Morgunblaðið - 22.10.1997, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kæling
húsa með
vatni
sparar fé
KÆLING húsnæðis með vatni
í stað lofts sparar bæði fjár-
festingar- og rekstrarkostnað.
Fjárfestingarkostnaðurinn er
einungis 60% af þeim kostnaði
sem þarf að leggja í vegna
smíði kerfis sem byggist á loft-
kælingu, auk þess sem orku-
kostnaður vegna rekstrar
kerfisins er helmingi minni en
rekstrarkostnaður vegna loft-
kælingar.
4H > Þetta eru niðurstöður at-
hugana Guðna Jóhannessonar,
prófessors í byggingatækni við
bygginga- og lagnadeild KTH,
verkfræðiháskólans í Stokk-
hólmi. Guðni hélt nýlega nám-
skeið um þetta hér á landi íyr-
ir verk- og tæknifræðinga á
vegum Enduiinenntunarstofn-
unar Háskóla íslands.
■ Mun minni/11
Morgunblaðið/RAX
Sveitarfélög gera kennurum tilboð um 27,7% meðalhækkun út árið 2000 '
Kennarar hyggjast
svara með gagntilboði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilboðið líigt á borðið
SAMNINGANEFND sveitarfélaga leggur tilboð sitt fyrir formenn
kennarafélaganna á fundi með Þóri Einarssyni ríkissáttasemjara kl.
18 í gær. Viðræðunefnd kennarafélaganna sat á fundi í gærkvöldi og
fór yfir tilboðið og ætla kennarar að semja gagntilboð.
VIÐRÆÐUNEFND kennarafé-
laganna ætlar að svara tilboði
samninganefndar launanefndar
•“sveitarfélaganna, sem lagt var
fram í gær, með gagntilboði. Eirík-
ur Jónsson, formaður Kennara-
sambands Islands, segir tilboð
sveitarfélaganna betra en það sem
áður hafi komið frá samninganefnd
sveitarfélaganna en dugi þó ekki
til. Hann vill að öðru leyti ekki tjá
sig um tilboðið. Stóra viðræðu-
nefnd kennarafélaganna hefur ver-
ið boðuð til fundar fyrir hádegi í
dag og í framhaldi af því er gert
ráð fyrir að deiluaðilar komi saman
að nýju.
Samanlögð vegin launahækkun
grunnskólakennara og skólastjórn-
enda frá upphafi þessa árs og til
loka samningstímans, 1. desember
‘ ‘ *%rið 2000, er 27,74% samkvæmt til-
boði sveitarfélaganna. Er þá með-
talin 4% hækkun sem kennarar og
sveitarfélögin sömdu um í mars sl;
með bráðabirgðasamkomulagi. I
tilboðinu er gert ráð fyrir 3,5%
hækkun við undirritun samninga,
4% hækkun 1. janúar 1998, 3%
hækkun 1. ágúst á næsta ári, 3,5%
1. janúar 1999, 3,5% 1. janúar árið
2000 og 2% 1. desember árið 2000.
Skv. tilboðinu hækka byrjunar-
laun grunnskólakennara í 88.546
kr. við undirritun samninga og
verða komin í 103.638 kr. í lok
samningstímans og hafa þá hækkað
um rúm 38% á samningstímabilinu.
í tilboðinu er lagt til að ekki
verði gerðar efnisbreytingar á
vinnutímafyrirkomulagi kennara
að þessu sinni en aðilar geri bókun
um að fjallað verði á samningstím-
anum um möguleika á slíkum
breytingum. í tilboðinu er hins
vegar gert ráð fyrir að í samningn-
um verði kveðið á um aukinn
sveigjanleika í skipulagningu
skólastarfs kennara.
Kallar á hagræðingu
og aðgæslu sveitarfélaga
„Við göngum eins langt og
kannski lengra en sveitarfélögin
ráða við með góðu móti. Þarna er
um að ræða feiknarlegar launa-
hækkanir," segir Jón G. Kristjáns-
son, formaður samninganefndar
sveitarfélaganna. „Ég tel að þetta
kalli á töluverða hagræðingu og að-
gæslu sveitarstjórna," sagði hann.
Aðspurður sagðist Jón telja að ef
þetta tilboð sveitai-félaganna dygði
ekki til að leysa deiluna fyrir boðað
verkfall kennara næstkomandi
mánudag væri hún óleysanleg.
■ Byrjunarlaun/7
5.000 tonn af
brotajárni
MAÐURINN er smár í saman-
burði við hrikalegan brotajárns-
hauginn á athafnasvæði Hringrás-
ar í Sundahöfn. Áætlað er að í
haugnum séu 4-5 þúsund tonn af
brotajárni en nú er járn unnið í
óðaönn úr haugnum og undirbúið
til útflutnings. Gert er ráð fyrir
að skip fari um miðjan næsta
mánuð með 2-3 þúsund tonn á
markað erlendis.
Sfldarútvegs-
nefnd selur
lagmeti
SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur
það sem af er árinu flutt út 3,8 millj-
ónir dósa af lagmeti til Rússlands.
Frá því að ákveðið var að gera til-
raun með slíkan útflutning fyrii- um
þremur árum hefur hann vaxið mjög.
„Frá nánast engu, árið 1995, flutt-
um við út samtals 2,7 milljónir dósa
árið 1996 og það sem af er þessu ári
er búið að flytja út 3,8 milljónir
dósa,“ segir Gunnar Jóakimsson,
framkvæmdastjóri nefndarinnai-.
■ Síldarútvegsnefnd/C 1
--------------
Jóhann með
forystu
JÓHANN Hjartarson náði hálfs
vinnings forskoti á Norðurlandamót-
inu í skák í gærkvöldi er hann vann
Westerinen frá Finnlandi. Helsti
andstæðingur Jóhanns, Svíinn
Johnny Hector, gerði jafntefli við
Schandorf frá Danmörku.
Jóhann er í efsta sæti með 10 vinn-
inga af 12 mögulegum og þykir ár-
angur hans í mótinu mjög glæsilegur
og vinningshlutfallið óvenju hátt. í
lokaumferðinni í dag, teflir Jóhann
við Djurhuus frá Noregi. Hector,
sem er í 2. sæti með 9'á vinning, tefl-
ir gegn Hansen Irá Danmörku.
■ Lokaumferðin í dag/41
- 7
Sölu Áburðarverksmiðju frestað
Framkvæmdastjóri hættir í kjölfarið
Landbúnaðarráðherra hefur
ákveðið að fresta sölu á Aburðar-
verksmiðju ríkisins um óákveðinn
tíma. Ráðherra hefur til athugunar
skýrslu einkavæðingarnefndar um
málið sem telur ekki grundvöll fyrir
sölu hennar miðað við óbreyttan
rekstur.
. í kjölfar ákvörðunar ráðherra
‘ sagði Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Aburðarverksmiðju
ríkisins, starfi sínu lausu vegna
ágreinings við eigendur verksmiðj-
unnar um framtíðarfyrirkomulag á
rekstri hennar.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Hákon að hann hefði haft
ákveðnar hugmyndir um framtíðar-
rekstur verksmiðjunnar en þær
hefðu hins vegar stangast á við hug-
myndir eiganda hennar, ríkissjóðs.
í fyrsta lagi seld um
mitt næsta ár
„Vilji eigandans um áframhald-
andi rekstur hér fer ekki saman við
það sem ég teldi æskilegt að gera
og ég tel því rétt að ég hverfi af
vettvangi," sagði Hákon.
Að sögn Hreins Loftssonar, for-
manns einkavæðingarnefndar, er
ljóst að ekkert verði frekar aðhafst í
sölu verksmiðjunnar fyrr en í fyrsta
lagi um mitt næsta ár. Nú sé verið
að kanna hvaða aðrir möguleikar
séu í stöðunni. Meðal annars sé ver-
ið að kanna framtíðarmöguleika á
áburðarframleiðslu hér á landi.