Morgunblaðið - 05.11.1997, Page 38
JJ8 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MATTHIAS
GUNNLAUGUR
GUÐMUNDSSON
+ Matthías Gunn-
laugur Guð-
mundsson var
fæddur 19. nóvem-
ber 1920. Hann lést
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur sunnu-
daginn 26. október
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru:
j Guðmundur Jóns-
son, f. 11.4. 1876,
d. 2.10. 1958, og
Guðríður Þórunn
Asgrímsdóttir, f.
26.9. 1880, d. 11.5.
1954. Albræður
Matthíasar voru Asþór, f. 20.3.
1918, d. í nóvember 1985, og
Kristján Rósberg, f. 17.9. 1919,
d. 24.7. 1975. Auk þess átti
Matthías sex hálfsystkini sam-
feðra, Þorbjörgu, Ingólf, Krist-
jönu, Margréti, Sigurð og
Guðna. Eru þau öll látin.
Matthías kvæntist 6. október
1956 Friðbjörgu Ólínu Krist-
jánsdóttur. Böm Matthíasar og
Friðbjargar eru Sigurður Sæv-
ar, f. 16. febrúar 1946, og Haf-
dís, f. 14. desember 1955. Haf-
dís er gift Sigbimi Ingimundar-
syni, f. 25.7. 1955 og eiga þau
þijú böm, Ingibjörgu, f. 17.9.
1977, Matthías, f. 14.6. 1984,
og Pétur Inga, f. 17.9. 1986.
Ingibjörg á eitt bam, Sigbjörn
Helga, f. 14.9. 1995.
Matthías fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Vestmannaeyjum.
Árið 1936 fluttist hann ásamt
foreldrum sínum vestur að
Elsku pabbi. Manstu þegar við
vorum saman úti í skúr að smíða
ýmsa hluti? Eða manstu þegar ég
var 6 til 7 ára og þú hélst á mér út
í bíl og mamma sagði við þig „Matti
minn hún getur nú labbað" og þú
afsakaðir þig með því að þá gætu
fötin mín óhreinkast?
Pabbi minn, manstu þegar ég var
lítil stelpa og sat ofan á þér til þess
að geta verið nógu nálægt þér, en
mér fannst ég samt ekki nógu ná-
lægt þér og sagði þá oft við þig, „ég
vildi það pabbi minn að það væri
rennilás framan á þér svo að ég
Hnausum á Snæ-
fellsnesi. Hann hóf
búskap með Frið-
björgu Ólínu á
Kirkjuhóli i Staðar-
sveit árið 1945.
Hann lærði húsa-
smíði við Iðnskól-
ann í Keflavík
1955-1959 en
sveinsprófi lauk
hann 1961. Hann
vann við húsabygg-
ingar í sveitum til
1947, á Akranesi
1947-1951 og
stundaði smiða-
vinnu í Hvalstöðinni í Hvalfirði
og starfaði síðan við vinnslu
þar til 1953. Hann starfaði á
Keflavikurflugvelli 1953-1955
þar sem hann var við pípulagn-
ir hjá varnarliðinu og vann síð-
an við byggingarvinnu í Kefla-
vík og nágrenni. Hann var
verkstjóri hjá byggingaverk-
tökum frá 1957 þar til hann
hætti störfum fyrir aldurs sak-
ir árið 1988. Matthías gegndi
ýmsum störfum í gegnum árin.
Hann sat í sljórn Verkstjórafé-
lags Suðurnesja og í stjórn Iðn-
aðarmannafélags Suðurnesja
1966-1968. Hann var varamað-
ur í prófnefnd húsasmiða og
hefur setið í fasteignamats-
nefnd. Hann sat í stjórn Vest-
mannafélags Suðurnesja og
Snæfellingafélagsins.
Útför Matthiasar fer fram
frá Keflavíkurkirkju i dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
kæmist alveg að hjarta þínu“?
Eða pabbi minn, manstu þegar
mamma var að vinna vaktavinnu,
átti að fara að vinna kl. 6 að morgni
og þurfti að fara að snemma að
sofa kvöldinu áður, þá sátum við
kannski saman fram á nótt að
spjalla saman, læddumst inn í eid-
hús og fórum að búa til eitthvert
góðgæti til þess að narta í? Pabbi
minn, manstu þegar ég var ungling-
ur og þú læddir pening í hendi mína
og hvíslaðir að mér „Hafdís mín,
farðu nú og gerðu eitthvað
skemmtilegt"? Það kom nú yfirleitt
—
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÁSGEIRS SKÚLASONAR,
Grundarvegi 21,
Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans,
deild 11-E.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Sigurðardóttir.
Kærar þakkir færum við þeim.sem heiðruðu
minningu okkar hjartkæra eiginmanns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
FRIÐJÓNS SIGURÐSSONAR
fyrrv. skrifstofustjóra
Alþingis,
og sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
hans og útför.
Guð blessi ykkur.
Áslaug Siggeirsdóttir,
Kolfinna Gunnarsdóttir,
Sigurður H. Friðjónsson,
Jón G. Friðjónsson, Herdís Svavarsdóttir,
Ingólfur Friðjónsson, Sigrún Benediktsdóttir,
Friðjón Örn Friðjónsson, Margrét Sigurðardóttir
og barnabörn.
ekki fyrir að ég þurfti að biðja þig
um nokkuð.
Pabbi minn, manstu eftir brúð-
kaupsdeginum mínum? Þegar við
komum í kirkjuna og við gleymdum
brúðarvendinum mínum heima. Þá
varstu fljótur að keyra heim og ná
í hann. Eða pabbi minn, manstu
þegar við smíðuðum grindverkið á
baklóðinni heima hjá mér? Pabbi
minn, þetta er bara brot af okkar
góðu minningum.
Pabbi minn, ég man allar þær
góðu stundir sem við áttum saman,
ég sem var pabbastelpan þín. Pabbi
minn, ég man þegar ég eignaðist
Ingibjörgu og hún var skírð. Ég
man hvað þú varst glaður að fá að
halda á litlu afastelpunni þinni und-
ir skírn. Ég man líka þegar við lét-
um skíra hann Matta litla, hvað þú
varst stoltur að fá þarna lítinn
nafna. Ég hef oft brosáð að því
þegar þú varst að taka myndir af
skírnarathöfninni og hugsað að það
sé nú ekki oft sem það sé tekin
heil filma af svona athöfn. Það var
svo gaman, pabbi minn, að sjá hvað
þú varst stoltur að fá þarna nafna.
Ég man líka þegar ég eignaðist
yngsta barnið mitt og þegar fyrsta
langafabarnið kom. Þú gafst öllum
börnunum mínum sömu hlýju og
umhyggju. Aldrei gerðir þú upp á
milli þeirra. Þakka þér fyrir það,
pabbi minn.
í dag er ég sátt að þú fékkst að
fara svona skyndilega, en þurftir
ekki að fást lengi við sjúkdóma, þú
sem varst aldrei veikur, og eins og
þú sagðir oft: þú þurftir ekki einu
sinni að taka inn magnyl alla þína
ævi, hvað þá annað. í dag er ég
þakklát fyrir það að okkur varð
aldrei nokkurn tímann sundurorða
og að það kom aldrei fyrir að við
urðum ósátt. í dag er ég hamingju-
söm yfir því að börnin mín fengu
tækifæri til að kynnast þér, pabbi
minn, og hvað þú gafst þeim mikla
ást og umhyggju og hvað þau urðu
mikil afabörn. í dag er ég sorg-
mædd yfir því að fá aldrei að sjá
þig aftur en ég mun alltaf geyma
minningar um þig í hjarta mínu. I
dag eru börnin mín sorgmædd yfír
því að fá aldrei aftur að sjá afa
sinn, en þau munu líka alltaf geyma
minningar um þig í hjarta sínu. í
dag er ég þakklát fyrir það að eiga
eingöngu góðar minningar um þig.
Elsku pabbi minn. Þú sagðir oft
við mig að ég hefði verið óskabarn-
ið ykkar mömmu, þegar þið fenguð
mig þegar ég var lítið bam. Þið
voruð líka óskaforeldrar mínir og
ég er þakklát fyrir það að hafa átt
ykkur að. Elsku pabbi minn. Ég
kveð þig í dag og ég veit að foreldr-
ar þínir og bræður taka vel á móti
þér hinum megin. Eins og þú sagð-
ir alltaf við mig þegar eitthvað kom
uppá. „Þetta er bara svona og ekk-
13! ómq
öarðskom
v/ l-ossvogskirkjugarð
Símii 554 0500
ert við því að gera.“ Elsku pabbi
minn. Ég elska þig.
Þín dóttir,
Hafdís.
Nú, er ég kveð minn ástkæra
föður, er svo margs að minnast,
helst að sjá hann alltaf vinnandi,
léttan í hreyfingum, léttan í lundu.
Það var aldrei nein hálfvelgja í
kringum hann, hann var alltaf vak-
andi yfír okkur öllum og vildi allt
fyrir okkur gera. Ef vanda bar að
sagði hann alltaf: „Þetta er bara
svona og við verðum að takast á
við það.“
Það er kannski ekki mín sterka
hlið að tjá mig tilfinningalega en
það fékk ég víst í vöggugjöf frá
ykkur foreldmm mínum.
Hjartans þakkir fyrir allar
ánægjustundirnar, allt frá fyrstu
tið. Takk fyrir alla hjálpina og
umhyggjuna þegar ég var veikur
og þurfti á hjálp þinni að halda, og
alltaf, alltaf, elsku góði pabbi minn,
hafðu þökk allt og allt.
Guð leiði þig til samfunda við
alla ástvini þína sem fóru á undan
þér. Hvíl í friði.
Lof sé þér Guð fyrir lífsins hag
lof sé þér fyrir mátt og dag
lof sé þér fyrir liðin ár
lof sé þér fyrir gleði og tár.
(J.Ó.)
Þinn sonur,
Sævar.
í dag er komið að kveðjustund.
Fallinn er frá elskulegi tengdabróð-
ir minn Matthías Guðmundsson.
Það er ekki auðvelt að kveðja ein-
hvern sem manni þykir þykir vænt
um.
Þú varst alltaf mér og sonum
mínum svo góður. Allar samveru-
stundir í fríunum okkar og út um
allan heim munu aldrei gleymast.
Minningin lifir. Hafðu þökk fyrir
allt.
Elsku vinur, ég bið góðan Guð
að styrkja systur mína, böm ykkar
og fjölskyldu. Hvíl þú í friði.
Þórheiður (Heiða) og synir.
Elsku Matti minn!
Við erum svo takmörkuð, mann-
anna börn, af skilningi og þroska.
Því er það nú svo að þegar himna-
faðirinn sendir boð eftir ástvinum
okkar, þá finnst okkur kallið koma
allt of fljótt. Það er svo mikið sem
frá okkur hefur verið tekið, það var
svo margt sem átti eftir að gera,
margt sem átti eftir að njóta.
í minningu okkar systkina mun
ávallt ríkja þakklæti til þín og Linu
frænku. Þakklæti fyrir allt sem þið
hafíð gert fyrir okkur, móður okkar
svo og ömmu. Hin einstaka þolin-
mæði og kærleikur er þið sýnduð
þegar sál og líkami ástvina okkar
var þjáður, er sem geislandi ljósbrot
guðsneistans sem í hveijum manni
býr, en því miður fær þetta ljósbrot
sjaldan að njóta sín vegna erils líð-
andi stundar, en naut sín til fulls í
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns mins,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR FRIÐRIKSSONAR,
Víðihlíð 29,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkra-
húss Sauðárkróks fyrir góða umönnun.
Anna Hrólfsdóttir,
Una Sigurðardóttir, Bogi Arnar Finnbogason,
Snorri Sigurðsson, Edda Haraldsdóttir,
Hrólfur Sigurðsson, Hafdís Skarphéðinsdóttir,
Hulda Sigurðardóttir, Matthías H. Guðmundsson,
Kristján Valur Sigurðsson
og barnabörn.
kærleika ykkar. Nú hefur stunda-
glas þitt, elsku Matti minn, tæmst
hér á jörðu, en við tekur fylltur
bikar eilífs lífs.
Elsku Lína mín, Hafdís og Sæv-
ar, fjölskylda okkar hefur alltaf
verið samhent og svo skal ávallt
vera. Þótt einmanaleiki og söknuður
ríki í hjörtum okkar á sorgarstundu
þá erum við aldrei ein. Yfír okkur
er ávallt vakað, þó svo við verðum
þess ekki vör.
Kristján, Oddný og Jón Már.
Matthías Guðmundsson hefur
lokið því ætlunarverki sem skapar-
inn ætlar okkur öllum í þessu lífi
með miklum sóma. Frá því að ég
man eftir mér hefur líf mitt verið
nátengt Línu frænku minni og eig-
inmanni hennar Matthíasi eða
Matta eins og hann var ávallt
nefndur.
Lengst af bjuggu þau í nágrenni
við ömmu mína og afa sem ég er
alinn upp hjá og því var samgangur
mikill milli heimilanna. Eftir fráfall
afa bjuggum við amma í sama húsi
og Lína og Matti og áttum við
margar samverustundir sem seint
gleymast. Oft þurfti að grípa inn í
líf óstýriláts unglings og þar var
Matti betri en enginn og gerði það
af skilningi og velvild og átti oft
svör við erfiðum spurningum. Þau
hugsuðu frábærlega vel um ömmu
mína eftir að hún var orðin ein og
kann ég þeim miklar þakkir fyrir
það.
Lína og Matti voru alltaf saman,
þau voru ein óijúfanleg heild. Þau
voru einstaklega samhent og ást
og virðing þeirra fyrir hvort öðru
var öllum ljós er umgengust þau.
Þau voru með afbrigðum gestrisin
og góð öllum er að garði bar. Sam-
band okkar Helgu við þau hjónin
var alltaf ákaflega kært. Það kom
síðar skemmtilega á óvart þegar
Helga og Matti fundu út að þau
væru skyld og jókst enn kærleikur
þeirra á milli.
Matti var lærður húsasmiður og
hlaut meistarabréf í þeirri iðn. Hann
starfaði lengst af hjá Bygginga-
verktökum á Keflavíkurflugvelli.
Matti var sannkallaður þúsund þjala
smiður og allt lék í höndum hans.
Bílskúrinn hans var alltaf eins og
ævintýraheimur, fullur af tækjum
og tólum og áhöldum. Eftir að
starfsdegi lauk dvaldi hann þar
flestum stundum sem oftar við
smíðar ýmiss konar og stytti sér
stundir.
Á öðrum vettvangi sýndi hann
líka mikla snilld og það var á dans-
gólfínu. Hann þótti afbragðs dans-
herra og konur kepptust um að fá
að dansa við hann enda höfðu þau
hjónin á árum áður stunduð dans
í mörg ár og sýnt víða opinberlega.
Matti og Lína höfðu mjög gaman
af að ferðast og mörg ár í röð fóru
þau til Benidorm og voru oftast á
sömu ströndinni og hlaut hún að
lokum nafngiftina „Mattolínos" á
meðal fyölskyldu og vina. Einnig
fóru þau alloft til Flórída þar sem
Heiða systir Línu býr.
Nú er skarð fyrir skildi hjá fjöl-
skyldu og vinum. Elsku Lina, Sæv-
ar og Hafdís. Við vitum að ykkur
er tregi og söknuður í huga á þess-
ari stundu skilnaðar. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð. Við
minnumst Matta með hlýju og virð-
ingu.
Jón og Helga.
Sérfræðingar
í blóniaskrevtinjíum
við öll tækifæri
11 blómaverkstæði
JBinna
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090