Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 16

Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ■‘T VIÐSKIPTI Sparisjóðirnir auka framlög í Tryggingasjóð SPARISJÓÐIRNIR hafa ákveðið að hækka árlegt framlag sitt til Trygg- ingasjóðs sparisjóða úr 0,20% í 0,25% af innlánum. Hækkunin var annars vegar ákveðin með hliðsjón af mikilli innlánsaukningu hjá sparisjóðunum og hins vegar veikri stöðu lánadeildar Tryggingasjóðs- ins. Þetta kom fram á aðalfundi Tryggingasjóðs á laugardag sem haldinn var í tengslum við aðalfund Sambands sparisjóða. Tryggingasjóði sparisjóða er ann- arsvegar ætlað að tryggja innlán sparifjáreigenda og hins vegar að stuðla að traustari rekstri spari- sjóða. Vegna tryggingar innlána er starfrækt innstæðudeild, en sér- stakri lánadeild er ætlað tryggja fjárhagslegt öryggi sparisjóða. Eign- ir innstæðudeildarinnar eiga að nema a.m.k. 1% af innlánum spari- sjóðanna og uppfyllir sú sjóðsdeild nú þegar það lagaákvæði. Námu eignir hennar samtals 372 milljónum um síðustu áramót. Staða lánadeild- arinnar breyttist hins vegar verulega nú í haust eftir að stjóm sjóðsins tók ákvörðun um að veija 140 millj- ónum til kaupa á stofnfjárskírteinum i Sparisjóði Ólafsfjarðar sl. vor. Ef engin ný verkefni koma til gjald- færslu hjá lánadeildinni fram til næstu áramóta mun hún eiga tæpar 20 milljónir í sjóði í árslok, auk fyrr- nefndra stofnfjárskírteina. Gert er ráð fyrir að staða lánadeildar verði komin í um 100 milljónir snemma á næsta ári. Heimildir til eftirlits of þröngar Á aðalfundinum var meðal ann- ars rætt um að breyta þurfi þeim heimildum sem stjórn Trygginga- sjóðs hefur til eftirlits. í lögum um sjóðinn segir að stjórninni sé heim- ilt að láta rannsaka rekstur og efna- hag sparisjóðs sem veitt sé víkjandi lán. Getur stjórnin í þessu sam- bandi krafist nauðsynlegra upplýs- inga frá hlutaðeigandi sparisjóði. „Þegar haft er í huga hvert hlut- verk Tryggingasjóðs er, er ljóst að heimildir Tryggingasjóðs til eftirlits eru allt of þröngar," sagði Guð- mundur Hauksson, formaður stjórnar í ræðu sinni. „Sjóðurinn verður að fá upplýsingar um rekst- ur einstakra sparisjóða með reglu- bundnum hætti og hafa heimild til að grípa inn í mál ef hann telur að í óefni stefni. Hann þarf að mega hafa samband við löggilta endur- skoðendur sparisjóðanna og banka- eftirlit og láta fara fram innri end- urskoðun sem tekur til einstakra rekstrarþátta ef þörf er talin á. Það skal tekið skýrt fram að ég tel ekki að Tryggingarsjóður eigi að gegna einhvers konar lögregluhlutverki, en það er ljóst að fjárhagsleg ábyrgð og eftirlit verða að fara saman. Það að Tryggingarsjóður gegni ábyrgð, án þess að geta kom- ið að málum til að veija hagsmuni sína fyrr en um seinan, samræmist illa,“ sagði Guðmundur Hauksson. Breskt-íslenskt verslunarráð Dýrir bílar rekast illa á Bríissel. Reuter. ÁRANGUR fjölskyldubíla í árekstraprófum bendir ekki til þess að hátt verð sé trygging fyrir öryggi, að sögn belgíska neytendafélagsins Test Achats. „Álit nokkurra vörumerkja bíður hnekki - dýrustu gerðirn- ar fengu verstu einkunnirnar," sagði Test Achat í tilkynningu. Könnuð voru áhrif árekstra á 13 fjölskyldubíla í prófunum, þar sem höfð var hliðsjón af evrópskum öryggiskröfum, og voru tilraunirnar miklu erfíðari en þær sem framleiðendur standa fyrir. „Niðurstöðurnar voru ískyggilegar," sagði Test Ac- hats, sem taldi einu jákvæðu útkomu prófsins þá að líknar- belgir hefðu reynzt vel og sýnt að þeir væru peninganna virði. Því var haldið fram að Volvo væri eini bíllinn sem hefði sann- að ágæti sitt í prófinu. Test Achat sagði að dauða- slysum í umferðinni í Evrópu mundi fækka um 30% ef allir bílar stæðust strangari kröfur. BRESKT-íslenskt verslunarráð verður stofnað í Reykjavík og Lund- únum 12. og 13. nóvember næst- komandi. Nú þegar hafa rúmlega 170 fyrirtæki ákveðið að gerast stofnaðilar að ráðinu, 93 íslensk og 80 bresk. Bresk-íslenska verslunarráðið verður fjölmennasta millilandaversl- unarráð sem íslendingar eiga aðild að. Að sögn Jónasar Fr. Jónssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Versl- unarráðs íslands, ræður áhugi meðal fyrirtækja stofnun og starfsemi verslunarráða af þessu tagi og eru áherslur í starfi þeirra mismunandi. Jónas segir að markmið Bresk- íslenska verslunarráðsins verði að efla og viðhalda viðskiptatengslum á milli Bretlands og íslands en Bret- land sé stærsta einstaka viðskipta- land íslendinga. „Til að ná þessu markmiði mun ráðið m.a. standa fyrir fundum og ráðstefnum um málefni er tengjast viðskiptum land- anna, standa að viðskiptaheimsókn- um og sinna hagsmunagæslu gagn- vart stjórnvöldum í ríkjunum.“ Einstaklingar og lögaðilar í ríkj- unum tveimur geta gerst félags- menn og jafnframt er heimilt að til- nefna heiðursfélaga. Hefur Magnús Magnússon sjónvarpsmaður sam- þykkt að verða heiðursfélagi Bresk- íslenska verslunarráðsins. Stofnfundur ráðsins hérlendis verður í Ársal Hótels Sögu miðviku- daginn 12. nóvember og hefst kl. 16:30. Auk hefðbundinna fundar- starfa munu Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra og breski sendi- herrann á ísland, James R. McCulloch, fjalla um viðskiptatengsl ríkjanna. Stofnfundurinn í Lundúnum verð- ur haldinn fimmtudaginn 13. nóvem- ber í Barbican Centre. Þar mun Frið- rik Sophusson ijármálaráðherra flytja ávarp og Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, mun flytja erindi um viðskiptatengsl land- anna. FRÁ útimarkaði í Dyflinni. Dyflinni bezt til viðskipta í Evrópu Dyflini. Reuters. FORTUNE, hið kunna banda- ríska viðskiptatímarit, telur höf- uðborg Irlands þá borg Evrópu, sem henti bezt til viðskipta, þrátt fyrir mikið atvinnuleysi og um- ferðaröngþveiti. Samkvæmt árlegri könnun Fortune á borgum heims hefur Dyflinni ekki verið eins iðandi af lífi síðan á síðustu gullöld borgarinnar á 18. öld. „Fyrirtæki eins og Barclays, Chase Manhattan, Citicorp og Sumitomo-banki virðast hafa puttann í öllu á írlandi, frá ríkis- rekstri til fjármálas1jórnunar,“ segir blaðið. Kostnaður er minni og ódýr- ara er að fá hæfileikafólk til starfa en í London að sögn blaðs- ins. Dyflinni sigraði einnig Amst- erdam, Barcelona, Róm og Mílanó í baráttunni um titilinn í ár. Hins vegar segir blaðið að ekki sé að öllu leyti gott að búa í Dyflinni vegna þess að atvinnu- leysi sé enn mikið, allt að 30% á sumum svæðum, og ekkert sé gert til að draga úr gífurlegri umferðarteppu. Tímaritið dæmdi borginnar út frá launakostnaði, menntunar- stigi, leigu fyrir skrifstofuhús- næði, aðgengi og öðrum þáttum, eins og glæpatíðni og framboði á menningu og skemmtunum. F' Ráðinn for- stjóri Gelmer • HÖSKULDUR Ásgeirsson hef- ur verið ráðinn forstjóri Gelmer S.A. til næstu þriggja mánaða og hefur hann þegar hafið störf. Frá ráðningu Hös- kuldar var gengið á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Gelmer sem hald- inn var í Boul- ogne-sur-Mer í Frakklandi sl. föstudag. Höskuldur Ás- geirsson er fæddur árið 1952. Hann útskrifaðist sem fisktæknir frá Fiskvinnsluskólanum árið 1976 og lauk prófí í viðskiptafræði frá Háskóla íslands árið 1983. Hös- kuldur stundaði framhaldsnám við Henley Business School í Eng- landi og lauk þaðan meistaraprófí í rekstrarhagfræði. Hann var forstöðumaður sölu- skrifstofu Iceland Seafood Ltd. í Boulogne-sur-Mer í Frakklandi á árunum 1987-1992. Frá því í des- ember 1992 til ársloka 1996 var Höskuldur framkvæmdastjóri Ice- land Seafood Ltd. með aðsetur í Hessle í Bretlandi. Frá 1. janúar 1997 hefurHös- kuldur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Islenskra sjávarafurða hf. í Reykjavík. Höskuldur er kvæntur Elsu Þóris- dóttur og eiga þau þijú börn. Kæru viðskiptavinir Starfsfólk okkar og makar ætla að gera sér glaðan dag í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins. Því verður lokað hjá okkur 6. og 7. nóvember nk. Við opnum aftur mánudaginn 10. nóvem- ber, hress og endurnærð Með bestu kveðjum GLERBORG DALSIÍRAUNI5, 220 HAFNARFIRÐI, SÍMI565 0000 Forsvarsmenn Samvinnuferða-Landsýnar vísa á bug gagnrýni vegna milliuppgj örs Upplýsmgum ekki leynt fyrir fjárfestum FORRÁÐAMENN Samvinnuferða- Landsýnar vísa algerlega á bug öll- um vangaveltum um óheiðarleg vinnubrögð í tengslum við birtingu sex og níu mánaða uppgjörs fyrir- tækisins í síðustu viku. Segja þeir getgátur í þá veru að félagið hafí vísvitandi leynt 6 mánaða uppgjör til að villa um fyrir fjárfestum, sem birst hafí í fréttabréfi Viðskiptastofu íslandsbanka og til var vísað í frétt Morgunblaðsins í gær, alvarlegar og tilhæfulausar aðdróttanir, og hafí bankastjóri íslandsbanka séð ástæðu til að biðja félagið formlega afsökunar á slíkum fréttaflutningi. í fréttatilkynningu sem Sam- vinnuferðir-Landsýn hafa sent frá sér segir að félagið hafi til þessa ekki gert 6 mánaða uppgjör þar sem tímabilið janúar-júní sé tíðindalítið í rekstri ferðaskrifstofa. Sumarið sé aðaltekjutímabilið. „Þess vegna hefur ferðaskrifstof- an undanfarin ár framkvæmt end- urskoðað níu mánaða milliuppgjör. Á þessu ári var nákvæmlega eins staðið að málum og var enn meiri áhersla lögð á að fá upplýsingarnar sem fyrst enda lá uppgjör fyrir rétt- um mánuði fyrir lok reikningstíma- bilsins. Samkvæmt reglum Verðbréfa- þings íslands ber öllum fyrirtækjum sem skráð eru á Verðbréfaþingi að senda inn sex mánaða uppgjör. Samvinnuferðir-Landsýn hf. hlutu skráningu á Verðbréfaþingi í ágúst- lok sl. Félagið taldi eðlilegt að fram- kvæma og birta sex mánaða upp- gjörið samhliða níu mánaða upp- gjöri, enda hefur eins og áður kom fram ekki verið venja að gera sex mánaða uppgjör. í þessu sambandi er rétt að benda á að 6 mánaða uppgjör eitt og sér hjá aðilum í ferðaþjónustu segir | ekkert um afkomu ársins, en getur . á hinn bógjnn verið villandi, nema til komi skýringar og samanburðar- ' tölur Verðbréfaþingi íslands voru til- kynntar þessar ástæður 1. október sl. Þessi ákvörðun var tekin áður en upplýsingar um afkomuna eftir fyrstu níu mánuði ársins lá fyrir og því ekkert samband þar á milli eins og gefið er í skyn. Afkoma Samvinnuferða-Land- ) sýnar hf. fyrstu 9 mánuði ársins i olli vissulega vonbrigðum, en öllum . vangaveltum um óheiðarleg vinnu- brögð er vísað algerlega á bug.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.