Morgunblaðið - 05.11.1997, Side 22

Morgunblaðið - 05.11.1997, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Málflutningur hafinn gegn Terry Nichols fyrir meinta aðild að Oklahómatilræðinu Verjandi segir Nichols „fjölskyldumann“ Denver. Reuters. ALRÍKISSAKSÓKNARI í Bandaríkj- unum hóf í gær málflutning gegn Terry Nichols, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að sprengjutilræðinu í Oklahóma, og er mál ríkisins gegn Nichols að mestu byggt á sömu sönn- unargögnum og notuð voru í máli ríkisins gegn Timothy McVeigh. Sprengingin, sem íagði í rúst Alf- red P. Murrah alríkisskrifstofubygg- inguna í Oklahóma að morgni 19. apríl 1995, varð 168 manns að bana, þar af 19 börnum er voru á dagheim- ili í húsinu. Meðal þeirra gagna er fyrst voru kynnt er réttarhöldin hóf- ust í Denver í Coloradoríki í gær var segulbandsupptaka frá fundi sem stóð yfir skammt frá Murrah-bygg- ingunni er sprengjan sprakk. Líkt við vígvöll Á bandinu mátti heyra sprenging- una, brothljóð og óp fólks er fylgdi í kjölfarið. „Það var ofboðslega mik- ið af reyk. Það féllu járnstykki úr loftinu. Lyktin var ógurleg. Þetta leit út eins og vígvöllur," sagði Lou Klaver, sem varð vitni að atburðin- um. Segulbandsupptakan var einnig notuð við upphaf málflutnings gegn McVeigh, sem var fundinn sekur 2. júní og dæmdur til dauða. Ákæru- atriði á hendur Nichols eru 11, þau sömu og á hendur McVeigh, um samsæri og morð. Verði Nichols sakfelldur gæti hann átt dauðadóm yfir höfði sér. Einn þeirra er bar vitni í gær var maður sem greindi frá því að brak frá spreng- ingunni hafí lent á bifreið hans og eyði- lagt hana. Brakið reyndist vera afturöx- ull flutningabílsins sem McVeigh hafði tekið á leigu til þess að flytja sprengiefnið og varð öxullinn mik- ilvæg vísbending um hver hefði verið að verki. Að mati lögfræð- ingsins Andrews Cohens er mikil- vægt fyrir saksóknara að málflutn- ingur þeirra nú beri þessi ekki merki að vera byggður á sömu gögnum og málið gegn McVeigh. „Það er mjög erfitt að ná sama tilfínninga- hita og var í fyrstu réttarhöldun- um,“ sagði Cohen við Reuters. „í langri og öruggri fjarlægð“ Larry Mackey, saksóknari, sagði í upphafsorðum sínum að Nichols hafí verið fullkunnugt um hvað McVeigh ætlaðist fyrir og hafí hjálp- að honum, jafnvel þótt hann hafi verið heima hjá sér, mörg hundruð kílómetrum frá Okla- hóma daginn sem sprengjan sprakk. „Terry Nichols var í mikilli og öruggri fjar- lægð frá sprengingunni, nákvæmlega svo sem hann hafði ætlað sér,“ sagði Mackey við kvið- dómarana. „Mánuðina áður stóð Terry Nichols við hlið Timothys McVeighs, og þeir lögðu á ráðin um ofbeldisað- gerðir.“ Veijandi Nichols, Michael Tigar, fylgdist með en tók ekki þátt í réttarhöldunum yfír McVeigh. í upphafsorð- um sínum við réttarhöldin í gær sagði Tigar að ekki mætti draga Nichols til ábyrgðar vegna vináttu hans við McVeigh. „Sekt vegna tengsla er ekki samsæri. Að vita um er ekki aðild að samsæri." Tigar lagði áherslu á að Nichols hefði hvergi komið nærri er McVeigh bjó til sprengjuna og sprengdi hana í Oklahóma. Nichols væri fjölskyldu- maður sem hefði lifað ofur venjulegu lífí í samanburði við McVeigh, sem hafi verið rótlaus flakkari. Tigar sagði að hann myndi kynna fyrir kviðdómurum aðra möguleika en þann, sem saksóknari héldi fram. Larry Mackey, saksóknari. Reuters Rabins minnst LEAH Rabin, ekkja Yitzhaks Rabins, fyrrverandi forsætisráð- herra ísraels, kom til minningar- athafnar um Rabin sem haldin var við grafhýsi hans í Jerúsalem í gær. Þá voru tvö ár liðin síðan Rabin var ráðinn af dögum. Ehud Barak (t.v.), leiðtogi Verka- mannaflokksins, og Shimon Per- es, fyrrverandi forsætisráð- herra, voru einnig viðstaddir at- höfnina. Orð Jiangs „rangtulkuð“ Peking. Reutere. TALSMAÐUR kínverska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að vest- rænir fjölmiðlar hefðu rangtúlkað ummæli sem Jiang Zemin, forseti Kína, viðhafði eftir að hafa flutt ávarp í Harvard-háskóla um helg- ina. Rangt væri að Jiang hefði vís- að til blóðsúthellinganna á Torgi hins himneska friðar í Peking árið 1989 þegar hann svaraði spurning- um námsmanna eftir ávarpið og lét þau orð falla að kínverskum stjóm- völdum kynnu að hafa orðið á „ýmis mistök“. „Lítill hópur manna hefur rang- túlkað orð Jiangs Zemins forseta og fréttir nokkurra fjölmiðla voru ónákvæmar," sagði talsmaðurinn, Tang Guoqiang. Talsmaðurinn vildi ekki útskýra ummæli forsetans frekar, en hugs- anlegt er að Jiang hafi verið að svara öðrum hluta spurningar sem var borin fram í tveimur liðum. Mótmælin „hávaðamengun“ Tang sagði að níu daga ferð Jiangs til Bandaríkjanna, sem lauk á mánudag, markaði þáttaskil í sam- skiptum ríkjanna. „Ferðin markar tímamót sem binda enda á spennuna í samskiptum Kína og Bandaríkj- anna síðustu árin,“ sagði hann. Kínverskir fjölmiðlar leiddu hjá sér gagnrýni bandarískra stjóm- málamanna á mannréttindabrot kínversku stjórnarinnar og mót- mæli sem efnt var til í tilefni af heimsókninni. Kínverskur embætt- ismaður gerði lítið úr mótmælunum á mánudag og lýsti þeim sem „há- vaðamengun“. íslensk ljóð flutt í þýsk- um háskólum Vaxandi áhuga Þjóðverja á öllu sem íslenskt er má þakka mörgum sjón- varsmyndum frá íslandi sem sjást næstum vikulega, starfsemi ferða- málaskrifstofunnar í Frankfurt og starfsemi hinna ýmsu þýsk- íslensku félaga í landinu. DIS, Deutsch-Islándisches Kult- urforum Stuttgart, Þýsk-íslenska menningarfélagið í Stuttgart, Áhugi á íslandi og íslenskum málefnum er vaxandi í Suður-Þýska- landi eins og yfirleitt í landinu öllu, segir Helgi Sæmundsson, talsmaður íslendinga- félagsins í Stuttgart. stofnað 1990, er hingað til eina félagið af þessu tagi í Suður-Þýska- landi. í Norður- og Austur-Þýska- landi eru starfandi mörg slík félög, sem vilja stuðla að menningarskrif- um milli íslands og Þýskalands. í síðastliðinni viku stóð félagið fyrir ljóðalestri Matthíasar Johannessen í húsi rithöfundafé- lagsins í Stuttgart. Matthías las á íslensku úr nýútkominni bók sinni Sálmar á atómöld, en þýðandinn, prófessor Wilhelm Friese frá há- skólanum í Túbingen, las þýðing- arnar. Fyrir bókmenntaunnendur er það ávallt mikill unaður að hlusta á rithöfunda lesa úr verkum sínum. Þetta var áhrifamikill ljóða- lestur, sem áhugaverðar umræður fylgdu. Þeir Matthías og prófessor Friese lásu dagana á undan í há- skólanum í Bonn og í Túbingen, þar sem líka er mikill og vaxandi áhugi íslandsvina á íslenskri tungu og bókmenntum. Sama er að segja um Stuttgart, sem hingað til er mest þekkt sem iðnaðarborg, að- setur Daimler-Benz, Porsche, IBM og Hewlett Packard og höfuðborg Baden-Wúrttemberg. Námsflokk- arnir í Stuttart bjóða í vetur, svip- að og undanfarin ár, upp á þijú námskeið í íslensku, sem Magnús Kristinsson sér um, auk landkynn- ingarfyrirlestra hans og annarra. Annað, sem er á döfínni hjá DIS í Stuttgart er t.d. að hljómsveitiin Megasuk, samsett af félögum úr Megas og Sukkat, heldur tónleika 20. nóvember. Páll Óskar verður ef til vill hér kvöldið eftir með tón- leika, Flóki Kristinsson, prestur íslendinga á meginlandinu, er væntanlegur í jólaguðsþjónustu 28. desember. Svo er lestur Wolfgang Schiffer úr bókinni Býr íslendingur hér - endurminningar Leifs Muller i samvinnu við námsflokkana í Stuttgart 23. janúar 1998 og Selló- konsert Gunnars Kvaran í tónlistar- háskólanum 19. febrúar. íslendingafélagið í Stuttgart stendur fyrir síðbúnu þorrablóti 7. mars í Stadthalle Marbach, en til þess koma árlega gestir úr öllu Suður-Þýskalandi og nágranna- löndunum, oftast 200-300 manns. Vanalega koma hljómsveitir og matreiðslumenn frá Islandi á þorra- blótin, sem eru lífleg og standa til morguns. Konunglega óperan og þjóðaróperan undir sama þak London. Reuters. BRESKI menningarmálaráð- herrann, Chris Smith, hefur til- kynnt Konunglegu óperunni og bresku þjóðaróperunni að þær verði að deila húsnæði í Covent Garden. Nú er unnið að endurbót- um á húsnæðinu sem talið er að muni kosta um 214 milljónir punda, um 25 milljarða ísl. kr., en þeim á að vera lokið árið 1999. Bæði óperufélögin hafa átt við mikla fjárhagsörðugleika að stríða og er þessi róttæka tillaga tilraun stjórnvalda til að leysa vandann. Hún hefur vakið litla hrifningu í Bretlandi. Menningarmálaráðherrann sagði stjórnvöld ekki lengur hafa efni á því að styrkja tvö óperu- hús í London. „Ef við höldum áfram að láta reka á reiðanum og bjarga málum fyrir horn frá einu ári til annars, kann að koma að því að við stöndum uppi án óperu," sagði Smith. Þá lagði hann til að báðar óperurnar færu oftar í sýningarferðir og ynnu betur en áður að því að mennta og uppfræða almenning um óperutónlist. „Ófleygt svín“ Bæði óperufélögin hafa safnað miklum skuldum þrátt fyrir ríf- lega styrki frá hinu opinbera, og greiðslur úr breska lottóinu. Hef- ur breska þjóðaróperan óskað eftir frekari fjárframlögum til að byggja nýtt óperuhús en stjórn- endur konunglegu óperunnar fengu á baukinn hjá menningar- málanefnd þingsins fyrir skemmstu fyrir óstjórn í peninga- málum. Dálkahöfundur í bresku blaði líkti væntanlegu sambýli sem samruna „óperu spjátrunganna" við „óperu fólksins". Talsmenn konunglegu óperunnar hafa sagt tillögu menningarmálaráðherr- ans „athyglisvert frumkvæði" en stjómendur þjóðaróperunnar hrylla sig við tilhugsunina, segja allt of mikla aðsókn að sýningum óperanna til að hægt væri að koma fjöldanum fyrir í einu húsi. Verði tillögur menningarmála- ráðherrans að veruleika, verði það til að fækka áhorfendum á óperusýningum um helming. Jeremy Isaacs, fyrrverandi stjómandi þjóðaróperunnar, seg- ir niðurstöðuna verða „ófleygt svín“ og að það sé algerlega óvið- unandi að Lundúnabúar eigi að sætta sig við eina óperu á sama tíma og þijú óperuhús væru í Berlín og fimm í París. í leiðara breska blaðsins The Times er hins vegar borið lof á Smith fyrir hugrekki, þar sem hann hafi tekið einn erfíðasta málaflokkinn sem heyri undir ráðuneyti sitt föstum tökum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.