Morgunblaðið - 22.11.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reykjavíkurborg býður bæjarfulltrúum frá Akranesi í heimsókn
Rætt um sam-
starf um almenn-
ingssamgöngur
BÆJARFULLTRÚAR frá Akranesi
heimsóttu borgarstjórn Reykjavíkur
í gær og við það tækifæri óskaði
formaður stjórnar Strætisvagna
Reykjavíkur eftir formlegum við-
ræðum við bæjarstjórnina um sam-
starfsmöguleika á sviði almenn-
ingssamgangna.
I stjórn SVR var samþykkt tillaga
17. nóvember um að leita samstarfs
við bæjaryfirvöld Akraness um
rekstur almenningssamgangna en
frá 15. nóvember tók SVR að sér
að sjá um almenningssamgöngur
milli Kjalamess og Reykjavíkur. Var
samið við Teit Jónasson sérieyf-
ishafa um að annast aksturinn. Ámi
Þór Sigurðsson, formaður stjórnar
SVR, kynnti þessar hugmyndir fyrir
bæjarfulitrúunum frá Akranesi og
óskaði formlegra viðræðna um mál-
ið.
í greinargerð með tiliögunni segir
að með tilkomu jarðganga undir
Hvalfjörð og því að ferðir Akraborg-
ar leggjast af muni skapast nýjar
forsendur í almenningssamgöngum
beggja vegna Hvalfjarðar. Segir að
norðan ganganna sé 5-6 þúsund
manna þjónustusvæði sem geti gert
strætisvagnarekstur fýsilegan og því
er talið eðlilegt að leita samstarfs
við bæjaryfirvöld á Akranesi um
skipulag almenningssamganga.
Kristín Árnadóttir, aðstoðarmað-
ur borgarstjóra, sagði bæjarfulltrúa
hafa tekið vel í hugmyndina en
heyrst hefðu þó mótmælaraddir við
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÁRNI Þór Sigurðsson, formaður stjórnar SVR (t.h.),
og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi.
þeirri hugmynd að leggja ferðir
Akraborgar niður þrátt fyrir að
göngin kæmu til. Hún sagði að
næsta skref yrði útfærsia á slíkum
rekstri ef af viðræðum yrði, leita
t.d. tilboða frá sérleyfishöfum eða
öðrum.
Bæjarfulltrúunum frá Akranesi
var boðið í Engjaskóla þar sem
skólamál voru kynnt, skoðuð var ný
félagsmiðstöð unglinga í Rima-
hverfi, nýja hverfismiðstöðin Mið-
garður í Grafarvogi, leikskólinn
Vættaborgir heimsóttur og endað
var hjá Vatnsveitunni áður en haldið
var til móttöku í Höfða.
Prófkjör í Bessastaða-
hreppi og Hafnarfirði
Kosið
í dag
PRÓFKJÖR fer fram í dag hjá sjálf-
stæðismönnum í Hafnarfirði og í
Bessastaðahreppi.
í Hafnarfirði verður kosið í Víði-
staðaskóla og stendur kjörfundir
milli kl. 10 og 20. Úrslit munu
væntanlega liggja fyrir um kl. 21.
Þátttaka í prófkjörinu er heimil öll-
um félagsmönnum í Sjálfstæðis-
fiokknum sem náð hafa 16 ára aldri
á kjördegi.
í Bessastaðahreppi verður kosið
í íþróttahúsi Bessastaðahrepps og
stendur kjörfundur milli kl. 10 og
18 og er búist við að úrslit liggi
fyrir milli kl. 21 og 22. Prófkjörið
er opið öllum sem lýsa stuðningi
við Sjálfstæðisfélagið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórnarfundur SÍF
Kaupin á
Hovden í
Noregi
samþykkt
STJÓRN SÍF hf. hefur sam-
þykkt að dótturfyrirtæki SÍF
í Noregi, Mar-Nor a.s. kaupi
50% hlut í fískframleiðslufyrir-
tækinu Hovden Fiskindustri
a.s. í vestraalen í Norður-Nor-
egi.
Kaupin byggjast á sam-
komulagi milli Melbu Fiskind-
urstri a.s. annars vegar og
Mar-Nor og Leif og Arvid
Tobjömsen hins vegar en Leif
og Árvid eru einnig samstarfs-
aðilar Mar-Nor í fiskfram-
leiðslufyrirtækinu Loppa fisk
a.s. í Öksfjord.
í Hovden Fiskindustri mun
fyrst og fremst eiga sér stað
framleiðsla á saltfískafurðum,
en jafnframt er aðstaða til
framleiðslu á frosnum bolfisk-
afurðum og síldarafurðum.
Hinir nýju eigendur munu taka
yfir reksturinn frá og með 31.
desember næstkomandi.
Kaupin á Hovden Fiskind-
ustri eru liður í frekari upp-
byggingu hjá Mar-Nor á stöðl-
uðum saltfiskafurðum, sem
henta fyrir markaðskerfi SÍF
samstæðunnar.
Hávaði
ógnar fólki
í borg
MÁLÞING um hávaða og heyrn-
arskaða var haldið í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær í tilefni 60 ára
afmæli Heyrnarhjálpar. Þar var
m.a. rætt um hávaða sem vax-
andi umhverfismengun og ógn
við fólk í borg, hvenær hávaði
teljist skaðlegur og hver annist
eftirlit með hávaða. í ræðustóli
er Vilhjálmur Rafnsson yfirlækn-
ir hjá Vinnueftirlitinu.
Ummæli talsmanna veitustofnana um samantekt á raforkuverði til heimilisnota
Raunlækkun á
raforkuverði
Rafmagnsverð til heimilisnota hefur lækkað á Suðumesjum um
11% en hækkað um 10% í Reykjavík á árunum 1993-1997, sam-
kvæmt yfírliti sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Talsmenn veitu-
stofnana telja samanburðinn ekki raunhæfan.
KRISTJÁN Jónsson, forstjóri Raf-
magnsveitu ríkisins, segir saman-
burð ekki raunhæfan, þar sem ein-
göngu sé um rafmagn til heimilis-
nota að ræða. Nær væri að bera
saman meðalverð yfir allt landið.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar veitustofnana, bendir á að
Hitaveita Suðurnesja greiði engan
arð auk þess sem hún framleiði sjálf
60% af sinni raforku.
Alfreð sagði að frá því núverandi
meirihluti í borgarstjórn Reykjavík-
ur hafi tekið við í maí 1994, hafi
raforkuverð í Reykjavík hækkað um
4,8%. „Á sama tíma hefur neyslu-
vísitalan hækkað um 7,1% og miðað
við þessar tölur er raunlækkun á
raforku til Reykvíkinga um 2,3%,“
sagði hann. „Þegar tillit er tekið til
þess að Rafmagnsveitan ætlar að
taka á sig 1% hækkun af völdum
Landsvirkjunar um áramótin og
lækka að auki verðið um 2% þá er
raunlækkun raforku í Reykjavík um
næstu áramót orðin 5,3%. Þetta er
það sem við berum ábyrgð á. Við
getum ekki tekið á okkur þær
hækkanir sem urðu árið 1993 og í
byijun árs 1994 en þær voru mikl-
ar vegna hækkunar hjá Landsvirkj-
un.“
Framleiðir sjáif 60%
Alfreð sagði að Hitaveita Suður-
nesja gæti fyrst og fremst boðið
iægra raforkuverð vegna þess að
hún framleiddi sjálf um 60% af
þeirri raforku sem hún selur en
Rafmagnsveita Reykjavíkur keypti
sína orku á þrefallt hærra verði.
„Þá má geta þess að Hitaveita Suð-
urnesja greiðir ekki arð til eigenda
sinna,“ sagði Alfreð. „En Raf-
magnsveitu Reykjavíkur er gert að
greiða árlega milli 500 og 600 millj-
ónir í borgarsjóð. Þá sýnist mér
einsýnt að Varnarliðið á Kefiavíkur-
flugvelli greiðir orkukostnað Suður-
nesjabúa niður með því að Hitaveita
Suðurnesja lætur Vamarliðið greiða
miklu hærri orkugjöld miðað við
almennan notanda á Suðurnesjum.
Tekjur Hitaveitu Suðurnesja frá
Varnarliðinu voru 1.085 milljónir á
síðasta ári en það eru 65% af tekj-
um veitunnar." Sagði Alfreð að
miðað við þessar forsendur ætti
veitan að geta boðið upp á enn
lægra verð til almennings en hún
gerði.
Samsetning önnur í dreifbýli
Kristján sagði að samanburður á
verði á raforku til heimilisnota væri
ekki raunhæfur. Eingöngu sé um
að ræða raforku til heimilisnota og
miðað við 3.500 kWh notkun á ári,
sem ætti frekar við í Reykjavík, þar
sem yfirleitt væri um litlar íbúðir
að ræða, en í dreifbýli væri meira
um einbýlishús. „Notkunin er nær
4.500 kWh á ári hjá okkur,“ sagði
hann. „Það á reyndar ekki eingöngu
við um okkar svæði heldur allar
rafveitur úti á landi. Þar er sam-
setningin önnur og við það breytist
þessi samanburður.“ Kristján benti
á að árið 1993 hefði rafmagnsverð
til heimilisnota lækkað um 10%
þannig að ef samanburðurinn hefði
náð lengra aftur í tímann hefði
komið fram að verðið hefur hækkað
um 2,1% í stað 7% eins og saman-
burðurinn sýndi. „Í svona saman-
burði getur munað miklu eftir því
hver upphafspunkturinn er,“ sagði
hann. „Rafveitur hækka ekki eða
lækka allar á sama tíma. Þá má
ekki gleyma því að á sama tíma
og Landsvirkjun hækkaði verðið um
21% hækkuðum við um 13% en
orkuverð frá Landsvirkjun hefur
bein eða óbein áhrif á allar þessar
veitur sem kaupa frá Landsvirkj-
un.“
Kristján sagði að Hitaveita Suð-
urnesja byggi við mjög góðar að-
stæður í orkuöflun og hagstæðan
markað á Keflavíkurflugvelli. „Þeir
hafa ekki þurft að hækka á undan-
förnum árum, sem betur fer fyrir
þeirra viðskiptavini,“ sagði hann.
„Við erum aftur á móti með erfið-
asta svæðið á landinu sem er allt
stijálbýlið. Tii dæmis erum við með
yfir 8.000 km háspennulögn en
Rafmagnsveita Reykjavíkur er með
innan við 700 km og á Suðurnesjum
mun minna. Okkar svæði er því
mjög erfítt og dýrt í uppbyggingu
og rekstri. Við erum einnig með
stærsta hlutann af þessum svoköll-
uðu köldu svæðum landsins þar sem
rafhitun er í raun seld á lágu verði
þótt menn séu að kvarta undan
henni í samanburði við hagstæðustu
veiturnar. Stór hluti okkar notenda
er bæði með heimilisrafmagn og
rafmagn til hitunar, sem er á mikiu
lægra verði. Það væri því nær að
bera saman meðalverð yfir allt land-
ið og þá erum við líklega lægstir.
Þeir sem eru með rafhitun hjá okk-
ur og heimilisnotkun greiða sinn
reikning miðað við meðalverð eða
heildarnotkun.“