Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján SIGFÚS E. Arnþórsson í ritstjórastólnum, en hann stýrir nýju blaði, Vikudegi sem kemur út á Akureyri í byrjun næsta mánaðar. Nýtt blað, Vikudagur Svar við óskum bæjarbúa VIKUDAGUR er nafn á nýju blaði sem líta mun dagsins ljós á Akureyri 4. desember næst- komandi. Blaðið mun í fyrstu koma út einu sinni í viku, á fimmtudögum en stefnt er að því að fjölga útgáfudögum í tvo er fram líða stundir. Nýr dagur gefur blaðið út en framkvæmda- sijóri þess er Hjörleifur Hall- gríms. Sigfús E. Arnþórsson er rit- stjóri Vikudags en auk hans eru tveir starfsmenn aðrir í föstu starfi og þá munu nokkir aðrir taka þátt í útgáfunni. „Það koma ýmsir við sögu og margir eru tilbúnir að leggja okkur lið, m.a. hafa nokkrir gamlir starfsmenn Dags haft samband og bjóða fram aðstoð sína,“ sagði Sigfús. VILHJÁLMUR Ingi Árnason, for- maður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, NAN, var þungorður er hann ijallaði um málefni Neyt- endasamtakanna á almennum fundi NAN í fyrrakvöld og skaut mjög föstum skotum að Jóhannesi Gunn- arssyni, framkvæmdastjóra Neyt- endasamtakanna, og Drífu Sigfús- dóttur, formanni samtakanna. Jó- hannes og Drífa sátu fundinn og gerðu þar grein fyrir sínum sjónar- miðum. Þau töldu Vilhjálm Inga mjög oft halla réttu máli í sínum málflutningi og Vilhjálmur Ingi hafði eitt og annað við ummæli Jóhannesar og Drífu að athuga. Jóhannes Gunnarsson sagði Vilhjálmi Inga upp störfum hjá Neytendasam- tökunum nýlega og í kjöl- farið var samþykkt van- traust á Vilhjálm Inga í framkvæmdastjórn sam- takanna. Vilhjálmur Ingi sagði að eftir að vantrauststillagan var sam- þykkt hefðu stjórnarmenn lofað störf hans að neytendamálum en bent jafnframt á að hann færi stundum offari í starfi sínu. Vil- hjálmur Ingi sagði það trúlega rétt að stundum færi hann offari. Hann sagðist hins vegar ekki hafa fengið að sjá skriflegar ástæður fyrir upp- sögn sinni hjá NS. Vilhjálmur Ingi kom víða við í máli sínu og gerði m.a. athuga- Sigfús er alinn upp í Arnþórs- gerði í Köldukinn, en flutti til Akureyrar árið 1968. Hann hef- ur m.a. starfað sem innkaupa- stjóri hjá Hljómdeild KEA, rekið eigin verslun og verið dagskrár- gerðarmaður á rás 2 auk þess að taka þátt í tónlistarlífi. Gríðarleg viðbrögð Vikudagur verður 12 síðna blað í hefðbundnu dagblaðsbroti og verður því dreift í öll hús á semdir við að samtökin notuðu ólög- legan hugbúnað í tölvukerfi þeirra, einnig sagði hann að of mikiil tími og peningar hefðu farið í utanlands- ferðir Drífu og Jóhannesar á vegum samtakanna. Þá kom hann inn á samskipti sín við Jóhannes fram- kvæmdastjóra undanfarin ár og hafði ýmislegt við þau að athuga. Hann sagði að Jóhannes hefði farið að gera sér lífið leitt með boðum og bönnum eftir landsþing samtak- anna í fyrra og alfarið hætt að vinna með sér. Jóhannes sagði að þótt Vilhjálmi Inga hefði verið sagt upp störfum, væri ekki inni í myndinni að hætta starfsemi samtakanna á Akureyri. Auglýst hefði verið eftir nýjum starfs- manni og samtökin yrðu áfram með skrifstofu í bænum. Þá væri verið að skoða hvort samtökin keyrðu á ólöglegum hug- búnaði en niðurstaða lægi ekki fyrir. Boðið starf framkvæmdastj óra Drífa sagði að Vilhjálmur Ingi væri duglegur maður en allt of mikil orka hefði farið í deilur við hann. Nauðsynlegt hefði verið að taka á málinu og það hefði verið gert. Hún sagði það ákvörðun fram- kvæmdastjórnar hvaða fundir væru sóttir erlendis sem hérlendis en það væri nauðsynlegt fyrir samtökin að Akureyri og eitthvað um ná- grannasveitir í desember. Ætlunin er eftir það að bjóða blaðið í áskrift. „Við höfum feng- ið gríðarleg viðbrögð, fólk er afskaplegajákvætt. I raun erum við með þessari útgáfu að svara óskum bæjarbúa, það er mikil þörf fyrir það að gefa út bæjar- blað á Akureyri. Okkur fylgja því góðar óskir þegar við förum af stað, en gerum okkur grein fyrir því að við fáum ekki nýta sér þá þekkingu sem til væri í öðrum löndum. Vilhjálmur Ingi sagði að hann og Jón Magnússon, stjórnarmaður samtakanna, hefðu leitað eftir því við Drífu að taka að sér for- mennsku í NS á síðasta ári. Drífa sagði það aðeins hálfan sannleik- ann, því þeir hefðu líka beðið sig að taka við starfi framkvæmda- stjóra samtakanna en hún afþakk- að. Því mótmælti Vilhjálmur Ingi og sagði þá félaga aðeins hafa leit- að til Drífu um að taka að sér for- mennsku. Á þessum tíma var Jóhannes Gunnarsson bæði formaður og framkvæmdastjóri og Drífa sagðist hafa samþykkt að taka við for- mennsku fyrir orð Jóhannesar. „Mér var strax ljóst á þessum tíma áskriftir út á góðar óskir,“ sagði Sigfús. Ritsljórinn nefndi að eftir að Dagur hætti að koma út sem bæjar- og héraðsblað hefði skap- ast ákveðið tómarúm. „Það er hluti af sjálfstæðri bæjarmenn- ingu að hér sé gefið út sérstakt bæjarblað," sagði Sigfús en að hans mati var það menningar- legur glæpur að selja Dag á sín- um tíma, yfir 80 ára gamalt bæjarblað. „Það sem raunveru- lega er að gerast núna er að Tíminn er að misnota nafn Dags.“ Hagsmunir Akureyringa að leiðarljósi „Við ætlum að höfða til íbúa á Akureyrarsvæðinu, sækja efni bæði hér innanbæjar og eins víða um Eyjafjörð og austur í Þing- eyjarsýslur. I blaðinu verða fréttir af svæðinu, pistlar og ýmislegt skemmtiefni. Við ætl- um okkur að gefa út skemmti- legt blað, en það þýðir ekki endi- lega að blaðið verði ómerkilegt, það verður óvægið og tekur ekki pólitíska afstöðu. Við ætlum að hafa hagsmuni Akureyrar og Akureyringa að Ieiðarljósi," sagði Sigfús. að Viihjálmur Ingi var ekki sáttur við Jóhannes og Jóhannesi var ekki kunnugt um að mér hefði verið boðið starf hans fyrr en nú í haust, að ég lét hann vita af því,“ sagði Drífa. Þórarinn Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar og stjórnarmaður í NAN, spurði Drífu hvort Jóhannes Gunnarsson væri rétti maðurinn til að halda Neytendasamtökunum saman til framtíðar. Drífa sagðist bera fullt traust til Jóhannesar. Hann væri vel fær um að halda samtökunum saman og enginn vissi meira um neytendamál en hann. Hún benti á að þegar Jóhannes hefði komið að samtökunum hefði félagsmenn ver- ið um 3.500 en í dag væru félags- menn rúmlega 19.100 að tölu. MESSUR AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli í Safnaðar- heimili á morgun kl. 11. Forel- draspjall í fundarsal, Anna El- isa Hreiðarsdóttir leikskóla- kennari ræðir um aðventuna og undirbúning jólanna hjá fjölskyldum. Samvera með yngstu börnunum í kapellunni á meðan. Guðsþjónusta fellur niður vegna biskupsvígslu séra Karls Sigurbjörnssonar. Æskulýðsfélagið heldur fund í kapellu kl. 17. Bibiíulestur verður í Safnaðarheimili á mánudagskvöld kl. 20.30. Mömmumorgunn kl. 10 til 12 á miðvikudagsmorgun, Kynn- ing verður á aðventuskreyting- um frá Blómabúðinni Akri. Fyrirbænaþjónusta verður í kirkjunni kl. 17.15 á fimmtu- dag. Bænarefnum má koma til prestanna. GLERÁRKIRKJA: Kirkju- skóli barnanna kl. 13 í dag, laugardag. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börn- um sínum. Fundur æskulýðs- félagins verður kl. 20 á sunnu- dagskvöld. Kyrrðar- og bæna- stund verður kl. 18.10 á þriðju- dag. Biblíulestur kl. 20.30 sama dag. Postulasagan er les- in. Þátttakendur fá stuðnings- efni sér að kostnaðarlausu. HJ ÁLPRÆÐISHERINN: Köku- og laufabrauðsbasar kl. 14 í dag, laugardag. Sunnu- dagaskóli kl. 11 á morgun, al- menn samkoma kl. 17, ungl- ingasamkoma kl. 20. Heimila- samband kl. 15 á mánudag, krakkaklúbbur kl. 17 á mið- vikudag og bæn og lofgjörð kl. 17.30 á fimmtudag. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Karlasamvera kl. 10 í dag, fjöl- skyldusamkoma kl. 14 á morg- un. G. Theodór Birgisson pred- ikar. Krakkakirkja og barna- pössun á meðan. Vitnisburðar- samkoma á miðvikudag kl. 20.30. Krakkaklúbbur kl. 17.15 á föstudag, samkoma í umsjá ungs fólks sama dag kl. 20.30. Mikill og fjölbreyttur söngur, bænastundir alla daga, kl. 14 á þriðjudögum og fimmtudögum en aðra virka daga ki. 6-7 á morgnana. Vonarlínan, uppörvunarorð úr ritningunni, 462 1210. KFUM og K: Bænastund kl. 20 á sunnudagskvöld. Fundur í yngri deild kl. 17.30 á mánu- dag fyrir drengi og stúlkur 8-12 ára. LAU GALANDSPRESTA- KALL: Sóknarprestur minnir sveitunga á messuna í Hólum fram, sunnudaginn 23. nóvem- ber kl. 13.30. Endurbætur hafa staðið yfir á kirkjunni og hún máluð innan, kirkjukaffi í boði sóknarnefndar eftir messu. SJÓNARHÆÐ: Unglinga- fundur í dag, laugardag, kl. 20. Allir unglingar velkomnir. Ath. breyttan tíma, aðeins í þetta skipti. Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30. Ástjamarfundur kl. 18 á mánudag, fyrir krakka á aldr- inum 6-12 ára. Allir velkomn- ir. Forystumenn Neytendasamtakanna og formaður NAN deildu á fundi á Akureyri Þung" orð látin falla Morgunblaðið/Kristján DRIFA Sigfúsdóttir, formaður Neytendasamtakanna, ávarpar fund Neytendafélags Akureyrar og nágrennis. Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður NAN, situr við hlið hennar. son, frarakvæmda- stjóri Neytenda- samtakanna. Lionsklúbbar afhenda grunnskólabörnum litabækur Allt um brunavarnir á heimilum FULLTRÚAR frá Lions- klúbbunum Hæng og Ösp á Akureyri, hafa síðustu daga heimsótt nemendur í 3. bekk í grunnskólum bæjarins, ásamt slökkviliðsmanni. í heimsókn- um sínum hefur lionsfólkið afhent, börnunum litabækur að gjöf, þar sem þeim gefst jafn- framt kostur á að læra allt um brunavarnir á heimilum. Þetta er í fjórða sinn sem Lionsklúbbarnir heimsækja 3. bekkinga og færa þeim litabækur og þetta árið eru nemendur í þeim árgangi tæp- lega 300 talsins. Jóhann Jóns- son slökkviliðsmaður fór yfir efni bókarinnar með börnun- um og í kjölfarið vöknuðu upp ýmsar spurningar hjá þeim. Jóhann lagði sérstaka áherslu á að yfir jólahátíðina væri mikil eldhætta á heimilum og þá ekki síst í kringum kerti og kertaskreytingar. Hann sagði jafnframt nauðsynlegt að foreldrar færu í gegnum litabókina með börnum sínum, þótt börnin fengju sjálf að lita myndirnar. Jóhann sagði að í heimsóknum í skólana hafi börnin spurt margra spurn- inga um brunavarnir en greini- legt væri þó að þau vissu ýmis- legt um þau mál. Morgunblaðið/Kristján JOHANN Jónsson slökkviliðsmaður ræðir efni litabókarinnar við börnin í 3. bekk í Giljaskóla. Fyrir aftan hann standa Kjartan Bragason og Kristín Iijaltalin frá Lionsklúbbunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.