Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umræður á Alþingi um tillögu til þingsályktunar um flugmálaáætlun fyrir árin 1998-2001 Endurbætur á Reykjavíkur- flugvelli hefjist á þamæsta ári NOKKRAR umræður urðu á Alþingi á þriðju- dag um ástand Reykja- víkurflugvallar eftir að samgönguráðherra, Hall- dór Blöndal, hafði mælt fyrir tillögu til þings- ályktunar um flugmála- áætlun árin 1998-2001. Guðmundur Hallvarðs- son, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sagði sem fyrr að ástand Reykjavíkurflugvallar væri við hættumörk og vildi að framkvæmdir við endurbyggingu vallarins hæfust strax á næsta ári. Samgönguráðherra sagði hins vegar að útboð framkvæmdanna gæti ekki hafíst fyrr en í lok næsta árs. Samgönguráðherra sagði m.a. í framsögu sinni að gert væri ráð fyrir því í flugmála- áætlun að gerð þeirra flugvallarmannvirkja sem unnið hefði verið að, á helstu áætlunar- flugvöllum landsins, á undanfömum árum yrði lokið á tímabili áætlunarinnar. Jafn- framt væri lögð rík áhersla á að bæta að- flugs- og flugöryggisbúnað ekki síst lýsingu og annan rafmagnsbúnað svo sem raflagnir og vararafstöðvar. Þá væri gert ráð fyrir því að ráðast í endurbyggingu Reykjavíkur- flugvallar á árunum 1999 til 2000, en fram- kvæmdin verði boðin út á næsta ári. Deiliskipulag liggi fyrir Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að í gegnum árin hefði framkvæmdum við Reykjavíkurflug- völl verið frestað æ ofan í æ og að ekki verði lengur við unað vegna þeirrar hættu sem ástand vallarins gæti skapað þeim farþegum sem um hann færu. Guð- mundur ítrekaði þá ósk sína að samgönguráð- herra beitti sér fyrir því að samþykkt Alþingis fengist fyrir sérstakri heimild til að taka fram- kvæmdalán svo hægt yrði að hefja framkvæmdir fljótlega á næsta ári. Samgönguráðherra svaraði og sagði að áður en hægt væri að bjóða út framkvæmd- ir Reykjavíkurflugvallar þyrfti að liggja fyrir deiliskipulag frá Skipulagsnefnd Reykjavíkur, en það hefði enn ekki verið afgreitt. Ráðherra tók ennfremur fram að á flugvellinum væru gerðar viðeigandi ráð- stafanir til þess að hann verði ekki hættu- legur. Svavar Gestsson, þingmaður Alþýðu- bandalags, sagði að það væri, hvað sem deiliskipulaginu liði, hægt að hefjast handa við framkvæmdir að endurbótum á flugvell- inum nú þegar. Það væri m.a. niðurstaða af fundi sem borgaryfirvöld áttu með Flug- málastjóm fyrir nokkrum dögum. Sagði hann að deiliskipulagið væri einungis fyrir- sláttur. Svavar sagði að ágreiningur væri hins vegar á milli Flugmálastjórnar annars vegar og borgaryfirvalda hins vegar um flugbraut- ina sem hefði aðflugslínu yfir Norðurmýri og Landspítala. Það hefði alltaf verið skoðun borgaryfirvalda að það væri óeðlilegt að hafa þessa braut með þeim hætti sem hún hefði verið. Flugleiðir hefðu hins vegar hald- ið því fram að brautin væri óhjákvæmileg út'i. Ii ,ii' "iii fí I ' i fe : ALÞINGI ÍÞUNGUM ÞÖNKUM Morgunblaðið/Kristinn vegna aðstæðna í ákveðnum vindáttum og vegna þess að ef hún væri ekki til staðar þá yrði að nota flugbraut í Keflavík. Ekki má gera of mikið úr hættunni Samgönguráðherra sagði að sú braut sem Svavar hefði gert að umtalsefni væri nauð- synleg vegna flugöryggis og taldi brýnt að ná samkomulagi um að halda henni opinni í framtíðinni. Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði að af öryggisástæðum mætti loka Reykjavíkurflugvelli. Hins vegar sagð- ist hann gera sér grein fyrir því að í þinginu væri ekki vilji til þess að leggja niður flug- völlinn. Af þeim sökum þætti honum betra ef dregið yrði úr umferð vallarins og minnka þar með hættuna í stað þess að gera ekki neitt. Jón Kristjánsson, þingmaður Fram- sóknarflokks, varaði við því að gera of mik- ið úr hættum við flugvöllinn. Hann sagðist vera á móti lokun vallarins og taldi frekar að hann ætti að byggja upp á þeim stað sem hann væri nú á. Þingmenn Alþýðubandalags vilja afnema lög um stjórn fiskveiða Alþingi Dagskrá Þjóðareign á fiskstofn- unum verði óumdeild Sími 555-1500 Garðabær Stórás Rúmgóð ca 70 fm 2—3 herb. íb. á neðri hæð í tvfb. Ný eldinnr. Nýtt gler. Parket. iBoðahleinl Höfum fengið til sölu fyrir aldraða við Hrafnistu í Hf., gott endaraðh., ca 90 fm auk bílsk. Áhv. ca 1,5 millj. Verð 11,5 millj. Hafnarfjörður Óttarstaðir Til sölu ca 5—6 hektara landspilda úr landi Óttarstaða I. Liggur að sjó. Verð: Tilboð. Reykjavíkurvegur Gott skrifstofuhúsnæði ca 120 fm á 2. hæð. Verð 4,9 millj. Breiðvangur Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri sérh. í tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh. Áhv. byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj. Gunnarssund Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið end- urn. Ath. skipti á lltilli íb. Vantar ca 100 fm íb. nærri miðbæ Hafnar- fjarðar. Vantar eignir á skrá Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. KRISTINN H. Gunnarsson, Mar- grét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson, þingmenn Alþýðubanda- lags, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um afnám laga um stjórn fiskveiða. Með frum- varpinu er lagt til að öll réttindi til veiða samkvæmt gildandi lögum muni falla niður og að endurúthlut- un fari fram á grundvelli nýrra laga, en gert er ráð fyrir að sam- staða verði um að stjórna verði fiskveiðum áfram. í greinargerð frumvarpsins segir að með samþykkt þess taki Alþingi af öll tvímæli um forræði sitt til lagasetningar um nýtingu flsk- stofna og að óumdeilt verði gildi núgildandi lagaákvæða um þjóðar- eign á fiskstofnunum. „Flutningur frumvarpsins byggist á þeirri skoð- un flutningsmanna að gildandi lög hafi ekki leitt til einkaeignarréttar á fiskstofnum eða nýtingu þeirra og að hægt sé að fella þau réttindi niður bótalaust," segja flutnings- menn í greinargerð. „A hinn bóginn hefur raskast mjög sá grundvöllur sem upphafleg úthlutun veiðiheim- ilda hvíldi á, svo og dreifing þeirra eftir byggðarlögum og útgerðar- flokkum, og af þeim sökum er óhjá- kvæmilegt að taka málið til endur- skoðunar í heild.“ Mengun verði sem minnst við sjósóknina Flutningsmenn frumvarpsins telja að stjórna beri fískveiðum á annan hátt en verið hefur. „Stjórn fiskveiða þarf að gera nýjum mönnum kleift að hefja útgerð og nýta legu sjávarbyggða við nálæg fiskimið með öflugum strandveið- um. Þá þarf hún að nýta kosti stór- útgerðar og loks að endurspegla áherslu á að mengun hvers konar verði sem minnst við sjósóknina," segir í greinargerð. „Til þess að ná þessum markmiðum þarf ný löggjöf að skilja á milli strandveiða og stórútgerða. í strandveiðum verði opið kerfi sem byggist að mestu leyti á sóknarstýringu og geri ráð fyrir áætluðu heildarafla- magni, en togarar og önnur stór- virk skip verði áfram í aflamark- aðskerfi með framseljanlegum aflaheimildum að einhveiju leyti. Hlutur strandveiða gæti verið um 40% og hlutur aflamarkskerfisins um 60% af botnfiskveiðunum. Þá yrði veiðum stjórnað þannig að strandveiðar væru á miðum innan 20-30 mílna frá landi og aðrar veiðar að mestu þar fyrir utan. Veiðiréttindin afmarkist við hvorn útgerðarflokkinn um sig og geti ekki flust á milli þeirra. Til strand- veiða mundu teljast allar veiðar með önglum. Veiðar með netum, nót eða trolli yrðu mjög takmark- aðar. Settar yrðu reglur um há- marksútivist hvers skips og um stærð báta sem mættu stunda strandveiðar. Um veiðar upp- sjávarfiska giltu að nokkru leyti aðrar reglur og lytu einkum afla- marksstjórnun.“ Gera flutningsmenn ráð fyrir að atvinnugreinin greiði kostnað við eftirlit og hagræðingu og hluta af kostnaði við rannsóknir en að öðru leyti gildi almenn skattalög. ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.30 í dag. Fyrst verða fyrir- spurnir til ráðherra um eftirfar- andi málefni: 1. Til samgönguráðherra: Kjör sljórnenda Pósts og síma hf. 2. Til viðskiptaráðherra: Bið- launa- og lífeyrisréttindi starfs- manna ríkisbankanna. 3. Til félagsmálaráðherra: Jafnréttisráðstefna í Lettlandi. 4. Til félagsmálaráðherra: Starfsmat. 5. Til heilbrigðisráðherra: Framkvæmd EES-reglugerðar um félagslegt öryggi. 6. Til menntamálaráðherra: Dreifikerfi Ríkisútvarpsins. 7. Til menntamálaráðherra: Húsnæðismál Sjómannaskólans. 8. Til sjávarútvegsráðherra: Markaðshlutdeild fyrirtækja. Þá verða eftirfarandi mál á dag- skrá þingfundar: 1. Loftferðir. Framhald 1. umræðu (Atkvgr.) 2. Flugmálaáætlun 1998- 2001. Framhald fyrri umr. (Atkvgr.) 3. Samræmd samgönguáætl- un. Frh. fyrri umr. (Atkvgr.) 4. Vegagerð í afskekktum landshlutum. Frh. fyrri umr. (Atkvgr.) 5. Stimpilgjald. Frh. 1. umr. (Atkvgr.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.