Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 11 FRÉTTIR Athugasemd Skil ég Vil- hiálm rétt? MORGUNBLADINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Ellert B. Schram, forseta íþrótta- og Ólympíusambands íslands: „Iþróttaþing var haldið um helg- ina. Þar sátu yfir tvö hundruð full- trúar íþróttastarfsins í landinu. Meginþunginn í þessu þinghaldi voru áhyggjur þingfulltrúa vegna bágrar fjárhagsstöðu íþróttafélag- anna vítt og breitt um landið. Ekki síst í ljósi þess að íþróttastarf er ekki einkamál þeirra sem sinna því sjálfboðaliðastarfi. Starfið í félögun- um snýst um meira en keppni og ár- angur. íþróttir fela í sér uppeldi, forvamir, heilsubót, afþreyingu og síðast en ekki síst hafa þær umtals- verð áhrif á umhverfi sitt og mann- líf. Með öðrum orðum: íþróttir hafa samfélagslegt gildi. Iþróttahreyfingin er ekki van- þakklát fyrir það sem ríki og sveit- arfélög hafa gert fyrir hana. Það kom skýrt fram. En hún telur að sveitarstjórnir eigi að huga betur að fjárhag og rekstrarafkomu íþrótta- félaga í því skyni að gera þeim kleift að sinna samfélagslegum skyldum sínum og þeim væntingum sem til hennar eru gerðar. Þetta voru skila- boðin frá íþróttaþingi. Eitthvað hefur þessi afstaða og þessi skilningur farið framhjá for- manni Sambands íslenskra sveitar- félaga, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Vilhjálmur er jafnframt í framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur. Hann segir í Morgunblaðinu á þriðjudaginn: „Ég á ekki von á því að sveitarfélög í landinu auki fjár- veitingarnar enn frekar.“ Haft er síðan eftir honum að „tæplega sé hægt að gera betur af hálfu sveitar- félaganna.“ Má skilja það svo að Vil- hjálmur sé hér að túlka viðhorf sveitarstjórnarmanna almennt í landinu í krafti formennsku sinnar? Eða er Vilhjálmur að lýsa stefnu sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir komandi kosningar? Gott væri fyrir mig, bæði sem kjósanda og forsvarsmann íþrótta- hreyfíngarinnar að Vilhjálmur svar- aði þeim spurningum, svo þær þús- undir sjálfboðaliða, iðkenda og áhugamanna í íþróttafélögunum í Reykjavík og annars staðar, átti sig betur á afstöðu þeirra sem nú gefa kost á sér til sveitarstjórnastarfa." Ný götu- mynd Aðal- strætis I TILLÖGU að deiliskipulagi við Aðalstræti og Túngötu er gert ráð fyrir flutningi fsa- foldarhússins úr Austurstræti á ldð sunnan við Aðalstræti 10. Einnig er í tillögunni gert ráð fyrir nýbyggingum frá horni Aðalstrætis og Túngötu að Aðalstræti 12 þar sem ísa- foldarhúsið yrði staðsett. Tvær útfærslur eru af tillög- unni, merktar A og B, sem er samstarfsverkefni Borgar- skipulags og Minjaverndar. Hefur málinu verið vísað til umfjöllunar hjá umhverfís- málaráði. Landsfundur Alþýðubandalagsins Um 380 fulltrúar með kosningarétt 13. LANDSFUNDUR Alþýðu- bandalagsins hefst á morgun í Borgartúni 6, Rúgbrauðsgerð- inni. Fundurinn stendur fram á sunnudag. Að sögn Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra flokksins, eiga um 380 aðalmenn kosningarétt á landsfundinum, en varamenn með seturétt eru jafnmargir. Flokksfélögin fá einn aðalfulltrúa fyrir hverja níu félagsmennn. Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, flyt- ur setningarræðu sína síðdegis á morgun og verður henni sjón- varpað beint á Stöð 2. Um kvöld- ið verða almennar umræður. A föstudag verða kynntar skýrslur nefnda sem unnið hafa að einstökum málum frá síðasta landsfundi. Þá verður einnig kosið í embætti varaformanns, ritara og gjaldkera. Margrét Frímannsdóttir er sjálfkjörin í embætti formanns því engin mótframboð bárust. Á laugardag verður kosið í framkvæmda- stjórn og í miðstjórn á sunnu- dag. Þróunarsvið Byggðastofnunar verður flutt til Sauðárkróks fyrir 1. júlí næstkomandi Fyrst þarf að breyta reglugerð Flutningur á þróunarsviði Byggðastofnunar til Sauðárkróks er háður því að forsætisráðherra breyti reglugerð um stofnunina, að því er fram kemur í grein Helga Bjarnasonar. Kostnaður við bið- laun starfsmanna er áætlaður 17 milljónir kr. LJÓST er að breyta þarf reglu- gerð um Byggðastofnun til þess að hægt verði að framkvæma ákvörð- un stjórnarinnar frá því í gær um að flytja þróunardeild stofnunar- innar til Sauðárkróks f'yrir 1. júlí á næsta ári. Forsætisráðherra gefur út þessa reglugerð. Áður hafa komið upp hugmyndir um að flytja aðalskrifstofu Byggða- stofnunar að hluta eða öllu leyti út á land en ekki orðið úr. Hins vegar hafa verið byggð upp útibú á nokkrum stöðum. Togstreita sijórnar og starfsmanna Á síðustu mánuðum og árum hef- ur verið nokkur togstreita milli stjómar Byggðastofnunar og starfsmanna, m.a. um valdsvið og ábyrgð stjórnarinnar annars vegar og forstjóra og annarra starfs- manna hins vegar. Ágreiningurinn hefur birst á ýmsan hátt. Á fundi stjórnarinnar í september gerði Sigurður Guðmundsson, forstöðu- maður þróunarsviðs, athugasemdir við túlkun Egils Jónssonar stjórn- arformanns á bréfi forsætisráð- herra þai- sem stjórninni er falið að hefja endurskoðun á byggðastefn- unni. Stjórnin ákvað að láta starfs- menn Byggðastofnunar ekki annast þessa vinnu nema að litlu leyti en fela aðilum utan stofnunai-innar að vinna aðra þætti þrátt fyrir mót- mæli Sigurðar sem telur að þetta vinnulag standist ekki lög og reglu- gerð um Byggðastofnun. Tillagan um að flytja þróunarsvið Byggðastofnunar til Sauðái-króks var lögð fram á næsta fundi stjórn- arinnar. Getur flutt alla aðalskrifstofuna I lögum segir að Byggðastofnun sé sjálfstæð stofnun í eigu ís- lenska ríkisins og heyri undir for- sætisráðherra. Jafnframt að yfir henni sé þingkjörin sjö manna stjórn og forsætisráðherra skipi formann úr hópi kjörinna stjórn- armanna. Stjórnin ákveður skipu- lag Byggðastofnunar, að því leyti sem það hefur ekki verið gert í reglugerð. I gildandi reglugerð sem forsætisráðherra hefur sett er kveðið á um skiptingu aðal- skrifstofu Byggðastofnunar í til- tekin svið, þar á meðal þróunar- svið. Samkvæmt þessu virðist ljóst að stjórn Byggðastofnunar getur ákveðið að flytja alla aðalskrif- stofu Byggðastofnunar til Sauðár- króks eða hvert annað sem hún kýs. Hún getur hins vegar ekki skilið þróunarsviðið frá, nema for- sætisráðherra breyti reglugerð- inni. Guðmundur Malmquist, for- stjóri Byggðastofnunar, mun nú senda forsætisráðherra bréf um ákvörðun stjórnarinnar. Tillögur um vinnulag Ákvörðun um flutning þróunar- sviðs Byggðastofnunar er ekki fyrsta tilraunin sem gerð er til að flytja opinberar stofnanir út á land. Um þetta efni var talsvert fjallað við endurskoðun byggðastefnunnar 1993. I tillögum stofnunarinnar sjálfrar, sem nú er að hluta til hin- um megin borðsins, um vinnulag segir að möguleiki kunni að vera á því að flytja sérfræðistofnanir á löngum tíma, sérstaklega ef tæki- færið er notað þegar skipulags- breytingar verða. Einkum þurfi þó að huga að því að velja nýjum stofnunum stað utan höfuðborgar- svæðisins. „Slík ákvörðun [flutningur út á land] getur þó ekki gerst einhliða heldur þarf hún að vera niðurstaða umfjöllunar um það hvernig við- komandi stofnun eða starfsemi gegnir hlutverki sínu best. Gerð er áætlun um það hvernig einstakir þættir starfseminnar verði fluttir. Einhverjir starfsmanna kunna þegar að vera tilbúnir að byrja fljótlega, einkum ef í boði eru hag- stæðari kjör. Síðan er tækifærið notað þegar starfsmenn hætta, að ráða nýja í þeirra stað í nýjum að- alstöðvum. Þeir njóta þjálfunar og stuðnings í eldri aðalstöðvum. Reynt er eftir mætti með tilhliðr- unum á verkefnum að flýta þessu ferli. Aðferðin tryggir eftir því sem unnt er kjölfestu í starfi viðkom- andi stofnunar með því að sem fæstir starfsmenn verða fyrir óeðli- legri röskun.“ 17 milljónir í biðlaun Þróúnarsvið Byggðastofnunar hefur það verksvið að annast meðal annars úrvinnslu upplýsinga um þróun byggðar og hefur umsjón með gerð byggðaáætlana, úttekt- um og öðru þróunarstarfi. Sex starfsmenn teljast til sviðsins, fimm eru í Reykjavík og einn á Akureyri. Þeir gefa það ekki upp hvort þeir muni flytjast með deild- inni til Sauðárkróks, ef af því verð- ur. Ekki liggur fyrir hvað flutning- urinn kostar. Forstjóri Byggða- stofnunar áætlar að kostnaður stofnunarinnar við biðlaun og launatengd gjöld vegna núverandi starfsfólks geti numið sautján milljónum kr., að því gefnu að fólk- ið færi sig ekki með sviðinu og að það eigi allt rétt á biðlaunum. Hann telur jafnframt dýrt og erfitt að þjálfa upp nýtt fólk ef til þess þarf að koma. Byggðastofnun á hlut í stjórn- sýsluhúsinu á Sauðárkróki þar sem rekið er útibú með einum starfs- manni og fær þróunarsviðið það húsnæði til afnota. Egill Jónsson telur ekki að mikill kostnaður þurfi að fylgja flutningnum. Dýrt sé að reka útibú með einum starfsmanni í þessu húsnæði og sá kostnaður muni falla niður við flutning þróun- arsviðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.