómar kannski einkenni- lega, en ég reyndi að kvarta jrfir því við pabba, að hann hefði aldrei ætlast til neins af okkur krökkunum og vildi þannig kenna honum um hversu lítið við systkinin hefðum lagt af mörkum í heimilisstörfun- um. Hann hafði ævinlega sama svarið við þessu: Það er svo miklu auðveldara að gera hlutina sjálfur en að biðja aðra um það. Ég varð að eiga mína leti við sjálfan mig. Að gagnrýna og gera kröfur til annarra en sjálfs sín, hvarflaði ekki að honum. Guðfinnur var hávaxinn maður og glæsilegur á velli, með hlýtt bros í augum. Hann var hlédrægur og hæglátur, en um leið orðheppinn og með ríka kímnigáfu. Honum lét vel að spjalla í góðra vina hópi. Í því líktist hann Sigfúsi föður sínum. Hann hafði til að bera þá nærveru sem öll börn sækja í, skorti aldrei hlýju og þolinmæði. Það var til afa Guðfínns sem börnin skriðu um leið og þau gátu og hann var ávallt til staðar fyrir þau. Afi var sá sem las fyrir þau, sat með þau tímunum saman, spjallaði við þau og þagði með þeim. Ég hef engum manni kynnst göfugri og ég á engum meira að þakka. Sveinn Rúnar. Kveðja frá Landssambandi bakarameistara Fallinn er nú frá einn af heiðurs- félögum Landssambands bakara- meistara, Guðfinnur Sigfússon, bak- arameistari í Grímsbæ. Guðfínnur ólst upp á ísafirði og hóf þar störf i norska bakaríinu hjá Helga Guðmundssyni árið 1934. Hann lauk sveinsprófi í iðn sinni á árinu 1938, þá tvítugur að aldri. Árið 1941 flutti hann suður til Reykjavíkur og starfaði í Björnsbak- aríi í Vallarstræti næstu 5 árin, en á árinu 1946 hóf hann eigin rekstur og starfaði hann óslitið sem bakara- meistari til ársins 1996. Það eru 50 ár - hálf öld. Fyrstu árin stundaði hann rekstur í félagi við Áma Guðmundsson, en á árinu 1950 gekk hann til liðs við Björnsbakarísmenn, þá Karl Krist- insson og Stefán Thordarsen, um rekstur Björnsbakarís í Vallarstræti, sem þá var eitt af stærstu og virðu- legustu bakaríum landsins. Þar starfaði hann næstu áratugina, allt til ársins 1973, þá stofnsetti hann sitt eigið bakarí í Grímsbæ, Efsta- landi 26, og rak það allt til ársins 1996 er synir hans tveir, Sigfús og Guðmundur Guðfínnssynir, tóku við núverandi rekstri. Guðfinnur var flinkur bakari og hvers manns hug- ljúfi, sérlega vel liðinn af samverka- mönnum sínum. Þó hann væri hlé- drægur maður var hann alla tíð virk- ur þátttakandi i félagsstörfum bak- arameistara. Hann átti bæði aðild að Eggjabúi bakara og Sultu- og efnagerð bakara. Starfsferili hans var einstaklega langur og farsæll. Undirritaður hafði góð persónuleg kynni af Guðfinni. Ljúfari manni hef ég ekki mætt á lífsleiðinni. Aldrei heyrði ég hann segja styggðaryrði um nokkurn mann. Slikir menn sem Guðfinnur Sigfússon var, eru vandfundnir. Landssamband bakarameistara biður guð að blessa minningu okkar ágæta félaga og vottar eftirlifandi eiginkonu hans, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur, og fjölskyldunni allri innilega samúð sína. F.h. Landssambands bakara- meistara. Stefán Sandholt, formaður. Guðfínnur stjúpi minn var yndis- legur maður. Hann giftist mömmu minni þegar ég var tæplega fimm ára, og eldri bræður mínir sex og níu ára. Hann var þá 38 ára pipar- sveinn, en óhræddur að taka við ábyrgð á uppeldi þriggja barna. Fljótlega bættust yngri systkinin í hópinn, en okkur eldri systkinin fékk hann ókeypis, eins og hann orðaði það einhvern tíma. Ég var fljót að átta mig á mann- kostum stjúpa míns. Fljótlega eftir giftinguna lýsti ég því alvörugefín yfír, að þegar ég yrði stór ætlaði ég líka að giftast Guðfínni. Hann var svo góður við mömmu og bjó til svo góðan mat! Guðfinnur var hæglátur og honum fylgdi ró og festa. Sú virðing og hlýja sem hann sýndi okkur börnun- um í uppeldinu reyndist einstakt veganesti. Hann virtist aldrei þurfa að byrsta sig, gekk aðeins á undan með góðu fordæmi. Guðfinnur var vel lesinn og skemmtilegur og það var eitthvað í fari hans sem verkaði sem segull á börn. Barnabörnin 18 hændust öll að honum og þær eru ófáar myndirn- ar í fjölskyldualbúminu þar sem hann situr í stól með bók í hendi og með tvö, þijú eða jafnvel fjögur börn í fanginu. Elsku Guðfinnur minn, þakka þér fyrir allt. Guð geymi þig. Þín Sigríður Hauksdóttir. Guðfinnur H. Sigfússon, bakara- meistari í Grímsbæ í Reykjavík, lést á Landakotsspitala, eftir að hafa átt við mikla vanheilsu að stríða undanfarna sex mánuði. Guðfinnur stóð ekki einn í þess- ari baráttu, því eiginkona hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir, var alla daga hjá honum uppi á spítala frá morgni til kvölds og börnin þeirra sex og barnabörnin létu ekki sitt eftir liggja að heimsækja pabba sinn og _afa og gera honum lífíð léttara. Ég undirritaður og eiginkona mín heimsóttum hann daginn áður en hann lést, og það var sárt að horfa upp á þennan glæsilega dugnaðar- mann svona vanmáttugan og illa haldinn. Þá sóttu á mig sterkar til- fínningar og minningar frá uppvaxt- arárum okkar bræðranna á Isafirði, þegar við sigldum á kajak á pollin- um, gengum á skíðum inn í Selja- landsdal og fórum saman í útilegu inn í skógi, og ekki er hægt að gleyma því þegar við bræðurnir tveir fórum hingað suður til Reykjavíkur, hann til að vinna hér, en ég í skóla. Þá fann ég betur en áður, að þótt hann væri ekki orðmargur maður, að á bak allt sem hann sagði eða gerði, bjó hugur trausts og góðs drengs, sem öllum vildi vel og stóð við allt það sem hann tók sér fyrir hendur. Guðfínnur var umfram allt harð- duglegur maður og vinnusamur, sem rak bakarí sitt Grímsbæ af miklum dugnaði og ósérhlifni á meðan heils- an og kraftar entust, en þegar aldur færðist yfír og kraftar og heilsa fóru að bila, tóku veir synir hans, Guð- mundur og Sigfús, við rekstrinum og hafa síðan rekið bakaríið af mikl- um dugnaði. Það sem okkur ættingjum hans og vinum þótti kannski eftirminnileg- ast um hann, þegar litið er til baka, er hve glæsilegur maður hann var bæði í sjón og raun, en fyrst og fremst hve hann var hjartahlýr og tillitssamur. Það var eftirtektarverð tilviljun, að andlát hans bar upp á sama mánaðardag og foreldrar okkar gengu í hjónaband, 14. október 1917, þau hefðu því átt 80 ára hjúskaparaf- mæli sama dag og hann lést. Inga bjó Guðfínni og þeirra mann- vænlegu sex bömum glæsilegt og hlýlegt heimili, sem stóð öllum vinum og ættingjum opið og einkenndist af þeirra rausn og hlýhug og ófáum munu þau hafa rétt hjálparhönd, þegar erfíðleikar steðjuðu að. Það er því með sárum söknuði, sem við kveðjum hann á þessum degi. Systkini hans, eiginkona, börn, og barnabörn finna öll sárt til og syrgja hann, en fínna samt jafn- framt til innilegs þakklætis fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hann og þeirrar miklu umhyggju, sem hann veitti þeim á lífsleiðinni. Við hjónin, börn okkar, tengda- börn og barnabörn, sendum hugheil- ar samúðarkveðjur til Ingu og allrar hennar fyölskyldu. Blessuð sé minning hans. Minn- ingin um hann mun lifa í hjörtum okkar björt og hrein. Kristján P. Sigfússon. Traustur og hlýr. Fámáll, fylginn sér og vandaður, en umfram allt traustur. Þannig var Finni fyrir mér. Það var hjá Finna frænda mínum sem ég steig mín fyrstu spor í launa- vinnu í þessu lífi, íjórtán ára. Það var í byijun áttunda áratugarins í Björnsbakaríi við Vallarstræti, þar sem Finni bakaði áralangt. Mér veittist sá heiður að vinna „á bak við“, ekki í pökkun eða pöntunum með hinum stelpunum, heldur í kök- unum, í návígi við sjóðheita ofnana, við sjálfa bakarana sem okkur fannst vera hjarta bakarísins. Og til þess að komast í sumarafleysingar svo nærri sannleikanum sjálfum þurfti maður traustsyfírlýsingu. Mín með- mæli voru þau að vera systurdóttir Finna. Það var alveg sérstakur sjarmi við þennan vinnustað. Líf og fjör, mikið af fólki, ungir strákar, bakara- nemar, stelpur á öllum aldri, erill og þvarg, rifrildi, rómantík, spenna og átök. Líf margra var samofið bakaríinu og margir örlagaþræðir voru þar ofnir. En á einhvern hátt var Finni yfir allt þetta hafinn. Hann var eins og af öðrum heimi í þessu veðrasama samfélagi og duttlungar hversdagsleikans hrinu ekki á hon- um. Að njóta leiðsagnar hans, og verndar, á þessum líflega stað þar sem glaðværð og hijúfleiki kölluðust svo hressilega á, þýddi bara einfald- lega að maður var hólpinn. Ég var auðvitað ekki að kynnast Finna frænda þarna í fyrsta sinn. Ég átti margar stundir hjá fjölskyld- unni á Háaleitisbrautinni sem krakki. Af einhveijum ástæðum, sem ég man ekki lengur, gisti ég stundum hjá Ingu og Finna. Þetta var nýmóðins heimur, hverfið í kring hálfbyggt og stutt torfæruleið í sjoppuna í Skipholtinu; fullt af krökkum sem léku snú snú og aðra sólarleiki sunnan undir blokk- arveggnum. Mér er minnisstætt að brunahræðsla hélt fyrir mér vöku eina gistinótt mína hjá Ingu og Finna. Stuttu áður hafði brunnið ofan af nágrannafólki foreldra minna. Finni skynjaði hvað klukkan sló, settist hjá mér á rúmstokkinn og spjallaði við mig. Auðvitað man ég ekki orð af því sem okkur fór á milli, nema eitthvað um steinsteypu og timburhús. En traustið sem ég bar til Finna var slíkt að það bar mig Iéttilega inn í draumaheim þá nótt og lengi síðan lifði þessi tiífinn- ing í bijósti mér. Mér er raunar til efs að hægt sé að veita barni meiri öryggistilfinningu en þetta. Annað tilvik sem staðfestir þessa mynd mína af Finna er ferð sem ég fór með þeim hjónum og krökkunum upp í Heiðmörk. Á heimleiðinni bil- aði Moskvítsinn, eins og kemur fyrir bestu bíla. Sjálfsagt hafa góð ráð verið dýr, með mörg börn sem ýmist þurftu að pissa eða axlabandið slitið eða þaðan af verra. Gönguferðin í rökkrinu að græna biðskýlinu var dijúg og ég man að Finni hélt í höndina á mér í troðfullum strætis- vagninum. Öll ferðin hafði hins veg- ar svo rólegt og yfírvegað yfirbragð að mér fannst eins og þetta hefði hreinlega átt að vera svona. Og það er þetta traust sem ég ímynda mér að Finni hafi veitt öllum í kringum sig._ Á síðustu árum hittist maður auð- vitað sjaldnar. Finni líktist Sigfúsi afa meir og meir með aldrinum og varð sú kjölfesta sem hann líka var. Fyrir mér varð það eins og einhver sönnun þess að góðu gildin lifa, þau erfast mann fram af manni og tengja í raun kynslóðirnar. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til Finna frænda míns fyrir þær stundir sem ég fékk að njóta með honum á mis- munandi lífsskeiðum. Ingu, börnun- um sex og fjölskyldum þeirra votta ég mína innilegustu samúð. Þorgerður Einarsdóttir. 0 Fleiri minningargreinnr um Guðfinn Sigfússon híðn birtingnr ogmunu birtast í blnðinu næstu dngn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.