Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Ekkí er allt rnill sem glóir í NÝÚTKOMNU upplýsingariti um starf og stefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er meðal annars fjallað um árangur stjórnvalda í stjóm fiskveiða. Kjami þessarar um- fjöllunar er að stjórn fiskveiða hafi skilað sér í almennri kaupmáttar- aukningu að undan- förnu. I upplýsingarit- inu segir: „íslenskur sjávarútvegur hefur fengið að þróast á grundvelli markaðslög- mála. Rekstrarárangur greinarinnar hefur í heild batnað, þrátt fyrir þann mikla niðurskurð sem nauðsynlegt var að grípa til, meðal annars í þorskveiðum. Ljóst er að sú jákvæða kaupmáttarþróun sem íslendingar hafa notið á síðustu misserum hefði ekki orðið án fram- leiðniaukningar í sjávarútvegi. Frá því að aflaheimildir urðu framseljan- legar árið 1990 og til ársins 1993, jókst framleiðni í fiskveiðum um meira en 60%, mælt sem aflaverð- mæti á hveija flotaeiningu." Samhliða textanum birtist í upplýsingariti ríkisstjórnarinnar meðfylgjandi mynd sem sýnir hagkvæmni fiskveiða í nokkrum löndum. En hagkvæmnin er mæld sem aflaverðmæti á flotaeiningu og glögglega kemur fram að íslenskur sjáv- arútvegur ber af í sam- anburði við sjávarútveg annarra landa. Þessi mynd byggir á rann- sóknum Ragnars Árna- sonar, prófessors í fiski- hagfræði við Háskóla íslands og hefur verið kynnt víðar til að sýna fram á hagkvæmni sem kvótakerfi með fram- seljanlegum veiðiheim- ildum hefur áorkað. Myndin sýnir að afla- verðmæti á Islandi árið 1990 var liðlega 5 þúsund banda- ríkjadalir á hveija flotaeiningu fiskiskipaflotans og var þá svipað Yísbendingar eru til þeirrar áttar, segir Benedikt Valsson, að framleiðnin í fiskveiðum hafí ekki aukist. og í Grænlandi og á Nýja Sjá- landi. Aflaverðmæti á flotaein- ingu á íslandi er orðin liðlega 8 þúsund bandaríkjadalir árið 1993 Benedikt Valsson Tafla 1 Afla- Afla- Ár verðmæti verðmæti M.kr. '000 USD (1) (2) 1990 45.954 789.181 1991 49.919 845.512 1992 47.577 827.138 1993 50.455 744.833 1994 51.151 732.508 1995 53.147 821.564 1996 55.395 833.008 Stærð Afla- fiski verðmæti Meðal- skipa- á gengi flotans flotaein. IKR/USD BRL. USD (3) (4) (2)/(4) 58,23 120.274 6.562 59,04 120.716 7.004 57,52 121.014 6.835 67,74 120.814 6.165 69,83 121.508 6.028 64,69 122.386 6.713 66,50 126.965 6.561 Byggt á heimildum Fiskifélags Islands, Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka islands. Hagkvæmni fiskveiða í nokkrum löndum. Aflaverðmæti á flotaeiningu Bretland ‘90 1 Noregur '90 1 Kanada '90 1 1 Þús und ir b. and. 3- Bandaríkin '90 1 . . '1' ríkjadala á hverja Faereyjar '93 N-Sjáland '93/4 Holland '93/4 ísland '90 fsland '93 Grænland '93 1 bruttor umlest 1 zn 1 i -7-| - I' |' 0123456789 Rannsókn Ragnars Árnasonar prófessors, kynnt í mars 1997. Mynd úr „Áfangar á réttri leið“. sem leiðir af sér um 60% aukn- ingu eða fram- leiðniaukningu eins og segir í tilvitnuðum texta. Full ástæða er til að kanna málið nánar til að fá staðfestingu á þeim mikla framleiðniauka í sjávarútvegi sem ríkisstjórnin ber á borð fyrir almenning í landinu. í töflu 1, sem ég hef tekið saman, eru til- greindar þær stærðir sem liggja til grundvallar þeim hagkvæmnivísitölum sem leiða af sér umrædda framleiðniaukningu í fiskveiðum. Til að kanna málið enn nánar eru ekki aðeins árin 1990 og 1993 skoðuð heldur allt tímabilið 1990-1996 tekið til athugunar. Við þessa athugun var ekki tekið með í reikninginn aflaverðmæti og stærð flotans sem flokkast undir opna báta, enda gildir einu um niðurstöðu athugunarinnar hvort þessi báta- flokkur svo og vélbátar 0-10 brúttó- rúmlestir að stærð voru teknir með í útreikningana. SJÁ TÖFLU 1. Samkvæmt töflu 1 var aflaverð- mæti á hveija flotaeiningu (brúttó- rúmlestir) í íslenskum sjávarútvegi á bilinu sex til sjö þúsund banda- ríkjadalir árin 1990-1996 og sýnir TENGSL þeirra eru ekki augljós. Fiskveiðar og -vinnsla eru helsti atvinnuvegur þjóðar- innar og hefur gert okkur kleift að byggja upp það velferðarþjóð- félag sem við búum við. Læknirinn og læknis- þjónustan eru svo ásamt kennaranum og skóla- kerfínu homsteinar vel- ferðarkerfisins. Hversu lítið sem samfélag er, bæjar- eða borgarsam- félag, þá þrífst það ekki ef það vanrækir þessa grunnþætti sina. Fiskveiðar eru skilj- anlega ofarlega í allri þjóðmálaum- ræðu og fiskveiðistjómun eilíft þrætuepli. Skemmst er að minnast kvótamálsins frá síðustu vikum þeg- ar athafnamenn að norðan hugðust kaupa kvóta Suðurnesjamanna af banka allra lands- manna. Úr varð mikið mál sem glumdi í öllum fréttatímum og allt inn í þingsali þ.s. þingmenn landsbyggðarinnar risu upp á afturlappimar. Á sama tíma birtist stutt grein frá Höfn í Horna- firði þ.s. greinarhöf- undur lýsti yfir áhyggj- um sínum varðandi skort á læknum bæði á Höfn en ekki síst á Austurlandi þ.s. ástandið er víða mun verra. Greinarhöfundur vill reyndar draga kjaranefnd til ábyrgðar vegna seinagangs í úrskurði þeirra um kjaramál heilsugæslulækna. Greinin vakti aftur á móti athygli mína vegna umijöllunar höfundar um áhrif læknaskorts á allt atvinnu- og mannlíf. Áhrifin eru augljós, fólk Tilgangur þessarar greinar er sá, segir Helgi Hafsteinn Helgason, að vekja at- hygli á málinu og koma af stað umræðum. flyst í burtu þar sem það lætur ekki bjóða sér lengur það óöryggi sem læknisleysi veldur. Nú þegar vetur gengur í garð og samgöngur verða ótryggari verður þessi flutningur fólks meira áberandi. Samfélag án læknis lifir ekki til lengdar. Ég undr- ast hversu lágt þetta vandamál hef- ur farið í ijölmiðlum en þá sérstak- lega hversu lítið hefur heyrst frá þingmönnum þessa fólks, lands- byggðarþingmönnunum, en þeir virðast alveg firrtir allri ábyrgð og áhuga á stöðu þessara mála. Undan- skilin er þó utandagskrárumræða stjórnarandstöðunnar á Alþingi fyrir tveim vikum um stöðu heilbrigðis- mála almennt. Sú umræða var aftur á móti brennimerkt því að vera á móti, gagnrýni án þess að vera nægjanlega málefnaleg né vel und- irbúin. Vandamálið er hins vegar þverpólitískt og ekki á valdi stjórn- arinnar einnar að finna lausn á og enn síður stjórnarandstöðunnar. Tilgangur þessarar greinar er ekki að hefja hræðsluáróður eða fínna sökudólga heldur að vekja athygli á vandamálinu og koma af stað umræð- um því án þeirra fínnast engar lausn- ir. Heilbrigðisráðuneytið verður að bijóta odd af oflæti sínu og kveðja fleiri lækna að lausn þessara mála og læknar verða að sína þá ábyrgð að láta tilleiðast. Það er tómt mál að ræða kvóta og fiskveiðar á lands- byggðinni þegar frumþjónustu vantar. Höfundur er formaður Félags ungra lækna. Fiskveiðar og læknisþjónusta Helgi Hafsteinn Helgason Tafla 2 Magn- Magn- Fram- vísitala vísitala leiðni afla- fiski- fisk- Ár verðmætis skipa veiða (1) (2) (l)/(2) 1990 100,0 100,0 100,0 1991 95,4 98,3 97,0 1992 92,5 101,8 ' 90,9 1993 95,0 98,7 96,3 1994 94,4 97,3 97,0 1995 93,8 94,9 98,9 (1) : Miðað við meðalverð útflutnings sjávarafurða. (2) : Miðað við fjármunaeign í fiskiskipum. Byggt á Atvinnuvegaskýrslu nr. 54 (bls. 236). Þjóðhagsstofnun, 1997. þar með töluvert frávik frá tölum upplýsingarits ríkisstjórnarinnar. Við greiningu talna í töflu 1 kem- ur ekkert fram sem kemst í nám- unda við 60% framleiðniaukningu fiskveiða á tilgreindu tímabili. Aftur á móti gefa tölurnar til kynna að samdráttur í framleiðni hafí átt sér stað eða um 6% frá 1990 til 1993. Taflan gefur jafnframt til kynna að enginn aukning í framleiðni fisk- veiða hafi orðið frá þeim tíma er veiðiheimildir urðu almennt fram- seljanlegar. Tölur Þjóðhagsstofnunar ber að sama brunni samkvæmt töflu 2, en þar kemur einnig fram samdráttur í framleiðni fiskveiða á tímabilinu 1990-1995.________________ SJÁTÖFLU2 Það skal tekið skýrt fram að fram- angreind mæling í breytingu fram- leiðni fiskveiða er nálgun, þar sem stuðst er við framleiðsluvirði (afla- verðmæti) en ekki virðisauka sem sýnir betur hina eiginlegu breytingu í framleiðslumagni. Þrátt fyrir þetta ættu framangreindar mælingar að falla innan þolanlegra skekkju- marka, þar sem gengið er út frá því að framleiðsla og framleiðsiuvirði á föstu verðlagi hafí þróast í takt á því stutta tímabili sem athugunin nær yfír. Einnig ber að taka fram að til álita kemur að mæla fram- leiðni vinnuafls og heildarframleiðni framleiðsluþátta fiskveiða. En slíku er ekki til að dreifa hér og þess vegna er einungis fjallað um fram- leiðni mælda sem aflaverðmæti á hveija flotaeiningu eins og áðurnefnt upplýsingarit býður upp á. Niðurstöður þeirra athugana sem hér hafa verið leiddar í Ijós styðja á enga hátt þá staðhæfíngu að fijálst framsal veiðiheimilda hafí skilað þeim árangri eins og getið er í umræddu uppiýsingariti. Þvert á móti, benda vísbendingar til þess að framleiðnin í fiskveiðum hafi dregist saman, þeg- ar mælikvarðinn aflaverðmæti á hveija flotaeiningu er notaður. Ég læt lesendum eftir að draga sínar eigin ályktanir af því efni sem hér hefur verið greint frá. Höfundur er framkvæmdasljóri Farmanna- og fiskimannasambands Islands. Meðal annarra orða * Atakanlegt hatur Hvaðan kemur slíkt hatur? Njörður P. Njarðvík skrífar að fyrr eða síðar muni írland sameinast. STUNDUM getur persónuleg örlaga- saga einstaklinga sýnt okkur betur átakanleika þjóðfélagsvandamála en almenn eða fræðileg umfjöllun. Svo er til dæmis um hin skelfílegu átök á Norður- írlandi. Frá árinu 1969 hafa 3.220 manns látist í deilum kaþólskra og mótmælenda, í deilum þeirra sem vilja sameinað írland og hinna sem vilja vera áfram hluti breska kon- ungdæmisins. En slík tala er ópersónuleg og segir okkur harla lítið. Aftur á móti gerðist þar í smábæ í sumar dálítið atvik, sem skipt- ir kannski ekki sköpum fyrir lausn þessarar illvígu deilu, en sýnir hins vegar hversu hatrömm sú deila er orðin. Og vekur jafn- framt þá spurningu hvort nokkurn tíma verði unnt að ná sáttum þeirra andstæðinga sem skirrast ekki við að fremja hrein níðingsverk í nafni þess sem þeir kalla réttlátan málstað sinn. Kannski ætti að kalla þau Rómeó og Júl- íu, en nöfn þeirra eru Gordon Green, 19 ára mótmælandi, og Bemadette Martin, 18 ára kaþólsk stúlka. Heimkynni þeirra smábærinn Ghalee. Sakleysi hennar var þvílíkt að hún spurði föður sinn eitt sinn hvort félagar í IRA væru kaþólskir eða mótmælendur. Þau unnu hjá fyrirtækinu Avondale Foods, þar sem Bernadette smurði samlokur og Gordon þurrkaði ávexti. Þessi vinnustaður var líkt og vin í eyðimörk átaka, þarna vann fólk úr báðum kirkjudeildum í góðri sátt. Bernadette og Gordon kynntust á jóla- dansleik fyrirtækisins og urðu þeg- ar í stað ástfangin. Þau voru vön að leiðast út í vinnuhléum til að reykja og dvaldist stundum of lengi. Verk- stjórinn þeirra, Rodney McCafferty, þurfti þá að áminna þau. „En nú sjást þau ekki lengur leiðast," segir Rodney dapur í bragði. 14. júlí að loknum vinnudegi fóru þau fyrst heim til Bernadette, en hringdu svo til móð- ur Gordons og báðu hana að sækja sig til að fara heim til Gordons í Aghalee, þar sem Bernadette gisti oft í herbergi systur hans. Þau skemmtu sér við billjard-spil og gengu síðan heim til Gordons, fengu sér samlokur og fóru svo upp í herbergi Gordons ásamt systur hans. Þar reyktu þau og spjölluðu saman og sofnuðu síðan alklædd um hálfþijú- leytið. Klukkan fjögur vaknaði Gordon við skot- hvelli. Hann spurði Bernadette hvað gengi á, og þá sá hann blóðið. Það vall blóð úr vitum hennar. Hún hafði borið hönd upp að andlitinu og það vætlaði blóð fram milli fingranna. Einhver hljóp niður stigann. Hann hafði skotið hana fjórum sinnum í höfuðið af örstuttu færi. Hún var meðvit- undarlaus og andaði enn, þegar sjúkrabíll- inni kom. 12 klukkustundum síðar andaðist hún. Gordon og foreldrar þeirra beggja sátu þá við sjúkrabeð hennar. Lögreglan hefur handtekið 36 ára karl- mann, sem talinn er vera úr vopnuðum sveit- um mótmælenda þótt löreglan veijist frétta. Maðurinn er ákærður fýrir morð. Það er kallað pólitískt morð. Hvaðan kemur slíkt hatur? Hvernig er unnt að skilja að ung, saklaus stúlka skuli myrt vegna deilna manna, sem þykjast vera kristnir? Hvað kemur hún því máli við hvort Irland sameinast eða Norður-Irland verður áfram hluti breska konungsdæmisins? Móðir Bemadette hefur sagt að hún vilji enga hefnd. „Sorg okkar er meiri en svo, að þar sé líka rúm fyrir reiði. Von okkar er sú að Bemadette sé síðasta fórnarlamb deilunnar um Norður-írland," segir hún. En svo er því miður ekki, hún er ekki síðasta fórnarlamb- ið, aðeins eitt af mörgum. Enda sögðu marg- ir nágrannar hennar að þeir skildu ekki sátt- fýsi hennar. Sáttfýsi einkennir ekki íbúa Norður-írlands. Innst inni vita allir að ekki er til nema ein lausn á þessari deilu. Fyrr eða síðar mun írland sameinast. Það vita allir. Líka mótmæ- lendur. Líka Bretar. En forsendan fyrir því er að kristnir menn geti sameinast. En það virðist einhvern veginn vefjast fyrir mönnum sem segjast aðhyllast kærleiksboðskap þess, sem elskaði heiminn og mannkynið meira en aðrir menn. Við ættum kannski að senda þeim fulltrúa á kirkjuþingi íslensku þjóðkirkj- unnar til að ná sáttum? Höfundur er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Islands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.