Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 32

Morgunblaðið - 05.11.1997, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Framhaldsnám nemenda með sérþarfir - hverra er ábyrgðin? EFTIR flutning grunnskólans til sveit- arfélaganna er nú svo komið að enginn virðist lengur bera ábyrgð á því að veita öllum nem- endum Oskjuhlíðar- skóla námstilboð að loknu námi þeirra í 10. bekk. Fyrir flutninginn höfðu svokallaðar starfsdeildir fyrir 16-18 ára nemendur verið starfræktar við Öskjuhlíðarskóla í yfir 20 ár. Nær undantekn- ingalaust hafa nem- EmarHolm endur 10. bekkja Olafsson Öskjuhlíðarskóla stundað nám í starfsdeiidum skólans að loknu skólans framhaldsnám að lokinni skólaskyldu. Við þeirri ákvörðun er ekkert að segja enda segir í 19. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996: „Á framhaldsskóla- stigi skal veita fötluð- um nemendum sam- kvæmt skilgreiningu á hugtakinu fatlaður í 2. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, kennslu og sérstakan stuðning í námi.“ Þetta ákvæði laganna ætti í sjálfu sér að vera fagn- aðarefni öllum þeim skyldunámi og aldrei hefur til þess komið að þeim hafi verið synjað um skólavist hver svo sem námsleg staða eða fötlun þeirra hefur verið. í kjölfar umfjöllunar Jóhanns Hlíðar, í Dægurmálaútvarpi Rásar 2 fimmtudaginn 15. október, um málefni tveggja fyrrverandi nem- enda Öskjuhlíðarskóla sem fengu synjun við umsóknum sínum um nám á svonefndri „þroskabraut" Borgarholtsskóla, þykir mér rétt að eftirfarandi atriði komi fram. Við flutning Öskjuhlíðarskóla frá ríkinu til Reykjavíkurborgar var stjórnendum skólans gerð grein fyr- ir því að rekstur starfsdeildanna myndi leggjast af og framhaldsskól- um yrði falið að tryggja nemendum sem gera sér grein fyrir nauðsyn þess að þroskaheft og fjölfötluð ungmenni fái sem allra best skil- yrði, kennslu og þjálfun, til að þeim auðnist að ná sem mestri færni. Afar mikilvægt atriði er að í 15. gr. sömu laga segir: „Inntaka nemenda í framhalds- skóla er á ábyrgð skólameistara." Þessi málsgrein laganna virðist taka af allan vafa um hver hefur ákvörð- unarréttinn við inntöku nemenda í framhaldsskóla. Það er framhalds- skólinn sjálfur auk þess sem hann virðist hafa ákvörðunarvaldið um uppbyggingu og útfærslu námstil- boða og sérúrræða fyrir nemendur sem ekki geta nýtt sér hið hefð- bundna nám framhaldsskólanna. í viðtali Jóhanns við Eygló Eyjólfsdóttur skólameistara Borg- Það er sjálfsögð krafa á hendur yfirmönnum menntamáia, segir Ein- ar Hólm Olafsson, að öllum nemendum sé tryggt öruggt nám á framhaldsskólastigi. arholtsskóla kveðst hún hafa fengið ábendingar frá Öskjuhlíðarskóla um það hvaða nemendur, af þeim tíu sem sóttu um viðkomandi námsbraut, hefðu mesta möguleika á að nýta sér það nám sem þar væri í boði. Við þetta orðalag skólameistara Borgarholtsskóla vil ég gera at- hugasemdir en rök með sambæri- legu orðalagi komu einnig fram í svarbréfi Borgarholtsskóla (dags. 13. júní) þar sem umsókn um skóla- vist var synjað. Markmiðssetning og skipulag námstilboða fyrir nemendur Öskju- hlíðarskóla krefst mikillar vinnu kennara. Sú vinna felst ekki hvað minnst í greiningu og mati á stöðu og möguleikum hvers og eins nem- anda til að tileinka sér nýja þekkingu og fæmi. í þeirri vinnu verður til mikið safn upplýsinga. Starfsmenn „þroskabrautar“ Borgarholtsskóla höfðu á síðastliðnu vori aðgang að þessum upplýsingum varðandi nem- endur 10. bekkjar Öskjuhlíðarskóla ásamt því sem þeir komu og voru viðstaddir kennslu í viðkomandi bekk. Öllum má ljóst vera að aðgang- ur að slíkum heimildum og umijöllun um stöðu og námslegar þarfír við- komandi nemenda segi þeim, sem athuga þessa þætti af alvöru, nokkuð afgerandi til um möguleika einstakra nemenda til náms. Mjög erfítt er að líta framhjá orðalagi Eyglóar, skólameistara Borgarholtsskól.a en með því vísar hún ábyrgð á inntöku nemenda í skóla sinn að hiuta til yfir á Öskju- hlíðarskóla. Vart er hægt að skilja orð skóla- meistara Borgarholtsskóla nema á þann veg að umræddar upplýsingar hafi verið ábendingar Öskjuhlíðar- skóla um hvaða nemendum skyldi synja um skólavist. Því virðist nauð- synlegt að ítreka að upplýsingar um námslega stöðu og færni nemenda í viðkomandi bekkjardeild voru veittar starfsmönnum Borgarholts- skóla í þeirri trú að á þeim ætti að byggja áætlanir og útfærslu náms- tilboða fyrir viðkomandi nemendur. Öll tilsvör foreldra viðkomandi drengja í umfjöllun um synjun Borgarholtsskóla á skólavist fyrir drengina, bera vott um þekkingu þeirra á vinnubrögðum starfs- manna Öskjuhlíðarskóla. Skýrt hef- ur komið fram hve vel þessir for- eldrar eru meðvitaðir um gildi upp- lýsingastreymis milli skóla þegar um er að ræða uppbyggingu ein- staklingsáætlana og námstilboða fyrir nemendur með miklar sérþarf- ir. Þessi skilningur Jóns Snorrason- ar föður annars drengsins kom mjög greinilega í ljós í fyrrgreind- um þætti. í viðtalinu við hann kem- ur einnig fram að gildi hins greiða upplýsingastreymis milli skólanna hafi þó e.t.v. í tilviki sonar hans snúist upp í andhverfu sína þar sem drengnum var neitað um skólavist. Ekki virðist lengur hægt að treysta því að nemendur Öslq'uhlíð- arskóla fái „sjálfsagða" samfellda skólagöngu til 18 ára aldurs sem byggist á námstilboðum sem sniðin eru að þörfum hvers og eins nem- anda hver svo sem fötlun viðkom- andi einstaklings kann að vera.. Reynslan sýnir því að stjómendur Öskjuhlíðarskóla þurfa að ígmnda vandlega þá ábyrgð sem felst i því að veita væntanlegum viðtökuskól- um (framhaldsskólum) nauðsynleg- ar upplýsingar um stöðu nemenda í námi og um alhliða færni þeirra. Starfsmenn Öskjuhlíðarskóla sjá jafnvel þann kost vænstan að neita hér eftir að veita slíkar upplýsingar fyrr en formleg inntaka nemenda hefur átt sér stað í viðkomandi framhaldsskóla. Ástæðan er sú að nemendahópurinn sem hér um ræð- ir hefur afar litla möguleika, fötlun- ar sinnar vegna, til að „keppa“ um inngöngu í fyrirfram afmörkuð námstilboð framhaldsskóla á grunni hæfni einstakra nemenda til náms. Námstilboðin verða að byggjast upp út frá þeirra þörfum. Af þessari grundvallarástæðu er nauðsynlegt að möguleikar þessara nemenda til framhaldsnáms séu tryggðir af yfir- sýn og festu. Næstkomandi vor munu 11 nem- endur útskrifast úr 10. bekk Öskju- hlíðarskóla. Það hlýtur að vera sjálf- sögð krafa til yfírmanna mennta- mála í þessu landi að öllum nemend- um okkar verði tryggð góð og örugg námstilboð á framhaldsskólastiginu þannig að þeir geti litið til áfram- haldandi skólagöngu sinnar með reisn og tilhlökkun að loknu námi í grunnskóla. Höfundur er skólastjóri Öskjuhlíðarskóla. Sjálfstæðisflokkur- inn óttast samfylk- ingu vinstri manna HUGMYNDIR um samfylkingu vinstri manna hafa verið mik- ið til umræðu síðastlið- ið ár og nú eru þær farnar að hafa áhrif á umræðu innan ríkis- stjómarflokkanna. Morgunblaðið tekur málið fyrir í leiðara sunnudaginn 26. októ- ber sl. og daginn eftir er mikið viðtal við for- mann Sjálfstæðis- flokksins í Degi þar sem vikið er að sam- fylkingu vinstri manna. Þá viku for- menn beggja stjómar- flokkanna að málinu á blaða- mannafundi sem þeir efndu til í miðri þeirri viku um störf ríkis- stjómarinnar. Viðbrögðin eru athyglisverð. Morgunblaðinu og Davíð Oddssyni ber ekki saman í gmndvallaratrið- um. Morgunblaðið telur að söguleg- ar forsendur fyrir sundrungu vinstri manna séu ekki lengur fyrir hendi og að sameining myndi skýra og einfalda línurnar í íslenskum stjómmálum, en formaður Sjálf- stæðisflokksins lætur hafa eftir sér í Degi: „Mér fínnst ósvífni að halda því fram að þessir fiokkar eigi að sameinast af því þar ríki enginn málefnaágreiningur. Ég sé ekki eitt einasta mál sem þeir em sam- mála um.“ Báðir kjósa reyndar að tala um sameiningpi A-flokkanna, sem ekki /4r til umræðu nú, heldur hvort flokkarnir eigi að taka upp náið samstarf á grundvelli sameigin- legrar málefnayfírlýsingar sem yrði undirstaða ríkisstjórnarsamstarfs milli þeirra. Flokkarnir fylktu liðs- mönnum sínum á bak við málefna- yfírlýsinguna. Síðan verður það metið hvort þeir bjóði fram hvor fyrir sig eða sameiginlega, en sam- eining flokkanna er ekki á döfínni. Því er hins vegar ekki að leyna að samfylkingin gæti leitt til þess síðar að flokkamir rynnu saman, en því getur enginn svarað nú hvort svo fer, reynslan af samfylkingunni mun skera úr um það. En þessi mismun- andi túlkun Morgun- blaðsins og formanns Sjálfstæðisflokksins opinberar að það er greinilega verulegur ágreiningur innan Sjálfstæðisflokksins um það hvernig beri að mæta hugmyndum um samfylkingu vinstri manna. Samfylking vinstri manna gæti orðið öflugasta stjórnmála- aflið, segir Kristinn H. Gunnarsson, og skákað Sjálfstæðisflokknum til hliðar sem ráðandi flokki. Davíð Oddsson er greinilega mikið í mun að sannfæra þjóðina um að samfylking geti ekki gengið. Það skýrist frekar þegar lengra er hald- ið í viðtalinu í Degi, en þar segir Davíð: „Ég hef enga trú á því að slíkur listi yrði talinn hæfur kostur í stjórnarsamstarfi, hvorki hjá Sjálfstæðisflokki eða Framsóknar- flokki. Ég held að hann muni dæma Kristinn H. Gunnarsson sig í útlegð og harma það svo sem ekki.“ Þessi yfirlýsing forsætisráðherr- ans sætir verulegum tíðindum. Hann leggur það á sig að hafna samstarfi við samfylkingu vinstri manna í einum framboðslista. Það gerir hann áður en hann veit mál- efnagrundvöll samfylkingarinnar, honum er greinilega mikið í mun að kæfa hugmyndina í fæðingu. En enn athyglisverðara er að for- maður Sjálfstæðisflokksins lýsir því yfír fyrir hönd Framsóknarflokks- ins að sá flokkur muni hafna sam- starfi við samfylkinguna. Ég er alveg viss um að það gerir Davíð Oddsson ekki upp á sitt eindæmi heldur hlýtur hann að styðjast við álit forystumanna Framsóknar- flokksins, a.m.k. formannsins. Af þessu leiðir að boðað er að Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsóknar- flokkurinn muni sameinast um það að dæma sameiginlegt framboð A-flokkanna í útlegð. Spytja má hvers vegna. Benda má á að Morg- unblaðið telur að samfylkingin verði Sjálfstæðisflokknum til góðs, þar sem eitthvað af fylgi Alþýðu- flokksins muni leita yfír á Sjálf- stæðisflokkinn. Davíð Oddsson er greinilega annarrar skoðunar og metur samfylkinguna skeinuhætta Sjálfstæðisflokknum og sendir Al- þýðuflokknum þau skilaboð að samstarf við Alþýðubandalagið jafngildi útlegð flokksins í íslensk- um_ stjórnmálum. Ástæðan fyrir þessum hörðu viðbrögðum er augljós. Samfylk- ing vinstri manna gæti orðið öflug- asta stjórnmálaaflið og skákað Sjálfstæðisflokknum til hliðar sem ráðandi flokki. Davíð gerir sér grein fyrir þessu og bíður ekki boðanna og leggur til atlögu gegn tilrauninni. Tökum eftir því að framundan eru mikilvægir fundir bæði hjá Alþýðuflokknum og Al- þýðubandalaginu, tímasetningin er engin tilviljun. Viðbrögð Davíðs staðfesta á hinn bóginn að sam- fylkingarhugmyndin er raunhæf leið til þess að knýja fram grund- vallarbreytingar í íslenskum stjórnmálum. Höfundur er þingmaður Alþýðubandalags. A þetta engan endiað taka? ÞAÐ ÆTLAR að reynast kirkjunni tor- sótt að viðhalda virð- ingu, festu og friði. Nú síðast hefur biskupinn tilkynnt að biskups- vígsla fari ekki fram í kirkju biskupsins, Dómkirkjunni í Reykja- vík, heldur Hallgríms- kirkju. Morgunblaðið upplýsir eftir biskups- ritara að hér hafi „rým- ið ráðið mestu“. Bisk- upinn skýrði þetta nán- ar í útvarpsviðtali og sagði þetta líka vera vegna skorts á fata- hengi í Dómkirkjunni. Það er vonum seinna á 200 ára afmæli Dómkirkjunnar að þessi ska- vanki á hönnun kirkjunnar komi í ljós. Hitt er verra að þessi ágalli er ekki bundinn við okkar hógværu Dómkirkju. Þannig minnist ég þess ekki að hafa séð fatahengi í Péturs- kirkjunni í Róm, dómkirkjunni í Flór- ens eða Köln né Pálskirkjunni í London, svo fáeinar af höfuðkirkjum álfunnar séu nefndar. Ég áfellist engan fyrir að vilja skipta um dómkirkju. Fyrir því kunna að vera rök. En það á ekki að gerast út af fatahengi og það á ekki að gera það í leyni. Slíkt hlýtur að vera vel ígrunduð ákvörðun og studd sæmilegum rökum. Það er fátt um sögulegar bygging- ar hér á landi og hefðirnar eiga sér fæstar djúpar rætur. Dómkirkjan í Reykjavík er drjúgur hluti sögunnar og hefðirnar sem hún hefur skapað eru akkeri í rótleysi tímans. Saga Dómkirkjunnar er samofín sögu þéttbýlis í Reykjavík og óijúfanlega tengd framfarasókn Íslendinga síð- ustu 200 árin. Hún er ekki stór en rúmar þó marga, látlaus en rík af einföldum glæsileika, þrungin minn- ingum um sorg og gleði í lífi einstakl- inga og þjóðar, táknmynd hógværð- ar sem fer íslensku þjóðkirkjunni vel. í þessu felst ríkidæmi hennar og móti því sé ég ekkert það vega sem réttlætir umræðu um að af- leggja hana sem dóm- kirkju í Reykjavík. Það sem gerir kirkju að dómkirkju er ekki stærðin eða fatahengin. Það er ákvörðun. Sú ákvörðun að þar sé kirkja biskupsins og þar fari fram helstu kirkju- legar athafnir sem hann stýrir. Þar vígir hann presta og þar taka biskupar við vígslu. Ég sé því ekki hvemig hægt er að flytja þetta höfuðhlutverk dóm- kirkju yfír í aðrar kirkj- ur eftir því sem vindar blása hveiju sinni. Kirkjan er hluti sögunnar, byggir á hefðinni og boðar frið. Ekkert af þessu mælir með breytingum á stöðu Dómkirkjunnar í Reykjavík. Sé hins Ég minnist þess ekki, segir Þórarinn V. Þórarinsson, að hafa séð fatahengi í Péturskirkjunni í Róm, dómkirkjunum í Flórens eða Köln né Pálskirkj- unni í London. vegar vilji til þess að svipta hana stöðu sinni og hlutverki á að nálg- ast það umbúðalaust svo um það geti farið fram umræða meðal þjóð- arinnar og innan þjóðkirkjunnar áður en ákvörðun er tekin. Meðan það er ekki gert á biskupinn að sinna kirkjulegri skyldu sinni og vígja eft- irmann sinn til embættis í kirkju biskups, Dómkirkjunni í Reykjavík sem þjónað hefur því hlutverki vel í full 200 ár. Höfundur er framkvæmdastjóri VSÍ. Þórarinn V. Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.