Morgunblaðið - 05.11.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Röntgen-
læknadeilan
Tengist
nýjum
kjara-
samningi
PÉTUR Hannesson, röntgen-
læknir á Landspítala, segir að
lausn kjaradeilu röntgenlækna
við spítalann tengist náið gerð
nýs kjarasamnings fyrir
sjúkrahúslækna. Mikilvægt sé
að Ijúka gerð samningsins hið
fyrsta svo ekki skapist vand-
ræðaástand á spítölunum.
Röntgenlæknar á Landspít-
ala hafa sagt upp störfum og
taka uppsagnimar gildi um
næstu mánaðamót. Oánægju
læknanna með kjör sín má
m.a. rekja til munar á launum
þeirra og starfsbræðra þeirra
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Þorvaldur Veigar Guðmunds-
son, forstöðumaður lækninga-
sviðs Ríkisspítalanna, sagði í
samtali við Morgunblaðið um
helgina að lausn í deilunni
væri í sjónmáli.
Pétur sagðist geta tekið
undir að lausn í deilunni væri
í sjónmáli. Málið væri þó ekki
leyst og uppsagnimar hefðu
enn ekki verið dregnar til
baka. Hann sagði að lausn
þessa máls væri nátengd gerð
nýs kjarasamnings fyrir al-
menna sjúkrahúslækna og
þess væri tæplega að vænta
að frá málinu yrði endanlega
gengið fyrr en búið væri að
gera nýjan kjarasamning.
Fundust heilir
á húfi í bíl sínum
MENNIRNIR tveir, sem leit
hófst að í fyrrakvöld á leiðinni
inn i Landmannalaugar, fund-
ust heilir á húfi í gærmorgun.
Það var þyrla Landhelgisgæsl-
unnar TF-SIF sem fann menn-
ina við svokallaðar Snjóöldur
norður af Landmannalaugum
vestan Tungnaár skömmu fyrir
klukkan 10.30 í gærmorgun, en
þyrlan lagði af stað til leitar frá
Reykjavík klukkan rúmlega 9.
Að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli voru mennirnir í bíl
sínum þegar þeir fundust og
voru þeir fluttir með þyrlunni
til björgunarsveitarmanna sem
voru við Þóristind. Bíll mann-
anna var bensínlaus og sagði
lögreglan að mennirnir hefðu
verið svangir en ekki illa haldn-
ir, en þeir lögðu upp í ferðalag-
ið siðdegis síðastliðinn föstu-
dag.
Björgunarsveitarmenn að-
stoðuðu mennina í gær við að
koma bílnum til byggða en að
sögn lögreglunnar er víða ill-
fært á leiðinni inn i Landmanna-
laugar.
Kyrrsetningu hluta-
bréfa Gelmers hafnað
Verslunarrétturínn í París vísaði í gær frá máli SH gegn fyrrí eig-
endum Gelmers. Það sneríst um kyrrsetningu hlutabréfa hjá fyrrí
eigendum. Þórunn Þórsdóttir var í réttinum og segir framhaldið
almennt mál sömu aðila um að samningar Gelmers og SH standi
en SH fái háar bætur ella. A meðan tekur IS smám saman yfír
rekstur Gelmers og hefur Höskuldur Ásgeirsson veríð skipaður
framkvæmdastjórí fyrírtækisins.
KRÖFUM allra aðila í
máli Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna gegn
fyrri eigendum Gelmers
var hafnað í verslunarréttinum í
París í gær. Fulltrúi dómarans
Blanchard sagði Morgunblaðinu að
málinu hefði því verið vísað frá og
enn væri ekki ákveðið um dagsetn-
ingu fyrstu réttarhalda í máli sem
SH höfðar í framhaldi af kyrrsetn-
ingarbeiðni frá 15. október. Hún
hlaut flýtimeðferð vegna þess að
fýrirtækið er í fullum rekstri, en
fyrra dómþing var síðasta fimmtu-
dag. SH gerði aðalkröfu um kyrr-
setningu hlutabréfa sjávarafurða-
fýrirtækisins í Boulogne-sur-Mer,
vegna kaupa íslenskra sjávaraf-
urða á Gelmer í miðjum október,
eftir nær 3 mánaða samningavið-
ræður SH við eigendurna og mikla
vinnu við mat á fyrirtækinu.
Francois Lanoy, fyrrum aðaleig-
andi Gelmer, sagði í samtali við
blaðið í gærkvöldi að þessi ákvörð-
un dómarans væri í fullu samræmi
við staðreyndir og það sem hann
sjálfur hefði sagt frá upphafi. „Það
náðist aldrei samkomulag milli
Gelmers og SH,“ sagði Lanoy, „SH
krafðist of hárra ábyrgða og
ákveðið var að selja til IS. Sú sala
var fullkomlega lögmæt eins og
nú hefur verið staðfest. Mínir lög-
fræðingar og annarra hluthafa
vinna að mati á þeim skaða sem
málaferlin hafa valdið Gelmer og
munu krefjast bóta frá SH.“
Lúðvík Börkur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandic France,
dótturfyrirtækis SH í París, segir
sína lögmenn túlka niðurstöðuna í
gær þannig: „Þar sem Lanoy og
IS segja að sala hafí farið fram
hinn 14. október, degi áður en SH
höfðaði málið, er ekki hægt að
koma við kyrrsetningu hlutabréf-
anna hjá fyrri eigendum. ÍS tókst
að sýna fram á undirritun samn-
inga og flutning hlutafjár og telst
því eigandi Gelmer.
Við hefðum viljað kyrrsetja bréf-
in hjá Lanoy til að koma í veg
fyrir að hann höndlaði frekar með
þau, en það þjónar engum tilgangi
séu ÍS taldar eigendur þeirra, það
fyrirtæki fer ekki að selja strax
aftur. Niðurstaðan kemur mér ekki
á óvart og nú förum við okkar leið
með kröfu um að teljast lögmætir
eigendur eða skaðabótakröfu ella.
Ákveðið var á fimmtudaginn að
seinna málið fái einnig skjóta með-
ferð, við höfum lagt fram gögn og
stefnt er að niðurstöðu undirréttar
innan þriggja mánaða.“
SH telur eftir sem áður ósannað
hvenær hlutabréfin hafi eða muni
skipta um eigendur. Þótt skrifað
hafí verið undir samninga hinn
14. séu líkur til að hlutabréfin
hafi enn verið skráð á Lanoy
(85%), fjóra smáa hlutahafa (5%)
og fasteignasjóðinn IDIA (10%)
þegar til málshöfðunar kom. Að-
spurður hvort afhending bréfa
hefii farið fram 14. október sagð-
ist Lanoy ekki hafa dagsetningar
lengur í huga, salan hefði einfald-
lega verið lögmæt og eðlileg.
Hann færi á eftirlaun eftir nokkra
mánuði og ÍS tæki við rekstri
Gelmers.
Lögfræðingur Gelmers og ÍS,
Gérard Barron, segir fyrirtækin
ekki hafa viljað að málið væri tek-
ið fyrir í fjölmiðlum. Ákveðið hafi
verið að halda sig við réttarsalinn
Akureyii þrisuar
sinnum á dag
Bókanir: 570 8090
ISLANDSFLUG
gerir fleirum fært ad fljúga
og sú mynd sem birst hafi í blöð-
um sé skekkt vegna þess að SH
hafi ekki komið heiðarlega fram.
„Lagalega hafa þeir klárlega farið
rangt að síðustu vikur, samningur
ÍS og Gelmers var án skilyrða og
við vissum alltaf að hann myndi
standa."
Ólafur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri ÍS í Boulogne,
kveðst afar ánægður með niður-
stöðu réttarins í gær. ÍS sé rétt-
mætur eigandi Gelmer og unnið
sé að undirbúningi sameiningar
fyrirtækjanna og breytinga sem
henni fylgja. Þetta taki vikur eða
mánuði. Höskuldur Ásgeirsson
hafi verið skipaður framkvæmda-
stjóri Gelmers og sé kominn til
Boulogne.
SH mun byggja kröfu sína í
framhaldsmáli, um að samningur
Gelmer við SH standi, á óheiðar-
leika í viðskiptum af hálfu Lanoy.
„Það var búið að fastsetja hvert
smáatriði kaupsamningsins, hann
var kominn á og aðeins nokkrar
klukkustundir í undirritun," segir
Lúðvík Börkur. „Þessi úrskurður
nú hefur engin áhrif á niðurstöðu
í endanlegu dómsmáli, hér var
aðeins fjallað um kyrrsetningu
bréfa en ekki þá spurningu hver
væri réttmætur eigandi Gelmers.“
Verði fyrri kröfu SH synjað og
fullreynt að ÍS eigi þrjár verk-
smiðjur Gelmers í Boulogne, segir
Lúðvík Börkur SH fara fram á
háar skaðabætur, vegna vinnu og
kostnaðar við samningaviðræður
og sérfræðistarf, og vegna tapaðs
ávinnings. Kostnaðurinn nam milh
13 og 26 milljónum króna, sam-
kvæmt heimildum blaðsins. Hópur
bókhaldssérfræðinga vann í 2-3
vikur fyrir SH í sumar við pen-
ingalega athugun á Gelmer. Gerð
var lögfræðileg úttekt á leyfum,
dómsmálum Gelmers og styrkjum.
Loks var metin staða fyrirtækisins
í umhverfismálum, en frönsk yfir-
völd gera afar strangar kröfur um
að evrópskum stöðlum sé fylgt-