Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 49
b
Ársþing Samfoks
1 Rætt um
fjármagn til
skólastarfs
ANNAÐ ársþing SAMFOKS
I verður haldið í Borgartúni 6
Reykjavík í dag, laugardaginn 22.
nóvember, kl. 9.15-16.30. Um-
ræðuefni er fjármagn til skóla-
starfs og hvernig það er nýtt.
Drög að starfs- og fjárhagsáætlun
Fræðsluráðs Reykjavíkur og
Fræðslumiðstöðvar fyrir 1998
verða kynnt á þinginu.
Samkvæmt stefnu SAMFOKS
er þingið stefnumótandi vettvang-
ur þar sem mál eru krufin og
ályktanir samþykktar í nefndum
og hópum. Á ársþinginu er sam-
■ þykkt hvaða mál foreldrafélög og
• foreldraráð setja á oddinn á skóla-
árinu. Þingfulltrúar eru foreldrar í
stjómum foreldrafélaga og fulltrú-
ar í foreldraráðum við grunnskóla
Reykjavíkur. Hópvinna á þinginu
er vettvangur skoðanaskipta og
umræður byggjast á málefnaskrá
sem liggur fyrir á þinginu.
j
Búkolla í nýjum
I búningi í Ævin-
týra-Kringlunni
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir í dag
kl. 14.30 leikritið Einstök uppgötv-
un eða Búkolla í nýjum búningi
sem ætlað er bömum á aldrinum
2-9 ára.
í leikritinu segh- frá þeim Zófan-
íusi Árelíusi Ebeneser Schutt-
IThorsteinsyni uppfinningamanni
og Skarphéðni Njálssyni skrif-
stofumanni. Þeir virðast fátt eiga
sameiginlegt þegar þeir hittast
fyrir tilviljun á förnum vegi. Zóf-
aníus er með stóra undirfurðulega
vél (sem heitir Búkolla) í eftirdragi
og borðar banana með mysingi í
mestu rólegheitum en Skarphéð-
Iinn er vopnaður tveimur farsímum
sem hann talar látlaust í, auk þess
sem hann er sífellt að líta á klukk-
una. Þessir ólíku einstaklingar
eiga þó eftir að ná saman á nokkuð
óvenjulegan hátt er þeir rifja í
sameiningu upp söguna um
Búkollu og strákinn og kynnast við
það nýjum og óvæntum hliðum á
tilverunni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Leikritið er samið í samvinnu
leikhópsins sem einnig hefur
hjálpast að við gerð leikmyndar og
m búninga. Leikstjóri er Alda Arnar-
I dóttir en leikarar eru Elfar Logi
Hannesson og Pétur Eggerz. Sýn-
ingartími u.þ.b. 40 mínútur.
Ævintýra-Kringlan er bama-
gæsla og listamiðja fyrir böm á
aldrinum 2-8 ára. Hún er staðsett
á 3. hæð í Kringlunni og þar geta
viðskiptavinir Kringlunnar skilið
Ibörnin eftir á meðan þeir versla.
Ævintýra-IU'inglan er opin kl.
14-18.30 virk daga og 10-16
| laugardaga.
Bóklestur í
Hafnarhúsinu
FJÖLNIR, tímarit handa íslend-
ingum, boðar til upplesturs skálda
Iog rithöfunda úr nýjum verkum
sínum laugardaginn 22. nóvember
frá klukkan tvö til tíu um kvöldið.
Rúmlega þrjátíu höfundar munu
lesa úr bókum sínum; barnabók-
um, ljóðum, skáldsögum, ævisög-
um og ritum almenns eðlis. Upp-
lesturinn fer fram í svarta salnum
á sýningunni Myndlist ‘97.
A sunnudagskvöldið kl. 20.30
boðar Fjölnir til opins borgara-
fundar um menningu og listir. Að
þessu sinni verður umfjöllunarefn-
!ið: Hafa listamenn eitthvað fram
að færa til samfélagsumræðunn-
ar?
Olís opnar nýja þjónustustöð
OLÍS opnar í dag nýja þjónustustöð
við Ánanaust í Reykjavík en félagið
hefur rekið stöð þarna í tæpa tvo
áratugi í bráðabirgðaskúr. Nýja
stöðin stendur fyrir aftan þá gömlu
og tengist nýrri götu þar en vega-
kerfi Ánanausta hefur tekið miklum
breytingum sl. mánuði.
Stöðin er byggð eftir sömu teikn-
ingu og stöðvar Olís við Sæbraut og
í Álfheimum og er hún með þremur
„fjölvals“-dælum, þ.e. allar elds-
neytistegundir á hverri dælu og er
með korta- og seðlasjálfsala sem er
opinn á nóttunni. Þvottaplan með
ryksugu er við hina nýja stöð.
Á stöðinni í Ánanaustum verður
hægt að kaupa nokkrar vöruteg-
undir „umbúðalaust". Þetta þýðir
að smurolía, rúðuvökvi og frostlög-
ur er seldur gegnum krana í lausu
en við það sparast umbúðir og ýmis
kostnaður.
Á stöðinni eru auk bílvöru og
ferðavöru seldar matvörur úr kæli
og frysti, þar er veitingahorn þar
sem hægt er að kaupa ýmsa smá-
rétti og drykki.
Ymis opnunartilboð verða í þess-
ari nýju stöð og munu þau gilda til 1.
desember nk. M.a. verður 4 kr. af-
sláttur af öllu eldsneyti, ýmsar bíla-
vörur og neysluvörur verða á sér-
stöku tilboðsverði opnunardagana.
Arkitekt stöðvarinnar er Ingi-
mundur Sveinsson, verktaki við
byggingu hússins er Trésmiðja
Snorra Hjaltasonar en jarðvinnu
önnuðust ÁN verktakar. Skyggnið
er framleitt af Stálbæ, Sveinbirni
Sigurðssyni og Vélsmiðju Einars
Guðbrandssonar. Einnig önnuðust
starfsmenn Olíudreifingar ehf. upp-
setningu á tanka- og dælubúnaði.
Verkfræðistofa VSB og Raftækni-
stofu sáu um verkfi-æðihlutann.
Danskeppni tveggja dansskóla
HIN árlega Lotto danskeppni
verður haldin í fþróttahúsi Sel-
tjarnarness sunnudaginn 23. nóv-
ember. Húsið verður opnað kl. 12
og hefst kepnni kl. 13.
Aldursflokkum er raðað niður
í A-, B-, C-, D- og F-riðla. Verða
verðlaun gefin fyrir samanlagð-
an árangur, einnig fá A-riðlar
farandbikara. Sigurpör í öllum
riðlum frá Lotto vinning en öll
önnur pör á verðlaunapalli fá litl-
ar gjafir.
Liðakeppni milli dansskólanna
er orðin fastur liður í kcppninni
en hver dansskóli skipar eitt lið
sem samanstendur af þremur
danspörum. Liðin keppa í latin-
dönsum. Sjö íslenskir danskenn-
arar dæma keppnina.
Tóbaksvarnir
Námskeið fyrir
starfsfólk heil-
brigðisþj ónustu
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið stendur um helg-
ina, 22. og 23. nóvember, fyrir leið-
beinendanámskeiði fyrir starfsfólk
heilbrigðisþjónustunnar í Hótel
Egilsbúð í Neskaupstað.
Tilgangur námskeiðsins er að
samhæfa betur aðgerðir heilbrigð-
isþjónustunnar á sviði tóbaksvarna
og við að hjálpa fólki að hætta að
reykja. Námskeiðið er hið fjórða í
röð slíkra námskeiða sem haldin
eru fyrir starfsmenn heilsugæslu,
sjúkrahúsa, meðferðastofnana á
sviði ávana- og fíkniefna, sem og
frjálsra félagasamtaka.
í frétt frá ráðuneytinu segir að
námskeiðahaldið sé liður í aðgerð-
um heilbrigðisráðherra til þess að
gera heilbrigðiskerfið betur í
stakk búið tO þess að veita reyk-
ingafólki þá aðstoð og hvatningu
sem þarf tO að hætta að reykja.
Námskeiðið í Neskaupstað er
einkum ætlað heObrigðisstarfs-
mönnum á Austurlandi. í byrjun
næsta árs verður árangur leiðbein-
endanámskeiðanna metinn og í
framhaldi af því tekin ákvörðun
um framtíðarskipulag fræðslu og
leiðbeininga á sviði tóbaksvarna
fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Námskeið um
tóbaksvarnir í
Neskaupstað
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið stendur dagana
22. og 23. nóvember nk. fyrir leið-
beinendanámskeiði fyrir starfsfólk
heilbrigðisþjónustunnar í Hótel
Egilsbúð í Neskaupstað. Tilgang-
ur námskeiðsins er að samhæfa
betur aðgerðir heilbrigðisþjónust-
unnar á sviði tóbaksvarna og við
að hjálpa fólki að hætta að reykja.
Námskeiðið er hið fjórða í röð
slíkra námskeiða sem haldin eru
fyrir starfsmenn heilsugæslu,
sjúki-ahúsa, meðferðastofnana á
sviði ávana- og fíkniefna, sem og
frjálsra félagasamtaka.
Þetta námskeiðshald er liður í að-
gerðum heilbrigðisráðherra til þess
að gera heObrigðiskerfið betur í
stakk búið tíl þess að veita reyk-
ingafólki þá aðstoð og hvatningu
sem þarf til að hætta að reykja.
Námskeiðið í Neskaupstað er eink-
um ætlað heilbrigðisstarfsmönnum
á Austurlandi. í byrjun næsta árs
verður framkvæmt mat á árangri
leiðbeinendanámskeiðanna og í
framhaldi af því veður tekin ákvörð-
un um framtíðarskipulag fræðslu
og leiðbeininga á sviði tóbaksvama
fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Lionsmenn í
Hafnarfírði
ganga í hús
ÁRLEG fjársöíhun Lionsmanna
með jólapappír er að hefjast og
verðui- gengið í heimahús og boðinn
jólapappír og sprittkerti til kaups.
Ágóðinn af sölunni rennur tO líkn-
armála í bænum. Á undanfómum
árum hafa stærstu verkefni klúbbs-
ins verið tækjagjafir til sjúkrastofn-
anna, sambýla fatlaðra, leikskóla og
félagssamtaka í bænum.
Handverks-
markaður í
Grafarvogi
HANDVERKSMARKAÐUR
verður haldinn á Torginu í Grafar-
vogi sunnudaginn 23. nóvember kl.
12-17.
35 söluaðilar sýna handavinnu,
glervörur, skiltagerð, trévörur o.fl.
Messuhald í
Seltjarnarnes-
kirkju
í VETUR ætlar Seltjamarnes-
kirkja að leggja áherslu á fjöl-
breytni í helgihaldi til að lífga upp
á messuhaldið.
Sunnudaginn 23. nóvember kl.
11. f.h. verður messa í þjóðlagastfl.
Þá verður leikið undir söng á
harmoníku, gítar og bassa. Messa
þessi er samin af Per Harling sem
er þekktur í Svíþjóð fyrir að semja
bæði söngleiki og messur í nýjum
takti. Sr. Þórhallur Heimisson,
prestur í Hafnarfjarðarkirkju,
syngur messuna ásamt söngvuram
og hljóðfæraleikuram en sóknar-
presturinn, sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, predikar.
Fyrsta sunnudag í aðventu, sem
í ár ber upp á 30. nóvember, verður
svo Taizé-messa í kirkjunni kl. 11.
Þá verða eingöngu sungnir svokall-
aðir Taizé-söngvar sem eru íhug-
unar- og bænasöngvar frá bænum
Taizé í Frakklandi. Þann dag bera
fermingarbörn kertaljós inn í
kirkjuna og kveikt verður á fyrsta
kertinu á aðventukransinum.
Þann 7. desember syngur kór
kirkjunnai' undir stjórn organist-
ans, Vieru Manasek, messu eftir
Haydn, sem er klassísk messa, sem
sungin verður á venjulegum
messutíma kl. 11 f.h. með öllum
messuliðum, predikun og altaris-
göngu.
Opið hús
í Kattholti
KATTAVINAFÉLAG íslands
verður með opið hús í Kattholti,
Stangarhyl 2, Reykjavík, sunnudag-
inn 23. nóvember frá kl. 14-17.
Kynnt verður starfsemi félagsins
og fólki gefinn kostur á að skoða
dýrin. Allir eru velkomnir.
Jólabasar
Sólheima
ÁRLEGUR jólabasar Sólheima í
Grímsnesi verður haldin í Templ-
arahöllinni við Eiríksgötu 5 í
Reykjavík sunnudaginn 23. nóvem-
ber og stendur milli kl. 13 og 17.
Sólheimar eru 100 manna vist-
rænt byggðahverfi þar sem búa
m.a. 40 fatlaðir einstaklingar. Á Sól-
heimum era fimm fyrirtæki, vinnu-
stofur, vefstofa, listasmiðja og
smíðastofa. Öll ræktun á Sólheim-
um er með aðferðum h'frænnar
ræktunar en Sólheimar era braut-
ryðjendur slíkrar ræktunar á Norð-
urlöndum.
Á jólabasar Sólheima gefst fólki
kostur á að sjá og kaupa fram-
leiðsluvörar íbúa Sólheima sem all-
ar eru handgerðar. Á boðstólum
verða m.a. bývaxkerfi, endurunnin
kerti, marmerað kerti, mottur, jóla-
dúkar, veggteppi, pottaleppar, óró-
ar, handmálaðar jóla- og gjafapapp-
ír, silkikort o.fl. Samhliða jóla-
basamum stendur foreldra- og
vinafélag Sólheima fyrir kökubasar
og kaffísölu. Öllum ágóða af sölunni
er varið til uppbyggingar atvinnu-
mála á Sólheimum.
LEIÐRÉTT
Bókmenntakynning
MISTÖK urðu við vinnslu fréttar í
Morgunblaðinu í gær um bók-
menntadagskrá í Kirkjuhvoli á
Akranesi á sunnudaginn. Þar kynna
höfundar verk sín, eins og sagði í
fréttinni, en verk þeirra Rögnvaldar
Finnbogasonar og Hannesar Sig-
fússonar verða kynnt. Beðist er af-
sökunar á mistökunum í fréttinni.
Rangt nafn
f ÆVIÁGRIPI Selmu Ásmunds-
dóttur á minningasíðu í blaðinu í
gær urðu þau mistök í innslætti að
Rannveig Þorvarðardóttir, hjúkran-
arfræðingur, var sögð Þórðardóttir.
Leiðréttist það hér með um leið og
hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Bókband
HAFT var eftir viðmælanda í Dag-
legu lífí í gær að enginn íslendingur
hefði haldið utan til náms í bókbandi
í 50 ár. Lesandi blaðsins hafði sam-
band og sagði það ekki rétt vera,
nokkrir íslendingar hefðu lært bók-
band á þessum tíma, meðal annars í
Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Hvernig kristnihátíð?
í GREIN Hermanns Þorsteinsson-
ar, Hvemig kristnihátíð árið 2000?,
í blaðinu í gær slæddust inn tvær
prentvillur. Upphaf greinarinnar er
rétt svona: „Mjóu munaði að til
vopnaðra átaka kæmi...“ o.s.frv.
Fyrir neðan miðjan fremsta dálk
átti að standa: „Eftir viðræður
þessara tveggja vitru gæfumanna,
þá fól Síðu-Hallur...“ o.s.frv. Er
höfundur beðinn afsökunar á prent-
villunum.