Morgunblaðið - 05.11.1997, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.1997, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ DANÍEL Þ. Magnússon, Fáni. MEINLÆTI MYIVDLIST Ingólfstræti 8 HUGMYNDAVERK DANÍEL Þ. MAGNÚSSON Opið fímmtudaga-sunnudaga frá 14-18 Til 16. nóvember. Aðgangur ókeypis. DANIEL Þorkell Magnússon er helst þekktur fyrir vönduð smíðis- verk, sem ekki hafa nýtigildi, en höfða í fyrirferð sinni jafnt til sjón- skynjunarinnar og fagurfræðilegrar formlifunar. Þetta hafa menn lengi verið að fást við, eða allt frá því Vladimir Tatlin kom fram með sínar myndvísu lágmyndir 1914-15, og skóp byggingafræðilist þá er fékk stílheitið, Konstruktivismi, er blómstraði á árunum eftir heim- styrjöldina fyrri. Aðallega í Rúss- landi en einnig í Póllandi, Ungverja- landi og Tékkóslóvakíu. Á tímabili voru róttæk stflhvörfm opinber list- stefna rússnesku byltingarinnar, en var hafnað af Lenin og flestir frum- kvöðlarinir yfirgáfu landið. For- sendurnar voru sóttar í kúbismann, fútúrismann og teningsfútúris- mann. Frumkvöðlamir voru, auk Tatlins, Alexander Rodschenko, E1 Lissitsky og eftir 1917 bræðurnir Naum Gabo og Antoni Pevsner. Hér var gengið út frá hreinum fmmformum til fremdar nytsemis- hyggju, er kæmi húsagerðarlist, hönnun, prentlist, leikmyndagerð og tízku til góða og umbylti þjóðfé- lagsgerðinni. Hins vegar leitaði Kasimir Malevitsj að hámarks- skipulagi í „súprematísma“ sínum (úr latínu supremus: mest, hæst, ýtrast). Burt frá frásögn og táknsæi til hreinnar formskipunar, þar sem, form og fletir lytu eigin sjálf- sprottnum lögmálum. í vestrinu þróaðist á svipuðum tíma einnig fyrir áhrif frá kúbisma, hinn svo- nefndi neoplastisismi, sem var hlið- stæða súprematismans. Útgangs- punkturinn og meginveigurinn var algjörleikinn, form og litir sem ein samræmd heild, nokkurs konar opnar duldir, sjón- og myndræn stærðfræði. Frumkvöðlamir voru Piet Mondrian, Teo van Doesburg, Georges Vantongerlo og arkitekt- inn Gerrit Rietveld. Þyngdarpunkt- urinn í vestrinu lá einnig í hug- myndum Ungverjans Lazlo Moholy-Nagy og loks stofnun Bauhaus í Weimar 1919. Aukið þéttbýli og ný þjóðfélags- gerð þarfnaðist nýrra hugmynda um rýmisskurð á öllum sviðum og því var þessi þróun mjög eðlileg í sögulegu samhengi, listamenimir virkir í samtíð sinni og umhverfi. Myndlistarmenn ruddu þannig nýj- um hugmyndum braut í húsagerð- arlist og hönnun sem nú má vera meira en augljóst. Eins og fyrri daginn leita menn stöðugt aftur til uppmnans og þannig hefur mátt sjá ýmsar útgáf- ur núlista og listbylgjur sem undir nýjum formerkjum eru byggðar á þessum frumhugmyndum, en hvort gerendur gera sér Ijósa grein fyrir því er annað mál. Menn hverfa til grannhugmynda fortíðar í mótun nýrra gilda og það er Daníel Þorkell Magnússon að gera. Kemur skýr- legast fram í fánaforminu, sem er orðið að hreinni byggingarfræði, konstruktivisma. Bragi Ásgeirsson LISTIR Jökuldælingiir fer á kostum BOKMEIVIVTIR Æ v i m i n n i n g a r ÞAÐ VAR ROSALEGT SKÁLDIÐ OG SKÓGARBÓNDINN HÁKON AÐALSTEINSSON Sigurdór Sigurdórsson skráði. Hörpuútgáfan 1977, 216 bls. ANNAÐ slagið kemur nafnið Hákon Aðalsteinsson fyrir í fjöl- miðlum. Tilefnið kann að vera smellin vísa, eitthvað um hrein- dýraveiðar eða annað. Nafnið er orðið kunnugt víða um land og mann gmnar að á bak við það leynist býsna áhugaverð- ur náungi. Og nú þarf ekki lengur að velkjast í vafa. Ævisagan er komin út. Há- kon talar þar í fyrstu persónu, segir frá æsku sinni og uppvexti hjá góðum for- eldrum í stómm hópi systkina á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal eystra. Hann segir frá Jökuldal og Jökuldælingum, heiðum og öræfum. Víða kemur hann við. Margar bráðsmellnar sögur em látnar fjúka, enda mun Hákon vera frægur sögumaður. Varla verður annað sagt en Hákon Aðalsteinsson hafi lifað viðburðaríku lífi. Sveitamaður er hann og mikið náttúmbarn. En hann stundaði einnig sjó, var bif- reiðastjóri, lögregluþjónn, sjúkrabflstjóri, sjoppueigandi, hjálparsveitarmaður og nú síðast gegnir hann fjómm hlutverkum: skógarbóndi, bændagistingar- stjóri, tollgæslumaður og leið- sögumaður hreindýradrepara, meira að segja konunglegur. Góðkunningi Bakkusar gamla var hann um skeið og lærði margt af honum, þó að slitnað hafi upp úr vinskapnum fyrir löngu. Þrjár konur hefur hann átt og slatta af börnum. Það er aðeins eitt sem mér finnst á vanta. Hann hefur ekki verið hestamaður. En fyrir því hefur hann góðar og gildar ástæður eins og fram kemur á einum stað í bók hans. Þá er Hákon skáld gott. Tals- vert sýnishorn þess flytur bókin. Fyrir utan kveðskap sem með flýtur á víð og dreif af gefnum tilefnum, em um 70 síðustu blað- síðurnar vísur og kvæði. Af því að einhver vafi er látinn uppi um það í bókinni hvort hann sé held- ur hagyrðingur eða skáld er rétt að kveða hér upp úrskurðinn, enda þótt mörkin séu víst óljós. Tvímælalaust er Hákon bráð- snjall stökusmiður. Hann kann þá list að gera stökuna hnyttna, beinskeytta, beitta eða tvíræða eftir því sem við á og er það vissulega aðalsmerki stökunnar. Með bragarhætti leikur hann sér af listfengi. Ekki þarf um að fást þó að nokkuð oft sé fjallað um mannlíf neðan þindar, slíkt er af- ar íslenskt. Ekki vex honum í augum að bregða fyrir sig drótt- kvæðum hætti ef mikið þarf við að hafa. Til þess þarf mikinn hagleik ef vel á að fara. Gaman- bragir em honum lausir á tungu. Mörg era hér alvarleg ljóð, lýrísk með fallegum náttúralýs- ingum, hlý og djúp. Sé sá maður ekki skáld sem slíkt getur iðkað af smekkvísi og listfengi hlýtur skilgreiningin á skáldskap að hafa breyst meira í seinni tíð en góðu hófi gegnir. Ævisaga Hákonar Aðalsteins- sonar er skemmtileg bók. Hún ið- ar af lífsgleði, er bai-mafull af skrítnum sögum og makalausum uppákomum. Hún lýsir ókvalráð- um gleðimanni, kjarkmenni sem oft lifði djarft og gekk fram á ystu nöf. Erfiðu lífi oft á tíðum og miklum sviptivindum innra sem ytra. En þetta er líka að öðmm þræði alvarleg bók. Hákoni verð- ur oft hugsað um hin dýpri rök tilvemnnar og hefur þar margt gott að segja af langri lífsreynslu. Hann er mikill trúmaður, mjög mikill, mætti segja. Hann hefur haldið sinni barnatrú á Guð föður almáttugan og eilíft líf. Síðan hef- ur líklega bæst við trúin á endur- holdgun og þjóðtrúin slegist í hópinn. Hann á sér ættarfylgju, skottu að nafni Oddrúnu, sem meira að segja drap eitt sinn hrút á undan komu hans. Þá er hann hér um bil skyggn. Framliðnir farþegar hafa setið í bfl hans og þó að hann hafi ekki séð þá hefur hann fundið lyktina af þeim. Ekki er þess síst að geta að sjálfur Lagarfljótsormurinn á lögheimili á býh hans, Húsum. Það var býsna gaman að fá að kynnast Hákoni Aðalsteinssyni í þessari bók. Vil ég þakka honum þá ánægjulegu kvöldstund sem þær samvistir veittu. Sigurjón Björnsson Hákon Sigurdór Aðalsteinsson Sigurdórsson BÆKUR T r il m á I TERESA Sönn ástarsaga eftir Kjell Arild Pollestad. Þýðandi; Þorkell Örn Óla- son. Utgefandi: Karmel, Hafnarfírði. Stærð: 176 blaðsiður, innbundin. Kærleikur trúarinnar TERESA frá Lisieux var dóttir guðhræddra hjóna í Normandí í Frakklandi og ólst upp í kaþólskri guðrækni. Aðeins fimm dætur af níu systkinum komust til manns. Fjórar þeirra urðu nunnur. Líf fjölskyldunnar mótaðist af nei- kvæðri afstöðu til jarðlífsins. Ter- esa varð fljótt guðhrætt bam. Það var henni mikið áfall að missa móð- ur sína aðeins fjögurra ára gömul en það var eins og veröldin brysti fyrir henni þegar eldri systir henn- ar, sem átti trúnað hennar, gekk í klaustur. Svo virtist sem hún yrði hálf sálsjúk á eftir. En þegar heilög guðsmóðir birtist henni, brosandi, fógur og lýsandi af gæsku og ástúð, fékk hún bót meina sinna. Hún gaf Jesú Kristi líf sitt í fyrstu altaris- göngu sinni þegar hún var 11 ára. „Þennan dag var ekki lengur um augnatillit að ræða, heldur sam- rana,“ (bls. 46). Um svipað leyti finnur hún fyrir djúpri löngun til að þjást og elska þjáninguna, elska aðeins Guð og „finna gleði í honum einum,“ (bls. 47). Hún þráði að bjarga sálum stórsyndara úr eihfum logum. Síðar segir hún: „Mig þyrstir eftir að þjást og gleymast," (bls. 97). Svo virðist sem í umhverfi Teresu hafi það verið talið auka líkumar á hjálp- ræði að fá að þjást. Teresa var aðeins 15 ára er hún gekk í klaustur. Klausturvist- in var henni eins konar píslarvætti þar sem hún varð að beygja sig undir strangar reglur daglegs hfs. Hún bað eitt sinn: „Svo að ég megi lifa og starfa í fullkomnum kærleika, fóma ég sjálfri mér sem brenni- fórn fyrir miskunnsaman kærleika þinn, og bið þig að eyða mér stöðugt... svo að ég megi verða píslarvottur vegna kærleika þíns, þú Guð minn... Megi þetta píslarvætti leiða mig til dauða þegar ég er reiðubúin," (bls. 142). Teresa fékk berkla í klaustrinu sem drógu hana til dauða er hún var aðeins 24 ára að aldri. Þó náði hún að rita sjálfsævisögu sína sem var í raun langt bréf til eldri systur hennar. Það ber vott um óvenjumikið and- legt innsæi. Bókin Teresa, sönn ástarsaga, kemur út í tilefni þess að 100 ár eru frá dauða stúlkunnar. Höfund- ur leitast við láta textann, rit um Teresu, vera sem mest áberandi, gerir lítið af því að túlka sögu hennar og orð. Hann segir að Karmelsystur kunni hundruð frá- sagna af kraftaverkum sem orðið Kjell Arild Pollestad hafi fyrir fyrirbæn hennar (Morg- unblaðinu 22. okt.). Hún var tekin í tölu dýrlinga árið 1925 af Píusi 11. páfa. Hin þekkta móðir Teresa tók nafn sitt eftir Teresu frá Lis- ieux. Kærleikur trúarinnar birtist í umhyggju fyrir þeim sem engir kærðu sig um. Hún hefur sýnt umheiminum hvað kristinn kær- leikur er. Bókin andar af neikvæðum hug til jarðlífsins og löngun til að vinna sér inn eilíft líf með hjálp Guðs. Teresa líkist mörgum „mystiker- um“ kirkjusögunnar og virðist vera í stöðugri leit að upplifunum í bænalífi sínu og andlegum iðkun- um. Lík fyrirbrigði er að finna í mörgum söfnuðum mótmælenda samtímans, m.a. á Islandi. Þessir tveir þættir em það öfgakenndir að boðskapur bókarinnar féll mér ekki í geð. Hins vegar kemur Ter- esa mér fyrir sjónir sem mjög ein- læg og heilshugar manneskja. Verst að hún skyldi fæðast inn í það umhverfi sem hún hafnaði í. Höfundurinn, séra Kjell Arild Pollestad, prestur í reglu Dóminík- ana í Noregi, er þekktur í heima- landi sínu. Hann er afkastamikill rithöfundur sem skrifar bæði bæk- ur og greinar í blöð. Málið á bókinni er ágætt og káp- an nýtískuleg og smekkleg. Kjartan Jónsson Nýjar bækur • KÓNGSDÓTTIRIN og grísinn er önnur bókin í bókaflokknum Sögur úr höllinni eftir þau Heather Amery og Stephen Cartwright, en þau em m.a. þekkt hér á landi fyrir hinar vin- sælu Sögm' úr sveitinni. Bókin er sérstaklega skrifuð fyrir byrjendur í lestri. I teikningunum er lögð áhersla á kátínu og spennu sögunnar. Bókin er 20 bls. og leiðbeinandi útsöluverð er kr. 780. • 5 MÍNÚTNA kisusögur fyrir háttinn er fyrir þau yngstu og einnig þau sem eru byrjuð að stauta sjálf. í bókinni er að finna á annað hundrað sögur um kettlinga við ýmsar aðstæður sem börnin þekkja úr daglega lífinu. Sögumar prýða stórar og litríkar myndir. Bókin er 120 bls. í stóru broti. Leiðbeinandi verð er 1.480 kr. • FRANKLÍN eignast nýjan vin fjallar um skjaldbökuna Franklín og vini hans. Sögurnar um þá njóta vinsælda víða en hafa ekki komið út á Islandi fyrr. I þessari bók segir frá því þegar nýr nemandi kemur í skólann og hann er dálítið ógnvekj- andi því hann er risavaxinn. Bókin er 36 bls. og leiðbeinundi verð er kr. 980. Utgefandi bókanna er Skjald- borg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.