Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 13 FRÉTTIR 36 milljarða vantar svo eignir LSR standi undir skuldbindingum 4 milljarðar vegna annarra starfsmanna en ríkisins SAMKVÆMT mati trygginga- fræðings vantaði 36 milljarða upp á að eignir Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins, að meðtöldum kröfum á hendur launagreiðend- um um greiðslu lífeyrishækkana, dygðu fyrir öllum skuldbindingum hans. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endur- skoðun ríkisreiknings fyrir 1996. „Ætla má að af þeim 36,0 milljörðum króna sem á vantar séu tæplega 4,0 milljarðar króna sem falla á ríkissjóð vegna ann- arra starfsmanna en ríkisins. Má hér einkum nefna starfsmenn ýmissa sveitarfélaga, sparisjóða, stjórnmálaflokka o.fl. Ríkisend- urskoðun telur að stjórnvöld þurfi að taka mál þetta til sérstakrar umfjöllunar," segir í skýrslunni. Telur að færa hafi átt 7,9 milljarða til gjalda í stað 3,6 Ríkisendurskoðun greinir á við fjármálaráðuneyti um hvernig færa eigi hækkun lífeyrisskuld- bindinga á árinu 1996 vegna launahækkana en sá ágreiningur kom einnig fram á seinasta ári þegar stofnunin áritaði ríkis- reikning 1995 með fyrirvara. Ríkisendurskoðun telur að færa eigi alla hækkun lífeyrisskuld- bindinga til gjalda í rekstrar- reikningi að undanskilinni hækk- un vegna verðbreytinga og mun- ar þar 4,3 milljörðum kr. á niður- stöðu Ríkisendurskoðunar og á færslu ráðuneytisins í ríkisreikn- ingi ársins. „Stofnunin telur að i rekstrar- reikningi A-hluta ríkissjóðs eigi að taka tillit til hækkunar lífeyr- isskuldbindinga sem eru vegna eldri starfsmanna og tengjast kjarasamningum. Samkvæmt því telur stofnunin að færa hefði átt 7,9 milljarða króna í gegnum rekstrarreikning í stað 3,6 millj- arða króna eins og gert var,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðun- ar. í ríkisreikningi voru hins veg- ar færðir 3,6 milljarðar með rekstrargjöldum en 5,4 milljarðar kr. sem endurmat á höfuðstól. Nemendur and- vígir flutningi Sjómannaskóla UNNÞÓR Torfason, formaður Skólafélags Vélskóla íslands, af- henti á fimmtudag Ólafi G. Einars- syni, forseta Alþingis, mótmæli nemenda við hugmyndum um að Stýrimannaskólinn og Vélskólinn verði fluttir úr húsi Sjómannaskól- ans á Rauðarárholti. Jafnframt fékk þingforseti kaffikönnu með mynd af Sjómannaskólanum og fá allir alþingismenn slíkan grip að gjöf. í mótmælabréfi vélskólanem- enda segir m.a.: „Það er mjög al- varlegt mál ef menntamálaráð- herra ætlar sér, í krafti stöðu sinn- ar, að knýja fram áðurnefndan flutning skólanna í algerri and- stöðu við þá sem húsið var byggt fyrir, þ.e. íslenzka sjómenn." Morgunblaðið/Ásdís Kópavogur með vissa forystu í ferlimálum Aðgengi fyrir alla Kópavogsbær hefur gengið fram fyrir skjöldu og látið aðgeng- ismál f atlaðra til sín taka af meiri festu en nokkru sinni fyrr. HELGA Skúladóttir er formaður Ferlinefndar Kópavogs og hún seg- ir að framkvæmd ferlimála í bæn- um sé komin í mjög viðunandi og góðar skorður, en aðilar á vegum nefndarinnar starfa nú bæði með þeim sem reisa eða breyta mann- virkjum á vegum bæjarins, svo og þeim sem gera hið sama fyrir einkaaðila. „Þetta er mikilvæg nýjung í starfsemi ferlinefndarinnar í Kópa- vogi, ekki síst sá liðurinn sem snýr að þeim sem eru að vinna fyrir einkageirann. Það er til dæmis blindraráðgjafi starfandi með þeim sem eru að reisa Rúmfatalagers- húsið,“ segir Helga. Hún heldur áfram og bendir á að þetta sé í anda stefnu sem Kópavogsbær hafi markað í aðgengismálum yfir- leitt, ekki aðeins fyrir fatlaða, held- ur alla. Gangstígur sem markar tímamót Helga segir að í sumar sem leið hafí markverðu verkefni iokið sem tengist þessari nýju stefnu og Helga Skúladóttir vinnubrögðum, er gangstígur var lagður frá Blindrabókasafn- inu að Digranesvegi 5 að Gjábakka, félags- miðstöð eldri borgara í Kópavogi, að Fann- borg 8 og þaðan í Hamraborgina. „Þarna vann með Ferlinefnd- inni blindraráðgjafi og leiðin er sérstaklega merkt fyrir blinda og sjónskerta. Þetta er að ég held í fyrsta skipti sem slíkt er gert hér í bænum og er aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal í þeim efnum. Og eins og ég gat um áðan, þá er þessi vinna auk þess til mik- illa hagsbóta fyrir alla, ekki bara þá sem eru fatlaðir á einn hátt eða annan,“ segir Helga. Ferlinefnd Kópavogs er fimm manna nefnd á vegum Kópavogs- bæjar. Þrír eru skipaðir af Kópa- vogsbæ og tveir eru tilnefndir af samtökum fatlaðra. Auk þess starfa með nefndinni einstaklingar frá tæknideild bæjarins og félags- málastofnun Kópavogs. En hvern- ig er framkvæmd ferlimála í Kópa- vogi? „Það hefur verið afar góð sam- vinna milli Ferlinefndar og Tækni- deildar bæjarins. Ásamt nefndinni hefur starfsfólk Tæknideildar haft frumkvæði að mörgum þáttum í ferlimálum og hefur það leitt til þess að svo vel hefur tekist til í ferlimálum í Kópavogi. Skipulögð vinnubrögð eru viðhöfð til að fylgj- ast með því að nýjar byggingar uppfylli nútímakröfur í þessum efnum. Ég kom reyndar aðeins að þessu áðan. Þegar ráðist er í nýjar framkvæmdir, sem tengjast bænum beint eða óbeint, óskar nefndin eftir teikning- um til skoðunar. Arkí- tektar og hönnuðir funda með okkur og teikningar og upp- drættir eru yfirfamar. Síðan fylgist nefndin með framkvæmdum meðan á byggingar- tímanum stendur og loks má kannski orða það svo að við útskrif- um bygginguna. Ég get nefnt nokkrar byggingar sem nefndin hefur fylgst með á þennan hátt síðustu árin, Hjalla- kirkja, Digraneskirkja, Matvæla- skólinn, Sundlaugin, Listasafn Kópavogs, íþróttahús Breiðabliks og mörg fleiri. Ef ég nefni dæmi um tillögur um úrbætur sem nefnd- in hefur komið á framfæri þá mætti nefna lyftur sem settar hafa verið í Kópavogsskóla, Mennta- skólann og Tónlistarskólann." Hvað tekur nú við? „Ferlinefndin er á vissum tíma- mótum þar sem framundan eru stórfelldar framkvæmdir í Smáranum á næstu misserum. Við erum komin í samstarf við einkaað- ilana og fyrsta verkefni nefndar- innar á þeim slóðum er Smáratorg 1, Rúmfatalagershúsið, eins og ég gat um áðan. Kópavogsbær hefur haft vissa forystu í þessum efnum og Ferlinefndin mun leggja sig fram við að áfram verði unnið að þessum málum af fullum krafti,“ segir Helga. Ríkisendurskoðun endurskoðar ríkisreikning 1996 Athugasemdir við ferðakostnað hjá 37% stofnana GERA þarf verulegt átak til að lag- færa innra eftirlit varðandi bókhald og fjármál ríkisstofnana, að mati Ríkisendurskoðunar. Endurskoðun Ríkisendurskoðunar á úrtaki 73 rík- isstofnana fyrir seinasta ár leiddi m.a. í ljós að eignaskráningu var ábótavant hjá 71% stofnananna og hjá 37% stofnana voru gerðar at- hugasemdir við ferðakostnað. Voru m.a. gerðar athugasemdir við að ferðareikningar væru seint útbúnir eða yfirhöfuð ekki gerðir. Þetta kemur fram í skýrslu um endur- skoðun ríkisreiknings 1996. Athugasemdir voru gerðar vegna launakostnaðar og viðveruskrán- ingar hjá 52% stofnana, m.a. vegna skorts á eftirliti með viðveru starfs- manna og að starfsmenn fái fyrir- framgreidd laun. Gerðar voru margháttaðar athugasemdir við tekjuskráningu hjá 43% stofnana þar sem þetta atriði var skoðað. Virðisaukaskattsmál voru ekki í fullkomnu lagi hjá 44% stofnana. Var m.a. talið á skorta að innheimt- ur væri virðisaukaskattur af allri skattskyldri þjónustu. Hjá 24% stofnana voru gerðar athugasmedir við sjóði og bankareikninga. Eftir- liti með stöðu viðskiptareikninga var talið áfátt hjá 34% stofnana. Athugasemdir við risnu hjá fjórðungi stofnana í 23% tilvika voru gerðar athuga- semdir við fyrirkomulag innkaupa á vörum og þjónustu og athuga- semdir voru gerðar við aksturs- kostnað hjá 22% stofnana, m.a. furir þá sök, að akstursskýrslur væru ekki fylltar út og ekki var alltaf getið tilefni bílaleigu. í fjórð- ungi tilfella voru gerðar athuga- semdir við risnuútgjöld, m.a. þar sem ekki var gerð fullnægjandi grein fyrir þeim kostnaði. Hjá 40% stofnana voru gerðar athugasemdir við slæma fjárhags- stöðu og/eða vegna þess að útgjöld voru umfram fjárheimild. HAFNFIRÐINGAR • • PROFKTOR Sjálfstæðisflokksins fer fram í Víðistaðaskóla í dag kl. 10-20 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna bæjarstjórnarkosninganna 1998 fer fram í dag, laugardaginn 22. nóvember í Víðistaðaskóla milli kl. 10.00 og 20.00. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum félagsmönnum í Sjálfstæð- isflokknum í Hafnarfirði sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag. At- hygli er vakin á því að hægt er að skrá sig í flokkinn á kjörstað til loka kjörfundar. Sjálfstæðismenn eru hvattir til að taka þátt í prófkjörinu og hafa þannig áhrif á skipan framboðslitsa flokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar. OPIÐ HÚS________________________________ Lítið við í kaffi í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu í dag og á kosningavökunni á sama stað í kvöld. Fyrstu tölur væntanlegar um kl. 21.00. Sjálfitœðisjlokkurinn í Hajnatfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.