Morgunblaðið - 05.11.1997, Page 14

Morgunblaðið - 05.11.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNB LAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján Snjór af skornum skammti VINKONURNAR Tinna, íris og degi, gripu snjóþoturnar úr sem komið er í minnsta lagi en Kamilla gripu tækifærið og fóru geymslunni og þustu upp í næstu þær leiddu það hjá sér og renndu út að leika sér að loknum skóla- brekku. Snjórinn er reyndar enn sér samt. Vélsleðamenn ræddu öryggismál Nýr Vatnahjalla- vegiir eykur öryggi ÖRYGGISMÁL voru mikið til um- ræðu á aðalfundi Félags vélsleða- manna í Eyjafirði sem haldinn var nýlega. Félagið hefur veiulega lát- ið öryggismálin til sín taka, m.a. með endurbótum á fjallaskálum. Eitt þeirra mála sem nýrri stjórn var falið að kanna var endurgerð eða endurbætur á svokölluðum Vatnahjallavegi upp úr Eyjafírði. Sleðamenn virði rétt skíðafólks Eins og staðan er nú getur verið illgerlegt að komast upp á hálendið ofan Eyjafjarðar, sérstaklega vor og haust og þegar snjólétt er. I því felst mikið öryggisleysi verði slys á þessum slóðum því þá þurfa björg- unarsveitir að fara um langan veg til að komast á vettvang. Kunnugir telja að nýr Vatnahjallavegur myndi stórauka öryggi fjallafara á öllu norðanverðu hálendinu. Á fundinum var einnig rætt um ýmis hagsmunamál vélsleðafólks og farið var yfír nýjar reglur um umferð vélsleða í Hlíðarfjalli vegna skíðasvæðisins og vatnsbóla sem þar eru. Var áréttað hversu mikil- vægt er að sleðamenn virði rétt skíðafólks og haldi sig fjarri því svæði sem úthlutað hefur verið til skíðaiðkunar, en nokkuð hefur ver- ið um árekstra við gönguskíðafólk. Bent var á að reglur verði að vera með þeim hætti að farið sé eftir þeim, en sumum fundarmanna þótti bannsvæðið helst til stórt. Ný stjórn var kjörin á fundinum og tók Hreiðar Hreiðarsson við formennsku af Tómasi Búa Böðvarssyni. Póstur fluttur með bíl frá Akureyri um Norðausturland Líklegt að áætlunar- flugi til Kópaskers og Raufarhafnar verði hætt BREYTING var gerð á póstflutn- ingum til Norðausturlands nú um mánaðamótin. Fram til þessa hefur verið flogið með póstinn frá Akur- eyri þrisvar til fímm sinnum í viku, en hér eftir verður hann fluttur með bíl frá Akureyri til Húsavíkur, Kópaskers, Raufarhafnar og Þórs- hafnar alla virka daga. Póstur og sími hefur gert samn- ing við BSH á Húsavík um póst- flutninga frá Akureyri og um Norðausturland. Um nokkurt skeið hefur pósti verið ekið að næturlagi frá Reykjavík til Akureyrar og mun nú annar bíll taka við póstin- um þar og halda áfram austur. Lagt verður af stað frá Akureyri um kl. 7.30 að morgni og til baka frá Þórshöfn um hádegisbil. Gert er ráð fyrir að komið verði til Akureyrar um kl. 18 og kemst pósturinn því samdægurs til Reykjavíkur. Bréf sem þannig er póstlagt að morgni á Raufarhöfn og sent til Reykjavíkur verður bor- ið út daginn eftir. BHS býður einnig upp á farþegaflutninga með póstbflnum, þannig að almennings- samgöngur landleiðina batna í kjöl- farið. Áfram verður flogið með póst sem fara á til og frá Vopnafirði og Bakkafirði og mun Flugfélag Is- lands sjá um þá flutninga. 3,8 milljónir fyrir póstinn I kjölfar þess að samningum við Flugfélag íslands um póstflutninga á Norðausturlandi hefur verið sagt upp íhuga forsvarsmenn félagsins að hætta reglubundnu áætlunar- flugi til Kópaskers og Raufarhafn- ar. Að jafnaði eru farþegar á þessa tvo áætlunarstaði um 800 á ári. Póstur og sími hefur greitt 3,8 milljónir króna fyrir póstflutninga með flugi á ári. Mun fleiri farþegar hafa verið á flugleiðinni frá Akur- eyri og til Þórshafnar og Vopna- fjarðar, eða um 4.500 á ári að með- altali. Samningum vegna póstflutn- inga með flugi til Vopnafjarðar hef- ur ekki verið sagt upp. Farþegaflutningar standa ekki undir kostnaði „Það hefur legið í loftinu að Póstur og sími myndi hætta að flytja póst í flugi, en við erum að fara yfír stöðuna, skoða hvort grundvöllur er fyrir því að halda þessu áfram," sagði Páll Halldórs- son, framkvæmdastjóri Flugfélags Islands. Hann sagði farþegaflutn- inga engan veginn standa undir kostnaði við að halda uppi áætlun- arflugi til Kópaskers og Raufar- hafnar. Samanlagðar tekjur af póst- og farþegaflutningum hefðu gert að verkum að hægt væri að réttlæta það að flugi væri haldið áfram, en félagið væri sannarlega ekki að hafa af því neinar tekjur. Páll sagði að endanleg ákvörðun yrði tekin á næstu dögum, yrði áætlunarflugið fellt niður eins og allt benti til myndu breytingar taka gildi um næstu áramót. Slæmar samgöngur á landi Gunnlaugur A. Júlíusson, sveit- arstjóri á Raufarhöfn, sagði að samgöngur á landi í þessum lands- hluta væru langt í frá góðar og um 250 kílómetra leið væri frá Raufar- höfn til Húsavíkur og um 70 kíló- metrar frá Raufarhöfn til Þórs- hafnar. Yrðu stórfelldar lagfæring- ar gerðar á vegum á næstu árum myndu menn líta svo á að eitt tæki við af öðru, en engin áform væru uppi um slíkt. „Við höfum fengið mjög laka þjónustu hvað varðar samgöngur á landi og teljum okkur eiga hönk upp í bakið á ríkisvald- inu hvað þessi samgöngumál öll varðar," sagði Gunnlaugur. Samfélagið á þessu svæði væri veikt og það að flugi yrði hætt myndi ekki hafa góð áhrif á íbúana. Fólk hefði flutt af óvanalega mikl- um þunga frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins að undan- fórnu. „Það er nógu slæmt að missa flugið, en ekki síður er það vond tilfmning fyrir fólk að búa í samfélagi sem ekki þykir ástæða til að halda uppi slíkum samgöngum. Maður veit ekki hvaða áhrif það hefur á fólk,“ sagði Gunnlaugur. Hann benti einnig á að það ör- yggi sem fylgdi því að hafa áætlun- arflug væri mikilvægt. Sveitarstjórinn á Raufarhöfn hefur vakið athygli þingmanna, ráðherra, fulltrúa í fjárlaganefnd og fleíri á því að um byggðamál væri að ræða. Samfélagið sæi íbú- um landsins fyrir samgöngum, það hefði ákveðnar skyldur gagnvart jaðarbyggðum. Benti hann á að ís- landsflug hefði fengið þóknun allt þar til í júh' í sumar fyrir að halda úti flugi til Siglufjarðar. • • Ospin við LEYFI byggingarfulltrúa hefur fengist fyrir því að fella þessa ösp sem er í garði við Hamarsstíg á Akureyri, en forsvarsmenn um- hverfisdeildar Akureyrarbæjar hafa lagst gegn því að hún verði höggvin. Ástæður þess að fbúarnir vilja tréð, sem stendur frammi við hús þeirra, í burtu er sú að það hindrar gott aðgengi að inngangi, rótarkerfi er úti um allt og bfla- stæði er ónothæft hluta úr ári þeg- Morgunblaðið/Kristján Hamarsstíg ar öspin fellir límkennt hismi. Rök umhverfisdeildar með öspinni voru þau m.a. að um er að ræða sérstakt kvæmi sem er frem- ur sjaldgæft og því ástæða til að halda í plöntuna. Einnig skipti götumyndin máli, en eigi fyrir alls löngu var önnur stér ösp við Ilamarsstíg höggvin. Benti um- hverfisdeild á að götumyndin verð- ur önnur að tveimur stérum mynd- arlegum trjám horfnum. Blaðberar Blaðbera vantar á Akureyrí. Þurfa að geta borið út um leið og blaðið kemur til Akureyrar, sem er frá kl. 06.30-07.30 á morgnana. JWoröunWaViíi Kaupvangsstræti 1, sími 461 1600. DEMAN lAHUSIÐ Okkat stnCdL cH.iir\$Ai <H.ÁÍsyy\et\ /Zokkai Nœtui vetð Kringlunni sími 588 9944 Skátar vilja reka tjaldsvæði NÝTT tjaldsvæði að Hömrum í tengslum við útilífsmiðstöð skáta sem fyrirhugað er að reisa þar var til umræðu á síðasta fundi bæjarráðs Akureyrar, en lagt var fram bréf frá forsvars- mönnum Skátafélagsins Klakks. Félagið stefnir að því að reisa útilífsmiðstöð að Hömrum en í bréflnu er lýst yfir áhuga á samningaviðræðum við Akur- eyrarbæ um uppbyggingu og rekstur tjaldsvæðis þar og jafn- framt vilja skátar taka að sér að rekstur tjaldsvæðis bæjarins við Þórunnarstræti. Bæjarráð frestaði afgr'eiðslu málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.