Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
267. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogafundur ESB um atvinnuleysi
Aðgerðir fyr-
ir ungt fólk
Lúxemborg. Reuters.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
(ESB) luku í gær í Lúxemborg sér-
stökum fundi þar sem leiðir til lausn-
ar á hinum mikla atvinnuleysisvanda
sem við er að glíma í aðildarríkjunum
voru til umræðu. Leiðtogamir sam-
þykktu að grípa til hnitmiðaðri að-
gerða til að slá á vandann en gert hef-
ur verið fram að þessu, einkum til að
hjálpa ungu fólki og langtímaatvinnu-
lausum út úr atvinnuleysisbölinu.
I aðildarlöndunum 15 eru nú um
18 milljónir manna atvinnulausar,
sem samsvarar að meðaltali um 10%
þeirra sem teljast vinnufærir. Hlut-
fallið er mjög misjafnt milli landa og
héraða en sérstaklega er það hátt
hjá ungu fólki.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði fundinn hafa beint í
nýjan farveg „þeim aðferðum sem
notaðar eru til að takast á við sam-
keppnis- og atvinnumál í Evrópu“.
„Hin nýja og rétta stefna Evrópu
felst að miklu leyti í því að fjárfesta í
fólki, litlum fyrirtækjum, í hæfileik-
um og tækni, frekar en að leggja
meiri álögur á atvinnurekendur,"
tjáði Blair fréttamönnum.
Nánar tiltekið var samið um að
öllu ungu fólki sem hefur verið at-
vinnulaust í meira en hálft ár verði
Reuters
NOKKRIR leiðtoga ESB stilla sér upp fyrir „fjöldskyldumyndatöku",
þeirra á meðal Jacques Chirac, forseti Frakklands (annar f.v.) og
Jean-CIaude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar.
tryggð einhvers konar starfsþjálfun
og reynsla sem gagnast á vinnu-
markaðnum innan fimm ára. Hið
sama á að gilda um þá sem eldri eru
og hafa verið atvinnulausir í meira
en ár. Ennfremur var ákveðið að
starfsþjálfun muni standa að
minnsta kosti 20% allra annarra at-
vinnulausra til boða, en þetta er tvö-
fóldun á núverandi viðmiðun.
Wei er
óbugaður
WEI Jingsheng, kínverski andófs-
maðurinn sem látinn var laus úr
fangelsi í Kína um síðustu helgi og
hélt til Bandaríkj-
anna til að leita sér
lækninga, kom í
gær fram á fyrsta
blaðamannafundin-
um frá komu hans
til New York.
Hann lýsti undrun
yfir þeirri miklu at-
hygli sem fjölmiðl-
ar sýndu honum og hét því að hann
skyldi eiga afturkvæmt til heima-
lands síns.
„Eg ætla aftur heim. Reyndar
ætlaði ég aldrei að yfirgefa Kína,“
sagði Wei, sem hefur meira eða
minna mátt dúsa í fangelsi síðan
1979 vegna andófs gegn Kínastjóm
í nafni lýðræðisumbóta. Wei sagði
fyrir framan hundruð myndavéla að
hann „færi hjá sér“ yfir allri athygl-
inni, „vegna þess að ég hef ekki lagt
nógu mikið af mörkum í þágu kín-
versks lýðræðis".
Reuters
Britannia kveður heimahöfnina
BRITANNIA, snekkja brezku konungsfjölskyldunn- asta sinn í gærkvöldi. Skipið er á leið til Portsmouth
ar, siglir í togi undir Tower-brúna í Lundúnum í síð- þar sem því verður lagt eftir áratuga þjónustu.
V opnaeftirlitsmenn
SÞ komnir til fraks
Albright
hvetur til
varkárni
Baghdad. Reuters.
VOPNAEFTIRLITSMENN Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ), þar á meðal
Bandaríkjamenn, komu til íraks í
gær eftir að náðst hafði samkomu-
lag um framhald eftirlitsins á grund-
velli sáttatillögu Rússa.
Fjölmiðlar í Rússlandi og írak
hafa farið lofsamlegum orðum um
samkomulagið, en því hefur verið
tekið með varúð í Bandaríkjunum.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
Rússar gætu ekki haft áhrif á
Bandaríkin og fengið viðskipta-
þvingunum SÞ gegn Irak aflétt, en
samkvæmt samkomulaginu heita
Rússar því að beita sér fyrir afnámi
þeirra hið fyrsta, gegn því að hefja
megi vopnaeftirlit án skilyrða.
Stjórnvöld í Washington hafa lagt
áherslu á efasemdir sínar um sam-
komulagið með því að auka herstyrk
sinn á Persaflóasvæðinu.
-------------
Kóreuríkin
Samið um að
hefja friðar-
samninga
New York. Reuters.
SAMNINGAMENN fjögurra ríkja,
Norður- og Suður-Kóreu, Banda-
ríkjanna og Kína, komust í gær að
samkomulagi um að formlegar við-
ræður um friðarsamning milli
kóresku ríkjanna tveggja verði
hafnar 9. desember nk., en allt frá
því vopnahlé var samið í Kóreu-
stríðinu 1953 hafa þau formlega séð
verið áfram í stríði.
Samningamennirnir gáfu út yfir-
lýsingu þessa efnis í New York í
gær, þar sem viðræður hafa staðið
yfir meé hléum undanfarið ár.
Ráðherrar ósammála um ágæti uppstokkunar í rússnesku stjórninni
Nemtsov segir Tsjernómyrdín
ekki hafa ástæðu til bjartsýni
Moskvu. Reuters.
Fyrsti sjö-
burinn úr
öndunarvél
KENNETH, stærstur sjöbur-
anna sem fæddust í Des Moines
í Iowa á miðvikudag, er kominn
úr öndunarvél
og systkini
hans braggast
einnig vel.
Börnin fædd-
ust níu vikum
fyrir tímann
og voru sögð
þungt haldin
fyrstu tvo sól-
arhringana.
Kenneth, sem
var sex merkur við fæðingu,
fékk gælunafnið „Herkúles" er
hann var í móðurkviði þar sem
hann bai- systkini sín svo að
segja uppi og fæddist fyrstur.
Faðir sjöburanna talaði við
blaðamenn í gær og sýndi stolt-
ur fæðingararmbönd þeirra.
VTKTOR Tsjemómyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, lýsti því yfir í
gær að stjóm hans hefði aldrei stað-
ið jafntraustum fótum og nú, eftir
mannabreytingai- sem stjórnarand-
stæðingar á þingi knúðu fram. Borís
Nemtsov aðstoðarforsætisráðherra
kvaðst hins vegar hafa efasemdir
um að Tsjemómyrdín hefði ástæðu
til bjartsýni þar sem breytingamar
væra afleiðing djúpstæðs ágreinings
á milli valdamikilla manna í rúss-
neska stjómkerfinu.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
neyddist á fimmtudag til að víkja
Anatólí Tsjúbajs úr embætti fjár-
málaráðherra að kröfu kommúnista,
svo og Nemtsov úr embætti orku-
málaráðherra en þeir halda stöðum
sínum sem aðstoðarforsætisráðherr-
ar. Oánægja kommúnista og ann-
arra stjómarandstæðinga beindist
einkum að Tsjúbajs en til að koma
til móts við þá ákvað forsetinn að
enginn skyldi geta gegnt tveimur
ráðherraembættum og Jiai- með
varð Nemtsov af orkumálaráðuneyt-
inu.
Brottvikning Tsjúbajs óháð
bókarþóknun
Rússnesku blöðin lýstu málalok-
um sem sigri Tsjernómyrdíns og
hann kvaðst afar ánægður með nið-
urstöðuna í gær, sagði Rússland nú
hafa náð „auknum pólitískum
þroska" og að ríkið hefði styrkst,
sérstaklega á efnahagssviðinu.
Tsjernómyrdín fullyrti . að
ákvörðunin um að víkja Tsjúbajs úr
fjármálaráðuneytinu hefði verið
tekin áður en hneyklismál vegna
fyrirframgreiðslna, sem Tsjúbajs
þáði fyrir bók um einkavæðingu,
kom upp. Sagði forsætisráðherrann
að ákveðið hefði verið að draga úr
vinnuálaginu á Tsjúbajs en hann
hafði þá gegnt embættinu í átta
mánuði.
Nemtsov dró hins vegar ekki dul
á að ákvörðunin um að vikja
Tsjúbajs úr embætti ætti sér
hvorki rætur í hneykslismálinu
vegna bókarinnar né í umhyggju
vegna heilsu Tsjúbajs.
„Kjarni átakanna er sá að þau
eru ekki ... stjórnarkreppa. Þessi
kreppa er hugmyndafræðileg og á
sér miklu dýpri rætur,“ sagði
Nemtsov.
Hann kvað málið snúast um val á
milli tveggja leiða. .jMinaðhvort
óheftrar einkavæðingar, sem kem-
ur litlum hópi fólks til góða, eða
einkavæðingar sem mikið fjúrmagn
er lagt í og kemur vel öllum þeim,
sem taka þátt í uppboðum á vegum
stjórnarinnar.“
Kenny
McCaughey