Morgunblaðið - 22.11.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 55
FÓLK í FRÉTTUM
LAUGARDAGSMYNDIRSJONVARPSSTOÐVANNA
Sýn ►21.00 Gamall góðkunningi
áhorfenda og lögreglunnar, Sylvester
Stallone, hressir uppá tilveruna á laug-
ardagskvöldið í Blóðtöku 2 (Rambo:
First Blood Part II), sem við Arnaldur
gáfum ★ ★ í Myndbandahandbók
heimilanna. Með þeim rökstuðningi
að hin afskipta hetja Víetnamstríðs-
ins, tromp fyrstu myndarinnar, væri
orðin „ósigrandi stríðshetjuímynd Re-
agan-tímabilsins“. Ekki er það glæsi-
legt. Myndin, sem gerist í Kambodíu
(og sýnir hvernig Kanar hefðu malað
Víetnam stríðið með svosem eitt stykki
Rambó í vopnabúrinu) er engu að síð-
ur bærileg afþreying. Óþokkarnir, með
Steven Barkoff í fylkingarbrjósti, í
fyrsta gæðaflokki.
Stöð 2 ►23.05 Jon Peters nefnist
maður. Komst inní kvikmyndaheiminn
sem hárgreiðslumeistari og síðar hjá-
svæfa Barbru Streisand. Framleiddi
nokkrar metaðsóknarmyndir ásamt
félaga sínum Pere Guber. Fyrir
slembilukku, ef mark er takandi á bók
um þá og hét Ekið afslysstað (nafnið
höfðar til ástandsins hjá Columbia-
TriStar eftir að þeir voru reknir þaðan
úr æðstu embættum). Síðan heyrðist
fátt frá Peters um árabil eða þangað
til hann framleiddi Peningalestina
(Money Train 1995). Hún segir af
„bræðrunum" Wesley Snipes og Wo-
ody Harrelson sem ræna peningalest
og lenda uppá kant útaf kvenmanni.
Sannar slembilukkukenninguna. ★ 'h
Sjónvarpið ►23.10 Skrykkjótt
Skotlandsferð (Soft Top, Hard Sho-
ulder) er nýleg, bresk smámynd, gerð
rétt áður en þær komust aftur í tísku.
Leikstjórinn, Stefan Schwartz, áeina
af þessum nýbylgjumyndum, Shooting
Fish, sem er að hefja göngu sína í
Stjörnubíó. Skrykkjótt Skotlandsferð
segir frá brösóttu ferðalagi manns sem
heldur til Glasgow frá London, bilaður
bíll og bilaður puttaferðalangur koma
við sögu. Films in Reviewgefur
★ ★ ★
Sæbjörn Valdimarsson
Kryddgleði
► SPICE Girls stúlkurnar gátu tekið gleði sina á ný þegar þær fengu
verðlaun sem besta alþjóðlega hljómsveitin á spænsku tónlistarhátíð-
inni „Amigo“ sem var haldin í Madríd í vikunni. Þær Geri, Mel C.
og Mel B. sungu og dönsuðu ásamt hinum kryddunum af krafti á
hátíðinni þakklátar fyrir hvern góðan dag.
Sjónvarpið ►21.25 Ekki er allt
jafn slétt og fellt og það sýnist á
ytra borðinu i Löðri (Soapdish
1991), býsna skemmtilegri mynd
þar sem skoðað er baksvið hinna
svokölluðu „sápuópera" í sjón-
varpinu. Svo er kallað innihaldsr-
ýrt léttmeti, ógnarlangir þættir
sem gengið hafa árum saman,
sumir hverjir. Þrátt fyrir andleysið
er þetta vinsælt efni en sápuorð-
ið fengu þeir á sig strax í upp-
hafi, þar sem þessir þættir voru
ósjaldan framleiddir af sápufram-
leiðendum (sem vissu mætavel
hjá hvaða markhópi löðrið var
vinsælast).
Vestur í Hollywood er verið að
úthluta hinum árlegu verðlaunum
fyrir besta efnið sem sent er út
að degi til á skjánum og því fólki
sem að því stendur. Celeste Tal-
bert (Sally Field) er valin besta
leikkonan og jafnframt hlýtur hún
heiðurstitilinn „Ljúflingur ársins11
- þótt hún sé ósvffin skepna á
bak við huggulega framhliðina.
Niðurrif
Celeste
Sally Field) er valin
besta leikkonan
Einkum nfðist hún á samleikurum
sínum, með Montana (Cathy
Moriarty) fremsta í flokki. Þeir
gera allt til að jafna um hana,
ekki síst Jeffrey (Kevin Kline),
persóna sem er skrifuð inní þætt-
ina eftir tuttugu ára hlé! Öfund,
græðgi og spilling í einkalifi leik-
aranna setur mark sitt á þættina
(sem heita þvf ágæta nafni The
Sun Also Sets, og vfti menn, þeir
verða vinsælli fyrir bragðið.
Löður gekk ekki sem best í
kvikmyndahúsum á sínum tíma,
ætli að ástæðan hafi ekki verið
sú að efnið er full sjónvarpslegt.
Gómið hana á skjánum. Þetta er
meinfyndin mynd, sem beinlínis
löðrar f illskeyttnum athuga-
semdum, óvægnum gálgahúmor
og góðum leik, ekki aðeins hjá
Field, Kline og Moriarty (sem er
ein besta gamanleikkona sam-
tímans en fær alltof sjaldan ærleg
hlutverk), heldur eiga þau góðar
stundir Robert Downey, Jr., og
Whoopi Goldberg. ★ ★ ★
I i FRAMTÍÐ FRANS
UNGIR FRANSKIR LEIKSTJÖRAR
HÁsiSuSó
DAGS. KL. 5
Laugard. 22. Növ. p OUBLIE-MOI
Sunnud. 23. Nóv.
Mönud. 24. Nóv.
Þriðjud. 25. Növ.
Miðvikud. 26. Nóv.
Fimmtud. 27. Nóv.
AUGUSTIN
L'AGE DES POSSIBLES
AUGUSTIN
ROSINE ------------
L'AGE DES POSSIBLES
KL. 7
ÉTAT DES LIEUX
r~ L'AGE DES POSSIBLES
OUBLIE-MOI
ROSINE
OUBLiE-MOI
ÉTAT DES LIEUX
KL. 9
ROSINE
OUBLIE-MOI
AUGUSTIN
ÉTAT DES LIEUX
L’AGE DES POSSIÐLES
AUGUSTIN
HÁSKÓLABÍÓI - 22. - 27. NOVEMBER
Heimabakað er best, kökubæklingur Nóa Síríus hefur
fengið mjög góðar viðtökur hjá íslenskum sælkerum
og er uppseldur hjá útgefanda.
Því miður slæddust villur í bæklinginn. Þess vegna
birtum við hér þessar leiðréttu uppskriftir.
Vinsamlegast færið leiðréttingarnar inn í bæklinginn.
1 1/4 dl rjómi
200 g Síríus rjómasúkkulaði
150 g Opal hnappar (orange)
2 msk. smjör
11/2 tsk. rifið hýði af appelsínu (eða
líkjör, t.d. Grand Marnier)
350 g Síríus suðusúkkulaði (konsum)
iunr»
SKÓR FYRIR KARLMENN
Teg. BOCAS
PONTUS
Tee.
Mikið úval af breiðum
Lloyd skóm
Nýkomin sendj
★ -.